Dagur - 02.06.1990, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 2. júní 1990
Nú á síðustu árum hafa garðeigendur verið að átta sig á því að á
markaðinn eru komnar mjög margar gerðir yfírbreiðslna sem ann-
aðhvort breiðast yfír beðin og plantað er í gegn eða breiðast hrein-
lega yfír plönturnar (akrýldúkur). Vegna þess hversu sumarið er
stutt hér á landi er það góð trygging fyrir uppskeru að notast við
einhvers konar yfírbreiðslu.
Notkun yfirbreiðslna í matjurtarækt
Lengd sumars
Pað sem skilur okkur frá ná-
grannalöndum okkar í veðráttu
er það hversu sumarið er stutt og
hversu miklar sveiflur eru í
veðurfarinu. Eins og vorin hafa
verið hjá okkur síðastliðin ár,
þ.e. mikil snjóalög yfir öllu, stytt-
ist sumarið til muna og mat-
jurtagarðarnir verða ekki tilbúnir
fyrr en seint og síðar meir vegna
jarðvegskulda og bleytu. Síðan
er annar galli á sumrinu og hann
er sá að snemma í ágúst getur far-
ið að bera á haustfrostum, að
vísu mjög vægum en nóg til þess
að draga úr vexti plantnanna.
Yfirbreiðslur
Til eru nokkrar gerðir yfir-
breiðslna úr plastefnum og úr
trefjaefnum sem notaðar eru í
mismunandi ræktun og með mis-
munandi aðferðum. Hvítt plast
er oft notað í ræktun salats og er
þá breitt yfir beðið, fest niður á
jöðrum með jarðvegi og plantað í
gegnum göt sem skorin eru í
plastið. Þetta heldur illgresi niðri
og kemur í veg fyrir að hnausarn-
ir verði skítugir. Svart plast eða
Garðaplast eins og það heitir er
0,05 mm þykkt plast eða öllu
heldur þunnt sem hefur mikið
verið notað í ræktun og þykir það
allra besta þegar rækta á trjá-
kennda græðlinga. Þá eru búin til
beð, plastið sett yfir og strengt og
síðan fest niður með jarðvegi.
Síðan er græðlingum stungið í
gegnum plastið með hæfilegu
millibili. Svart plast hefur verið
notað í kartöflurækt, það er þá
sett yfir garðinn eftir niðursetn-
ingu og svo þarf að fylgjast náið
með því þegar grösin koma upp
Umsjón: Baldur
Gunnlaugsson,
skrúðg.yrkjufr.
og skera gat fyrir hverju einasta
grasi. Þessi aðferð ver garðinn
auðvitað fyrir illgresi en er sein-
leg og óheppileg aðferð nema um
litla garða sé að ræða. Svart plast
heldur niðri illgresi, bætir raka-
skilyrðin og eykur jarðvegshit-
ann. Glært plast er það efni sem
mest hefur verið notað í heimilis-
ræktun enda verið lengst á mark-
aði og hentar auk þess mjög vel til
að skýla plöntum. í dag ér hægt
að fá glæra plastið í nokkrum
þykktum og breiddum. Það er
oftast notað til að festa á gróður-
reiti eða gróðurboga og kostir
þess eru að það eykur hitann
mikið, heldur rakanum vel inni
og er níðsterkt. Ókostirnir eru
mikil daggarmyndun sem er
óheppileg t.d. í gulrótarækt
þ.e.a.s. droparnir falla ofan í
jarðveginn og losa upp fræið, og
léleg loftun því að plastið andar
ekkert og fúlt loft getur myndast
ef ekki eru skorin göt á það.
Trefjadúkur eða akrýldúkur
Fyrir nokkrum árum kom á
markaðinn nýtt efni til notkunar í
matjurtarækt en það var trefja-
dúkur unninn úr polypropylen
trefjum og þekkist hann nú til
dags undir nafninu akrýldúkur.
