Dagur - 02.06.1990, Síða 20
Akureyri, laugardagur 2. júní 1990
Filmumnttaka' Kjörbúð KEA Byggðavegi
nimumöliaKd. Kjörmarkaður KEA Hrisalundi.
HUHin Sunnuhlíð
MeirihM að
myndast á Húsavík
- Málefnasamningur
að verða tilbúinn
Meirihlutamyndun í bæjar-
stjórn Húsavíkur er komin vel
á veg. Allt stefnir í meirihluta
framsóknar og sjálfstæðis-
manna.
Samkvæmt heimildum Dags á
aðeins eftir að fínpússa málefna-
samning. Flokkarnir hafa komið
sér saman um skiptingu embætta
og aðeins er eftir að fjalla um
texta og áherslur innan einstakra
málaflokka. Aðspurður kvaðst
heimildamaður ekkert vilja láta
eftir sér hafa varðandi bæjar-
stjóramál, annað en það að
flokkarnir væru búnir að ná sam-
komulagi um þau og ekki væri
tímabært að gefa nokkrar yfirlýs-
ingar, fyrr en flokksfólk hefði
fundað formlega um málefna-
samninginn. Fundur var fyrirhug-
aður í gærkvöldi eftir að blaðið
fór í prentun. óhú
Hafnarframkvæmdir
í Grímsey:
Iletjast í
næstu viku
Á vegum verktakafyrirtækisins
Istaks hf. eru að hefjast
umfangsmiklar hafnarfram-
kvæmdir í Grímsey. Stórvirkar
vinnuvélar eru á leiðinni til
Grímseyjar og verkinu á að
Ijúka á haustdögum.
Að sögn Aðalsteins Sigurþórs-
sonar hjá ístaki, eru stórvirkar
vinnuvéíar á leið til Grímseyjar
með Esjunni og starfsmenn fara
til eyjunnar strax eftir helgi.
„Okkar verk eru umfangsmiklar
hafnarframkvæmdir. í grófum
dráttum, að leggja út grjótvarn-
argarða, rúmlega 13.000 rúm-
metrar, og dýpka höfnina innan
garðanna. Þegar því er lokið að
byggja timburbryggju úr harðviði
innan á þessa nýgerðu varnar-
garða. Grjótið í varnargarðana
er búið að sprengja í eyjunni, en
það var gert í fyrra. Verkinu á að
ljúka á haustdögum,“ sagði
Aðalsteinn. ój
Eiríkur Sigfússon oddviti Glæsibæjarhrepps:
„Mikil andstaða í hreppum kringum
Akureyri við álver í Dysnesi“
- „Atlantalmenn hræddir við mengun og andstöðu sveitarfélaga
- eina vonin að ákveða staðsetningu við Árskógsströnd“
Eiríkur Sigfússon á Sílastöð-
um, oddviti Glæsibæjarhrepps,
segir að gífurlega mikil and-
staða sé við staðsetningu álvers
í Dysnesi meðal hreppanna
kringum Akureyri. Forsenda
þess að álver rísi í Eyjafirði sé
að sem fyrst verði hætt að
ræða um Dysnes, en ákvörðun
tekin um að nota hentugt
landsvæði á Árskógsströnd.
„Eyfirðingar ættu að afskrifa
Dysnes sem stað fyrir stóriðju. í
héraðsnefnd hefur helst ekki
mátt ræða andstöðu hreppanna
Góð aðsókn er að Háskólan-
um á Akureyri fyrir næsta
skólaár. Umsóknarfrestur um
nám við skólann rann út í gær.
I fyrradag höfðu borist 47
umsóknir um skólavist á fyrsta
ári á sjávarútvegsbraut, rekstr-
arbraut og heilbrigðisbraut.
Gera má ráð fyrir að einhverj-
ar umsóknir eigi eftir að
berast.
