Dagur - 02.06.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 2. júní 1990
Leigumiðlun Félagsstofnunar
stúdenta á Akureyri
Félagsstofnun óskar eftir herbergjum og íbúðum
af öllum stærðum og gerðum á skrá.
Félagsstofnun kemur á sambandi milli leigusala og
leigutaka.
Félagsstofnun útvegar ábyrgðartryggingu ef óskað er
eftir.
FHúseigendur sem geta hugsað sér að leigja stúdentum
við Háskólann á Akureyri hafi samband við skrifstofu
Háskólans 5.-8. júní í síma 27855. Nánari upplýsing-
ar veita Jón Þórðarson og Ólafur Búi Gunnlaugsson.
Ingvar Þorvaldsson sýnir 40 myndverk í Gamla Lundi um hvítasunnuhelg-
ina.
vskt?
Reitur A: Skattskyld velta, þ.m.t.
úttekt til eigin nota, sala rekstrar-
fjármunaog innborganir fyrir
afhendingu. Fjárhæðin færist án
virðisaukaskatts.
Reitur B: Undanþegin velta. Hér er
m.a. átt við útflutning, sölu dagblaða
og aðra sölu sem ber „núllskatt". Ekki
skal færa hér upplýsingar um
undanþegnastarfsemi.
Reitur C: Útskattur, sáskattur sem áuppgjörs-
tímabilinu hefur fallið á skattskylda veltu,
þ.e. reiknaður útskattur af allri sölu eða
afhendingu skv. reit A.
Reitur O: Innskattur, sá skattur sem á uppgjörs-
timabilinu hefur fallið á kaup eða eigin innflutning
ávörum eða þjónustu til nota í rekstrinum.þ.e.
aðföng sem varða sölu á vöru, vinnu eða þjónustu
skv. reitum A og B.
Reitur E: Fjárhæðtil greiðslu eða
inneign. Ef útskattur, skv. reit C, er
hærri en innskattur, skv. reit D, skal
merkja við í reitinn „Til greiðslu" en
ef innskattur er hærri en útskattur
skal merkja við í reitinn „Inneign".
Athygli skal vakin á því að ef
skilafjárhæð er núll eða engin
starfsemi hefur farið fram á
tímabilinu ber samt að fylla
skýrsluna út og skila henni.
5^ S S
iurfei
• |lllII
ergalddagi
virðisaukaskatts!
Fyriríram árifaðir gíróseðlar
irðisaukaskattsskýrslan er í formi
gíróseðils. Gjaldanda ber að nota þá skýrslu sem
honum berst árituð. Berist skattskyldum aðila ekki
árituð skýrsla skal hann nálgast hana hjá skattstjóra
eða innheimtumanni í sínu umdæmi og árita hana.
Hvenær á að skila skýrslu?
' jalddagi virðisaukaskatts er 5. júní.
Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á
gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki nægir að
póstleggja greiðslu á gjalddaga.
Hvar má greiða?
^ kýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má
skila til banka, sþarisjóða eða pósthúsa. Einnig má
greiða hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru
tollstjórinn í Reykjavík, sýslumenn og bæjarfógetar í
kaupstöðum, bæjum og sýslum, og lögreglustjórinn
á Keflavíkurflugvelli.
Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir
og pósthús taka aðeins við skýrslum sem áritaðar
hafa verið af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna
sjálfur eða breytir áritun verður að skila henni til
innheimtumanns ríkissjóðs.
Inneignarskýrslur
tm f innskattur er hærri en útskattur, þ.e.
gjaldandi á að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti,
skal skila skýrslunni til skattstjóra í viðkomandi
umdæmi.
*•>•* . ** .< .- z-. ■ ~-C < * c:
RSK
RÍKISSKATTSÍiÓRÍ
„Móðirogbam“
færa út kvíar
Hjálparsamtökin Móðir og barn
eru nú að færa út kvíarnar með
húsnæðisaðstoð fyrir einstæðar
mæður. Til skamms tíma hafa
fjórar mæður verið í húsnæði á
vegum samtakanna (ein frá nóv.
1989, en hinar frá febrúar 1990).
Fjórar einstæðar mæður bættust
svo við í byrjun þessa mánaðar,
og sennilega verður ein íbúð til
viðbótar tekin á leigu um næstu
mánaðamót. Þær átta konur, sem
nú leigja hjá samtökunum, eru
með sjö börn á framfæri sínu, en
ein er barnshafandi. Stjórn sam-
takanna gerir ráð fyrir, að sú
áætlun standist, að um mitt árið
verði 10 konur komnar í húsnæði
á vegum samtakanna. Móðir og
barn niðurgreiðir leiguna um
30%, þó að hámarki 8.000 kr. á
mánuði fyrir hverja konu.
Samtökin Móðir og barn voru
stofnuð 1. des. 1987. Tilgangur
þeirra er fyrst og fremst að bæta
úr erfiðum húsnæðisaðstæðum
einstæðra mæðra og barna
þeirra. Móðir og barn er löggild
sjálfseignarstofnun með skipu-
lagsskrá, sem staðfest hefur verið
með forsetabréfi. Leitað hefur
verið til einstaklinga, félaga,
fyrirtækja og hins opinbera um
stuðning við þetta hjálparstarf.
Viðtökur manna hingað til hafa
verið forsenda þess, hversu langt
þetta starf er komið áleiðis, en
frekari stuðnings er þörf til að
tryggja áframhald og eflingu
þessarar þjónustu. Eftir að
málefnið hefur verið kynnt
almenningi með viðhlítandi
hætti, er fyrirhugað að fara út í
almenna fjársöfnun. Stofnunin
væntir áfram góðra undirtekta
við tilmælum um framlög til
hjálparstarfsins. Allar frekari
upplýsingar má fá í síma samtak-
anna, 22275 (og 27101), bæði fyr-
ir væntanlega skjólstæðinga og
styrktarfélaga. í stjórn Móður og
barns eiga sæti Elínborg Lárus-
dóttir félagsráðgjafi, Jón Valur
Jensson cand. theol., sr. Þór-
steinn Ragnarsson deildarstjóri
og Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir
Skáld. Fréttatilkynning.
Nýttá
söluskrá
DALSGERÐI:
150 m’ raðhúsíbúð á tveimur
hæðum. Falleg eign.
SKARÐSHLÍÐ:
3ja herbergja íbúð á 4. hæð í
fjölbýlishusi. Góð eign.
TJARNARLUNDUR:
5 herbergja endaíbúð í fjölbýl-
ishúsi. Falleg eign.
Okkur vantar allar gerðlr og stærð-
ir eigna á skrá.
Opið alla daga frá kl. 9-19.
Laugardaga frá kl. 14-16.
Fasteigna-Torgið
Glerárgötu 28, Akureyri
Sími: 96-21967
F.F. Félag
Fasteignasala
Sölumaður: Björn Kristjánsson.
Heimasimi 21776.
Ásmundur S. Jóhannsson, hdl.