Dagur - 30.03.1990, Page 7
Föstudagur 30. mars 1990 - DAGUR - 7
Galgopar litu við á ritstjórn Dags í vikunni og tóku lagið fyrir starfsfólk við
mikinn fögnuð. Þeir félagarnir gáfu sýnishorn af söngdagskránni sem þeir
flytja í Freyvangi.
Jólaskemmtun í Freyvangi:
Gal-gopar af ýmsum
stærðum og gerðum
Hlíðarbær:
Söng-
skemmtun
og dans-
leikur
Söngsveit Hlíðarbæjar heldur
árshátíð sína í Hlíðarbæ á
morgun, laugardag. Húsið verð-
ur opnað kl. 21.30 en skemmtun
söngsveitarinnar kl. 22.00.
Stjórnandi söngsveitarinnar er
Guðlaugur Viktorsson. Undir-
búningsnefndin sér um kaffiveit-
ingar.
Að söngskemmtuninni lokinni
hefst dansleikur þar sem hljóm-
sveitin Fimm félagar, með Pálma
Stefánsson í fararbroddi, leikur
fyrir dansi fram eftir nóttu.
Hin árlega jólaskemmtun Söng-
sveitarinnar Gal-gopar og
Kammersveitar Öngulsstaða-
hrepps verður haldin í Freyvangi
annað kvöld, laugardagskvöldið
31. mars.
Söngsveitin Gal-gopar er skip-
uð fimm föngulegum sveinum á
besta aldri en á dagskrá hjá þeim
eru lög af ýmsum stærðum og
gerðum, eins og reyndar hljóm-
sveitarmeðlimir eru sjálfir.
Það kann að hljóma undarlega
að halda jólaskemmtun seint í
mars en að sögn söngsveitar-
manna kom heilsu- og veðurfar í
veg fyrir að skemmtunin var
haldin á réttum tíma. Þá hvíslaði
lítill fugl að umsjónarmönnum
þessa þáttar að einkennisbúning-
ur Gal-gopa væru stuttbuxur og
saltfiskbindi, en gestir á jóla-
skemmtuninnni munu einir kom-
ast að hinu sanna í því ntáli.
Jólaskemmtun Gal-gopa og
Kammersveitar Öngulsstaða-
hrepps hefst kl. 22.00 en dans-
leikurinn stendur til kl. 03.00.
Félagarnir vonast til að sent flest-
ir láti sjá sig á þessari einstöku
skemmtun sent þeir lofa að verði
lengi í minnurn höfð.
Kaupmannafélag Akureyrar:
Aðalfundur á Hótel KEA
Aðalfundur Kaupmannafélags
Akureyrar verður haldinn laug-
ardaginn 31. mars 1990 á Hótel
KEA og hefst stundvíslega kl.
13.30. A dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða Guðjón
Oddsson formaður Kaupntanna-
samtaka Islands og Magnús
Finnsson framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtaka íslands og
munu þeir félagar ræða mál sam-
takanna og svara fyrirspurnum.
Auk þess munu Héðinn Ernils-
son og Sigurður Harðarson full-
trúar Vátryggingafélags íslands
kynna nýjan samning við Kaup-
mannasamtök íslands varðandi
tryggingar aðildarfélaga.
Örn Ingi á vinnustufu sinni á Akureyri. Honum á hægri hönd er myndverkiö
Háspil I, þar sem Súlur og Kaldbakur prýða sama rainmann. Mynd: kl
Reykjavík:
Öm Ingi sýnir
í FÍM salnum
Örn Ingi, myndlistarmaður frá
Akureyri, sýnir máluð mynd-
verk í FIM salnuni við Garða-
stræti í Reykjavík dagana 31.
mars-17. apríl að föstudegin-
um langa og páskadegi undan-
skildum.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 31. mars kl. 14 og eru
Norðlendingar sem eiga leið um
Reykjavík sérstaklega velkomn-
ir. Sýningin er opin frá kl. 14-18
alla opnunardaga.
í samtali við Dag sagðist Örn
Ingi vera að gera tilraun til að
sameina skúlptúr og málverk og
það yrði fróðlegt að sjá viðbrögð
fólks við þessum myndverkum.
