Dagur - 06.06.1990, Síða 3
fréttir
í-
Húsbréfakerfíð:
Greiðslugeta metin hjá þeim
sem hyggja á nýbyggingar
Félagsmálaráðherra hefur gef-
ið út tvær reglugerðir um hús-
bréfaviðskipti. Annars vegar
er um að ræða reglugerð um
húsbréfadeild og húsbréfavið-
skipti vegna kaupa eða sölu á
notuðum íbúðum og kaupa,
sölu eða byggingar á nýjum
íbúðum. Reglugerðin kemur í
stað eldri reglugerðar um hús-
bréfadeild og húsbréfavið-
skipti. Hins vegar er um að
ræða reglugerð um breytingu á
reglugerð um húsbréfakaup líf-
eyrissjóða.
Frá 1. júní sl. gátu þeir sem
hyggjast nýta sér húsbréfavið-
skipti vegna nýbygginga fengið
greiðslugetu sína metna hjá hús-
bréfadeild Húsnæðisstofnunar en
skipti á húsbréfum og fasteigna-
veðbréfum vegna nýbygginga
koma þó fyrst til framkvæmda
Skógrækt á Melgerðismelum:
Fleiri sjállboðaliða vantar
Á Melgerðismelum og í landi
Melgerðis í Saurbæjarhreppi
er unnið að miklu skógrækt-
arátaki. Um síðustu helgi voru
20.000 plöntur gróðursettar á
svæðinu.
„Við ætlum að planta út 80.000
plöntum í sumar og vonandi enn
betur á næsta sumri. Okkur gekk
mjög vel um síðustu helgi, en þá
gróðursettu flugmenn, starfs-
menn Háskólans á Akureyri og
fólk úr Saurbæjarhreppi rétt um
20.000 plöntur, cn okkur vantar
fleiri sjálfboðaliða svo ætlun-
arverkinu verði náð,“ sagði Jón
Þórðarson, deildarstjóri við
Háskólann á Akureyri. ój
Aðalfundur SÍS á morgun
Aðalfundur Sambands is-
lenskra samvinnufélaga verður
haldinn á morgun og á föstu-
dag í fundarsal á fimmtu hæð í
Sambandshúsinu að Kirkju-
sandi.
Að fundarsetningu lokinni og
kosningu starfsmanna fundarins
mun Ólafur Sverrisson, formaður
stjórnar, flytja skýrslu stjórnar
og síðan mun Guðjón B. Ólafs-
son, forstjóri, flytja sína skýrslu.
Að því loknu verða umræður um
skýrslur stjórnarformanns og for-
stjóra.
Til viðbótar við hefðbundin
störf aðalfundar má gera ráð fyrir
að umræður um skipulagsmál
verði ofarlega á baugi. óþh
Karlakórinn Heimir að ljúka vetrarstarfi:
Heiinir suður yfir heiðar
Karlakórinn Heimir i Skaga-
firði er nú að Ijúka vetrarstarfi
sínu. Lokapunkturinn verður
söngför um Suðvestur- og
Suðurland í þcssari viku.
Stjórnandi kórsins er Stefán R.
Gíslason og undirleikarar þau
Richard og Jacqueline Simm.
Fyrstu tónleikarnir í ferðinni
verða að Logalandi í Borgarfirði
fimmtudaginn 7. júní klukkan
21. Kvöldið eftir verður kórinn
síðan í Langholtskirkju og þar
munu óperusöngvararnir, Sig-
urður Björnsson og Sieglinde
Kahlmann, syngja með kórnum
auk þess sem Atlantic trio frá
Wales kemur fram í sönghléi.
Þessir tónleikar hefjast klukkan
20:30. Á laugardaginn syngur
kórinn svo í Hveragerðiskirkju
klukkan 16:30. Endirinn á ferð-
inni verður í Aratungu að kvöldi
laugardagsins, þar sem kórinn
syngur klukkan 21. Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar leikur
svo fyrir dansi fram eftir nóttu.
Heimir hélt sína síðustu tón-
leika í Skagafirði á þessu starfsári
að kvöldi annars í hvítasunnu.
Starfsemi kórsins hefur í vetur
verið með mesta móti og kórfé-
lagar verið hvorki fleiri né færri
en fimmtíu og sjö talsins. SBG
4
skák
i
Islandsmót grunnskólasveita í skák:
Sveit Gagnfræðaskóla
Akureyrar hálfum
viimingi frá titlmum
Sveit Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar náði 2. sæti á íslandsmóti
grunnskólasveita í skák sem
fram fór í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Dræm þátttaka var
í mótinu að þessu sinni og
mættu aðeins 11 sveitir til
leiks. Samt sem áður var
spennan mikil og réðust úrslit
ekki fyrr en í síðustu skákun-
um.
