Dagur - 02.06.1990, Qupperneq 17
Laugardagur 2. júní 1990 - DAGUR - 17
efst í huga
Umhverfismál
og ferðamenn
Hvítasunnuhelgin er fyrsta ferðahelgi
sumarsins og búast má við að um þessa
helgi verði talsverð umferð á þjóðvegum
landsins. Sem betur fer eru þeir æ fleiri
íslendingarnir sem kjósa að ferðast
innanlands í fríum sínum og síðustu árin
hefur straumur erlendra ferðamanna til
landsins einnig aukist. Vissulega er
margt jákvætt við þessa þróun en nei-
kvæðu þættirnir eru einnig til.
Nú í vikunni var sýndur í Ríkissjón-
varpinu bandarískur þáttur þar sem fjall-
að var um þau umhverfisvandamál sem
heimsbyggðin stendur frammi fyrir. Þar
var með réttu bent á að margt má betur
fara. Hver og einn einstaklingur getur
lagt lóð á vogarskálarnar í bættri
umgengni við móður jörð. Þessi boð-
skapur á ekki síður erindi til (slendinga.
Hér eru mengunarmál sannast sagna
víða í miklum ólestri og gefur að líta
mörg dæmi í nánasta umhverfi okkar.
Víst er kominn tími til að hefja alvarlega
umræðu um þessi mál og að þess verði
krafist af stjórnvöldum að þau gangi á
undan með góðu fordæmi í stað þess að
þessi umræða einskorðist við innantóm-
ar viljayfirlýsingar stjórnmálamanna á
hátíða- og tyllidögum og kosningafund-
um.
Hér í upphafi minntist ég á ferða-
mannastrauminn yfir sumartímann. Þó
svo að ferðamannaþjónustan færi þjóð-
arbúinu miklar tekjur þá er það engu að
síður staðreynd að dýrmæt náttúra okk-
ar ber skaða af ferðamannastraumnum.
[ vetur var ég staddur á fundi þar sem
umhverfismál og mengun af álverum
voru til umræðu og þar sagði einn fund-
armanna að þó svo að stóriðja hefði
mengun í för með sér þá þekkti hann
það af reynslu í ferðaþjónustu að fátt væri
meira mengandi en ferðamenn. Þetta
eru stór orð og nú hugsa sjálfsagt margir
með sér að þetta sé allt mengun frá
útlendingunum. En varla er hægt að
kenna útlendum gestum um allt, sjálf
hljótum við að geta búið svo um hnútana
að þeir gestir sem við tökum á móti
gangi með virðingu um landið. Flestir sjá
fyrir sér strangar reglur og eftirlit en það
er ekki nóg. Stærsta skrefið stígum við
sjálf með því að ganga sómasamlega
um landið og sýna því virðingu. Þetta
ættu innlendir ferðamenn að hafa að
leiðarljósi þegar lagt verður upp í sumar-
ferðalagið um landið. Góða ferð.
Jóhann Ó. Halldórsson
vísnaþáttur
Ágætur Akureyringur, bú-
settur í Reykjavík, sendi mér
þessar vísur: (Höfunda man
hann ekki, þó munu tvær þær
fyrstu úr Húnaþingum.)
Gömul kona kvað:
Til að hressa huga minn
hér í þessu stífsinni
tek ég blessað ölið inn
- ekki hlessa á tíðinni.
Léttlyndur kvað:
Engu kvíðir léttfær lund,
Ijúft er stríði að gleyma.
Blesa ríð ég greitt um grund.
Guðný bíður heima.
Á lífsins fley:
Djarft var forðum fleyi beitt,
freyddi um borð í röstum,
lögur, storð og loft var eitt
lífs í sporðaköstum.
Hvergi:
Harmur berst um hugasvið,
hjartað skerst af ergi.
Þegar mest ég þurfti við
þá voru flestir hvergi.
Jón Rafnsson orti á ferð um
Meyjarskarð:
Oft á mínum vegi varð
visin jörð og lítil spretta.
Margoft fór ég Meyjarskarð
miklu gróðursælla en þetta.
Sveinbjörn Beinteinsson:
(Samanb. ummæli völvunn-
ar.) *
Hef ég oft á hljóðu kveldi
huga mínum kosið ró.
Þögull setið einn hjá eldi
eða gengið fram með sjó.
F
Þá kemur kveðja Þórshafnar
í Færeyjum með gjöf til
Reykjav. á 200 ára afmælinu:
Tvinnar heilar öldir
farnar undir kav.
Tórshavn heilsar systur
sinni handan haf.
Steinn Steinarr kvað:
Hýsi ég ei mitt hugarvíl
því hrundir ei ég þekki.
Sumar hafa sexappíl,
- sumar hafa það ekki.
