Dagur - 02.06.1990, Side 11
Laugardagur 2. júní 1990 - DAGUR - 11
Iðunn með eitt verka sinna fyrir framan Gamla Lund. Myndir: EHB
eins og sést þegar þau eru skoðuð. Ákveðin
dulúð er meðal þess sem ég vil gjarnan sjá í
mynd.
Ég var að hugsa um það um daginn
hversu erfitt mér finnst að finna stutt heiti á
myndirnar mínar. Nafnið verður að túlka
það sem ég er að segja í verkinu, og oftast
þyrfti miklu lengra mál til að segja það sem
mér býr í brjósti. Ég er manneskja and-
stæðna og mikilla stemmninga í listsköpun.
Þetta kemur m.a. fram í ljóðagerð minni og
barnasögum eða ævintýrum, sem ég hef
samið.“
Postulínsmálun
- Hefur þú ekki kennt postulínsmálun?
„Já, það vildi þannig til að ég hafði sótt
nokkur námskeið í þeirri grein og stundaði
þetta alltaf af og til. Kona nokkur kom að
máli við mig, en hún hafði setið námskeið
sem haldið var í húsnæði Húsmæðraskólans
hér í bæ. Pá var svo mikil eftirspurn eftir
slíkum námskeiðum að færri komust að en
vildu, auk þess sem eitt námskeið var alls
ekki nægilegt fyrir fólk sem vildi ná ein-
hverjum tökum á þessu.
Þessi umrædda kona spurði mig hvort ég
væri til í að kenna postulínsmálun. Ég hló
að þessu og fannst hugmyndin fáránleg. Ég
sagði að þótt ég gæti málað fyrir sjálfa mig
væri það ekki nóg til að geta kennt, til þess
þyrfti sérstaka hæfileika. Ég lét þó undan og
ákvað að prófa. Fjórar konur voru á þessu
fyrsta námskeiði, sem ég hélt. Eftir að hafa
kennt í þrjár klukkustundir fyrsta kvöldið
var ég alveg útkeyrð, og hefði líkast til ekki
verið þreyttari eftir viku vinnu. En við þetta
hef ég verið síðan, og líkar ágætlega að
kenna. Þó hef ég verið á hrakhólum með
húsnæði, þtn' ég bý í litlu húsi. Ég hef orðað
þetta svo að ég sofi hjá trönunum mínum,
er með krítina í stofunni og mála postulín
við eldhúsborðið. Brennsluofninn er í bíl-
skúrnum. Plássið hjá mér er því fullnýtt.
í postulínsmálun eru margir möguleikar,
fólk þarf ekki endilega að stunda hefð-
bundna postulínsmálun, heldur má stílfæra
o.s.frv. Þó kenni ég öllum nemendum að
mála blóm, laufblöð og slíkt sem nauðsyn-
legt er að kunna.“
Myndhópurinn
Nú berst talið að Myndhópnum á Akureyri,
en það er hópur myndlistarfólks sem heldur
árlegar samsýningar í bænum. Fyrir
skömmu var slík sýning einmitt haldin í
Gamla Lundi.
- Hvernig er andinn í Myndhópnum?
„Hann er ágætur, tel ég. Þess félagsskap-
ur var stofnaður fyrir tólf eða þrettán árum.
Guðmundur Ármann, Örn Ingi og Aðal-
steinn Vestmann voru meðal frumkvöðla
eða stofnenda hans. Mér var boðið að taka
þátt í þessu, og fannst það heilmikill heiður,
því ég var rétt byrjuð að mála á þessum
tíma, og taldi mig tæpast það færa að ég ætti
heima í slíkum félagsskap.
Hugmyndin var sú að efla samvinnu lista-
manna, því þeir voru talsvert einangraðir,
hver í sínu horni. í Myndhópnum áttu allir
að geta unnið og sýnt saman, bæði leikir og
lærðir. Myndhópurinn er ekki fjölmennur,
og hver sem er getur sótt um inngöngu.
Næst fyrsta árið auglýstum við t.d. og buð-
um gestum að sýna. Þetta er jákvætt vegna
þeirra mörgu sem eru að vinna að verkum í
heimahúsum og hafa ekki aðstöðu til að
sýna einir. Það er ekki eins mikið mál að
eiga tvær eða þrjár myndir á samsýningu og
að setja upp einkasýningu.
