Dagur - 06.06.1990, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 6. júní 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR. LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Róttækar tillögur
stjómar Sambandsins
Aðalfundur Sambands íslenskra samvinnufélaga
hefst á morgun í Reykjavík. Ef fram fer sem horfir er
mikilla tíðinda að vænta frá fyrrnefndum fundi og mun
hann væntanlega marka þáttaskil í sögu samvinnu-
hreyfingarinnar hér á landi.
Á stjórnarfundi Sambandsins sl. fimmtudag var
samþykkt tillaga til aðalfundar SÍS þar sem honum er
falið að leita allra leiða til að treysta starfsgrundvöll
fyrirtækisins. í samþykkt stjórnarinnar er m.a. lagt til
að deildum Sambandsins verði breytt í hlutafélög eftir
starfsgreinum. Þessi hlutafélög verði til að byrja með
a.m.k. í helmingseign Sambandsins en leitað verði
markvisst eftir utanaðkomandi hlutafé til að styrkja
fjárhagsgrundvöll þeirra. Þar er einnig lagt til að gerð-
ar verði sérstakar ráðstafanir, bæði skipulags- og
rekstrarlegs eðlis, til að snúa við taprekstri verslunar-
deildarinnar og Jötuns. Takist það ekki verði eignir
þeirra seldar og deildirnar lagðar niður. Stjórn Sam-
bandsins vill einnig að eðli Sambandsins verði breytt
á þann veg að „félagið fáist ekki við rekstur", eins og
það er orðað, heldur hafi Sambandið eftir þessar
breytingar fyrst og fremst „hlutverk stefnumótunar,
samræmingar og eignastjórnunar.“ Þetta eru svo
sannarlega róttækar tillögur, því þær fela í sér gerbylt-
ingu á eðli Sambandsins og rekstrarfyrirkomulagi. Það
sem meira er: Flest bendir til þess að þær verði sam-
þykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða aðal-
fundarfulltrúa, jafnvel samhljóða.
Eins og flestum er kunnugt hefur Samband íslenskra
samvinnufélaga átt við langvarandi rekstrarvanda að
etja. Verulegt tap hefur orðið á rekstri þess síðustu ár
og eigið fé þess hefur rýrnað jafnt og þétt. Þrátt fyrir
víðtækar aðhaldsaðgerðir og endurskipulagningu í
rekstri hefur stjórnendum Sambandsins ekki tekist að
snúa við taflinu. Af þeim sökum var viðbúið að grípa
þyrfti til mjög róttækra aðgerða Sambandinu til
bjargar. Það þarf nauðsynlega á nýju fjármagni að
halda til að komast út úr þeirri kreppu sem það á nú í
og hefja nýja sókn til framfara.
Reynsla síðustu ára hefur sýnt að samvinnu-
rekstrarformið á undir högg að sækja, ekki síst vegna
þess að svokallað áhættufjármagn eða nýtt eigið fé
skilar sér ekki inn í rekstur samvinnufyrirtækja. Þar
hefur hlutafélagaformið ótvíræða kosti umfram sam-
vinnureksturinn. Þess vegna eru breytingar í þá veru,
sem stjórn Sambandsins hefur nú lagt til að verði
gerðar, óhjákvæmilegar, ætli samvinnuhreyfingin
áfram að beita sér fyrir þeim hugsjónum sem hún hef-
ur ávallt haft að leiðarljósi. Segja má að hér sé fyrst og
fremst um það að ræða að samvinnuhreyfingin í land-
inu lagi baráttuaðferðir sínar að ríkjandi aðstæðum í
þjóðfélaginu. Rekstrarfyrirkomulagi Sambandsins og
uppbyggingu þess þarf að breyta í veigamiklum atrið-
um. Með þeim breytingum verður þó engan veginn
horfið frá samvinnuhugsjóninni sem að baki býr. Hún
á jafn brýnt erindi við okkur nú og hún átti fyrir rúmri
öld, þegar samvinnuhreyfingin var stofnuð. BB.
Afmælisdagskrá Þórs
íþróttafélagið Þór á Akureyri
er 75 ára í dag, en stofnfundur
félagsins var haldinn 6. júní
1915. I tilefni dagsins ætla
Þórsarar að halda fagnað á fé-
lagssvæði sínu í tengslum við
leik Þórs og KR í 1. deild karla
í knattspyrnu.
Milli klukkan 18 og 20 verður
kátt á hjalla í Hamri, félagsheim-
ili Þórs en hluti hússins verður
tekinn í notkun á afmælinu. Boð-
ið verður upp á grillaðar pylsur
fyrir ungu kynslóðina og kaffi og
afmælistertu í boði kvennadeild-
ar Þórs.
Kl. 19.15 leggur skrúðganga
með lúðrasveit í broddi fylkingar
af stað frá íþróttahúsi Glerár-
skóla áleiðis niður á aðalleik-
vanginn á Akureyri en leikur
Þórs og KR er fyrsti leikurinn
sem þar fer fram í sumar. Leikur-
inn hefst svo kl. 20 þegar fallhlíf-
arstökkvari hefur lent á vellinum
með boltann sem notaður verður.
Að sögn Aðalsteins Sigurgeirs-
sonar, formanns Þórs, verður
frekari hátíðarhöldum frestað til
haustsins. Þórsarar ætla að efna
til veglegrar veislu 29. september
og þann dag er einnig ráðgert að
vígja aðstöðuna í Hamri form-
•ega.
Þórsarar starfrækja útvarps-
stöð í tengslum við afmælið.