Ragna S. Gunnarsdóttir,
Kópavogi orti þessar vísur
við sönglag:
Ég karlinum mfnum vil kenna
um hvað eina er aflaga fer,
ei neinu mér virðist hann nenna
og nú lenda verkin á mér.
Flórinn svo fæ ég að moka
og fara verð kindanna til,
svo sýnir hann helberan hroka
og hangir með körlum við spil.
Þvíer ég að hugsa um að hætta
að hanga við karl minn og bú.
Því við sig hann verður að sætta
að vera einn í bólinu nú.
Jón Helgason frá Litlabæ á
Vatnsleysuströnd orti næstu
vísurnar:
Ástin:
Ástar glæðir eðlið hreint
æðri svæða máttur.
Ást er bæði Ijóst og leynt
lífsins æðasláttur.
Tálbeita.
Til að afla fiskjar fer
frúin mín og beitir
oftast bara bréfi er
bankaseðill heitir.
Júlídagur. (Sléttubönd.)
Lifir vonin, hrærist hlýtt
hörpusláttur fagur.
Yfir jörðu breiðist blítt
bjartur júlídagur.
Hilmir Jóhannesson á Sauð-
árkróki hlaut í jólagjöf
tóbakspung frá vinnufélaga
sínum og hafði frú hans
saumað. Hilmir sendi jóla-
kort:
Jólakortið:
Jólakveðju kortið ber,
kveðja sú víst skyldug er.
Huldu langar að þakka þér
það sem Lilja sendi mér.
Jóhannes Sigurðsson á Engi-
mýri kvað þessa um þáver-
andi þingmenn:
Þingmenn eru þjóðarmein,
þá mun enginn virða.
Verkin þeirra eru ein:
Aurana að hirða.
Jón Rafnsson kvað þegar
„krati“ bauð honum merki
flokks síns:
Kratar ekki koma út
Kainsmerki sínu.
Fann ég þá að fuglinn Sút
flaug úr brjósti mínu.
FALLEGUR GARÐURI
Fyrirtækið HIRDING tekur að sér alla
almenna garðhirðingu fyrir einstaklinga
jafnt sem hústélög.
Hér er um að ræða, garðslátt, snyrting
á könntum, hreinsun beða ásamt öðru
þvi sem snýr að umhirðu garða.
HIRÐING SF. Símar: 27370
og 22717
mimiiiiiiiimiiiiiiimmii
Iðnráðgjafi á
Vestfjörðum
Fjórðungssamband Vestfirðinga og Byggðastofnun
hafa gert samkomulag um að ráða Iðnráðgjafa fyrir
Vestfirði er starfi á skrifstofu Byggðastofnunar á
ísafirði.
Starfið er hér með auglýst laust til umsóknar og er
umsóknarfrestur til 20. júní.
Leitað er eftir starfsmanni með haldgóða tækni- og
eða viðskiptamenntun.
Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Guðmunds-
son, Byggðastofnun í Reykjavík í síma 99-6600
(Gjaldfrítt).
Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri störf
skal skilað til Byggðastofnunar, Pósthólf 5410, 125
Reykjavík.
Atvinnumálafulltrúi í
Norður-Þingeyjarsýslu
Byggðastofnun hefur ákveðið að ráða tímabundið
atvinnumálafulltrúa er starfi í Norður-Þingeyjar-
sýslu í samvinnu við héraðsnefnd Norður-Þingeyjar-
sýslu og Iðnþróunarfélag Þingeyinga.
Verkefni atvinnumálafulltrúans er að vinna að lausn-
um á atvinnuvandamálum í sýslunni og aðstoða við
tilraunir og nýjungar í þeim efnum.
Héraðsnefnd Norður-Þingeyinga mun sjá atvinnu-
málafulltrúanum fyrir starfsaðstöðu en hann mun
verða starfsmaður Byggðastofnunar.
Starfið er hér með auglýst laust til umsóknar og er
umsóknarfrestur til 20. júní.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu
Byggðastofnunar á Akureyri, sími 96-21210 og á
Byggðastofnun í Reykjavík (Sigurður Guðmunds-
son), í síma 99-6600 (Gjaldfrítt).
Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri störf
skal skilað til Byggðastofnunar, Pósthólf 5410, 125
Reykjavík.
Byggðastofnun
Plöntusala
Þú ert á grænni grein með plöntur frá Rein
Við höfum mikið úrval af
sumarblómum, dalíum o.fl.
Nú er tíminn fyrir limgerðis-
plönturnar.
Víðiplöntur og Aspir í miklu
úrvali.
Garðyrkjustöðin Rein
reppi.
Opið virka daga frá kl. 09.00-20.00.
Laugard. og sunnud. frá kl. 10.00-20.00.
Sími 31327.