Myndhópurinn hefur sýnt á hverju ári,
stundum oftar en einu sinni, og víðar en á
Akureyri. Við höfum farið á Húsavík,
Sauðárkrók, að Stórutjörnum o.fl. staði.
Við vinnum ekki saman öðruvísi en að
standa saman að sýningum, en auk þess
erum við aðilar að MENOR.“
Göngulistadagar í Austurríki
í fyrra fór Iðunn í námsferð t Austurrík-
is, og var það jafnframt í fyi ,ta sinn sem
hún steig fæti út fyrir landsteinana. Sú ferð
hafði nokkuð sérstæðan aðdraganda.
„Fyrir þremur árum hafði ég hug á að
eignast stærra hús, því mig vantaði betri
vinnuaðstöðu. Ég hafði augastað á tilteknu
húsi, en því fyl^di ágætur bílskúr með stór-
um gluggum. Eg auglýsti húsið mitt því til
sölu. Ég varð að selja fljótt, því naumur
tími var til stefnu með eignina sem ég vildi
kaupa. Ekkert varð þó úr þessum viðskipt-
um, en í tengslum við þetta komu til mín
mæðgin frá Austurríki. Þau höfðu hug á að
kaupa lítið og gamalt hús, og leist þeim vel
á húsið mitt. Þó kom á daginn að þau töldu
sig ekki ráða við þetta peningalega.
Eitthvað hlýt ég þó að hafa sýnt þeim,
eða þau rekið augun í verk eftir mig, því ári
síðar kom konan með vinkonu sína í heim-
sókn. Tilgangurinn var að bjóða mér að
taka þátt í sérstökum „göngulistadögum“ í
Austurríki.
Eiginmaður konu þessarar er listamaður í
bæ sem heitir Hitzendorf, en þar búa þrjú
þúsund íbúar. Þessi staður er nokkra kíló-
metra frá Graatz. Þau hjónin höfðu komið á
samvinnu við Norðmenn. Eina skilyrðið fyr-
ir þátttöku var að ég veitti síðar viðtöku
listafólki sem kæmi í sömu erindum, að
ganga um og mála úti í náttúrunni, auk þess
sem ég var beðin um að sjá því fyrir ódýru
fæði og húsnæði.
Mér voru boðin tvö pláss í viðbót. Þar
sem engir í Myndhópnum gátu nýtt sér þessi
pláss fór dóttir mín Elísabet með, en hún er
í myndlistarskóla. Hitt plássið fékk Pétur
Guðmundsson, myndlistarmaður á ísafirði,
formaður Félags myndlistarmanna á Vest-
fjörðum.
Þetta var mánaðarferð, og ákaflega
skemmtileg, þótt erfið væri. Þetta var í júlí-
mánuði, og hitinn var mikill. Við bjuggum í
skóla, höfðum góða eldunaraðstöðu og
viðurværi. Listafólkinu var boðið í allmarg-
ar veislur, en ferðinni lauk með sameigin-
legri sýningu í Hitzendorf. Henni var vel
tekið, sýningin var svo flutt til Graatz, þar
sem opnunin var með mikilli viðhöfn. Sýn-
ing þessi fékk góða umsögn í blöðum.
Bæjarstjórnin í Hitzendorf keypti eina
mynd eftir mig.
Nafnið „göngulistadagar" er engin tilvilj-
un, því við áttum að upplifa náttúruna með
því að ganga á ýmsa staði, þar sem mótíf
voru fyrir hendi. Reyndar var ekki mjög
þægilegt að ganga þegar hitinn var 27 gráður
í forsælu og logni, en göngutúrinn var oft
einn og hálfur til tveir tímar. Við lögðum
venjulega af stað um tíuleytið á morgnana
og gengum til klukkan tólf. Þá var málað.
Venjulega var ekkert eftir af mér eftir þess-
ar göngur. Á kvöldin var módelteikning, en
ég tók ekki þátt í henni, var alltof þreytt eft-
ir daginn, og þótti það miður.