Fyfsta sætinu og jafnframt
íslandsmeistaratigninni náði sveit
Hagaskóla í Reykjavík en sú
sveit fékk 19,5 vinninga af 28
mögulegum. Sveit GA varð í
öðru sæti með 19 vinninga, í
þriðja sæti varð sveit Æfinga-
skóla Kennaraháskólans með 18,5
vinninga og í fjórða sæti varð
sveit Hólabrekkuskóla með 18
vinninga.
Sveit Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar vann Hagaskólasveitina í
innbyrðis viðureign þeirra með
2,5 v. gegn 1,5 v. Pórleifur Karls-
son sigraði Héðin Steingrímsson
glæsilega á 1. boröi en öðrum
skákum lauk með jafntefli.
Sveit Gagnfræðaskólans skip-
uðu þessir nemendur:
1. borð Þórleifur Karlsson, 2.
borð Smári Teitsson, 3. borð
Örvar Arngrímsson, 4. borð Pét-
ur Grétarsson. Sigtryggur Símon-
arson var varamaður en liðsstjóri
var Pór Valtýsson. JOH
eftir 15. nóvember n.k.
I sömu reglugerð eru einnig
ákvæði til bráðabirgða sem stuðla
að því að leysa erfiðleika þeirra
sem fest hafa kaup á íbúð eða
hafa hafið byggingu íbúðar og
bíða eftir almennu láni hjá Hús-
næðisstofnun. Þeir sem fest hafa
kaup á íbúð eftir 1. janúar 1988
eða hafið byggingu og byggingin
liafi orðið fokheld eftir sama
tíma, geta sótt um að komast í
húsbréfakerfið. Skilyrði þess eru
að íbúðarkaupandinn eða byggj-
andinn hafi lagt inn umsókn um
lán hjá Húsnæðisstofnun og eigi
lánsrétt. Einnig eru sett þau skil-
yrði að viðkomandi hafi ekki
fengið lán afgreitt frá stofnuninni
vegna kaupanna eða byggingar-
innar, þeir fullnægi skilyrðum um
greiðslugetu og skuldareigendur
samþykki greiðslu skulda með
húsbréfum.
Sú breyting sem gerð hefur
verið á reglugerð um húsbréfa-
kaup lífeyrissjóðanna felst í því
að á árinu 1991 sé lífeyrissjóðum
heimilt að fullnægja samnings-
bundnunt skuldabréfakaupum af
Húsnæðisstofnun ríkisins með
því að kaupa húsbréf fyrir 18% af
ráðstöfunarfé sínu. JÓH
Miðvikudagur 6. júní 1990 - DAGUR
'
A VERÐBRÉFA-
MARKAÐNUM
6. JÚNÍ '90
HUSBREF
Kaupum og seljum húsbréf og
veitum hverskonar ráðgjöf
varðandi viðskipti með
húsbréf.
Sölugengi verðbréfa þann 6. júní.
Einingabréf 1 4.902,-
Einingabréf 2 2.676,-
Einingabréf 3 3.230,-
Skammtímabréf 1 ,661
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
'ýnmxæ} —SfSs.. ■-
Tf .
' , J ,.r‘:7' ■ 7.
Innlausn
LUTABREFAI
Samvinnubanka
í S L A N D S H F .
i SAMRÆMI VIÐ SAMNING LANDSBANKA IsLANDS VIÐ SaMVINNU-
BANIKA ÍSLANDS H F. l_I M SAMEININGU BANKANNA HEFUR
LANDSBANKINN AÐ UNDANFÖRNU LEYST TIL SfN HLUT ABRÉF (
Samvinnubankanum.
i^ANDSBANKINN HEFUR LEYST RESSI BRÉF TIL SINI A 2,749-FÖLDU
NAFNVERÐI OG MIBAST KAUI'IN VIÐ l JANÚAII 1990. ÞeTTA FELUR f
SÉR AE> GREIDDIR ERU VEXTIR Á KAUFVEIIÐIÐ FRÁ PEIM TfMA.
3f NNLAUSN HLUTABRÉFA ER IM O LANGT KOMIN EN VEGNA FJÖLDA
ÖSKA FRA HLUTHÖFUM HEFUR VERIÐ AKVEÐIÐ AÐ LEIMGJA FRESTINN
SEM HLUTHAFAR HAFA TIL INNLAUSNAR. FRESTURINN RENNUR
UT 10. JÚLf N. K.
• •
O,
LLUM HLUTHÖFUM HEFUR VERIÐ SENT BRÉF SEM HEFUR AÐ
GEYMA TILBOÐ BANKANS. NaUDSYNLEGT ER AD HAFA TILBOBS-
BRéFIÐ MEÐFERÐIS PEGAR GENGIB E R FRA INN1.AUSN.
Landsbankí
á íslands
Banki allra landsmanna