Dagur - 06.06.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 6. júní 1990
Hornbrekka í Ólafsfirði:
Vemleg tekjuskerðing
vegna lausra plássa
fréttir
t
gæti þurft að segja upp fólki
Nú þykir sýnt að tekjuforsend-
ur fjárhagsáætlunar sjúkra-
deildar Hornbrekku í Ólafs-
firði fyrir yfirstandandi ár munu
ekki standast. Þetta helgast
fyrst og fremst af því að aðeins
9 af 13 leyfðum sjúkrarúmum
eru nýtt. Þar með verður
stofnunin af umtalsverðum
tekjum vegna minni daggjalda
Silfurstjarnan:
Guðmundur Valur
hætíur
Guðmundur Valur Stefánsson
er hættur störfum sem fram-
kvæmdastjóri fyrir Silfur-
stjörnuna hf. í Öxarfirði.
Guðmundur Valur sagði starfi
sínu lausu og hætti í maíbyrjun.
Hann er fluttur til Egilsstaða, og
mun hann hefja störf hjá fiskeld-
isfyrirtæki á Fáskrúðsfirði.
Björn Benediktsson, stjórnar-
formaður Silfurstjörnunnar, segir
að Guðmundur Valur hafi ákveð-
ið að skipta um starfsvettvang
fyrir nokkru. Ekki hafi verið ráð-
inn annar framkvæmdastjóri í
hans stað, en þau mál leysist inn-
an tíðar. Fjölskylda Stefáns
Valgeirssonar á hlut í Silfur-
stjörnunni, en ekki er Ijóst hvort
hún er að draga sig út úr fyrirtæk-
inu í kjölfar uppsagnar Guð-
mundar Vals. EHB
en gert var ráð fyrir í fjárhags-
áætlun.
„Reksturinn er mjög erfiður.
Það er komin upp sú staða sem
við reiknuðum ekki með að
sjúkradeildin nýtist ekki að fullu.
Við erum með fjögur pláss laus,
sem setur mikið strik í reikning-
inn. Þetta er kannski nokkuð sem
fáir reiknuðu með. En þó er
margt sem spilar þarna inn í, t.d.
aukin heimaþjónusta og heima-
hjúkrun,“ sagði Kristján H.
Jónsson, forstöðumaður Horn-
brekku.
Rekstur sjúkradeildar er ekki á
fjárlögum, en ríkið greiðir
ákveðin daggjöld fyrir hvert rúm.
Að sögn Kristjáns hefur verið
lauslega kannað hvort hægt sé að
fá utanbæjarfólk til skemmri og
lengri vistunar á sjúkradeild
Hornbrekku. Meðal annars hefur
verið horft til Dalvíkur og Húsa-
víkur í þeim efnum.
Launakostnaður er stærsti
rekstrarþáttur sjúkradeildarinnar
og því má að óbreyttu gera ráð
fyrir að fækka þurfi starfs-
fólki. Kristján vildi ekki tjá sig
um þetta atriði en í bókun stjórn-
ar Hornbrekku frá 9. maí sl. segir
að ef um samdrátt verði að ræða
í starfsemi sjúkradeildar þurfi að
fækka starfsfólki. óþh
Elín Jónsdóttir og heimasætan
leigunnar nýju í taumi.
Galtanesi með nokkra af fákum hesta-
Mynd: Kristján
Ný ferðamannaþjónusta í Galtanesi í Vestur-Húnavatnssýslu:
Boðið upp á hestaleigu og
stuttar hestaferðir í Víðidal
í Galtanesi í Víðidal hefur ver-
ið stofnað til nýrrar hestaleigu
og annarrar þjónustu við
ferðamenn í tengslum við þá
gisti- og veitingaþjónustu sem
þar er fyrir. Þar er nú hægt að
fá hesta í lengri eða skemmri
tíma.
Einnig verður boðið upp á
hestaferðir um nágrennið undir
leiðsögn heimamanna. Til að
auðvelda skipulagningu slíkra
ferða er betra fyrir fólk að til-
kynna þátttöku í þær fyrirfram,
að sögn Steinbjörns Tryggvason-
ar bónda í Galtanesi. Hestaleig-
an er hins vegar opin alla daga og
þarf ekki nauðsynlega að panta
Skagaströnd:
Vafaatkvæði kært til sýslumanns
Búið er að leggja fram kæru
hjá sýslumanninum á Blöndu-
ósi vegna utankjörstaðarat-
kvæðis sem dæmt var ógilt í
sveitarstjórnarkosningunum á
Skagaströnd. Málið er nú í
þriggja manna nefnd sem Jón
Isberg, sýslumaður, skipaði í
lögfróða menn og er úrskurðar
í málinu að Vænta innan hálfs
mánaðar.
Umboðsmaður G-listans lagði
fram þessa kæru nú fyrir helgi.
Jón skipaði strax í þriggja manna
nefnd sem fær hið umdeilda
atkvæði í sínar hendur til
skoðunar samkvæmt lögum um
sveitarstjórnarkosningar frá
1986. Samkvæmt upplýsingum
frá kjörstjórninni á Skagaströnd
var atkvæðið dæmt ógilt vegna
þess að undirskriftir vitundar-
votta vantaði á það.
