Dagur - 30.03.1990, Síða 5
Föstudagur 30. mars 1990 - DAGUR - 5
Grcinarhöfundur á hestbaki.
gegn þeim sjúkdómaflokki með
reykbindindi, neyzlu grænmetis-
og trefjaríkrar fæðu á kostnað
fitu svo og með hófsemi í mat og
drykk. í þessu sambandi leyfi ég
mér að fullyrða, að misnotkun
áfengis sé stærsta heilsufars-
vandamál íslendinga, enda eru æ
fleiri sannanir að koma í Ijós um
skaðsemi þess á líkama, sál og
félagslega velferð fórnarlamb-
anna. Erlendar athuganir gefa,
tilefni til að ætla, að tíundi hver
karlmaður, sem neytir áfengis á
íslandi í dag, sé ekki lengur herra
yfir áfenginu og noti það sér til
heilsutjóns, skaða og skammar.
Pjóð vor virðist hins vegar ekki
reiðubúin að hlusta á slíkar stað-
reyndir og snýst gegn áfengis-
bölinu með dæmigerðum ramm-
íslenzkum hætti og byggir stór-
fenglegar meðferðarstofnanir
með fleiri sjúkrarúmum fyrir
áfengissjúka en þekkist annars
staðar á byggðu bóli. Samtímis
bíður áfengissjúklinganna stöð-
ugt aukið framboð áfengra
drykkja, þegar þeir útskrifast. En
einu vopnin, sem bíta í þessum
efnum, er einörð þjóðarafstaða
gegn áfenginu líkt og gegn
tóbaksnotkun. - En á ég að gæta
bróður míns og fórna einhverju
fyrir hann? - Svari hver eftir
sinni samvizku.
Fram á þessa öld herjuðu svip-
aðir sjúkdómar á okkur íslend-
inga og nú sjúga merginn úr ríkj-
um 3ja heimsins. Þetta var
tímabil örbirgðarkvilla, sem ein-
kenndist af skortssjúkdómum og
hárri sýkingatíðni, oft með miklu
mannfalli og tíðum dauðsföllum
ungbarna. Upp úr stríðinu hófst
hjá okkur tímabil ofneyzlukvilla,
sem einkennist af mikilli tíðni
hjarta- og æðasjúkdóma, sykur-
sýki og offitukvilla auk krabba-
meins og ýmissa sjúkdóma, sem
af reykingum og áfengisnautn
leiðir. Við tímabil ofneyzlukvilla
skarast svo tímabil vantrúar-
kvilla, sem við erum núna að
sigla inn í og sem einkennist af
ýmsum kvillum og kvörtunum,
sem ekki eiga sér líffræðilegar
orsakir, en stafa fremur af van-
getu viðkomandi einstaklings að
kljást við áhættur og erfiðleika
lífsins á uppbyggilegan hátt.
Þarna er um að ræða skort á sál-
arrósemd, vantrú á sjálfan sig,
vantrú og tortryggni gangnvart
umhverfinu og vantrú, efa og
öryggisleysi gagnvart ýmsum til-
vistarlegum þáttum lífins. - Þeim
líður vel, sem finnur sig öruggan
og til einhvers gagns, er sáttur við
sjálfan sig, hefur valfrelsi, er í
sæmilegu jafnvægi og er ekki allt-
of þreyttur. Mér er það mjög til
efs, að slíkum einstaklingum fari
nokkuð fjölgandi, þrátt fyrir stór-
aukna efnalega velsæld, menntun
og hvers kyns valkosti. Margir
eiga alltof lítið af fórnfýsi til að
geta lifað í nánu samfélagi við
aðrar persónur. í þjóðfélagi
miskunnarlausrar samkeppni og
eirðarlausrar leitar eftir efnaleg-
um gæðum, er mikil hætta á
vantrú og tortryggni í annarra
garð. I stað þess að sefa hina til-
vistarlegu vantrú í faðmi trúfé-
laga eða hugsjónasamtaka leitar
nú íslandsmaðurinn hvers kyns
hávaðasamrar afþreyingar, sem
oftar en ekki er lítt til þess falin
að efla skilning og traust einstakl-
ingsins á sjálfum sér. Fæst ung-
menni kunna lengur að njóta
þagnarinnar, en sá sem ekki þolir
þögnina, þolir ekki sjálfan sig.