Útvarp Þór hófst í gær og verður
útvarpað næstu daga, eða allt
fram á aðfaranótt sunnudags, á
FM 100,4. Frá kl. 15-18 er dag-
skráin helguð yngri kynslóðinni
en ráðgert er að tengjast Rás 2
kl. 18-19. Um kvöldið er boðið
upp á tónlistardagskrá og létt
spjall við unga sem aldna Þórs-
ara. Símanúmer Útvarps Þórs
eru 26970 og 26667. SS
Fyrstu spor félagsins
íþróttafélag Oddeyringa - Þór
- var stofnað 6. júní. Aðal-
hvatamaðurinn að stofnun
félagsins og fyrsti formaður
þess var Friðrik Einarsson, en
hann var þá 15 ára gamall.
Með honum í stjórn voru Jakob
Thorarensen og Jörgen Hjalta-
lín. Á fyrsta meðlimalistanum
voru 46 félagar en þeir munu
vera um 1700 nú 75 árum
seinna.
A fyrstu árunum voru félagar í
Þór á aldrinum 10-15 ára, jafnt
stúlkur sem drengir. í fundagerð-
um kemur fram að starfsemi
félagsins var fjölbreytt. Á fund-
um voru lesnar smásögur og Ijóð,
skipað í nefndir og fleira. Félagar
æfðu leikrit og stóðu fyrir ýmsum
skemmtunum,
Það má þykja kátbroslegt að
hver fundur hófst á þvf að for-
maður spurði hvort einhver hefði
brotið af sér. Oft kom það fyrir
að félagar játuðu smávægilegar
yfirsjónir eða voru klagaðir fyrir
að stelast til að reykja, en slík
iðja var rneð öllu óheimil í
íþróttafélaginu Þór.
Betra að vera í buxum
Hér er að sjálfsögðu ekki ætlunin
að rekja sögu Þórs heldur aðeins
að rifja upp fyrstu spor félagsins.
Lítum t.d. á 36. fund stjórnarinn-
ar:
„Sunnudaginn 5. nóv. 1916
hjelt fjelagið Þór fund í Bíó.
Brot: Formaður spurði um brot
og voru engir kærðir. Upplestur:
Gellir, Víkingur og Jónsbók voru
lesin upp.
Mál: Jón Hjaltalín, hvort ekki
ætti að kjósa eftirlitsmenn með
reykingunum, kosnir voru 4
menn (til eftiriits) í eftirlitsnefnd;
Steindór Hjaltalín, Jón Hjaltalín,
Friðrik Einarsson og Egill R.
Ólafsson.
Friðrik Einarsson, hvort er
betra að vera í buxum eða
pilsum. Flestir fjelagsntenn, sem
viðstaddir voru, voru á því máli
að betra væri að vera í buxum.“
Fleira var gert á þessum fundi,
kosin framkvæmdanefnd til að
koma á skíðaferðum og skemmti-
nefnd. Þá var rætt um hvort betra
væri að hafa kvenmann eða
karlmann sent ritara.
Það kom fyrir áð menn voru
reknir úr félaginu vegna reykinga
eða óspekta á fundum, en sumir
gengu í það aftur.
Félagssvæðið
á Gleráreyrum
Þórsarar skiptu liði og léku knatt-
spyrnu. Þeir fóru líka fljótlega að
halda áramótabrennur, hina
fyrstu 1916, og álfadans var stig-
inn í fyrsta sinn á þrettándanum
1926.
Fyrsta blómaskeið íþróttafé-
lagsins Þórs var 1918-1924, en í
lok tímabilsins hafði félagið unn-
ið Silfurknöttinn til eignar, sem
keppt hafði verið um á Knatt-
spyrnumóti Norðlendingafjórð-
ungs síðan 1919.
Þórsarar unnu KA, sjálfan
höfuðandstæðinginn, í fyrsta sinn
í knattspyrnu 1. flokks árið 1931,
en þá hafði Þór yfirleitt haft bet-
ur í viðureignum yngri flokk-
anna.
Vallarmál færðust smám sam-
an til betri vegar. Árið 1928
heimilar bæjarstjórn Þór afnot af
grasvellinum á Gleráreyrum og
félagið fékk að byggja hlaupa-
braut umhverfis völlinn. Tveimur
árum síðar koma Þórsarar upp
malarvelli vestan við grasvöllinn
og átti hann eftir að reynast vel
því bæjaryfirvöld tóku grasvöll-
inn síðar undir kartöflugarða.
Þórsarar héldu þessu athafna-
svæði sínu og^ byggðu það upp
næstu áratugi en voru endanlega
sviptir því 1960 án nokkurra
bóta. Það var ekki fyrr en 1965
að bæjarstjórnin veitt félaginu
athafnasvæði í Glerárhverfi og
hefst þá sú uppbygging sem flest-
ir þekkja í dag.
Hér er ekki rúm fyrir frekari
upprifjun en benda má á að Þór
gaf út rit á 65 og 70 ára afmælinu,
rit sem vert er að kynna sér. SS
Þetta er fágæt mynd af sveit Þórs í Oddeyrarboðhlaupinu 1951. Aftasta röð f.v.: Halldór Árnason, Jens Sumarliða-
son, Jóhann Egilsson, Agnar Óskarsson, Tryggvi Georgsson, Baldur Jónsson, Hinrik Lárusson, Einar Gunnlaugs-
son, Karl Óskarsson, Sigurður Bárðarson, Magnús Jónsson, Gunnar Óskarsson. Miðröð f.v.: Tryggvi Gestsson,
Valgarður Sigurðsson, Hreinn Óskarsson, Gunnar Jónsson, Hallgrímur Tryggvason, Kristján Kristjánsson.
Fremsta röð: Páll Stefánsson, Kristinn Bergsson.