Dagur - 06.06.1990, Page 5
Miðvikudagur 6. júní 1990 - DAGUR - 5
Iþróttafélagið Þór 75 ára
Iþróttafélagið Þór 75 ára
„Afskaplega skemmtilegt starf ‘
- segir Haraldur Helgason, sem var formaður Þórs í 20 ár
Hann var beðinn um að vera
formaður í hálft ár en árin
urðu tuttugu. Haraldur Helga-
son var formaður Þórs 1960-
1980 og við fengum hann í stutt
spjall til að rifja upp formanns-
tíðina og ýmsa eftirminnilega
atburði. Haraldur hefur líka
ákveðnar skoðanir á íþrótta-
málunum í dag.
„Ég bjó í Norðurgötu 15 þegar
ég kom í bæinn 10 ára gamall.
Það voru Þórsar^r í öllum fjórum
íbúðunum í húsinu og það kom
því sjálfkrafa að ég gengi í Þór.
Ég spilaði knattspyrnu sem ungl-
ingur, en eftir tvítugt kom ég lítið
nálægt knattspyrnu nema á
inhanfélagsmótum KEA.
Ég var ekki beinh'nis í félags-
störfum hjá Þór nema þegar
haldnar voru skemmtanir í fjár-
öflunarskyni, t.d. þegar við sett-
um upp leikrit og skemmtanir í
samkomuhúsinu sem þá var. En
stjórnunarstörf hófust ekki fyrr
en ég varð formaður.“
- Þú hefur þá tekið þátt í
ýmsu sjálfboðaliðastarfi eins og
aðrir félagsmenn.
„Já, sjálfboðaliðastarfið er
slíkum félagsskap nauðsynlegt og
mér finnst of lít.ð um sjálfboða-
vinnu nú miða við þá. Við þurft-
um ekki að kaupa nokkra vinnu
við vellina, hvorki malarvöllinn
né grasvöllinn. En sjálfboðaliðar
hafa auðvitað haldið áfram með
vellina og ég veit að mikið starf
hefur verið unnið í húsinu.“
. „Átti stóran þátt í /
skiptingu ÍBA“
- Segðu mér, Haraldur, hvað
sténdur upp úr á formannsferli
þíiium?
„Verkefnin voru næg, en það
sem stendur upp úr er skemmt-
Únin sem maður hafði áf því áð
starfa í þessu. Það skiptust á skin
og skúrir, en ánægjustundirnar
eru mér eftirminnilegastar.
Á þessum árum urðu mjög
miklar breytingar til hins betra.
Ég átti stóran þátt í því að ÍBA
var skipt í Þór og KA. Staðan var
orðin þannig að við vorum að
missa góða stráka úr bænum í
önnur félög því hér var bara eitt
lið sem hægt var að keppa með.
Ég varð fyrir töluverðu aðkasti,
bæði frá félögum mínum og KA-
mönnum, þegar ég var að vinna
að skiptingunni, en það sér eng-
inn eftir þessu í dag. Við ættum
ekki tvö lið í 1. deild í dag hefði
þetta ekki verið gert á þessum
tíma.
Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að það sé nauðsynlegt
að fá sem flesta inn í íþróttir og
með því að skipta ÍBA upp feng-
um við tvö lið og þar með tvöfalt
fleiri sem komust að.“
- Nú er töluvert um manna-
breytingar í knattspyrnuliðun-
um og jafnvel talað um „kaup“ á
mönnum. Hvað finnst þér um þá
þróun?
„Ég tel að Akureyringar eigi
að búa að sínum mönnum en
ekki kaupa þá að. Við eigum
mjög svo frambærilega menn og
ég veit ekki hversu hollt það er
fyrir félögin að fá marga
aðkomumenn. Þarna er reyndar
ekki ym kaup að ræða, en félögin
útvega þessum mönnum vinnu og
hafa milligöngu um að útvega
húsnæði. Oft eru þetta góðir ein-
staklingar en ég held þó að þessi
stefna hafi ekki alltaf borið þann
árangur sem ætlast var til.“
Þór sigraði KA 4:0 í aukaleik um sigurinn í 3. deild. Á myndinni eru Aðal-
steinn Sigurgeirsson, fyrirliði og núverandi formaður Þórs, Haraldur Helga-
son, fyrrverandi formaður, og Samúel „Corrigan-Killer“ Jóhannsson.
