Dagur - 02.06.1990, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 2. júní 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1000 A MANUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJAN KRISTJAnSSON.
RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON.
UMSJ.MAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON.
BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþr.),________
KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR. LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON.
PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN. ÚTLITSH.: RlKARÐUR B.
JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.: FRlMANN FRlMANNSSON.
DREIFINGARSTJ.: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR,
HEIMASlMI 25165. FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Mesti stödugleiki í efna-
hagsmálum um 20 ára skeið
Einn helsti efnahagssér-
fræðingur landsins, Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, telur að leita
þurfi tvo áratugi aftur í tím-
ann til að finna viðlíka
stöðugleika í íslensku efna-
hagslífi og ríkir þar um þessar
mundir. Þetta kom fram í við-
tali við Þórð í Degi sl. fimmtu-
dag. í viðtalinu segir Þórður
að margir samverkandi þættir
hafi leitt til þess árangurs,
sem nú væri sjáanlegur í
efnahagsmálum þjóðarinnar,
en nefnir sérstaklega þrjá
þætti sem skipta meira máli
en aðrir. Gefum Þórði orðið:
„í fyrsta lagi hefur hag-
stjórn verið með þeim hætti
að miðað hefur í átt til jafn-
vægis í efnahagslífinu
almennt. í öðru lagi voru
gerðir kjarasamningar í byrj-
un febrúar sem samrýmast
þeim markmiðum sem talið er
ákjósanlegt að ná og í þriðja
lagi hafa ytri skilyrði þjóðar-
búsins og þá sérstaklega á
útfluttum sjávarafurðum lag-
að stöðu þjóðarbúsins."
Forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar bendir á að á ýmsum svið-
um geti almenningur merkt
þennan aukna stöðugleika í
efnahagslífinu. Gengi krón-
unnar hafi verið óbreytt frá
áramótum, verðhækkanir ver-
ið litlar að undanförnu og
nánast þær sömu og í nálæg-
um löndum. Með sama
áframhaldi megi búast við að
verðbólgan verði einungis 4-
5% á næstu mánuðum, miðað
við heilt ár. Þessi orð forstjóra
Þjóðhagsstofnunar er enn ein
staðfesting þess að yfirstjórn
efnahagsmála hér á landi er
nú markvissari en verið hefur
um langt árabil.
Þegar ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar tók við
völdum eftir skammvinna
efnahagsóstjórn ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonar, var efna-
hags- og atvinnulíf lands-
manna að hruni komið. Ríkis-
stjórn Steingríms setti sér
þegar í upphafi það markmið
að auka stöðugleika efna-
hagslífsins með því að snar-
lækka verðbólguna og koma
henni niður fyrir 10 af hundr-
aði á tiltölulega skömmum
tíma. Almennt var litið svo á
að þetta markmið ríkisstjórn-
arinnar væri með öllu óraun-
hæft, enda höfðu margar
ríkisstjórnir á undan þessari
haft þetta háleita markmið að
leiðarljósi, án árangurs. En
staðreyndirnar tala sínu máli.
Með víðtækri samstöðu úti í
þjóðfélaginu við gerð síðustu
kjarasamninga var lagður
grunnur að nýrri þjóðarsátt í
kjaramálum, þjóðarsátt sem
hefur skilað okkur nær því en
nokkru sinni fyrr að skapa
varanlegan stöðugleika í
íslensku efnahagslífi. Ríkis-
stjórnin átti stóran þátt í
þeirri þjóðarsátt, ekki síst
með víðtækri endurreisn
atvinnulífsins sem ríkis-
stjórnin hafði forgöngu að
strax og hún komst til valda.
Næstu mánuði mun árang-
ur ríkisstjórnarsamstarfsins
koma enn betur í ljós. Það
kæmi ekki á óvart þótt ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar ætti eftir að auka vin-
sældir sínar mjög verulega á
þeim tíma. Staðreyndin er sú
að hún hefur unnið mjög gott
starf, sem fram til þessa hef-
ur ekki verið metið að verð-
leikum. Mesti stöðugleiki í
efnahagsmálum um tuttugu
ára skeið ber verkum ríkis-
stjórnar Steingríms Her-
mannssonar fagurt vitni. BB.
úr hugskotinu
í
Eftir ballið
Reynir
Antonsson
skrifar
Liðið vaknaði með mismikla timburmenn og mis-
miklar harðsperrur á sunnudagsmorguninn eftir ball-
ið sem tölvuvæddir fjölmiðlar þessa lands gengust
fyrir í tilefni þessara kosninga, eins og þeir gera
reyndar að afloknum hverjum kosningum. Ball sem
eins og alltaf á almennilegum böllum, getur af sér hin
ýmsu ástarsambönd, stundum jafnvel í beinni útsend-
ingu, en splundrar öðrum samböndum eins og
gengur. Fyrir suma var þarna stiginn Hrunadans,
aðra leiknir sigurmarsar. Sumir hafa vafalítið
skemmt sér konunglega, en öðrum hefur vafalítið
þótt þetta grautfúlt. Eiginlega er ekkert eðlilegra en
að svo hafi verið. Það er nefnilega þannig með lýð-
ræðið eins og aðrar íþróttir, það geta ekki allir verið
sigurvegarar. Þeim tapsáru til huggunar má þó segja,
eins og um landann þegar hann Iiggur í handbolta eða
spjótkasti: Það er alltaf mikilsvert að vera með.
