Dagur - 30.03.1990, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 30. mars 1990
SALTFISKVEISLA
Á BAUTANUM
Ristaðir saltfiskbitar „Portúgal".
Pönnusteikt saltfiskflök
með hrísgrjónum og
karrýsósu „ofnbakað".
Hvítlaukskryddaðir, ristaðir
saltfiskstrimlar með piparrót.
Rjómasoðinn saltfiskur
í hvítlaukstómatsósu.
MSKÞ Húsavík:
Bauluvörur úr þingeyskri mjólk
- samstarfssamningur milli KÞ og MBH, um
jógúrtgerð fyrir norðan og vörudreifmgu fyrir sunnan
Mjólkursamlag Kaupfélags
Þingeyinga og Kaupfélag Þing-
eyinga hafa gert samstarfs-
samning viö Baulu í Hafnar-
firöi. MSKÞ tekur að sér fram-
leiösiu á Baulujógúrt og sýrö-
um rjóma, en Mjólkurbú
Hafnarfjarðar tekur að sér
sölu og dreifingu á hverri þeirri
matvöru sem mjólkursamlagið
og kaupfélagið óska að setja á
markað í Reykjavík og ná-
grenni.
Síðastliðinn laugardag var
skrifað undir samkomulagið milli
MSKÞ og KÞ annars vegar og
Mjólkurbús Hafnarfjarðar hf.
hins vegar. Samkomulagið gerir
ráð fyrir því að MSKÞ taki að sér
að framleiða Baulujógúrt og
Baulu sýrðan rjóma fyrir Mjólk-
urbú Hafnarfjarðar hf. en það
sjái hins vegar um sölu og dreif-
ingu framleiðslunnar. MSKÞ
mun áfram framleiða Húsavík-
urjógúrt og mun MBH sjá um
sölu og dreifingu hennar í Reykja-
vík og nágrenni.
MBH mun leggja til þau tæki
sem þarf til framleiðslunnar og
verða þau flutt norður og sett
upp í húsnæði mjólkursamlags-
ins.
Með þessu samkomulagi opn-
ast möguleikar til aukinnar mark-
Fjallahreppur:
Aldrei mokað en
enginn skortur
„Ég hef ekki farið í kaupstað
síöan í byrjun janúar, en mig
vantar ekki neitt,“ sagði Sig-
ríður Hallgrímsdóttir í Gríms-
tungu, Fjallahreppi er Dagur
spurði í gær eftir samgöngum
og tíðarfari. Ekki hefur verið
bílfært í hreppinn síðan um 20.
febrúar, og þangað er aldrei
mokað á veturna. Samgöngur
við hrcppinn eru á snjóbíl og
vélsleöa og nauðsynjar eru
sóttar á þeim farartækjum, um
40 km leið í útibúið við
Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Tvö börn Sigríðar og Braga
Benediktssonar eru við nám í
Skútustaðaskóla og eru þar í
á Siglufirði:
Parketið komið
á sinn stað
- húsið vígt um eða
Þessa dagana er verið að
Ijúka við að parketleggja nýja
íþróttahúsið á Siglufirði. Þar
með sér fyrir endann á loka-
frágangi hússins og inun það
væntanlega verða forndega
tekið í notkun um eöa eftir
páska.
Aö sögn Þráins Sigurðssonar,
bæjartæknifræðíngs á Siglufirði,
þurfti að fá nokkrar fjalir tii við-
bótar frá Danmörku vegna þess
að hluti parketsins skemmdist í
flutningi til landsins.
Eftir helgina verður byrjað
að múla allar nauðsynlegar lín-
ur á gólf hússins fyrir hand-
knattleik, blak, hnit, körfubolta
o.fl. Að þv( búnu verður gólfið
lakkað og þar með verður húsið
tilbúið til notkunar.
Búið er að kaupa ýmsan
tækjabúnað f húsið. Má þar
nefna htmdknattleiksmörk,
blaknet og jafnvægisslá. óþh
heimavist, en í og úr helgarfríum
er þeim ekið á snjósleða. Um 60
km leið er að skólanum.