Má segja að um byltingu hafi ver-
ið að ræða því að hann er ótrú-
Iega léttur og plönturnar lyfta
honum auðveldlega. Kostirdúks-
ins eru hækkun jarðvegshita,
hækkun lofthita, hann er tölu-
verð frostvörn í vægurn frostum,
hægt er að vökva í gegnum hann
og regnvatn fer auðveldlega í
gegn, hann veitir mikið skjól,
hann er auðveldur í uppsetningu,
hefur góða loftun og eins og áður
sagði er hann mjög léttur. Okost-
ir dúksins eru mun færri en kost-
irnir trefjarnar í dúknum geta
gisnað töluvert og er ending hans
þess vegna ekki mjög mikil og
líklegt er að það sé þessu atriði
að kenna að kálflugan virðist
komast í gegn þ.e.a.s. að dúkur-
inn kemur ekki í veg fyrir að flug-
an verpi en getur dregið úr því.
Notkun dúksins
Hann er venjulega notaður til að
Akrýldúkur er notaður víða erlendis til að flýta uppskeru.
Teikningin sýnir gróöurboga með akrýldúk. Einnig er hægt að hafa glært plast og er það fest alveg eins.
skýla grænmeti, jarðarberjum og
kartöflum. Til að fá uppskeru
sem fyrst er best að setja dúkinn
yfir garðinn um leið og snjór er
horfinn og hafa hann þar þangað
til garðurinn er orðinn þurr, taka
hann þá ofan af og planta græn-
metinu eða setja niður kartöfl-
urnar, vökva vel og setja dúkinn
yfir aftur. Dúkinn er best að festa
niður með jarðvegi eða stinga
niður í gegnum hann hæla en
gæta verður þess að á honum sé
—plöntukyrining----------
nógur slaki til að plönturnar geti
lyft honum.
Því ekki að prófa?
Já, því ekki að prófa að hafa ann-
an hluta garðsins án dúks og hinn
hlutann með dúk yfir. Með þessu
móti má ná fram tveimur upp-
skerustigum, þ.e.a.s. það sem er
undir dúknum þroskast u.þ.b.
tveimur vikum fyrr en hitt og fæst
þá alltaf ferskt grænmeti með
matnum.
Samanburður
Þegar borin eru saman trefjadúk-
ur og glært plast koma augljósir
yfirburðir trefjadúksins í ljós. Að
vísu heldur plastið meiri hita inni
en hitastigið er mun sveiflukenn-
dara en hjá dúknum. Dúkurinn
virðist halda vel 4° C hærri hita
en er úti. Einnig er loftunin
miklu betri hjá dúknum en hjá
plastinu. Dúkurinn fæst í nokkr-
um breiddum hjá Sölufél. garð-
yrkjumanna í Reykjavík.
HaQjyrnir og Silfurblað
Silfurblað
Elaeagnus commutata. Elaeagn-
us er samsett úr tveimur grískum
orðum, elaia sem þýðir olíutré og
agnus sem þýðir: líkist mýrar-
plöntu. Commutata þýðir að
hreyfast, bærast. Silfurblað hefur
eins og nafnið gefur til kynna silf-
urgljáandi blöð fremur lítil en
Silfurblað: Er sérkennilega grá planta
sem sómir sér ágætlega í hleðslu.
þétt á stilknum sem er mjög sér-
kennilega rauðbrúnn og eins og
hann hafi silfurhreistur. Ársprot-
arnir eru ljósari og ekki eins
gljáðir og vel uppréttir. Blóm og
aldin eru bæði mjög lítil og held-
ur óásjáleg. Hér á Akureyri hef-
ur Silfurblað þrifist ágætlega
enda þarf það alla sól og allt það
skjól sem völ er á.
Hafþyrnir
Hippophae rhamnoides. Hippo-
phae er grískt nafn á Mjólkurjurt
og rhamnoides þýðir: líkist
Þorstatré. Hafþyrnir er lágvax-
inn runni hérlendis, kræklóttur
og hefur þyrna eins og nafnið gef-
ur til kynna, svokallaða blað-
þyrna. Hann fær steinaldin, gult
eða rauðgult á stærð við bláber,
súrt og mjög C-vítamínríkt og
það situr á greinunum langt fram
á vetur. Hafþyrnir er svokölluð
frumbyggjaplanta sem helgast af
Hafþyrnir: Er sérkcnnilcga þyrnótt
planta scm verður þakin af gulum
berjum.
því að hann hefur á rótum sér
geislasvepp sem aflar köfnunar-
efnis. Hann þrífst best í sendnum
og grýttum jarðvegi, kelur lítið
og er vindþolinn og mjög saltþol-
inn. Greinar hans líkjast mjög
greinum Silfurblaðs og hafa sama
lit og hreistrað yfirborð.