En þetta var góð reynsla, og við náðum
góðum tengslum við fimm Norðmenn, sem
þarna voru. Þau koma til íslands síðast í
júní, en Austurríkismennirnir koma næsta
sumar. Fólk í Myndhópnum verður með í
að taka á móti fólkinu í sumar og fara með
það um nágrenni Akureyrar.
Mér finnst skipti eins og þessi vera afar
jákvæð, því þau gefa listafólki tækifæri til að
kynnast og dvelja í öðru landi án þess að
þurfa að kosta miklu til. Auk þess er gott að
dvelja hjá fólki sem er kunnugt staðháttum
í viðkomandi landi."
Að vera myndlistarmaður
á Akureyri
- Hvernig er að vera myndiistarmaður á
Akureyri?
„Mér finnst ég fá ágætis viðtökur. Ég hef
að vísu einu sinni verið tætt niður opinber-
lega, og það var í listrýni í Degi. Þar sagði
m.a. að ég kynni ekki að draga rétt strik og
ætti að fara í skóla.
Mér finnst listgagnrýni vera oft á tíðum
vera rugl. Vissulega má fólk láta álit sitt í
ljós, því engir tveir liafa sama smekk. En að
tíunda verk fólks í þeim tilgangi að tæta þau
niður er ósanngjarnt, og hefur slíkt brotið
marga svo illa niður að þeir hafa alveg gefist
upp. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Hvað mig sjálfa snerti þá var langt frá því
að ég áliti mig eða mín verk fullkomin, en
ég reiddist þessum skrifum. Þau voru ekki
rökstudd á neinn hátt, en það hlýtur þó aö
vera forsenda þess að mark sé á þeim tak-
andi.
Myndlistarmenn á Akureyri vantar meiri i
sýningaraðstöðu. Mér finnst það til skamm-
ar fyrir forráðamenn Akureyrarbæjar í
gegnum árin að þeir skuli ekki hafa séð
sóma sinn í að koma upp nothæfri sýningar-
aðstöðu, bæði fyrir heimamenn og gesti.
Margfalt minni bæir geta boðið góða sali,
t.d. Húsavík og Sauðárkrókur. Gamli
Lundur er ágætur, en fleiri staði vantar því
salur Myndlistarskólans er oftast upptekinn á
veturna.
Svningar á Akureyri eru venjulega vel
sóttar. og sölusýningar ganga frekar vel,
hefur mér fundist."
- Gætir þú hugsað þér að búa annars
staðar en á Akureyri?
„Ég hef oft sagt að ég myndi aldrei vilja
setjast að í Reykjavík. Það væri í lagi að
búa í nágrenni borgarinnar, en ekki í henni
sjálfri.
Ég hef búið í fjölbýlishúsi, og það líkaði
mér ekki. Eftir að við maðurinn minn fyrr-
verandi slitum samvistum keypt ég þetta
litla og gamla hús á Oddeyri, þar sem ég hef
búið síðan. í því er mjög góð sál, og það
hefur vissulega áhrif á mig. Ég hef alltaf
kunnað vel við mig í gömlum timburhúsum.
Að vísu hefði ég alveg getað hugsað mér að
búa inni í Fjöru, en maður getur sæst á að
búa hvar sem er með tímanum, held ég. Ég
er að vinna í garðinum mínum, og ætla að
gera hann að „rómantískasta“ garðinum á
Eyrinni."
- Hefur þú rómantískan smekk?
„Það hefur verið sagt við mig að svo sé,
en það er annarra að dæma um slíkt í verk-
um mínum.
Ég hef áhuga fyrir andlegum málum, og
ég veit að andlegir og trúarlegir straumar
koma fram í mörgum myndanna. Ég vil
gjarnan koma ákveðnum boðskap til skila,
kalla fram það góða í tilverunni og hið
jákvæða hjá fólki.
Einu sinni var ég spurð um hvernig eftir-
mæli ég vildi fá. Ég hugsaði mig mjög lengi
um, og sagði að ég vildi að hægt væri að
segja um inig að ég hefði verið nokkuð góð
manneskja. Ég ætla ekki að fullyrða neitt
um hvort mér tekst það. Ég hef ekki stefnt
að frægð eða frama, en ntér þætti gott að
svona eftirmæli gætu orðið að sannmæli á
sínum tíma.“ EHB