Fimm íbúar eru að staðaldri í
hreppnum í vetur, á fjórum
bæjum. Bragi sér um póstsam-
göngur í hreppnum, og að
Möðrudal, tvisvar í viku, en póst-
inn sækir hann á vélsleða eða
snjóbíl niður í Mývatnssveit, og
þá nær hann einnig í nauðsynja-
vörur handa fólkinu.
Sigríður sagði að talsvert mikill
snjór væri á Hólsfjöllum en hann
hefði þó oft verið meiri. Ótíð
væri þó búin að vera í langan
tíma, án þess að gert hefði hláku,
óvenju stormasamt væri og lítið
um stillur, en oft öskurenningur.
„Við erurn svo vön þvf að
þurfa að vera sjálfum okkur nóg
á allan hátt. Þó reynum við að
komast á svona eitt þorrablót á
vetri, en annars höfum við ofan
af fyrir okkur sjálf,“ sagði Sigríð-
ur, aðspurð hvort hún saknaði
ekki samkomuhaldsins í þéttbýl-
inu. IM
aðssetningar fyrir Kaupfélag
Þingeyinga, þar sem gert er ráð
fyrir því í samkomulaginu að
MBH taki að sér sölu og dreif-
ingu á hverri þeirri matvöru sem
MSKÞ eða KÞ óska að setja á
markað í Reykjavík og nágrenni.
Með samkomulagi þessu telja
aðilar sig ná fram aukinni hag-
ræðingu vegna betri nýtingar á
tækjabúnaði, starfsfólki, húsnæði
og fleiru, auk þess sem með
þessu er stefnt að því að flytja
vinnslu injólkur heim í þau héruð
þar sem hún verður til, en MBH
og Baula munu þá sérhæfa sig í
sölu og dreifingu á þeim markaði
þar sem það fyrirtækið er staðsett.
Hreiðar Karlsson, kaupfélags-
stjóri, sagði að gert væri ráð fyrir
að vinnsla á Bauluvörunum hæf-
ist hjá mjólkursamlaginu fyrir
vorið. Eitthvað af nýjuin
atvinnutækifærum skapast við
þessar breytingar hjá mjólkur-
samlaginu. Aðspurður sagði
Hreiðar að hann teldi samkomu-
lagið hagkvæmt fyrir báða aðila,
með þessu væri rennt fleiri stoð-
um undir rekstur samlagsins sem
fyrir byggði á nokkrum grunni
við jógúrtgerð. IM
Rakkinn hugsar málið!
Mynd: KL
Jóhann A. Jónsson hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar:
„Bjarga verður ÚNÞ frá gjaldþrotf
Jóhann A. Júnsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf., telur ólík-
legt að fyrirtækið geti yfirtekið
eða keypt rekstur Útgerðar-
félags Norður-Þingeyinga
nema fyrir upphæð, sem nægi
til að bjarga ÚNÞ frá gjald-
þroti.
Jóhann A. Jónsson hefur setið á
Alþingi undanfarnar tvær vikur í
forföllum Stefáns Valgeirssonar.
„Aðalvandinn er sá að bjarga
verður útgerðarfélaginu frá
gjaldþroti," segir Jóhann. Varð-
andi Stakfellið ÞH segir hann, að
nákvæmlega sé sama hvort gera
eigi skipið út sem frystiskip eða
ísfiskskip við núverandi skuld-
setningu, það standi engan veg-
inn undir sér.
Jóhann segist ekki vita til að sá
möguleiki sé í umræðunni að
Hraðfrystistöð Þórshafnar yfir-
taki rekstur Stakfellsins ÞH sér-
staklega, og sér vitanlega hafi
það ekki verið rætt af alvöru að
selja Stakfellið frá Þórshöfn, þótt
heimamenn yrðu sjálfsagt síðast-
ir til að frétta af slíkri umræðu,
eins og hann orðaði það. „Þessi
mál eru í athugun í kerfinu, og
Fóðurstöðin á Dalvík innsigluð sl. miðvikudag:
„Liggur ekkert annad ívrir en upplausn“
Fulltrúi sýslumannsins í
Eyjafjarðarsýslu innsiglaði
Fóðurstöðina á Dalvík síðla
miðvikudags vegna vangoldins
staðgreiðsluskatts fyrir síðustu
fjóra mánuði. Verði Fóður-
stöðin ekki opnuð aftur í dag
segja eyllrskir loðdýrabændur
ekkert annað liggja fyrir en að
lóga öllum dýrunum og leggja
þar með niður ioðdýrabúskap
á svæðinu. Fóðri er yfir vetur-
inn keyrt út til loðdýrabúa í
umdæmi Fóðurstöðvarinnar á
Dalvík á þriðjudögum og
föstudögum. Fóður er því með
öllu á þrotum í búunum og
ekki gramm til þess að fóðra í
dag.
