Dagur - 30.03.1990, Side 11
Föstudagur 30. mars 1990 - DAGUR - 11
Akureyri:
Samvinna um framleiðslu á tölvupappír
- Prentlundur og Oddi hf.
Forráðamenn Prentlundar á
Akureyri boðuðu til kynning-
arfundar sl. föstudag. Tilefnið
var að kynna nýja tölvupappírs-
framleiðslu fyrirtækisins og
bættan vélakost.
Á kynningarfundinum kom
fram að Prentlundur og Prent-
smiðjan Oddi hf. í Reykjavík
hafa gert með sér samstarfssamn-
ing um samvinnu 'og gagnkvæm
viðskipti við framleiðslu á tölvu-
pappír. Hjá Prentlundi verða
framleiddar þær tegundir af
tölvupappír sem forsvarsmenn
fyrirtækisins telja hagkvæmt að
framleiða á Akureyri en aðrar
gerðir tölvupappírs verða fram-
leiddar hjá Odda en til sölu hjá
Prentlundi. I staðinn mun Prent-
lundur framleiða aðrar tegundir
fyrir Odda hf. til sölu á markaði í
Reykjavík.
Meðal þeirra pappírsgerða,
sem Prentlundur er að hefja
framleiðslu á, er tölvupappír úr
endurunnum pappír og blaða-
pappír. Gert er ráð fyrir að slíkur
pappír verði um 15% ódýrari en
hefðbundinn tölvupappír sömu
gerðar.
Prentlundur mun framleiða
alla lagervöru undir merki og
gæðaeftirliti Odda hf.
gera samstarfssamning
Halldór Hauksson, framkvæmdastjóri Prcntlundar, við tölvupappírsprent-
vélina. Mynd: KL
ÍOItLMiJÍ
MöldursL
BflASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
MMC Lancer, 1500 GLX, 5 gíra.
Litur hvítur, ek. 26 þús. km,
árg. '88, verð 750.000,-
Toyota Corolla Sedan LX.
Litur rauður, ek. 40 þús. km,
árg. '88, verð 760.000,-
Lada Sport, 4ra gíra. Litur rauður,
ek. 28 þús. km, árg. '88,
verð 540.000,-
Arkað af stað í ágætu veðri en sú sæla stóð ekki lengi.
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ:
Skíðaskáiar glírndu við
ofeaveður í Hlíðarfjai
Seinnipart föstudagsins 23. mars
1990 lögðum við, 20 skátar, af
stað frá Skíðastöðum klyfjuð
bakpokum og með skíði á fótum.
Stefnan var tekin á skíðastökk-
pallinn og ekki staðar numið fyrr
en komið var að hentugu gili fyrir
tjaldbúðirnar. Strax var hafist
handa við byggingu skjólgarða,
tjöldin reist og eldhús búin til.
Vinna þessi entist okkur fram á
kvöld. Þá var sest að snæðingi og
síðan haldið í háttinn.
Þar sem veður var ekki ýkja
skemmtilegt morguninn eftir vor-
um við ekkert að hraða okkur við
fótaferðina og teygðist hún því
fram undir hádegi. En fljótlega
upp úr hádeginu mætti sjónvarp-
ið á staðinn og tók nokkrar vel
valdar myndir. Eftir hádegið
hófst svo hið árlega bikarmót
Skíðasambands skáta og var
byrjað á kappgöngu, skíðastökki
og löglegri fallkeppni. Auk þess-
ara keppnisgreina voru aðrar
greinar, s.s. matar- og eldhús-
gerð, mútugjöf og ljóðagerð. Eft-
ir harða keppni kom í ljós að Ari
Gunnar Óskarsson bar sigur úr
býtum, en annað sætið vermdi
Þór Steinarsson og það þriðja
Sigurður Hólm Sæmundsson.
Um kvöldið skánaði veðrið
mikið og skinu stjörnurnar bjart
þegar við gengum til náða.
Ekki var veðrið skaplegt
sunnudagsmorguninn 25. mars,
en þá var komin brjáluð suðvest-
anátt í Fjallinu. Af þeim sökum
var hætt við að halda inn á Gler-
árdal og í staðinn gengið frá
tjaldbúðunum og haldið til baka
ofan í Skíðahótel. Ferðin þangað
gekk stórslysalaust fyrir sig en
hvassviðri var mikið og máttu
sumir úr „léttvigtinni“ kasta sér
flötum annað slagið til varnar því
að fjúka ekki út í hafsauga.
Snjórinn sagaður í sundur og búinn til skjólveggur.
Ari Gunnar Óskarsson, sigurvegari í bikarkeppni Skíðasanibands skáta,
ásamt Þór Steinarssyni og Sigurði Hólni Sæmundssyni sem urðu í 2. og 3.
sæti.
Eftir u.þ.b. tveggja stunda
veru á verkstæði Skíðahótelsins
renndi hópurinn sér niður í bæ.
Um kvöldið safnaðist hópurinn
svo saman og fór í bíó í sárabæt-
ur fyrir að ekki varð meira úr
ferðinni.
Þess má til gamans geta að
bikarmótið var eina greinin sem
keppt var í laugardaginn 24. mars
í Hlíðarfjalli.
Asgeir Hrciðarsson
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-1. fl. 15.04.90-15.04.91 kr. 2.598,14
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS
MMC Lancer station 4x4.
Litúr hvítur, ek. 44 þús. km,
árg. '87, verð 850.000,-
Vagoner Limeted. Litur blár,
ek. 45 þús. km, árg. '86,
verð 1.700.000,-
MMC Colt 1200. Litur hvítur,
ek. 68 þús. km, árg. '86,
verð 410.000,-
Range Rover. Litur d.grænn,
ek. 132 þús. km, árg. '81,
verð 780.000,-
★
Greiðslukjör
við allra hsfi
Höldursf.
bíiasaia
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.