Þetta er 20. einkasýning Arnar
Inga, en hann hefur einnig tekið
þátt í um 40 samsýningum hér-
lendis og erlendis. Nú eru liðin 10
ár frá fyrstu einkasýningu hans í
Reykjavík, en á þeirri sýningu
keypti Listasafn íslands mynd af
Erni Inga. SS
Dorgað á
Ljósavatni
á morgun
Um kl. 10.30 í fyrramálið hefst á
Ljósavatni dorgveiðikeppni á
vegum ferðaskrifstofunnar
Nonna á Akureyri.
Veitt verður til kl. 16 en þá
verður farið yfir aflann og margs
konar verðlaun veitt.
Dorgveiðikeppni var síðast
haldin á Mývatni árið 1988 en var
þá landskeppni íslands og
Noregs. Að þessu sinni er keppn-
in öllunt opin, tilvalin helgar-
skemmtun fyrir fjölskylduna.
Þátttökugjald er ekkert og ef
fólk hefur áhuga á að taka þátt en
á ekki útbúnað getur það haft
samband við ferðaskrifstofuna og
hugsanlega fengið lánaðan út-
búnað.
Ungmennafélag
Skriðuhrepps:
Sveitasin-
fónían
sýnd á Melum
Leikdeild Ungmennafélags
Skriðuhrepps ráðgerir þrjár sýn-
ingar á Sveitasinfóníu Ragnars
Arnalds á Melum í Hörgárdal um
helgina. Sýningar verða á föstu-
dags- og laugardagskvöld kl.
21.00 og einnig er áætlað að hafa
sýningu á sunnudagskvöld á sama
tíma.
Óhagstætt veðurfar og ófærð
hafa raskað sýningum á Melum
en nú er vonast til að Sveita-
sinfónían geti glatt áhorfendur á
ný. Sýningin fékk mjög góða
dóma og þykir afar skemmtileg
upplyfting. Leikstjóri er Guðrún
Þ. Stephensen og leikendur eru
sextán talsins.
©
KAUPMENN!
Aðalfundur Kaupmannafélags Akureyrar
verður haldinn laugardaginn 31. mars 1990 á
Hótel KEA og hefst kl. 13.30 stundvíslega.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins:
Guðjón Oddsson formaður Kaupmannasamtaka
íslands, Magnús Finnsson framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtaka íslands ræða mál samtakanna og
svara fyrirspurnum.
Héðinn Emilsson og Sigurður Harðarson fulltrúar
Vátryggingafélags íslands kynna nýja samninga við
Kaupmannasamtök íslands varðandi tryggingar
aðildarfélaga.
Stjórnin.
hJÓÐARÁTAK
GEGN KRABBAMEINI
31. mars -1. apríl 1990
KRABBAMEINSFÉLAG AKUREYRAR
OG NÁGRENNIS (K.Á.O.N.)
vill minna alla Akureyringa og nærsveitunga á
þjóðarátakið 31. mars og 1. apríl n.k.
Takið vel á móti söfnunarfólkinu og stuðlið að því að
gera K.Á.O.N. að fjölmennasta aðildarfélagi Krabba-
meinsfélags íslands með því að gerast stuðnings-
félagar K.Á.O.N.
Krabbameinsfélagið
Auglýsing frá Menntamála-
í ráði Islands um styrk-
veitingar árið 1990.
Menntamálaráð íslands veitir nokkra styrki úr Menningar-
sjóði til listamanna, sem hyggja á dvöl erlendis til að vinna
að listgrein sinni. Til úthlutunar er alls kr. ein milljón.
Umsóknum skulu fylgja nákvæmar upplýsingar um fyrir-
hugaða dvöl. Þeir, sem ekki hafa hlotið sams konar styrk
frá menntamálaráði sl. fimm ár, ganga að öðru jöfnu fyrir
við úthlutun.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráði íslands, Skál-
holtsstíg 7, 101 Reykjavík, fyrir 22. apríl 1990. Nauösyn-
legt er, að kennitala umsækjanda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu Menningar-
sjóðs á Skálholtsstíg 7, Reykjavík.
Menntamálaráð íslands.
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö
og vinarhug viö andlát og útför mannsins míns, bróöur, mágs
og föðurbróður,
ÓSKARS ILLUGASONAR,
Réykjahlíð 1.
Sigrún Hallfreðsdóttir,
Valgeir lllugason, Guðrún Jakobsdóttir,
Kristjana, Matthildur, Valgerður og Guðrún María
Valgeirsdætur.