Helgarveðrið:
Veðurblíða
„Góða veðrið er hjá ykkur sé
litið til helgarinnar,“ sagði
Gunnar veðurfræðingur hjá
Veðurstofu íslands.
Norðlendingar munu njóta
veðursældar og veðu.rspáin lofar
sunnan og suðaustan átt og þurru
veðri og trúlega njótið þið sólar,“
sagði veðurfræðingurinn.
við álver í Dysnesi, og tekið fram
að umræða um málið gæti haft
neikvæð áhrif á möguleika þess
að fá stóriðju til Eyjafjarðar. Því
miður er alltaf til fólk sem tekur
flestu þegjandi sem aðrir rétta að
því, en ég vil ekki tilheyra þeim
hópi og áskil mér rétt til að láta
álit mitt opinberlega í ljós.
Andstaðan við álver í Dysnesi
er svo mikil að aldrei verður frið-
ur um málið fyrr en ákveðið
verður að staðsetja það við
Árskógssand,“ segir Eiríkur.
Eiríkur er þeirrar skoðunar að
Að sögn Stefáns G. Jónssonar,
forstöðumanns rekstrardeildar,
var skipting umsókna á þrjár
deildir skólans í fyrradag sú að 25
umsóknir höfðu borist um nám í
rekstrardeild, 12 í sjávarútvegs-
deild og 10 í heilbrigðisdeild.
Þetta er sami fjöldi nemenda
og hóf nám í sjávarútvegsdeild
um síðustu áramót, nokkru færri
nemendur en byrjuðu í hjúkrun-
arfræði í fyrra en hins vegar fleiri
nemendur í rekstardeild.
Stefán sagðist hafa skoðað
umsóknir í rekstrardeild og í ljós
hefði komið að af 23 umsóknum
höfðu 11 lokið framhaldsskóla-
prófi á Akureyri. Hinir umsækj-
endur kæmu víða að af landinu,
Reykjavík, Egilsstöðum, Akra-
nesi, Reykjanesi og víðar. Stefán
sagði einnig athyglisvert að rúm-
lega helmingur umsækjenda um
rekstrarfræði væri á aldrinum 25-
33 ára. óþh
ákvörðun um staðsetningu nýs
álvers við Árskógssand sé for-
senda fyrir því að álver komi á
annað borð til Eyjafjarðar. „At-
lantal-menn taka enga áhættu.
Þeir eru greinilega hræddir við
mengun af álveri í Dysnesi, og
vita af andstöðunni. Þessi mál
hafa verið mikið rædd í héraðs-
nefnd. Ég hef alltaf talið að sjón-
mengunin ein af stóru álveri í
Dysnesi væri nægileg ástæða til
að afskrifa þann stað, fyrir utan
alla aðra mengun. Álver á
Árskógssandi minnkar mengun
miðað við Dysnes.
Það er alvarlegur hlutur ef full-
trúar Akureyrar líta svo stórt á
sig að þeir eru tilbúnir til að hafa
eyðimörk kringum bæinn, bara
til þess eins að fá nokkra íbúa til
sín. Sigfús hefur sagt að ef álver
yrði staðsett á Árskógsströnd
mætti búast við að einhver hluti
starfsmanna myndi setjast að
annars staðar en á Akureyri, t.d.
á Dalvík. Finnst mönnum þetta
ekki goðgá? Ég hélt að álverið
væri mál Éyjafjarðar alls, en ekki
sérmál Akureyrarbæjar.
Sigfús Jónsson vill gera héraðs-
nefndina að bákni, með margar
undirnefndir. Tilgangurinn skín í
gegn, það er að skapa yfirvald
sem færir Akureyringum völd í
veigamiklum málum, og færa
ákvarðanatöku þannig frá lög-
lega kjörnum sveitarstjórnum,
Ég bendi á skipulagsmál sem
dæmi. Eigum við að sætta okkur
við að Akureyringar fjarstýri
skipulagi hreppanna og ráðstafi
landsvæðum þeiwa eftir eigin
geðþótta? Slíkt kemur ekki til
greina af minni hálfu. Þá vil ég
heldur enga héraðsnefnd. Akur-
eyri, Dalvík og Ólafsfjörður geta
þá stofnað sérstaka nefnd fyrir
sig. Dreifbýlissveitarfélögin
myndu þá vinna í samvinnu við
þá nefnd að einstaka máli.
