Dagur - 30.03.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 30. mars 1990 - DAGUR - 9
Reyklaus dagur 1. apríl
1. apríl Reyklaus dagur:
Margir hyggjast hætta
að reykja á sunnudag
Á sunnudaginn, 1. apríi, er reyklaus dagur í tilefni af Þjóðarátaki gegn krabbameini/Til sigurs. Mark-
miö með deginum er að sem ílestir leggi frá sér tóbakið, a.m.k. í einn dag en helst til frambúöar.
Nokkrum sinnum áður hefur verið boðað tii reykiauss dags hérlendis en fram til þessa hefur þann dag
ávallt borið upp á virkan dag.
Víða um land fara fyrstu fermingamar fram 1. apríl og því má ætla að mikið verði um aö fóik komi
saman af því tilefni. Fermingargestir eru því hvattir tii að sýna gott fordæmi og láta tóbakið í friöi þenn-
an dag.
Á Akureyri hefur frést af nokkrum hópum sem hyggjast leggja tóbakið á hiiluna á sunnudaginn og
jafnvei lil frambúðar. Þar á mcðal eru nokkrar konur sem nýlega hafa iegið á Fæðinga- og kvensjúk-
dómadeild FSA sem og starfsfólk á sömu deild. Dagur óskar þessu fólki veifarnaðar í baráttunni gegn
reykingum sem og öðru fólki senr hyggst hætta að reykja á sunnudag. VG
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis:
Hvetur fólk til að taka
vel á móti söftiunarfólki
Um helgina mun söfnunarfólk
á vegum aðildarfélaga Krabba-
meinsfélags íslands ganga í hús
um allt land og taka við frjáls-
um framlögum í þriðja þjóðar-
átakinu gegn krabbameini. Að
þessu sinni verður fénu sem
safnast varið til grunnrann-
sókna á krabbameini og stuðn-
ingi við krabbameinssjúklinga
svo eitthvað sé nefnt.
Söfnunarfólkið verður auð-
kennt með sérstökum barm-
merkjum og mun það ýmist taka
við framlögum í formi peninga
eða ávísana, en einnig getur fólk
látið taka út af greiðslukorta-
reikningum sínum. Gefendur fá í
viðurkenningarskyni afhentan
bækling með heilsuboðorðum
auk þess sem þeir fá kvittun fyrir
framlaginu sem er frádráttarbært
til skatts.
Á Akureyri og í nágrenni nrun
söfnunarfólk á vegum Krabba-
meinsfélags Akureyrar og ná-
grennis ganga í hús en auk þess
að taka á móti framlögum til
þjóðarátaksins, mun þeim sem
ekki eru þegar styrktaraðilar í
félaginu verða boðið að gerast
félagsmenn. KAON er nú nálægt
því að vera stærst aðildarfélaga
Krabbameinsfélags íslands og er
stefnt að því að eftir helgi verði
það orðið það stærsta. í tilefni
átaksins verður skrifstofa KAON
að Hafnarstræti 95 á Akureyri
opin bæði á morgun, laugardag
og á sunnudag frá kl. 13.00 til
19.00. Þangað eru allir velkomnir
sem vilja ýmist leggja fram fé eða
forvitnast um starfsemi félagsins.
Þar munu sömuleiðis verða veitt
góð ráð til þeirra sem hyggjast
nota tækifærið til að hætta að
reykja.
Forsvarsmenn KAON hvetja
Akureyringa og nærsveitunga
eindregið til að taka vel á rnóti
söfnunarfólki og hvetja sömu-
leiðis alla þá sem ekki eru félagar
að láta skrá sig í félagið. VG
KAON:
Sjómenn hætta að reykja:
„Nuddað“ í þeim
sem enn reykja
- fréttir af áhöfnum á
Hrímbak og Björgúlfi
Mikiil áhugi virðist hafa vakn-
að meðal sjómanna á Evja-
fjarðarsvæðinu um að hætta að
reykja. Dagur hefur þegar
frcgnað af sjómönnum á
nokkrum skipum sem hafa
nýlega hætt að reykja og var
t.d. nýlega rætt við skipverja á
Margréti EA sem voru að
hætta að reykja með góðum
árangri. Síðast þegar fréttist af
þeim var önnur vaktin orðin
algerlega reyklaus og hafði
reykingamönnum fækkað um
helming um borð.
Dagur hafði í vikunni samband
við tvö Eyjafjarðarskip, Hrím-
bak EA 306 frá Akureyri og
Björgúlf EA 312 frá Dalvík. Að
sögn Stefáns Aspar skipstjóra á
Hrímabaki eru þrír skipverjar
nýhættir að reykja og gengur
þeim að sögn skipstjórans ágæt-
lega sú barátta. „Sumir segja að
þetta sé átak en aðrir lirista sig og
segja þetta ekkert mál.“ Stefán
segir að sumir þeirra hafi fengið
ágæta hvatningu áður en þeir
hættu, t.d. hafi einn þeirra lofað
að hætta að reykja í upphafi túrs
ef þeir fengju fullfermi. „Ég hét
honum að við færum ekki í land
fyrr en við næðum því og ég stóð
við það!“
Stefán segir það sína reynslu,
að að jafnaði reyki um helmingur
skipsáhafnar en í augnablikinu
líti málið heldur betur út um
borð í Hrímbak. Sjálfur hætti
hann að reykja fyrir tveimur
árum en hafði þá reykt í 30 ár þar
af verið stórreykingamaður í 10-
15 ár. „Mér hefur gengið alveg
Ijómandi vel og segi hikiaust að
þetta er ekkert mál,“ sagði
Stefán. Aðspurður um góð ráð til
þeirra sem vilja hætta sagðist
Stefán ráðleggja fólki að undir-
búa sig vel með góðum fyrirvara.
