Dagur - 06.06.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 6. júní 1990
105. tölublað
j£\ll± fyrír
HAFNARSTRÍTI 92 60? AKUREYRI SIMI 9676708 BOX 397
Nýr meirihluti myndaður á Húsavík:
„Atvinnumáliii mál málaima“
Norðurland vestra:
Yfír hundrað
teknir á
- Einar Njálsson verður bæjarstjóri
Nýr meirihluti framsóknar-
manna og sjálfstæöismanna
hefur verið myndaður í bæjar-
stjórn Húsavíkur. Búið er að
ganga frá máiefnasamningi og
koinast að samkoniulagi um
skiptingu embætta.
Meirihlutann skipa eftirtaldir
fjórir fulltrúar Framsóknar-
tlokks: Bjarni Aðalgeirsson,
Lilja Skarphéðinsdóttir, Svein-
björn Lund og Stefán Haraldsson
og frá Sjálfstæðisflokki þeir Por-
valdur V. Magnússon og Þórður
Haraldsson.
Skipan í helstu embætti verður
þannig: Einar Njálsson sem verið
hefur útibússtjóri Samvinnu-
bankans á Húsavík verður bæjar-
stjóri og að öllum líkindum einn-
Skógræktarátak:
7000 plöntur
gróðursettar
í Hrísey á
næstu dögum
„Já, það er rétt. Hríseyingar
eru í skógræktarátaki og ungir
sem aldnir planta skógi. Á
næstu dögum munum við
gróðursetja 7000 plöntur,“
sagði Guðjón Björnsson í
Hrísey.
Lerkiplöntur, sem Hríseyingar
gróðursettu 1984, hafa náð 120
cm hæð og í Hrísey verður
plantað út á næstu dögum 7000
víði- og birkiplöntum.
„Við gróðursetjum nú skjól-
belti, sem eiga að umlykja
kauptúnið, en síðar verður hugs-
að um trjárækt innan þess svæðis.
Einnig höfum við gróðursett
töluvert á fallegum stöðum í eyj-
unni. Að margra áliti hentar
birkið best hér en rjúpan fer illa
með það. Hún ræðst á enda-
brumið og veldur miklum skaða,
en engu að síður gengur þetta vel
og við vinnum einbeitt að skóg-
rækt í eyjunni," sagði Guðjón.
ój
ig formaður bæjarráðs. Forseti
bæjarstjórnar verður efsti maður
af flokki sjálfstæðismanna Þor-
valdur V. Magnússon. Skipting í
nefndir er nokkuð jöfn úr báðum
tlokkum.
Að sögn efstu manna beggja
flokka þá eru það atvinnumálin
sent eru hvað veigamest þeirra
mála sem bíða nýs meirihluta, og
einnig fer mikið fyrir hafnarmál-
um, gatnagerð og málefnum
skólamannvirkja.
„Atvinnumálin eru mál mál-
anna, hvernig heimta má meiri
sjávarafla af heildaraflanum, og
að vinna upp þá staðarkosti sem
Húsavík hefur til að bera þegar
urn er að ræða meiriháttar at-
vinnustarfsemi svo sent t.d. iðju-
ver, svo citthvað sé nefnt. í þessu
verður að vinna og kynna það
stjórnvöldum svo og að hlúa að
þeirri atvinnustarfsemi sem hér
er fyrir,“ sagði Bjarni Aðalgeirs-
son efsti maður af lista framsókn-
ar.
Aðspurður sagði Þorvaldur V.
Magnússon að „það þarf að gera
átak í atvinnumálum og einnig
þarf að fylgja eftir þeim málum
sem dregist hafa vegna utanað-
komandi aðstæðna sem illa hefur
ráðist við,“ og nefndi í því sam-
bandi gatnagerðar-, og skólamál
svo og æskulýðs og íþróttamál.
óhú
Sigurður Helgnsun, stjórnarformaður Flugleiða, afhenti Akureyringum úti-
listaverk á hvítasunnudag, sein fyrirtækið lét gera í tilcfni af því að 3. júní
1987 var hálf öld liðin frá því að samfellt atvinnuflug hófst á íslandi með
stofnun Flugfélags Akureyrar hf. Heiðurinn af listaverkinu, sem ber heitið
Farið, á Pétur Bjarnason, myndlistarmaður. Verkið cr við Strandgötu á
Akureyri.óþh
hraðferð
„Meiri umferð en verið hefur
síðustu hvítasunnuhelgar.“
sagði Kristján Þorbjörnsson,
yfírlögregluþjónn á Blönduósi.
Lögreglan þar stöðvaði um
helgina yfír hundrað ökumenn
fyrir of hraðan akstur.
Að sögn Kristjáns var töluverð
ölvun í þeirra umdæmi, en
óspektir voru þó ekki. Straumur
ferðamanna var óvenjumikill og
virtust menn vera á hraðferð svo
að lögreglan hafði í nógu að snú-
ast við að taka menn á ólöglegum
hraða.
Björn Mikaelsson, yfirlög-
regluþjónn á Sauðárkróki, kvað
helgina hafa verið fremur anna-
sama þó að þeir hefðu ekki orðið
mikið varið við ferðamanna-
strauminn sem lá í gegnum
Varmahlíð. Umtalsverö ölvun
var á Sauðárkróki og kvartaði
Björn yfir því hve rnikið hefði
verið um flöskubrot á götum
bæjarins þó að dansleikur sem
haldinn var á föstudagskvöldið
hefði ekki verið fjölmennur.
Eitthvað var um ölvunarakstur á
Sauðárkróki en engin slys í kring-
um hann.
