Dagur - 02.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 2. júní 1990
Gunnólfsvíkurfjall:
Framkvæmdir við ratsjár-
stöðina liggja niðri
Litlar sem engar framkvæmdir
eru við ratsjárstöðina á Gunn-
ólfsvíkurfjalli og telja menn á
Þórshöfn að „þíðan í austri“
geri það að verkum að Banda-
ríkjamenn hafi minni áhuga en
ella á því að koma stöðinni í
gagnið. Dagur leitaði upplýs-
inga hjá Ratsjárstofnun um
framkvæmdirnar á Gunnólfs-
víkurfjalli.
Jón Böðvarsson hjá Ratsjár-
stofnun sagði að stofnunin sjálf
kæmi ekki nálægt þessum fram-
kvæmdum, þær væru á vegum
byggingadeildar Bandaríkjahers.
Ratsjárstofnun byggir ekki húsin
og ber ekki ábyrgð á uppsetningu
tækja, en hún hefur viðhald veg-
arins á sinni könnu.
„Viö eigum liins vegar að sjá
um rekstur húsanna þegar að þvf
kemur og við veitum aðgang að
þeim, fylgjumst með því að eng-
inn fari inn án heimildar og án
þess að eiga brýnt erindi. Starfs-
mannaíbúðirnar verða Iíka á
okkar vegum,“ sagði Jón.
Hann upplýsti að ekkert yrði
byrjað á byggingu starfsmanna-
íbúða á þessu ári. Á sínum tíma
var ákveðið að byggja starfs-
mannaíbúðirnar á Bakkafirði og
sú ákvörðun stendur enn, þrátt
fyrir mótmæli Þórshafnarbúa.
Sem kunnugt er kom krafa frá
Þórshöfn þess efnis að íbúðirnar
yrðu byggðar þar, en ekki á
Bakkafirði, en ákvörðun um
staðsetningu hefur ekki verið
breytt. SS
Sektalausa vikan:
fréttir
(ngólfur Jónsson, bakarameistari á fullu í bakstrinum. Mynd: óhú
Húsavík:
Ingólfur opnar bakarí
Góð mnheimta hjá Amtsbókasafni
Viðskiptavinir bókasafna hafa
ekki þurft að greiða sektir af
vanskilabókum í vikunni sem
nú er að líða. Þessar „inn-
heimtuaðgerðir“ virðast hafa
skilað góðum árangri víðast
hvar og var gott hljóð í Lárusi
Zophoníassyni, bókaverði á
Amtsbókasafninu, þegar Dag-
ur ræddi við hann í gær.
Lárus sagði að reyndar hefði
ekki verið tekið saman hve marg-
ar vanskilabækur hefðu komið
inn þessa viku því gærdagurinn
var eftir og gæti orðið drjúgur.
Þó er áætlað að um 300 bókum
hafi verið skilað fyrstu fjóra dag-
ana.
„Að vísu er stór hluti af þessu
bækur sem voru í minni háttar
vanskilum og hefðu ábyggilega
komið inn við rukkun. Þetta eru
bækur sem voru lánaðar í mars
og apríl,“ sagði Lárus.
Hann sagði að Akureyringar
væru yfirleitt skilvísir og gott að
ná til þeirra ef þeir gleymdu að
skila bókunum og því lítið um
það að lánþegar væru með bækur
árum saman. Þó sagði hann það
koma fyrir að bækur týndust og
einnig gæti verið erfitt að ná til
Iánþega sem flytja úr bænum eða
eru á ferð og flugi. SS
Nýtt bakarí, Kringlan hf. hefur
hafið starfsemi sína á Húsavík,
og eru nú tvær brauðgerðir
starfræktar á staðnum. Baka-
ríið er til húsa að Garðarsbraut
62-64 þar sem fyrir er til húsa
matvörumarkaðurinn Kiara-
bót.
Það er ungur Húsvíkingur Ing-
ólfur Jónsson bakarameistari
ásamt fjölskyldu sinni og fjöl-
skyldu sambýliskonu sinnar,
Berglindar Steinadóttur sem eiga
og reka bakaríið.
Fimm til sex starfsmenn munu
starfa við fyrirtækið til að byrja
með þar af tveir til þrír alfarið við
bakstur.