Símon Ellertsson, fram-
kvæmdastjóri Fóðurstöðvarinn-
ar, segist hvað síst hafa búist við
aðgerðum af hálfu sýslumanns-
embættisins og þær hefðu komið
mjög á óvart. Símon sagði að eft-
ir að stöðinni var lokað hafi
menn verið í sambandi við hlut-
aðeigandi aðila „fyrir sunnan“,
en ekki hafi verið nokkur leið að
fá nein svör.
Símon segir að síðasta hálm-
stráið sé ríkisstjórnarfundur fyrir
hádegi í dag og loðdýrabændur á
Eyjafjarðarsvæðinu muni hittast
að honum loknum og ræða stöð-
una.
Skarphéðinn Pétursson, einn
eigenda Dalalæðunnar í Svarfað-
ardal og stjórnarmaður í Fóður-
stöðinni á Dalvík, sagði í gær að
menn undruðust mjög þessar að-
gerðir vegna þess að fyrir hefði
legið að verið væri að vinna að
úrlausn fjárhagsvanda fóður-
stöðvanna og skuldbreytingu
lána loðdýrabænda.
„Það er ekki eins og sé verið að
loka einhverju frystihúsi þar sem
hægt er að segja starfsfólki að
fara heim. Hér á svæðinu eru
fleiri þúsund dýr á fóðrum og það
er alvarlegur hlutur að nú er
minkurinn kominn á miðja með-
göngu. Hann þolir ekki að missa
úr einn fóðurdag," sagði Skarp-
héðinn.
Að sögn Hauks Valdimarsson-
ar, loðdýrabónda á Skeiði í
Svarfaðardal, hafa menn haldið í
vonina fram á þessa stundu með
úrlausn en ef ekki finnist lausn í
dag liggi fyrir að að drepa niður
stofninn. „Það liggur þá ekkert
annað fyrir en upplausn. Þessi
aðgerð er til að kóróna allt í
kring um þessi mál,“ segir Hauk-
ur. óþh
þau eru að skýrast. Greiðslu-
stöðvun ÚNÞ rennur út 1. apríl.
Viðbrögð við okkar málstað hafa
verið góð, ríkisstjórnin hefur
samþykkt málaleitan okkar og
stjórn Byggðastofnunar einnig.“
EHB
Slippstöðin:
Lokað í
hálfan mánuð
Öll vinna í Slippstöðinni á
Akureyri mun liggja niðri í
kringum páskahátíðina. Starfs-
menn fá páskafrí næstkomandi
föstudag og mæta ekki aftur til
vinnu fyrr en mánudaginn 23.
aprfl. Alls verður felld niður
vinna í sex vinnudaga.
Að sögn Sigurðar Ringsted,
forstjóra Slippstöðvarinnar, er
ástæða þessa fyrst og fremst verk-
efnaleysi. Ef allt hefði gengið að
óskum í sölumálum á raðsmíða-
.skipinu og skipið hefði verið selt
til Meleyrar var ætlunin að vinna
við skipið strax eftir páska. Eftir
síðustu atburði í því máli er ljóst
að fyrstu vikurnar eftir páska
verða rólegar hvað verkefni
varðar.
Sem kunnugt er hafa staðið
yfir viðræður um srníði Slipp-
stöðvarinnar á skipi fyri íslensk-
an útgerðaraðila. Sigurður segir
að í aprílmánuði verði ljóst hvort
af þessari smíði verði og fari svo
muni raðsmíðaskipið verða sjó-
sett strax í vor og undirbúningur
að smíði nýs skips hefjast í
sumar. JÓH