Lögreglan á Sauðárkróki hefur
nú fengið nýjan bíl til notkunar
og er það sérsmíðaður lögreglu-
bíll frá SAAB-verksmiðjunum.
Kemur hann í stað Subarubif-
reiðar sern að sögn Björns var
orðin ansi þreytt og eru þetta því
kærkomin skipti. SBG
Akureyri:
Nýr bæjarstjómarmeirihluti myndaður
- oddvitar Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks segja að atvinnumál verði sett á oddinn
Alþýðubandalagið á Akureyri
og fulltrúaráð Sjálfstæðis-
flokksins funduðu í gærkvöld
um málefnasamning sem lagð-
ur er til grundvallar meiri-
hlutamyndunar þessara flokka
í Bæjarstjórn Akureyrar.
Fundum flokkanna var ekki
lokið þegar blaðið fór í prent-
un seint í gærkvöld, en Ijóst
þótti að fundirnir myndu sam-
þykkja þann málefnagrundvöll
sem unnið hefur verið að og
Heyskaparhorfur:
Sláttur iirnan 10 dagá?
í blíðviðrinu siðustu daga
hafa tún víða tekið vel við sér
og stefnir allt í að í Eyjafírði
verði sláttur snemma á ferð-
inni í ár, sérstaklega ef höfð
eru í huga snjóþyngslin síð-
astliðinn vetur. Helst vantar
nú rigningu til að örva sprett-
una enn frekar.
Guðmundur Stcindórsson hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
segir ótrúlegt að sjá hve hröð
spretta er á sumum túnum þessa
dagana. Dæmi eru þess að
bændur framan Akureyrar hafi
boriö á nokkur tún fyrir miðjan
maí og búast mcgi því við að
þau verði slegin innan hálfs
mánaðar.
„Nei mér kærni ekki á óvart
þótt sláttur yrði hafinn um
miðjan mánuðinn ef þessu líkt
tíðarfar heldur áfram. Að vísu
fer að vanta rigningu en við get-
um sagt með vissu að hey-
skapurinn vcrður ekki seint á
ferð í ár,“ segir Guðmundur.
JÓH
þar með leggja blessun sína
yfír meirihlutasamstarf flokk-
anna á kjörtímabilinu.
Málefnasamningur þessi verð-
ur ekki birtur opinberlega fyrr en
á næsta bæjarstjórnarfundi, sem
verður haldinn á þriðjudaginn.
Málefnasamningurinn verður
áður kynntur fyrir fulltrúum
minnihlutans í bæjarstjórn.
Þótt málefnasamningurinn sé
ekki orðinn opinber enn er Ijóst
að hann hefur nokkrar breytingar
í för með sér á yfirstjórn bæjar-
ins. Þannig verður stofnað nýtt
embætti formanns bæjarráðs.
Ætlunin er að Alþýðubandalagið
og Sjálfstæðisflokkur skipti með
sér hlutverki forseta bæjarstjórn-
ar. Sigríður Stefánsdóttir verður
forseti bæjarstjórnar fyrstu eitt
eða tvö árin. Líklegast þykir að
Sigurður J. Sigurðsson verði for-
maður bæjarráðs á meðan.
Bæjarstjórar á Akureyri hafa
til þessa starfað sem formenn
bæjarráðs. Hér er því um all-
mikla breytingu að ræða á starfs-
sviði bæjarstjóra.
„Kosningabaráttan stóð að
mestu leyti um atvinnumál. Hlut-
verk þessa nýja meirihluta er að
vinna þannig að málum að
atvinnulíf á svæðinu verður treyst
með öllum tiltækum ráðum,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson í
gær, er hann var spurður um
meginhlutverk nýja meirihlutans.
„Nýsköpun í atvinnumálum er
aðalhlutverk þessa nýja meiri-
hluta,“ segir Sigríður Stefáns-
dóttir. „Það verður eitthvaö nýtt
að koma til í atvinnumálum, og
það er aðalástæðan til þess að við
förum í þennan meirihluta. At-
vinnulíf á Akureyri verður að
efla með öllu mögulegu móti,
bæði með því að hlúa að því sem
fyrir er og með nýsköpun."
Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, verður næsti
bæjarstjóri á Akureyri. í spjalli
við Halldór kom fram að ýmsa
enda þarf að hnýta áður en hann
getur farið úr núverandi starfi,
eins og gefur að skilja. Halldór
vildi ekki gefa neinar yfirlýsingar
í gær, en Ijóst þykir þó að hann
getur ekki farið frá FSA með
rnjög skömmum fyrirvara. „Ég
hleyp ekki héðan út á viku, það
er af og frá,“ sagði Halldór í gær.
EHB
Akureyri:
Um þijátíu manns í steininn
- átta grunaðir um ííkniefnabrot
Um þrjátíu manns gistu fanga-
geymslur lögreglunnar á Akur-
eyri um helgina. Mikil fjöldi
fólks var í miðbæ Akureyrar
aðfaranótt laugardags og
sunnudags og var þar töluverð
ölvun.
Frá föstudagskvöldi til mánu-
dagsmorguns var vistaður 31
maður í fangageymslu lögregl-
unnar á Akureyri. Átta þeirra
voru vistaðir vegna gruns um
fíkniefnaafbrot og sex vegna ölv-
unaraksturs.
Að morgni laugardags var bíl-
velta á Þelamörk. Tveir voru í
bílnum og var farþegi fluttur á
slysadeild.
Ölvaður maður braut rúðu í
Tónlistarskólanum á Akureyri
aðfaranótt þriðjudags og fannst
þar sofandi.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík
voru þar brotnar tvær rúður og
skemmd tvö reiðhjól um helgina.
Öll eru þessi mál upplýst. óþh