Aðspurður kvaðst Ingólfur
ekki kvíða því að starfrækja
bakarí á staðnum þó svo að ann-
að væri þar fyrir. Allmikið væri
keypt af brauði annars staðar frá
og þó svo að Húsavík væri aðal
markaðurinn að sækja inn á, þá
væru fleiri möguleikar bæði í suð-
ur- og norðursýslunni. Einnig
kvaðst Ingólfur ætla að brydda
upp á ýmsum nýjungum, svo sem
að hafa opið um helgar, og
möguleikar væru einnig góðir í
markaðsmálum. Neysluvenjur
Húsvíkinga væru í nokkuð föst-
um skorðum, en með auknum
nýjungum og persónulegri þjón-
ustu mætti hugsanlega brjóta það
munstur upp og auka fjölbreytni
á markaðnum. óhú
Hrossaræktarsambönd
á Norðurlandi/Hólaskóli:
Samstarf í hrossarækt
Nýi grasvöllurinn í Ólafsfirði kemur vel undan vetri:
Síðastliðið haust hófst samstarf
inilli Hrossaræktarsamband-
anna á Norðurlandi og Hóla-
skóla um úrvinnslu á stóðhest-
um til ræktunar. Samstarfið
fólst annars vegar í því að
safna upplýsingum um tilvist,
ætt og útlit ungfola á tamning-
araldri á Norðurlandi og hins
vegar í tamningu á folum sem
bestir þóttu og eigendur þeirra
vildu að væru tamdir á vegum
samstarfsins.
Skipuð var fimm manna starfs-
stjórn unt reksturinn, einn frá
hverju sambandi og einn frá
Hólaskóla og er hann formaður
starfsstjórnar. Tamningar fóru
fram á Hólum í Hjaltadal á tíma-
bilinu 1. janúartil 30. apríl. Sext-
án hestar, fæddir á árunum 1984-
86, fóru í gegnum eins til fjögurra
mánaða tamningu. Grisjunarmat
fór fram í byrjun mars og kyn-
bótadæming 30. apríl.
Fimm stóðhestar hlutu ættbók-
arfærslu og þar af fjórir 1. verð-
laun. Þetta voru:
Aðaleink.
Asi frá Brimnesi, 6v. 8.30
Prúður frá Efra-Ási, 6v. 8.27
Eir frá Frostastöðum, 6v. 8.03
Kopar frá Galtanesi, 5v. 8.01
Vorboði frá Lundi, 6v. 7.95
Hinir stóðhestarnir eru þannig
að rctt þykir að temja fimm
þeirra frekar, en hina að gelda.
Úrvinnsla og grisjun stóðhesta
er einn mikilvægasti þáttur
hrossaræktarinnar þannig að
starfsemin, sem stofnað var til í
haust á Norðurlandi, getur orðið
mikið framfaraspor i íslenskri
hrossarækt. Hver og einn hrossa-
ræktandi getur stuðlað að fram-
förum, bæði í eigin stofni og á
landsvísu. Hrossaræktendur, sem
eiga unga ótamda fola (3-4
vetra), ættu að mæta með þá á
héraðssýningar til byggingadóms
svo að unnt sé að glöggva sig
frekar á þeim möguleikum sem
folarnir hafa upp á að bjóða sem
nothæfir stóðhestar. Tvær
héraðssýningar verða í flestum
héruðum landsins á árinu, sú
fyrri stendur yfir núna og síðan
eru sýningar aftur í ágúst.
(Fréttatilkynning)
Hitunarkerfið gengur vonum framar
- segir Þorsteinn Björnsson, bæjartæknifræðingur
„Þetta lítur mjög vel út.
Völlurinn var þökulagöur í
september og menn vissu ekki
hvernig luiún myndi koma
undan vetri. En hann er byrj-
aður aö grænka og þetta hitun-
arkerfí virðist ganga framar
vonum,“ sagði Þorsteinn
Björnsson bæjartæknifræðing-
ur í Ólafsfírði.
Vatni var hleypt á hitunarkerfi
vallarins 10. maí sl. og að sögn
Þorsteins hefur mikinn snjó sem
lá á vellinum tekið fljótt upp.
Völlurinn var þökulagður sl.
haust og því er Ijóst að þrátt fyrir
að völlurinn komi vel undan snjó
og grænki fljótt verður vart hægt
að spila alvöru kappleik á honum
á þessu sumri. Þó gæla menn við
að hægt verði að efna til sérstaks
vígslukappleiks síðla sumars.
