Dagur - 02.06.1990, Page 13
poppsíðon
Laugardagur 2. júní 1990 - DAGUR - 13
l
The Smithereens:
Rökrétt framhald
The Smithercens. Nýja platan rökrétt framhald.
Ferill bandarísku hljómsveitar-
innar The Smithereens hefur ver-
iö býsna skrykkjóttur gegnum
tíðina. Hún vakti gífurlega mikla
athygli meö fyrstu stóru plötu
sinni Especially for you sem út
kom 1986 og var þaö einróma
skoðun gagnrýnenda að blanda
sveitarinnar á rokki í anda sjö-
unda áratugarins (Bítlunum,
Rolling Stones o.fl.) og sveita-
tónlist væri mjög vel heppnuð. Á
Especially for you eru mörg góð
lög s.s. eins og Behind the wall of
sleep og In a lonely place þar
sem söngkonan Suzanne Vega*
syngur bakraddir.
í kjölfar útkomu EFY fóru The
Smithereens í tónleikaferðalag
um Evrópu og þar á meðal hing-
að til fslands. Gerði hljómsveitin
mikla lukku og var troðfullt á
tvennum tónleikum sem haldnir
voru í (slensku Óperunni.
Especially for you var reyndar
ekki frumraun The Smithereens
á plasti því árið 1983 gaf sveitin
út fjögurra laga EP plötu sem
síðan var endurútgefin 1987.
Önnur breiðskífan Green
Thoughts kom síðan út 1988 en
þvi miður náði hún ekki að fylgja
vinsældum EFY eftir og er það
umsjónarmanni Poppsíðunnar
Hittogþetta
Madonna
Poppsíðan sagði frá því fyrir
skömmu að von væri á plötu með
Madonnu með lögum úr nýju
myndinni hennar Dick Tracy. Er
platan nú nýkomin út og heitir
hún l’m Breathless, en það nafn
ber einmitt þersónan í myndinni
sem Madonna leikur. Auk laga
eftir Madonnu sjálfa eru þrjú lög
eftir söngleikaskáldið Stephen
Sondheim á plötunni. Einnig
verða á plötunni einhver lög sem
ekki eru í myndinni.
Umsjón:
Magnús Geir
Guömundsson
ráðgáta því Green Thoughts er
ef eitthvað er betri en EFY. Þeir
félagar í The Smithereens voru
þó ekki af baki dottnir þrátt fyrir
lélegar viðtökur á Green
Thoughts og kom þriðja breið-
skífan þeirra 11 út seint á síð-
asta ári. Sem fyrr er formúlan
melódískt rokk af gamla skólan-
um með sveitatónlist í bland, en
nú hefur orðið sú breyting aö
annar upptökustjóri Ed Stasium
er komin í stað Don Dixon sem
stjórnaði upptökum á hinum
tveimur fyrri. Fyrir vikið er hljóm-
urinn á 11 skærari og nútímalegri
en á hinum tveimur og í sumum
tilfellum virkar tónlistin kraftmeiri
en áður. Stenst 11 því fyllilega
samanburð við EFY og GT og
má segja að hún sé nokkurn veg-
inn í beinu framhaldi af þeim.
Það er því ekki auðvelt að tína út
lög og segja að þau séu best en
dæmi um frábær lög á plötunni
eru Blues before and after (Titill
sem velta má fyrir sér hvað
merkir) og Room without a view.
Það eru því eindregin tilmæli mín
til allra sem eiga fyrri skífur The
Smithereens og annarra að næla
sér í eintak af 11 ef þeir hafa þá
ekki nú þegar gert það.
í SUNNUHLÍÐ
INXS
Ástralska popp/rokksveitin INXS
er nú vöknuð eftir um tveggja ára
dvala og mætt í hljóðver að taka
upp sína sjöundu plötu. INXSsem
gerði allt vitlaust með plötunni
Kick fyrir nokkrum árum hyggst
síðan fylgja nýju plötunni eftir
með tónleikaferðalagi um víða
veröld þegar hún kemur út í
haust.
Simple Minds
Fyrir aðdáendur Simple Minds
sem væntanlega syrgja brott-
hvarf hennar sárlega skal bent á
að nýlega hefur verið gefið út
myndband með hljómsveitinni á
tónleikum í Verona á Ítalíu.
Myndbandið sem er það fyrsta
og eina sem gefið hefur verið út
fyrir almennan markað nefnist
einfaldlega Verona og er 90
mínútur að lengd.
5. - 8. J Ú N í 19 9 0
fpnunarhátíð
örukynningar
/ning á tjöldum og útilegubúnaði
ynning á skóm frá Strikinu
irillveisla
/ning á módelflugvélum
lyndataka af börnum í skrípamótum
ynning á tœkifœrisfatnaði
ynning á framtíðarskipulagi í Glerárhverfi
étur Pétursson og Nói Björnsson árita bolta
/ning á tjaldvögnum og kerrum
affihlaðborð
/ning á hjólhýsum
ynning á slökkvitœkjum og frœðsla um
Idvarnir
• Hljóðfœraleikur
® Sýning á tréútskurði
• Frœðsla um garða og garðrœkt
• Sýning á garðhúsgögnum
• Barnabókavika
• Hljóðfœrakynningar
• Afsláttarverð á ýmsum vörum
• Snyrtivörukynning
• Kynning á framleiðsluvörum Leðuriðjunnar
Teru
• Kynning á sportfatnaði
• Kynning á nýjum brauðum
• Vöfflur og kaffi
• Kynning á ITC félagsskapnum
• Frœðsla um íslenska sveppi
Rory Gallagher
írski blúsrokkarinn Rory Gallagher
er nú nýbúinn að senda frá sér
nýja þlötu, kallast hún Fresh Evi-
dence og er hans fyrsta síðan
Defender kom út 1987.
Madonna orðin andlaus.
í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri eru 20
verslanir og þjónustuaðilar
Njóttu vorsins með okkur og láttu sjá þig á
Vordögum 1990