Dagur - 30.03.1990, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 30. mars 1990
Helle Stangerup á
danskri bókakyiuiingu
- í Möðruvöllum MA á sunnudag
hvað er að gerast
i
Hinn þekkti, danski rithöfundur
Helle Stangerup, mun greina frá
ritstörfum sínum og lesa úr verk-
um sínum á „Danskri bókakynn-
ingu“ sem verður á Akureyri á
sunnudaginn.
Helle Stangerup (f. 1939) var
fyrst þekkt fyrir glæpa- og hryll-
ingssögur sínar „Gravskrift för
Rödhætte", „Gule handsker“,
„Ulvetid“ og fleiri bækur, en
þessar skáldsögur hafa um árabil
verið notaðar við dönskukennslu
á íslandi og eru mörgum kunnar.
Þær hafa verið þýddar á a.m.k. 8
tun£umál.
Arið 1987 sló Helle Stangerup
rækilega í gegn með sögulegu
skáldsögunni „Christine", sem
fjallar um dóttur Kristjáns II.
Danakonungs.
Árið 1989 kom svo út önnur
söguleg skáldsaga „Spardame",
um hina margfrægu Leonoru
Christine, sem var innilokuð í
Bláturni í 22 ár.
Sögulega skáldsagan hefur átt
auknu fylgi að fagna undanfarin
ár, eins og einnig ævisögur frægra
manna. Helle Stangerup er meðal
færustu rithöfunda á þessu sviði.
Hún hefur einstakan hæfileika tii
að gæða sagnfræðilegt efni nýju
lífi og er meistari í að láta stað-
reyndir og skáldskap renna sam-
an í eina heild.
Danska bókakynningin er hluti
af norrænni bókmenntakynn-
ingu, sem nú fer fram í Norræna
húsinu í Reykjavík.
Kynningin á Akureyri verður í
Möðruvöllum, húsi raungreina-
deilda MA, sunnudaginn 1. apríl
og hefst kl. 16.00.
Þar munu einnig Kjell Gall
Jörgensen sendikennari kynna
danskar bækur 1989.
Bókakynning þessi er öllum
opin og er þess vænst að sem
flestir, sem áhuga hafa á að kynna
sér danskar bókmenntir 1989 og
hlusta á Helle Stangerup, láti sjá
sig.
Helle Stangerup.
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema:
Síðari hluti keppninnar
fer fram á laugardaginn
Síðari hluti Stærðfræðikeppni
framhaldsskólanema veturinn
1989-1990 verður haldinn í
Odda, húsi hugvísindadeildar
Háskóla fslands laugardaginn 31.
mars n.k. Til úrslitakeppninnar
er boðið þeim sem best stóðu sig
í fyrri hluta keppninnar í haust.
Rétt til þátttöku hafa 20 nemend-
ur af efra stigi þeirrar keppni, en
10 af neðra stigi. Keppnin mun
Hafliði Hallgrímsson stjómar
Kammerhljómsveit Akureyrar
Sunnudaginn 1. apríl kl. 17.00
heldur Kammerhljómsveit Akur-
eyrar tónleika í Akureyrarkirkju.
Stjórnandi hljómsveitarinnar er
Hafliði Hallgrímsson og einleik-
ari verður Pétur Jónasson gítar-
leikari.
Á tónleikunum verður frum-
flutt verk eftir Hafliða Hallgríms-
son sem hann samdi á Akureyri
sl. sumar og tileinkar hann
Kammerhljómsveit Akureyrar
verkið, sem nefnist FJÖLDI
DAGDRAUMA (7 stykki fyrir
litla hljómsveit). Heiti katlanna
eru: Víkkandi sjónmál, Kirkjan á
hæðinni, Dans, Bærinn að nóttu,
Sumarkvöld og Öskudagur á Ak-
ureyri.
Pétur Jónasson mun flytja
CONCERTO DE ARANJUEZ
eftir Rodrigo. Pétur hefur áður
flutt þetta verk í London og hlot-
ið frábæra dóma breskra tónlist-
argagnrýnenda fyrir flutning sinn
á þessum flókna gítarkonsert.
Á efnisskránni eru einnig
rúmensk þjóðlög eftir Péla Bar-
tók og ein af Parísarsinfóníum
Haydns.
Hafliði Hallgrímsson sellóleik-
ari er búsettur í Edinborg. Að
loknu námi heima á Akureyri
og í Reykjavík dvaldist hann við
nám í Róm og síðan í London.
Hann hefur m.a. leikið á selló
með skosku kammersveitinni og
ensku kammersveitinni og tón-
ýerk hans hafa verið flutt hér
heima og víða erlendis, auk þess
sem þau hafa komið út á hljóm-
plötum.
Bridgefélag Akureyrar:
Minnmgannót um
Alfreð Pálsson
Næstu þrjá þriðjudaga þ.e. 3. 10.
og 17. apríl n.k. verður hrað-
sveitakeppni til minningar um
Alfreð Pálsson. Mótið verður
með eftirfarandi fyrirkomulagi:
Pör tilkynni þátttöku í mótið en
síðan verða stigahæstu pörin skv.
