Dagur - 02.06.1990, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 2. júní 1990
stjóri var Montgomery marskálk-
ur. Er veislustjóri tók unga liðs-
foringjann til yfirheyrslu vegna
framkomunnar þá varð Mont-
gomery marskálkur heldur for-
viða, því liðsforinginn sagðist
hafa hagað sér svona samkvæmt
leyfi Elísabetar drottningar.
Hann var spurður um hvernig
þetta mætti vera. Jú, hann kvaðst
einu sinni hafa hagað sér svipað í
hirðveislu og þá hefði drottning
sent til sín hirðþjón sem til-
kynnti:
- Þannig getið þér hagað yður
meðal félaga yðar í hernum - en
ekki í veislu hjá Englandsdrottn-
ingu.
Og nú hafði hann verið meðal
félaga sinna í hernum.
Diplómatía
Franski sendiherrann og rithöf-
undurinn Paul Morand sagði eitt
sinn:
- Hin æðsta diplómatía, hin
fullkomnasta stjórnmálakænska
er þessi: Að segja sannleikann
þegar aðrir halda að maður segi
hann ekki - og segja hann ekki
þegar aðrir halda að þeir hlusti á
hann. í hvorugt skiptið er logið.
Hví með opnum augum?
Hinn heimsfrægi maður, Albert
Schweitzer, tók eitt sinn á móti
nokkrum evrópskum gestum í
stöðvum sínum í Mið-Afríku,
þar sem hann hafði m.a. stofnað
sjúkrahús fyrir hina innfæddu.
Einn gestanna lét undrun sína í
ljós yfir því að hann skyldi hvergi
nokkurs staðar hafa séð lofthita-
mæli.
- Við notum ekki slíka hluti
hér um slóðir, sagði Schweitzer.
Ef við vissum hve hitinn væri
mikill þá myndum við alls ekki
geta lifað hér.
Jurtaætan
Sænska skáldið Hjálmar Söder-
berg var um skeið sem ungur
maður hin trúaðasta grænmetis-
æta. Dag nokkurn kom vinur
hans einn að honum á Grand
Café þar sem hann sat við borð
með geysistórt fat af kjötbollum
fyrir framan sig.
- Hvað er að sjá þig,
Hjálmar? sagði vinurinn. Ég hélt
að þú værir jurtaæta, grænmetis-
æta!
- Alveg rétt, hárrétt! sagði
Hjálmar Söderberg. En hver er
hin mesta gleði grænmetisætunn-
ar? Kjötbollur.
Sýfilis eða gálginn
John Wilkes var enskur stjórn-
málamaður og rithöfundur á 18.
öld. Á bautasteininum sem reist-
ur var á gröf hans er letrað: „Vin-
ur frelsisins.“ Þessi eftirmæli fékk
hann vegna þess að hann barðist
um langt árabil óeigingjarnri bar-
áttu gegn aðli og einveldi en fyrir
málfrelsi og borgaralegum rétt-
indum. En hann var líka frægur
fyrir drykkjuskap og kvennafar
og það gengu um hann ýmsar
ljótar sögur í þeim efnum.
Dag nokkurn hittust þeir í
þinghúsinu, Wilkes og jarlinn af
Sandwick. Jarlinn sagði við hann:
- Það veit hamingjan, herra
minn, að annað hvort verður það
sýfilis eða gálginn sem gerir út af
við yður að lokum.
- Og hvort af þessu tvennu
það verður, svaraði Wilkes, fer
algjörlega eftir því hvort ég læt
fremur blekkjast af stjórnmála-
skoðnum yðar, My Lord, eða ást-
ineyjum yðar. SS tók saman
Há upphœð
opnar leið
að hœrrí vöxtum!
í kýrhausnum
— gamansögur, sannar og
uppdiktaðar
Hefnd Michelangelos
Þegar Michelangelo var að mála
hina stóru dómsdagsmynd sína í
Sixtinsku kapellunni móðgaðist
hann mjög við hinn páfalega yfir-
kammerherra. En listamaðurinn
hefndi sín snilldarlega því hann
máiaði óvin sinn á myndina með-
al hinna fordæmdu í helvíti.
Kammerherrann varð óskap-
lega reiður og krafðist þess að
Páll páfi 2. léti Michelangelo
nema andlit sitt brott af mynd-
inni. En páfinn færðist undan.
- Það er ekki gerlegt fyrir mig,
sagði hann. Mér er að vísu gefið
allt vald á himni og jörðu, en ég
ræð engu í helvíti!
Leyfí drottningar
Ungur liðsforingi af aðalsættum
hagaði sér eitt sinn eins og hálf-
viti í veislu, sem foringjar her-
fylkisins tóku þátt í, en veislu-
Viltu sjá sameinaöan sparnaö þinn bera
góöan ávöxt? Sparileiö 2 er mjög hentug
leiö til sparnaöar í allt aö eitt ár. Hún gefur
þér kost á ávöxtun þar sem innstœöan
hefur áhrif á vextina. Sé upphœöin hœrri
en kr. 500.000,- fœröu strax hœrri vexti.
Á Sparileiö 2 geturöu náö 4% vöxtum
umfram verötryggingu.
Leiöarvísir liggur frammi á öllum
afgreiöslustööum bankans.
Sparileiðir íslandsbanka - fyrir fólk
sem fer síttar eigin leiðir í spamaði!
Fiskeldisstöð tíl söhi
Byggðastofnun og Fiskveiðasjóður íslands auglýsa
hér með til sölu eftirtaldar eignir: (Áður eignir Arlax
hf.)
1. Seiðaeldisstöðin Ártungu, Kelduneshreppi, Norð-
ur-Þingeyjarsýslu. Rými úti er 2.240 m3 og jnnj
290 m3. Virkjað vatn er um 500 lítrar á sekúndu.
2. Matfiskeldisstöð við Kópasker, Presthólahreppi,
Norður-Þingeyjarsýslu. Eldisrými er um 1.050 m3
auk u.þ.b. 3.000 m3 sem þarfnast lagfæringar.
Virkjað vatn er um 350 lítar á sekúndu og heitur
sjór um 350 lítrar á sekúndu.
Nánari upplýsingar veitir Valtýr Sigurbjarnarson,
Byggðastofnun Akureyri, Geislagötu 5,
sími 96-21210.