Þetta atkvæði getur hugsanlega
breytt úrslitum kosninganna á
Skagaströnd, ef það verður dæmt
gilt. Því ef G-Iistinn fær það þá
þarf að varpa hlutkesti á milli
efsta manns á G-lista og annars
manns á D-lista. G-listinn gæti
því náð manni inn í sveitarstjórn
og bíða menn því.spenntir, sér-
staklega alþýðubandalagsmenn,
eftir úrskurðinum í þessu máli á
Skagaströnd. SBG
Steinullarverksmiðjan hf.:
Lítt umhverfisskaðleg efiii
Rannsóknir hafa leitt í Ijós að
magn umhverfisskaðlegra efna
(frítt fenól og formaldehyd) í
þeim efnum sem grafin voru
upp á lóð Stcinullarverksmiðj-
unnar hf. á Sauðárkróki 20.
apríl sl. var mjög lítið.
Efnagreiningu á umræddum
efnum, er grafin voru upp við
vegg Steinullarverksmiðjunnar
hf. er nú lokið. í frétt frá Holl-
ustuvernd ríkisins segir að í ljós
hafi komið að magn umhverfis-
skaðlegra efna hafi reynst mjög
lítið, en engu að síður hafi allur
fljótandi úrgangur, sem upp var
grafinn, verið sendur erlendis til
viðeigandi förgunar.
Niðurstöður efnagreininganna
staðfesta að um var að ræða
bindi- og hjálparefni, sem verk-
smiðjan notar við framleiðslu
sína. óþh
hesta með fyrirvara. ■«.. --
Fleira verður gert fyrir ferða-
menn í Galtanesi í framtíðinni. í
sumar verður t.d. lagður grunnur
að tjaldaðstöðu við eyrar Víði-
dalsár, þar er fyrir kyrrlátt og
fagurt svæði frá náttúrunnar
hendi.
Hestaferðirnar eru skipulagðar
þannig að fara má annað hvort
ríðandi í Borgarvirki eða fram að
Kolugljúfrum. í báðum þessum
ferðum verður boðið upp á hress-
ingu í áningarstað. Ferðir þessar
teljast rúntlega hálfsdagsferðír og
geta varað frá fjórunt til sex
tímum. Verður kunnugur líyíf/tá-
maður með í för, og skýrir frá því
helsta sem fyrir augu ber og segir
í stuttu máli sögur áningastað-
anna.
Gjaldi fyrir þessar ferðir verð-
ur stillt í hóf og vonast Steinbjörn
og eiginkona hans, Elín Jóns-
dóttir í Galtanesi, til þess að sem
flestir geti nýtt sér þessa þjónustu
í sumar og næstu sumur.
Bærinn Galtanes er í Víðidal í
Vestur-Húnavatnssýslu, eins og
framan greinir, og stendur við
hringveginn skammt norðan við
félagsheimilið Víðihlíð og gisti-
og veitingaskálann í Víðigerði. í
Víðigerði og víðar á ferðamanna-
stöðum í nágrenninu verður hægt
að fá nánari upplýsingar um
þjónustuna í Galtanesi.
i
bridds
Hrísey:
Sveit Eiríks Helgasonar
Galloway-meistari í bridds
öllum þátttakendum boðið upp á Galloway-steik að keppni lokinni
Fyrsta svokallaða Galloway-
briddsmótið var haldið á ann-
an hvítasunnudag í veitinga-
staðnum Brekku í Hrísey. Sex
sveitir mættu til leiks. Mótið
tókst í alla staði vel og gera
menn sér vonir um að slíkt mót
verði eftirleiðis árviss viðburð-
ur í Hrísey.
Galloway-meistarar á þessu
Sigursveit Eiríks Helgasonar frá Dalvík. Frá vinstri: Eiríkur Helgason,
Ásgeir Stefánsson, Jóhannes Jónsson og Hermann Tómasson.
fyrsta móti urðu liðsmenn sveitar
Eiríks Helgasonar frá Dalvík, í
öðru sæti sveit Jóns Sigurbjörns-
sonar frá Siglufirði og í þriðja
sæti sveit Grettis Frímannssonar
frá Akureyri.
Veitt voru vegleg verðlaun.
Félagar í sigursveitinni fengu
matarúttekt á veitingastaðnum
Brekku að verðmæti 4000 krón-
ur, önnur verðlaun voru ferð
með Sigurfara til Grímseyjar og
þriðju verðlaunin voru 40 kg af
fiskflökunt frá fiskverkun KEA í
Hrísey. Auk þess fengu allir
keppendur að gjöf minjagrip og
blóm.
Um skipulagningu mótsins og
keppnisstjórn sá Jakob Kristins-
son.
Að aflokinni spilamennsku
bauð Brekka keppendunt og
aðstandendum mótsins upp á
dýrindis kvöldverð, þ.á m. hina
rómuðu Galloway-steik. óþh
í öðru sæti varð sveit Jóns Sigurbjörnssonar frá Siglutirði. Frá vinstri:
Ásgrímur Sigurbjörnsson, Jón Sigurbjörnsson, Anton Sigurbjörnsson og
Bogi Sigurbjörnsson.
I þriðja sæti varð sveit Grettis Frímannssonar frá Akureyri. Frá vinstri:
Frímann Frímannsson, Grettir Frímannsson, Anton Haraldsson og Pétur
Guðjónsson.