Kynningar í
frá kl. 15.00 til 18.30
Saltfiskur ★ Egilsdjús
Kyrmingarverð
í KJÖTBORÐI
úrval kjöt- og fiskrétta
t.d. hvítlauksstungið lambalæri, gráðostfylltur
svínakambur, 3 teg. af buffi, ýsa í rækjusósu,
saltfiskur, Espanole.
Grillaöir kjúklingar á tilboöi.
Tilboð
Svínakambur
reyktur, úrb.
898.-
kr. kg.
\/
Opið
Mánudag. til
fimmtudags
frá kl. 09-18.
Föstudag
frá kl. 09-19.
★
Laugardag
frá kl. 10-14.
M54
Hrísalundur
nýjustu stigaskrá tekin út og látin
draga pör úr potti til liðs við sig.
Keppt verður eftir nýju fyrir-
komulagi sem er óþekkt innan
félagsins.
Keppt verður um farandbikar
auk eignarbikara um I. 2. og 3.
sætið sem gefnir eru af afkom-
endum Alfreðs Pálssonar.
Skráning keppenda verður að
liggja fyrir í síðasta lagi fyrir
sunnudagskvöld kl. 20.00 í síma
24624 (Ormarr).
standa frá kl. 10 til kl. 14 í stofu
201 í Odda, en daginn eftir,
sunnudaginn 1. apríl, er boðið til
verðlaunahófs kl. 15 í Skólabæ,
húsi Háskólans við Suðurgötu 26.
Þar verða úrslitin kynnt og verð-
laun afhent. Á báða þessa við-
burði er blaðamönnum og ljós-
myndurum boðið að mæta. Úr-
slitin verða höfð til hliðsjónar við
val keppenda í norrænu ólympíu-
keppnina í stærðfræði sem fer
fram í apríl og við val þátttak-
enda í alþjóðlegri ólympíukeppni
sem fer fram í Peking í Kína í
sumar. Að keppninni standa
Islenska stærðfræðifélagið og
Félag raungreinakennara í fram-
haldsskólum. Keppnin er styrkt
af ístaki h.f. og Steypustöðinni
h.f.
Deildakeppni í skák:
Úrslitin
ráðast
Seinni hluti deildakeppninnar í
skák fer fram í Reykjavík um
helgina og verður teflt í húsa-
kynnum Skáksambands íslands í
Faxafeni. Skákfélag Akureyrar á
tvær sveitir í 1. deild og var A-
sveitin í 3. sæti og B-sveitin í 5.
sæti eftir fyrri hluta keppninnar,
en staðan í deildinni er mjög jöfn
og tvísýn. Þrjár síðustu umferð-
irnar verða tefldar á laugardag og
sunnudag.
Eyfirðingar og Húnvetningar
eiga sveitir í 2. deild og voru þær
í 4. og 6. sæti eftir fyrri hlutann.
Sauðkrækingar og C-sveit Skák-
félags Akureyrar (unglingasveit)
kljást um sigurinn í A-riðli 3.
deildar.
í dag, föstudag, verður Hrað-
skákmót íslands haldið í Reykja-
vík og verða margir Norðlend-
ingar þar á meðal keppenda og
einnig ýmsir sterkir kappar úr
Reykjavíkurskákmótinu.
Akureyri:
Fyrirlestur um
söguheimspeki
Á morgun, laugardag, kl. 14.00,
mun Arnór Hannibalsson flytja
erindi um söguheimspeki í húsa-
kynnum Háskólans við Þórunn-
arstræti.
Arnór Hannibalsson þarf ekki
að kynna, en eitt hinna mörgu
efna sem hann hefur fengist við í
Akureyri:
Fundur fyrir
aðstandendur
aldraðra
í dag verður haldinn fundur í
stuðningshópi fyrir aðstandendur
aldraðra. Fundurinn hefst klukk-
an 17.00 í húsnæði Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri, Hafnar-
stræti 99, 4. hæð.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir,
starfsmaður hjá Tryggingastofn-
un ríkisins, ræðir tryggingamál á
fundinum. Allir sem áhuga hafa
eru boðnir velkomnir á fund
stuðningshópsins.
kennslu sinni er heimspeki sög-
unnar; hugmyndirnar um að saga
mannkynsins rekist ekki áfram
fyrir hendingar og tilviljanir,
heldur hafi hún stefnu, skiptist í
skeið, eigi sér tilgang, hafi jafn-
vel fyrirsjáanleg endalok og lúti
m.ö.o. lögmálum, sem unnt sé að
skilja og jafnvel nota til spá-
sagna. Sú söguheimspekilega
kenning, sem hefur verið hvað
mest fyrirferðar á okkar öld er
kenning marxismans, og sú kenn-
ing er nú svo sannarlega á örlaga-
ríkum tímamótum. Auk þess að
reifa söguheimspeki almennt, mun
Arnór fjalla um stöðu marxiskrar
söguskoðunar nú um mundir frá
sjónarhóli heimspekinnar. Þess
utan hefur Arnór sínar pólitísku
skoðanir og í umræðum eftir
erindið er hann vafalaust til í
umræðu á þeim nótum líka.
Að fyrirlestrarhaldi þessu
standa Samtök áhugamanna um
heimspeki og Háskólinn á Akur-
eyri.
Aðgangur að erindinu er
ókeypis og allir velkomnir, en
kaffi verður selt í fundarhléi.