Dagur - 30.03.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 30. mars 1990
15 manna sendinefnd frá vinabænum Randers í Danmörku í heimsókn á Akureyri:
Alltaf gott veður þegar ég
kem í heimsókn til Akureyrar
„Það er sannarlega stórkostlegt að geta
brugðið sér í sund snemma morguns og
slappað af að afloknum sundspretti í heita
pottinum. Þetta er nokkuð sem er óhugs-
andi heima,“ sagði Keld Hiittel, borgar-
stjóri í Randers, sem er vinabær Akureyrar
í Danmörku.
Dagana 15.-17. mars var 15
manna sendinefnd frá Randers á
Akureyri og kynnti sér allt milli
himins og jarðar í bænum, stjórn-
kerfi hans, menningar-, skóla-,
heilbrigðismál og fleira. Danirnir
voru mjög hrifnir af því sem fyrir
augu bar og fannst mikið til fann-
fergisins koma.
Þeir komu til Akureyrar fimmtu-
daginn 15. mars og fóru aftur
síðla laugardagsins 17. mars.
Dagskráin var þéttskipuð. Á
föstudag voru bæjarskrifstofurn-
ar skoðaðar og m.a. kynntu for-
svarsmenn Akureyrarbæjar gest-
unum í hverju starfsmannastefna
bæjarins væri fólgin. Síðan lá
leiðin í Verkmenntaskólann,
íþróttahöllina og Hlíð, dvalar-
heimili aldraðra. Á laugardag i
heimsóttu Danirnir orkustofnan-
ir Akureyrar, hitaveitu og vatns-
veitu, og Minjasafnið.
Ánægja með heimsóknina
Dagur náði tali af Keld Hiittel,
borgarstjóranum í Randers.
Reyndar eru tveir borgarstjórar í
Randers. Annar er pólitískt
kjörinn, hinn ópólitískur. Keld
er pólitískur borgarstjóri og stýr-
ir Randers í nafni sósíal-demó-
krata, sem hafa 15 fulltrúa af 25.
Keld var mjög ánægður meðj
heimsóknina til Akureyrar og
sagði hana gagnlega. Með í för
væru m.a. tæknifræðingar, skipu-
lagsfræðingar og arkitektar frá
Randers, til að kynnast því sem
kollegar þeirra á Akureyri ynnu
að. Engar framfarir yrðu nema
því aðeins að menn bæru saman
bækur sínar.
„Það er margt sem hefur vakið
athygli okkar, t.d. hvernig starfs-
menn Akureyrarbæjar leysa öll
aðsteðjandi vandamál vegna
fannfergis í bænum. Við erum
ekki vanir svo miklum snjó og
síðustu þrjú ár hefur satt að segja
varla fallið snjókorn í Randers.
Ég fullyrði að ef svo mikill snjór
væri að jafnaði á götum Randers
gætum við gleymt því að leita eft-
ir endurkosningu í næstu sveit-
arstjórnarkosningum! Krafa íbú-
anna í Randers er skýr, það má
nákvæmlega enginn snjór vera á
götum borgarinnar. Komi ein-
hver snjór er honum mokað án
tafar upp á vörubílspalla og sturt-
að í höfnina!!"
Keld var fljótur til svars þegar
hann var inntur eftir í hverju
meginmunur á Akureyri og
Randers væri fólginn. „Engin
spurning, það er loftslagið. Loft-
ið hér er hreint og veðrið gott. Ég
Jhef komið einu sinni áður til
Akureyrar og það var að sumar-
lagi. Þá var veður sömuleiðis
mjög gott. Ég hlýt að draga þá
'ályktun að það sé alltaf gott veð-
ur þegar ég kem í heimsókn,“
sagði Keld.
Hann sagði athyglisvert hversu
vel hafi til tekist með skipulag
Akureyrarbæjar. Reykjavík virt-
ist honum hins vegar vera illa
skipulögð.
Almenningur veit Iítið
um Island
Randers hefur síðustu tvö ár fært
Akureyringum vegleg jólatré að
Keld Húttel, borgarstjóri í Randers.
