Dagur - 30.03.1990, Síða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 30. mars 1990
Sund:
I’rjú Akureyrarmet á
iimanfélagsmótí Óðins
Á innanfélagsmóti sem sund-
félagið Óðinn gekkst fyrir
nýlega reyndu nokkrir sund-
menn félagsins að ná lág-
markstímum til að öðlast þátt-
tökurétt á Innanhússmeistara-
móti íslands sem fram fer í
Vestmannaeyjum 7.-9. apríl
nk. Þrjú Akureyrarmet voru
sett á mótinu og hafa nú 11
akureyrskir sundmenn náð lág-
markstímum fyrir mótið í Eyj-
um.
Elsa María Guðmundsdóttir
varð fyrst kvenna á Norðurlandi
til að synda 50 m skriðsund undir
30 sek. er hún synti vegalengdina
á 29,81 sek. og er það að sjálf-
sögðu Akureyrarmet.
A-sveit Óðins bætti karlametið
í 4x200 m skriðsundi. Sveitin
náði tímanum 9:01,76 en hana
skipuðu þeir Illugi F. Birkisson,
Pétur Pétursson, Svavar Þ.
Guðmundsson og Gísli Pálsson.
Kvennasveit Óðins setti nýtt
met í sömu vegalengd, synti á
10:07,11. í þeirri sveit voru Svava
H. Magnúsdóttir, Porgerður
Benediktsdóttir, Elsa M. Guð-
mundsdóttir og Birna H. Sigur-
jónsdóttir.
Kjörbuð KEA Byggðavegi 98
viiTii vm mmwmum
Hresslu upp a anúann með Sprite. Homdu i Sprite-leikmn. Hann er bæði lellur 09
spennandi. Þu tærð þatttoliueyðulilað með Sprite leilmum a allum ulsoluslöðum Sprite.
Pu svarar þremur Sprlle spurningum og sendir okkur svörin. löoði eru storglæsileg
verðlaun: limmtan Sprile snjoþretti. - Skilalrestur er til 5. april og dregið verður
um vinniiigstiala 1 beinm utsendmgu a Bylgjunni 11. april. Urslit verða svo birl 1
Murgunblaðmu a paskadag.
I hverium vlrkum úegi, a medan a keppnmnl stendur, verða uirtar a uylt,
aukaspurningar i Sprite leiknum, i þætti Valtíisar Gunnarsdottur kl. 15:15.
I verðlaun i hvert skipti verða tveir Sprlte iþrottagallar.
V.'.’í'
Þaðar
Opið alla daga til kl. 20.00 líka sunnudaga
KJORBUÐ KEA M,
Byggðavegi 98
VISA
ATH!
Heimsendingar-
þjónusta
Elsa María Guðmundsdóttir setti Akureyrarmet á innanfélagsmóti Óðins
sem haldið var nýlega.
Snóker, 1. flokkur:
Kristiim sigraði á
fyrsta Akureyrarmótinu
Kristinn Ólafsson sigraði í
fyrstu keppninni af þremur í
Ákureyrarmóti 1. flokks í
snóker sem fram fór á knatt-
borðsstofunni Gilinu á Akur-
eyri um síðustu helgi.
22 keppendur tóku þátt í mót-
inu og var þeim skipt í fjóra riðla.
Átta manns komust í undanúrslit
og fjórir léku síðan til úrslita og í
varð Kristinn þá hlutskarpastur.
Ingólfur Valdemarsson varð í
öðru sæti á mótinu, Aðalsteinn
Þorláksson þriðji og Bragi Guð-
mundsson fjórði.
Kjarnafæði gaf verðlaunin í
mótið.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Skarphéðinn og Gunnar
mœtast öðru sinni
- leikirnir hefjast nú klukkustund fyrr
Skarphéðinn Leifsson og Gunnar Austfjörð skildu jafnir í síð-
ustu viku með 4 rétta hvor. Þeir mætast því aftur í 13. leikviku
og eru báðir bjartsýnir. „Þetta lítur þokkalega út, seðillinn er |
ágætur. Annars verða þessi ummæli sennilega til þess að mað-
ur dettur út,“ sagði Skarphéðinn.
Rétt er að benda áhugamönnum um enska knattspyrnu á aö
um síðustu helgi tók víða gildi sumartími, þ.e. klukkunni var flýtt
um eina klukkustund. Þetta þýðir að leikirnir í ensku knattspyrn-
unni hefjast kl. 14 en ekki 15 eins og áður og sölukerfinu er nú
lokað kl. 13.55.
Sjónvarpsleikurinn að þessu sinni lofar góðu. Liverpool og
Southampton eigast við á heimavelli Liverpool, Anfield Road,
og verða heimamenn að teljast sigurstranglegri. Þó er rétt að
benda á að fyrri leik liðanna lauk með 4:1 sigri Southampton!
Skarphéðinn:
Gunnar:
Arsenal-Everton
Charlton-QPR
Chelsea-Derby
Liverpool-Southampton
Man. Utd.-Coventry
Millwall-C. Palace
Norwich-Luton
Nott. For.-Wimbledon
Sheff. Wed.-Tottenham
Middlesbro-Oldham
Watford-Blackburn
Wolves-Leeds
1
1
1
1
1
X
1
1
2
X
1
X
Arsenal-Everton
Charlton-QPR
Chelsea-Derby
Liverpool-Southampton
Man. Utd.-Coventry
Millwall-C. Palace
Norwich-Luton
Nott. For.-Wimbledon
Sheff. Wed.-Tottenham
Middlesbro-Oldham
Watford-Blackburn
Wolves-Leeds
1
1
1
1
X
X
1
1
2
2
1
2
I
I
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2