Ekkert er þó ákveðið í þeim
efnum. Dagur hefur hlerað í
Ólafsfirði að áhugi sé fyrir að fá
Þessi mynd var tekin sl. haust þegar grasvöllurinn var lagður þökum.
sjálfa íslandsmeistara KA í heim- I menn í Leiftri í vígslukappleik.
sókn til að etja kappi við heima- | óþh
Nýjung í ferðaþjónustu í Mývatnssveit:
Beint flug frá Reykjavík
Verslunarmiðstöðin Sunnuhlíð á Akureyri:
Vordagar 1990 hefjast á þriðjudag
Á þriöjudag í næstu viku hefj-
ast formlega Vordagar 1990 á
vegum Verslunarmiðstöðvar-
innar Sunnuhlíðar á Akureyri.
Óhætt er að segja að mikið
standi til. Matarkynningar
verða, skemmtiatriði, sýningar
og ýmsar aðrar uppákomur.
Vordagarnir hefjast eins og
áður segir á þriðjudag, 5. júní,
með sérstakri opnunarhátíð kl.
16.30 í Sunnuhlíð. Séra Pétur
Þórarinsson flytur stutta hug-
vekju og síðan verður hljóðfæra-
leikur og vörukynningar. Meðal
annars verður kynnt mat- og
sportvara.
Daginn eftir, 6. júní, verður
fjölbreyttum vörukynningum
fram haldið og síðdegis inæta
knattspyrnumennirnir Pétur Pét-
ursson KR-ingur og Nói Björns-
son Þórsari og árita knetti. Lið
þeirra KR og Þór mætast einmitt
um kvöldið í fyrstu deild íslands-
mótsins í knattspyrnu. Þess má
geta að 6. júní fagna Þórsarar 75
ára afmæli félagsins.
Ekki má gleyma því að þennan
dag, 6. júní verður boðið upp á
myndatöku af krökkum í skrípa-
mótum í Sunnuhlíð.
Fimmtudaginn 7. júní heldur
ballið áfram í Sunnuhlíð. Þá
verður m.a. kynning á slökkvi-
tækjum og eldvörnum, kynning á
búnaði frá DNG, skófatnaði frá
Strikinu og hljóðfærum frá Tóna-
búðinni. Gestum og gangandi
verður boðið upp á vöfflur og
kaffi.
Á föstudag 8. júní verða fjöl-
breyttar vörukynningar og há-
punkturinn verður grillveisla sem
öllum gestum verður boðið í eftir
hádegið.
Alla daga Vordaga 1990 verð-
ur sýning á m.a. hjólhýsum,
garðhúsgögnum og garðáhöldum
fyrir utan Verslunarmiðstöðina
Sunnuhlíð. Inni verður einnig
mikið um að vera alla dagana.
Sem dæmi mun Módelflugklúbb-
ur Akureyrar standa fyrir kynn-
ingu, Halldór Jóhannsson, lands-
lagsarkitekt, og Smári Sigurðsson
leiðbeina fólki um garðrækt, Jón
Gíslason kynnir tréútskurð og
Skipulagsdeild Akureyrarbæjar
kynnir skipulag Glerárhverfis.
óþh
„Vorið var gott og ferðamenn
eru farnir að gista sveitina. Nýr
valkostur til ferða er beint flug
til Mývatnssveitar frá Reykja-
vík,“ sagði Arnþór Björnsson,
hótelstjóri Hótel Reynihlíðar.
„Já, já, ferðamennirnir eru
mættir í sveitina, en þó mættu
þeir vera fleiri í dag og í gær, en
nú eykst þetta dag frá degi.
Hótelið er fullbókað um næstu
helgi og sumarið er mjög vel
bókað. Þjónustan hér er orðin
mjög hefðbundin, útsýnisferðir
út og suður til náttúruskoðunar.
Áætlunarbílar fara til allra helstu
staða og í góðu veðri er útsýnis-
flug yfir sveitina mjög athygl-
isverður kostur. Beint flug frá
Reykjavík til Mývatnssveitar er
nýr valkostur.
Veðurfar maímánaðar var ein-
staklega gott og lífríkið er í
þokkalegu ástandi að mínu viti,“
sagði Arnþór. ój
Portið á Akureyri:
„Fatafellukymmig“ og lax
„Nýtt og betra Port, „fata-
fellukynning“ og lax, þú fínnur
allt sem þig vantar,“ segir í
fréttatilkynningu frá Portinu á
Akureyri.
Portið að Dalsbraut 1 á Akur-
eyri verður opið laugardaginn 2.
júní frá kl. 12.00 til 16.00. Margt
verður kynnt, svo sem lax og
Pepsi. Sérstaka athygli vekur:
Nýr og betri kaffibás og „fata-
fellukynning" og á næstunni lif-
andi músik og lifandi humar svo
og garðáhaldasýning og fleiri
„fatafellur".