Forráðamenn Randers kynntu sér m.a. öldrunarþjónustuna á Hlíð á Akur-
eyri. Svo skemmtilega vildi til að þann dag hélt einn íbúanna, Jón Bene-
diktsson, upp á 96 ára afmælið. Að sjálfsögðu hciðruðu Danirnir Jón með
því að taka afmælissönginn fyrir hann. Myndir: kl
Fimmtán manna sendinefnd frá Randers stillti sér sérstaklega upp fyrirjljósmyndara Dags að afloknu veislukaffl á dvalarhcimilinu Hlíð.
gjöf, sem segja má að séu tákn-
ræn fyrir þann hlýhug sem Dan-
irnir sýna Akureyringum. Keld
telur að vinabæjartengsl milli
Randers og Akureyrar hafi geng-
ið mjög vel á undanförnum árum
og flest bendi til að þau muni
aukast á næstu árum. „Það er
engum blöðum um það að fletta
að fólk í Randers kann vel að
meta að sækja Akureyri heim.
Sem dæmi hafa komið hingað
hópar aldraðra og menntaskóla-
og lýðháskólanemenda frá Rand-
ers og látið vel af. Ég býst við að
stærsta vandamálið við aukin
samskipti milli Akureyrar og
Randers sé mikill kostnaður við
ferðalög milli staðanna,“ sagði
! Keld.
Þrátt fyrir aukin samskipti á
öllum sviðum milli Norðurlanda
er deginum ljósara að íbúar í
hverju Norðurlandanna vita
harla lítið um frændur þeirra í
nágrannalöndunum. Þannig segir
Keld aðspurður að íbúar í Rand-
ers viti lítið sem ekkert um Akur-
eyri eða ísland. „Það er óhætt að
segja að almenningur í Dan-
mörku viti ekki mikið um land-
fræði annarra landa en Danmerk-
ur. Skýringin á því er líklega sú
að norrænt samstarf er lítið í
umræðunni í Danmörku. Um-
ræðan snýst öll um stjórnmál og
Efnahagsbandalagið,“ sagði Keld
Húttel.
25 fulltrúar í
borgarstjórn Randers
Til gamans er vert að geta hér í
stuttu máli um fyrirkomulag
stjórnunar og helstu útgjöld
Randersborgar.
Fundir borgarstjórnar, sem í
eiga sæti 25 fulltrúar, eru haldnir
hálfsmánaðarlega og eru þeir öll-
um opnir. Almenningur getur
keypt útgefna dagskrá borgar-
stjórnarfundanna í áskrift og
kostar hún tæpar þúsund krónur
á ári. Að sama skapi geta borgar-
búar gerst áskrifendur að sam-
þykktum borgarstjórnar, einnig
fyrir tæpar þúsund krónur á ári.
Segja má að stjórnun hinna
ýmsu málaflokka sé í höndum
sex nefnda. í fyrsta lagi efnahags-
nefndar, sem hefur yfirumsjón
með tekjum og útgjöldum borg-
arinnar. Borgarstjóri, Keld
Huttel, er sjálfskipaður formaður
efnahagsnefndar. í öðru lagi
tækninefndar, sem fjallar m.a.
unt húsnæðismál, almennings-
samgöngur, skipulagsmál, gatna-
gerð, skólplagnir o.fl. í þriðja
lagi félagsmálanefndar, sem hef-
ur yfirumsjón með félags- og
heilbrigðiskerfi borgarinnar, s.s.
dagvistun, öldrunarþjónustu, fé-
lagsráðgjöf o.fl. í fjórða lagi
menningarmálanefndar, sem hef-
ur með skólana að gera, starf fé-
lagasamtaka, söfn, leikhús og
bókasöfn. í fimmta lagi veitu-
nefndar sem fjallar um málefni
vatns- og rafveitu. í sjötta lagi
hafnarnefndar sem sér um rekst-
ur Randers-hafnar.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
um 40% af tekjum Randers séu
lögbundin framlög frá ríki.
Skattatekjur nema 28% og tekjur
af sölu ýmisskonar þjónustu
nema 26%. Á móti renna um
60% af tekjum borgarinnar til
heilbrigðis- og félagsgeirans.
Næsthæsti liðurinn eru veitur,
samgöngumál og útgjöld til hafn-
arinnar með 15% og í þriðja sæti
koma síðan skóla- og menning-
armál með 10%. óþh