Dagur - 02.06.1990, Side 7
Laugardagur 2. júní 1990 - DAGUR - 7
Kímni og skop í
Nvja Testamentinu
- eftir sr. Jakob
Jónsson
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefið út ritið Kímni og skop í
Nýja testamentinu eftir sr. Jakob
Jónsson. Bók þessi í eigin þýð-
ingu höfundar var komin nokkuð
á veg í prentsmiðjunni þegar sr.
Jakob varð bráðkvaddur í heim-
sókn á æskuslóðir sínar, Djúpa-
vog, 17. júní í fyrrasumar. Var
útgáfunni þá frestað um sinn til
að ljúka skrám um tilvitnanir í
Biblíuna og bókmenntir rabbía
sem voru enn ósamdar fyrir
íslensku þýðinguna. Sonur
höfundar, dr. Þór Jakobsson
veðurfræðingur, vann svo skrár
þessar. Kímni og skop í Nýja
testamentinu er doktorsrit sr.
Jakobs Jónssonar og kom fyrst út
á ensku hjá Menningarsjóði
1965, en öðru sinni í Leiden í
Hollandi 1985.
Formálar að Kímni og skopi í
Nýja testamentinu eru eftir
höfund, útgefanda og Krister
Stendhal Stokkhólmsbiskup. Sr.
Jakob tileinkaði ritið eiginkonu
sinni, Þóru Einarsdóttur. Bókin
skiptist í tólf kafla auk inngangs
og eftirmála. Ennfremur fylgja
henni skrár um rit, heimildir, til-
vitnanir og mannanöfn. Kímni og
skop í Nýja testamentinu er 334
bls. að stærð. Kápu gerði Sigurð-
ur Örn Brynjólfsson.
Sjávarútvegsstofnun
HáskóTans:
Hagsæld í húfi
- bók um stjórn
fiskveiða komin út
Út er komin bókin Hagsæld íhúfi
og fjallar hún um eitt mikilvæg-
asta hagsmunamál þjóðarinnar á
þessari öld: Stjórn fiskveiða við
ísland. Bókinni er ætlað að vekja
lesendur til umhugsunar um þann
skipulagsvanda, sem við er að
glíma í íslenskum sjávarútvegi.
Henni er einnig ætlað að hjálpa
lesendum að mynda sér skynsam-
lega skoðun á þvf, hvaða ráð
dygðu best til að leysa vandann á
hagkvæman og réttlátan hátt.
Bókin geymir 25 ritgerðir eftir 12
höfunda, en þeir eru: Bjarni
Bragi Jónsson, Einar Júlíusson,
Friðrik Már Baldursson, Gísli
Pálsson, Guðmundur Magnús-
son, Gylfi Þ. Gíslason, Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, Ragnar
Árnason, Rögnvaldur Hannes-
son, Snjólfur Ólafsson, Þorkell
Helgason og Þorvaldur Gylfason.
Höfundar nálgast efnið út frá
ýmsum hliðum og má sem dæmi
nefna grein Snjólfs Ólafssonar og
Þorkels Helgasonar, „Stjórn fisk-
veiða, markmið og leiðir", en þar
er að finná ítarlegt yfirlit yfir
umræðu undanfarinna ára og
gagnrýna úttekt á helstu sjónar-
miðum sem fram hafa komið.
Hagsæld í húfi er bók sem á
erindi til allra þeirra sem láta sig
þjóðmál varða.
Sjávarútvegsstofnun Háskól-
ans og Háskólaútgáfan standa að
útgáfu bókarinnar. Bókinni er
dreift af Bóksölu stúdenta og fæst
í helstu bókabúðum landsins.
eins oq þú vilt
að aorir aki!
|| UMFERÐAR
-------------------------------
Mirtjagripir
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. óskar eftir því
að komast í samband við aðila
sem framleiða nú þegar eða
hafa áhuga á að framleiða minjagripi.
Megin áhersla er lögð á gripi sem nýta
íslenskt hráefni og eða byggja á þjóðlegri hefð.
Áhugasamir vinsamlega hafi samband við
Þorleif Þór Jónsson hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar hf.,
Geislagötu 5, 600 Akureyri, sími 26200.
©1IÐNÞRÓUNARFÉIAG
J EYJAFJARÐAR HF.
Aðalfundur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
verður haldinn dagana 7. og 8. júní 1990
í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis.
$ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Húsbréf Einföld og örugg leið
til að stækka við sig
Er kominn tími til að stækka við sig? Húsbréfakerfið er einföld
og örugg ieið við kaup og sölu íbúða.
Seljir þú íbúð þína í húsbréfakerfinu, er hagkvæmt fyrir þig að
nota húsbréfin við áframhaldandi íbúðarkaup og spara þér þar
með ýmis útgjöld. Ætlir þú að fá fyrirgreiðslu í húsbréfakerfinu
er afgreiðslutíminn að'eins nokkrar vikur, frá því að þú hefur
fengið umsögn ráðgjafastöðvar um greiðslugetu þína.
Umsögn um greiðslumat eykur á öryggi þitt, bæði við
kaup og sölu.
( húsbréfakerfinu áttu kost á háu láni á einum stað, þú sparar
þér fyrirhöfn og útgjöld af öðrum lántökum og átt auðveldara
með að halda yfirsýn yfir skuldir þínar. Húsbréf eru skattfrjáls,
ríkistryggð skuldabréf sem seljendur íbúða ráðstafa að vild.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá fasteignasölum og hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins um kaup og sölu íbúðar í húsbréfakerfinu.
KYNNINGARMYNDBÖND
Kynningarmyndbönd um húsbréfakerfið liggja frammi á næstu dögum hjá
fasteignasölum og hjá Húsnæðisstofnun. Þau eru einnig m.a. væntanleg á
sveitastjórnarskrifstofur og myndbandaleigur um land allt.
cfb HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVÍK SÍMI 696900
SAMElNADA/SlA