„Þegar nær iíður er þetta ekkert
kvíðvænlegt því ákvörðunin er
orðin svo föst í manni og traust."
Stefán sagðist vonast til að sem
flestir noti tímann á reyklausa
deginum til að leggja frá sér
tóbakið og hugsa máliö rækilega.
Hann reiknaði með að áhöfnin
yrði heima um helgina, en þeir
voru á veiðum fyrir vestan land í
vikunni.
Um borð í Björgúlfi er hlutfall
reyklausra mjög gott, þar reykja
aðeins 4 menn af 15 manna
áhöfn. Þeir fjórir sem reykja fá
víst að finna dálítið fyrir því hjá
öðrum áhafnarmeðlimum og
mun vera „nuddað" dálítið í
þeim. Þá ber að geta þess að
kokkurinn hætii að reykja fyrir S
árum en tók upp á því í st iðinn
aó taka í vörina, en aö sögn
félaga hans er hann mikill
nautnaseggur. Björgúlfur var á
leiðinni í land þegar við töluðum
við þá og bjuggust þeir við að
vera í landi um helgina. Reyk-
ingamennirnir fjórir gætu þá not-
að tækifærið og heimsótt Hall-
dóru Bjarnadóttur á skrifstofu
KAON, en skrifstofan verður
opin bæði laugardag og sunnudag
frá kl. 13.00-19.00. VG
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis:
Stoftiun „Styrks“ í burðarBðnuin
Nú stendur fyrir dyrum að
stofna á Akureyri samtök
krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra undir nafn-
inu Styrkur, en samskonar
félag er starfrækt í Reykjavík
síðan í október 1987. Tilgang-
ur samtakanna er að efla sam-
hjálp og stuðning meðal
krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra, auka
fræðslu, opna umræður um
krabbamein og stuðla að
bættri aðstöðu.
Nýlega stóð til að Hermann
Ragnar Stefánsson félagsmála-
fulltrúi hjá Krabbameinsfélagi
íslands kæmi til Akureyrar og að
þá yrði formlega gengið frá stofn-
un Styrks á Akureyri. Því miður
varð ekkert af því vegna veðurs
en þeir sem áhuga hafa á að
starfa í samtökum á borð við
Styrk eru beðnir um að hafa sam-
band við skrifstofu Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis því
mikill áhugi er fyrir því að vita
um hugsanlegan fjölda þeirra
sem myndu vilja vera með.
Meðal þess starfs sem unnið
hefur verið á vegum Styrks í
Reykjavík er að fengnir hafa ver-
ið fyrirlesarar um ýmis málefni
sem varða krabbameinssjúkl-
inga. Má þar nefna fyrirlestur um
macrobíotískt fæði, streitu, nýiu
Krabbameinsdeild Landspítal-
ans og tækjabúnað þar. Þá hafa
verið haldnir margir kaffifundir
þar sem m.a. er tekið í spil eða
féiagar hafa hist og farið saman í
gönguferðir. Telja þeir sem reynt
hafa það mikinn styrk að hitta
annað fólk sem hefur svipaða
reynslu að baki. VG
Það er svo sannarlega ástæða til að flagga fyrir skipverjunum á Hrímbak sem
nú eru að hætta að reykja.j Myndin var þó tekin af öðru tilefni.
Meðlimir í Styrk hittast reglulega og drekka sanian kaffi, hlýða á fyrirlestra
og fara í gönguferðir.
Lungnakrabbamein og reykingavamir
- megin áherslurnar í vetur
Mikil gróska hefur verið í
starfsemi Krabbameinsfélags
Akureyrar og nágrennis
undanfarin ár. Á skömmum
tíma hefur félögum fjölgað svo
mjög, að það nálgast nú að
vera stærst aðildarfélaga
Krabbameinsfélags íslands.
Um helgina er stefnt að því að
bæta um betur og samhliða
fjársöfnun, að safna félögum
og gera þann draum að veru-
leika, að KAON verði stærsta
aðildarfélag Krabbameins-
félags íslands. Formaður
félagsins er Jónas Franklín
sérfræðingur í kvensjúkdóm-
um og fæðingarhjálp.
í vetur hefur megin áhersla hjá
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis verið lögð á reykinga-
varnir og fræðslu um lungna-
krabbamein. Formaður félagsins
og starfsmaður þess, Halldóra
Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur
hafa haldið fyrirlestra á fundum
hjá ýmsum félagasamtökum en í
fyrra fræddu þau félaga í ýmsum
klúbbum um breytingaskeið
karla og kvenna við góðar undir-
tektir.
Af öðrum föstum þátturn í
starfsemi KAON má nefna
fræðslu um reykingavarnir í
grunnskólum og hvers konar
aðstoð við krabbameinssjúkl-
inga. Þá eru á skrifstofu KAON
veittar ráðleggingar til þeirra sem
vilja hætta að reykja og þar er
sömuleiðis hægt að nálgast bækl-
inga um sama málefni. VG