Dagur - 02.06.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 2. júní 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Tillaga stjórnar SÍS til aðalfundar:
DeMum breytt í hiutafélög
Á fímmtudag og föstudag í
næstu viku verður aðalfundur
Sambandsins haldinn í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins í
Reykjavík. Búast má við
snörpum umræðum á fundin-
um um stöðu fyrirtækisins,
enda vitað að það skilaði veru-
legum halla annað árið í röð.
Stjórn Sambandsins kom sam-
an til fundar í vikunni og sam-
þykkti tillögu að ályktun um
ýmislegt varðandi rekstur SIS
er lögð verður fyrir aðalfund-
inn á fímmtudag. Tillaga stjóm-
arinnar er svohljóðandi:
„Rætur núverandi fjárhags-
vanda Sambandsins má rekja
langt aftur í tímann. Pær eru
einkum þrenns konar. í fyrsta
lagi erfiður efnhagur þar sem
tekjurýrar eignir standa á móti
dýrum lánum. I öðru lagi viðvar-
andi rekstrar- og uppbyggingar-
vandi verslunardeildarinnar. í
þriðja lagi þunglamalegt stjórn-
skipulag og mismunandi hags-
munir eigenda.
Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til
Akureyri:
40 ára fermingar-
böm koma saman
Á morgun, hvítasunnudag,
ætla 40 ára fermingarbörn á
Akureyri, sem eru fædd árið
1936, að fjölmenna í messu í
Akureyrarkirkju sem hefst kl.
11. Að henni lokinni mun hóp-
urinn eyða deginum saman.
Fermingarbörnin fyrir 40 árum
voru 113 talsins. Séra Friðrik
Rafnar fermdi, aðstoðarprestur
var séra Pétur Sigurgeirsson.
óþh
bóta hefur ekki tekist að ná tök-
um á þessum samþætta vanda
með þeirn afleiðingum að bók-
fært eigið fé Sambandsins fer
minnkandi. Því felur aðalfundur-
inn stjórn Sambandsins að leita
allra leiða til að treysta starfs-
grundvöll þess með eftirfarandi
aðgerðum: 1. Deildum Sam-
bandsins verði breytt í hlutafélög
eftir starfsgreinum enda verði
náið samráð haft við innlenda og
erlenda lánadrottna. 2. Stefnt
skal að því að þessi hlutafélög
verði til að byrja með að minnsta
kosti í helmingseign Sambands-
ins en leitað verði markvisst eftir
utanaðkomandi hlutafé til að
styrkja fjárhagsgrundvöll þeirra.
3. Gera skal sérstakar ráðstafanir
bæði skipulags- og rekstrarlegs
eðlis, til að snúa við taprekstri
verslunardeildarinnar og Jötuns.
Takist það ekki verði eignir
þeirra seldar og deildirnar lagðar
niður. 4. Leitað verði leiða til
þess að eigið fé Sambandsins geti
endurspeglast í efnahagsreikn-
ingi kaupfélaganna. 5. Samband-
ið verði rekið sent samnefnari
félagsheildarinnar og forystufélag
samvinnumanna sem hafi hlut-
verk stefnumótunar, samræming-
ar og eignastjórnunar en fáist
ekki við rekstur. Breyta skal
samþykktum þess þannig að það
geti sinnt þessu hlutverki sem
bes.t, þar sem m.a. reglur um kjör
á aðalfund verði aðlagaðar nýj-
um aðstæðum og stjórn þess gerð
skilvirkari. Þessar breytingar á
samþykktum skal leggja fyrir
aðalfund eða aukafund sem boð-
að skal til með tveggja mánaða
fyrirvara.
Stjórnin skal hefjast handa við
þessi verkefni strax að loknum
aðalfundi og stefnt að því að
þeirn verði í meginatriðum lokið
um næstu áramót.“ óþh
Sumarsýning
2. 3. og 4. júní frá kl. 13.00-16.00.
í Skála v/Laufásgötu
Ford Sierra,
Ford Escort,
Suzuki Swift 4x4
Suzuki Vitara
sjálfskiptur,
Suzuki Swift
Sedan 1600,
16 ventla
og fleiri bílar
til reynsluaksturs
Bílasalan hf.
Skála v/Laufásgötu, Akureyri
Símar 96-21666, 23809 & 26300.
Nýtt
símanúmer
Frá og með 1. júni 1990
er símanúmer skiptiborðs
Pósts og síma 63 60 00
og myndsendisnúmer 63 60 09.
Nánari upplýsingar eru
á blaðsíðum 338 og 339
í símaskránni.
PÓSTUR OG SÍMI
Vi'ð spörunt þér sporin
r63 60 0
GOTT FÓLK / SlA 5500-157