Gamaldags
Hinir tölvuglöðu spekingar þessa lands munu fá ærið
að starfa næstu daga og vikur við að túlka, mistúlká,
rangtúlka eða barasta oftúlka úrslit þessara
sveitarstjórnakosninga. Menn munu án efa gera sitt
besta til að hagræða tölunum, því eins og alkunna er,
þá ljúga tölur aldrei. Þeim má hins vegar snúa og þær
Íaga á ýmsan hátt, en slíkt kallast ekki blekkingar eða
lygar, heldur sniðugheit, klókindi eða jafnvel hag-
sýni; allt eiginleikar sem eru ómissandi þættir í sannri
stjórnvisku. Annars vekur athygli varðandi þessi
kosningaúrslit hvað þau virðast eitthvað óttalega
gamaldags. Tökum dæmi héðan frá Akureyri. Þar
gerðist ekki annað en það að við erum einfaldlega
komin með svipaða skipan bæjarstjórnar og fyrir ára-
tug eða svo. Hjörðin villuráfandi er snúin aftur heim
til Framsóknar. Sennilega hefur beitarlandið ekki
verið sem skyldi í Kratalandi og hagarnir ekki álitleg-
ir þar sem konur ráða eða hjá flokknum sem kennir
sig við þjóðina. Alls staðar á landinu er hið sama uppi
á teningnum. Kjósendur virðast yfirleitt hafa haldið
sauðtryggð sinni við gömlu, góðu flokkana, og ný
sameiningarframboð, einkum á vinstri kantinum,
sem orðið hafa til af einhverju leyti fyrir áhrif frá
lýðræðisbyltingunni í Evrópu, hafa átt afarerfitt upp-
dráttar, svo ekki sé meira sagt. Þeirrar hægri sveiflu
sem gekk yfir Evrópu fyrir þetta 10 til 15 árum gætti
eitthvað, þó ekki eins mikið og við hefði mátt búast.
Undrabókstafur
Það er ekki hægt að tala um hina miklu fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem einhverja
hægrisveiflu, heldur fyrst og fremst sem persónulegan
sigur Davíðs konungs, mannsins sem kvað hafa tekist
að breyta einni skopparakringlu í Perlu, líkt og
Denni honum Arafat í ljóðinu hans Hallbjarnar
Kántrý. Gildir þá einu hvort hann hafi með þessu
stórmóðgað íbúa Mallorca, perlu Miðjarðarhafsins,
eða Hríseyjar, perlu Eyjafjarðar. Þá hafa án efa
margir kjósendur ekki talið „Nýjan vettvang" álitleg-
an kost, þar sem því verður ekki neitað að þar með
slæddist alls kyns lið sem allajafnan er ekki talið til
vinstri, eins og til að mynda þessar klíkur áhangandi
Borgaraflokknum og SÁÁ sem enn hefur ekki
almennilega náð að þurrka af sér Hafskipsorðið.
Og svo er nú Sjálfstæðisflokkurinn ekki einu sinni
almennilegt íhald eins og það þekkist í Evrópu, held-
ur að miklu leyti hagsmunabandalag nokkurra
velmektugra ætta og fjölskyldna. Þannig verður að
telja það afar ósennilegt, að Sjálfstæðisflokkurinn
setjist nokkru sinni í ríkisstjórn án þess að þar sé að
minnsta kosti einn ráðherra af Engeyjarætt, og þá
þurfa Thorsararnir, aðalverktakaliðið og allir hinir að
fá sína bitlinga líka til að geta komið illa fengnum
gróða sínum í lóg.
Það er annars svolítið skondið að D skuli vera lista-
bókstafur þeirra sjálfstæðismanna. Þessi stafur stend-
ur vitaskuld fyrir Davíð, þó svo að hann standi að
vísu einnig fyrir Denna og Dæmalausaland. En það
er nú líka alveg dæmalaust sniðugt þegar hinir einu
og sönnu talsmenn einkaframtaksins hér á landi
„Granda“ fyrirtækjum sínum. Segja þau til sveitar til
að bjarga eigin lúxusvillum og lúxuslífsstíl, og hljóta
að launum formennsku í stærstu sölusamtökum
íslensks sjávarútvegs.
En listabókstafur þessi stendur líka fyrir dugnað,
og hvað sem um Davíð konung annars má segja, þá
neitar enginn dugnaði hans og metnaði fyrir hönd
sinnar heimabyggðar. Einmitt þennan metnað finnst
manni oft dálítið skorta á hér um slóðir. Fyrirtæki
annaðhvort leggja upp laupana, eða hlaupa suður yfir
heiðar. Knattspyrnulið bæjarins virðast varla nenna
að spila og steinliggja því, og menn hafa ekki metnað
til að flytja til bæjarins aðra skemmtikrafta en dansk-
an gaulara sem aldrei verður mikið meira en gutlari
þótt hann hafi með sér ein tíu tonn hljóðfæra, á sama
tíma og Reykvíkingar virðast hafa náð að nappa til
sín sjálfum Bob Dylan, sem hér ætti að sjálfsögðu að
svara með að fá Rolling Stones eða eitthvert álíka
nafn. Vínardrengjakórinn, þessi vinsæla skreyting úr
ýmsum ágætum myndum í Guðföðurstíl, er í sjálfu
sér ágætur, en það bara þarf meira ef þessi bær á að
verða eitthvert nafn á sviði ferðaþjónustu, iðnaðar og
sjávarútvegs. Og það sem ekki má koma fyrir, er það
að á komandi kjörtímabili verði hér starfandi einhver
litlaus, smásálarlegur og bitlingasinnaður „Akureyr-
arflokkur“. Félagshyggjuöfl þessa bæjar bókstaflega
verða að ná saman og mynda framsækinn, nútímaleg-
an og metnaðarfullan meirihluta, sem er reiðubúinn
að hefja þann lífróður sem til þarf svo þetta fagra og
veðursæla svæði verði eitthvað annað og meira en
bara þjóðgarður og byggðasafn fyrir regnþreytta
sunnanmenn.