Einkenni vantrúarkvilla eru
hin svokölluöu streitu- eða
spennueinkenni og sjúkdómar,
sem kvikna af því ástandi. Nægir
þar að nefna vöðvabólgur, höfuð-
verki, magabólgur, kviðverki,
háþrýsting, misnotkun áfengis,
lyfja og fíkniefna auk reykinga.
Þessu geta svo fylgt ýmis tauga-
veiklunareinkenni, eftir því sem
sálarkreppur, vonbrigði og hvers
kyns duldir setja mark sitt á til-
finningalífið og persónuleikann.
En slík þróun mála á sennilega
upphaf sitt í ófullburða tilfinn-
ingasambandi hins ómálga barns
við foreldra sína.
Það ungviði, sem seint og
snemma baðar sig í sjónvarps-
geislanum, kynnist ekki hvíld
einveru og þagnar og er jafnvel
vitsmunalega og tilfinningalega
svelt af sínum nánustu, er ekki
líklegt til að sleppa við vantrúar-
kvillana, enda verða viðbrögðin
oft andstaða og sinnuleysi, en
sinnuleysi nútímafólks gagnvart
áhættuþáttum heilsuleysis er
mikið áhyggjuefni, því hver og
einn verður að vera ábyrgur fyrir
eigin heilsu og reiðubúinn að laga
lífsstíl sinn eftir því. I þeirri
glímu er gott að hafa hin 10 boð-
orð Krabbameinsfélagsins í
huga. Raunar vildi ég mega bæta
því 11. við og hvetja fólk til að
reyna á sig og hreyfa sig meira sér
til alhliða heilsubótar. Fólk ætti
t.d. að reyna að ganga í vinnuna
og stunda sund, skíðaiðkun og
náttúruskoðun í stað þess að sitja
alltaf á rassinum fyrir framari
sjónvarpið og hreyfa sig aldrei
fótmál utanhúss nema í bíl. Okk-
ur bjóðast næg tækifæri til hreyf-
ingar og líkamsræktar og það er
alveg ástæðulaust að borga ein-
hverjum líkamsræktarstöðvum
stórfé fyrir þjálfunaraðstöðu,
sem ekkert hefur fram yfir ofan-
greinda möguleika og verður að
teljast til gerviþarfa. Við getum
nefnilega sjaldnast keypt okkur
frá vandanum.
En til að breyta lífsstílnum
verðum við að sýna sjálfstæði og
viljastyrk til að brjóta viðjar van-
ans og gæta þess að missa ekki
sjónar af tákmarkinu, sem er að
vernda þá heilsu, sem okkur var
gefin í vöggugjöf.
Pétur Pétursson.
Höfundur er heilsugæslulæknir á Akur-
eyri.
Bridge * Bridge
Minningarmót
Næstu þrjá þriðjudaga þ.e. 3., 10. og 17. apríl n.k. verður
hraðsveitakeppni til minningar um Alfreð Pálsson. Mótið
verður með eftirfarandi fyrirkomulagi: Pör tilkynni þátttöku
í mótið en síðan verða stigahæstu pörin skv. nýjustu stiga-
skrá tekin út og látin draga pör úr potti til liðs við sig.
Keppt verður eftir nýju fyrirkomulagi sem er óþekkt inn-
an félagsins.
Keppt verður um farandbikar auk eignarbikara um 1., 2. og
3. sætið sem gefnir eru af afkomendum Alfreðs Pálssonar.
Skráning keppenda verður að liggja fyrir i síðasta lagi
fyrir sunnudagskvöld kl. 20 í síma 24624 (Ormarr).
Stjórn Bridgefélags Akureyrar.
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 31. mars
Hljómsveitin Galleri
leikur fyrir dansi
Húsið opnað fyrír aðra en matargesti kl. 23.00.
Nú eru síðustu forvöð að panta
FERMINGARVEISLUNA
úr veislueldhúsi Hótel KEA.
Bjóðum einnig upp á snittur, smurt brauð,
rjómatertur og smurbrauðstertur.
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 22200.
SUNNUDAGSVEISLA
Á SÚLNABERGI
Sveppasúpa, reykt grísalæri og/eða nautafillet,
þú velur meðlætið, salatið og sósurnar
og endar þetta í glæsilegu deserthlaðborði.
Allt þetta fyrir aðeins kr. 890,-
Frítt fyrir börn 0-6 ára, V2 gjald fyrir börn 6-12 ára.
Ath! Veislan er bæði í hádegi og um kvöld.
IL
Hótel KEA
fyrir vel heppnado veislu
3