Varðandi væntanlegan kostnað
Akureyringa af héraðsnefnd segi
ég að hrepparnir hafa hingað til
getað greitt hann sjálfir. I sam-
eiginlegum málum, t.d. skóla-
málum, er þegar samningur um
hvernig beri að skipa kostnaði
eftir íbúatölu sveitarfélaga. Tveir
hreppar Þingeyjarsýslu eru aðilar
að þeim samningi þótt þeir séu
ekki aðilar að héraðsnefnd, svo
dæmi sé tekið,“ segir Eiríkur Sig-
fússon.
Ekki náðist í Sigfús Jónsson
vegna þessa máls í gær. EHB
Búið er að ganga frá áfram-
haldandi meirihlutasamstarfi
Sjálfstæðisflokks, Alþýðu-
flokks og K-lista í bæjarstjórn
á Sauðárkróki. Aðeins er eftir
það formsatriði að undirrita
samninginn en mun það gerast
strax eftir helgi.
Málefnasamningurinn var
ræddur og samþykktur hjá listum
flokkanna á fimmtudag. Skipan í
helstu embætti verður þannig:
Forseti bæjarstjórnar verður
Knútur Aadnegard sem skipaði
toppsætið á lista Sjálfstæðis-
flokks. Formaður bæjarráðs
verður áfram frá Alþýðuflokki og
mun því Björn Sigurbjörnsson,
efsti maður á lista Alþýðuflokks,
verða í því embætti áfram eins og
Vínardrengjakórinn:
Nær uppselt
á tónleikana
í dag kl. 16 heldur Vínar-
drengjakórinn tónleika í
Akureyrarkirkju og búast
má við troðfullu liúsi áheyr-
enda, ef marka má ásókn I
aðgöngumiða til þessa. í
gærmorgun voru ekki marg-
ir miðar eftir.
Ingólfur Ármannsson, menn-
ingarfulltrúi Akureyrarbæjar,
sagði í samtali við Dag í gær-
morgun að örfáir stakir miðar
væru lausir á kirkjubekkina
sjálfa, en cinnig væru nokkrir
óseldir miðar á hliðarbekki.
Alls munu vera um 480 mið-
ar í boði. Setið verður á
bekkjum, hliðarbekkjum og
stólum niðri og einnig uppi á
svölunum. Ingólfur kvaðst
mjög ánægður með þessar við-
tökur sem Vínardrengjakór-
inn fær á Akureyri. SS
fyrir kosningar. K-listinn fær síð-
an formennsku í veitu- og hafnar-
stjórn og er það Hilmir Jóhann-
esson, efstur á K-listanum, sem
hlýtur það embætti. Bæjarstjóri
verður áfram Snorri Björn Sig-
urðsson og helsta nefndaskipan
mun verða hliðstæð því sem hún
var á síðasta kjörtímabili.
„Ég er ánægður með það að
áframhaldandi meirihlutasam-
starf hefur tekist. Þessir flokkar
hafa mikinn meirihluta atkvæða á
bak við sig svo þetta er full-
komlega lýðræðislegt hvað svo
sem einstaka aðrir aðilar halda,“
sagði Knútur Aadnegard, verð-
andi forseti bæjarstjórnar á Sauð-
árkróki, þegar Dagur talaði við
hann í gær. SBG
Háskólinn á Akureyri:
Um fimmtíu umsækjendur
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Sauðárkróks:
Knútur verður forseti og
Bjöm formaður bæjarráðs