Haraldur að Þórssvæðið væri
orðið mjög skemmtilegt.
„Það var eitt allra mesta fram-
faraspor í sögu félagsins þegar
við gátum klárað grasvöllinn.
Það var stórkostlegt þrekvirki og
tók styttri tíma en nokkur þorði
að vona.“
- Ferðu á völlinn ennþá?
„Ekki mjög oft, en það kemur
fyrir. Ég fer gjarnan og horfi á
seinni hluta leiks, en ég hef varla
taugar í það að fara á völlinn þeg-
ar Þór er að spila.“
- Þú ert þá enn sannur Þórs-
ari, heyrist mér.
„Jú, ég er sannur Þórsari. Það
er ábyggilega ekki til sannari
Þórsari, nema ef vera skyldi Her-
bert Jónsson. Það var afskaplega
ánægjulegt starf sem við Hebbi
áttum saman. Oft kom það fyrir
að við hittumst út af alls konar
málum sem þurfti að leysa með
stuttum fyrirvara og ég vann með
mörgum öðrum góðum mönnum.
Þetta var afskaplega skemmtilegt
starf alla tíð,“ sagði Haraldur að
lokum. SS
Þessir kunnuglegu strákar urðu Akureyrarnieistarar í 4. flokki 1972. Aftari
röð f.v.: Magnús Sigþórsson, Hilmar Baldvinsson, Árni Stefánsson, Guð-
mundur Skarphéðinsson, Sigurjón Gunnarsson, Nói Björnsson og Þröstur
Guðjónsson þjálfari. Fremri röð f.v.: Heimir Ingvason, Björn Víkingsson,
Arngrímur Arngrímsson, Oddur Jónsson og Tryggvi Sverrisson.
„Peningar mega ekki
vera alls ráðandi“
- En mannabreytingar hljóta að
vera óhjákvæmilegar. Nú missa
Akureyrarfélögin góða menn í
nám til Reykjavíkur.
„Já, það er rétt. Þeir ganga
stundum til liðs við Reykjavíkur-
félög með misjöfnum árangri. Ég
„Ekki til sannari Þórsari“
Haraldur segir að þegar íþróttir
eru farnar að snúast svona mikið
um peninga þá hljóti það óhjá-
kvæmilega að bitna á þeim félög-
um sem hafa yfir litlum pening-
um að ráða.
Við ræddum ýmsar fram-
kvæmdir á vegum Þórs og sagði
Norðurlandsmeistarar í handknattleik kvenna 1947 eða 1949. Aftari röð f.v.:
Bára Þorsteinsdóttir, Ásta Hauksdóttir, Gíslína Óskarsdóttir, Ingibjörg
Magnúsdóttir. Fremri röð f.v.: Lilja Sigurðardóttir og Hulda Jensdóttir.
vona bara að skólastrákarnir skili
sér aftur heim seinna meir.
En í sambandi við knattspyrn-
una þá finnst mér að meiðsli hafi
farið vaxandi undanfarin ár.
Dómarar eru ekki nógu harðir og
leyfa of mikið. Maður hefur séð
mjög grófan leik hjá mörgum
félögum. Keppnisskapið hefur
auðvitað alltaf verið til staðar, en
það er eins og menn séu fastari
og grófari. Ég átti von á að
ástandið yrði skárra eftir að
menn hættu að mestu að spila á
malarvöllum en meiðslin virðast
bara vera tíðari á grasvöllunum.
Annað sem ég vil benda á er
það, að peningar mega ekki vera
alls ráðandi í félagsstarfinu. Á
þessum fyrstu árum sem ég var í
þessu lögðu félagarnir meira á sig
og jafnvel borguðu fyrir sig
sjálfir. Félagið styrkti auðvitað
ntarga en nú virðist það ekki
nægja öllum að fá greiddan
ferðakostnað í sambandi við leiki
heldur vilja þeir líka fá greitt fyr-
ir mat. Mér finnst vera borgað of
mikið fyrir menn. Það er engum
til góðs og eftir því sem menn fá
meira upp í hendurnar þá minnk-
ar félagsandinn.“
Margir af kunnustu jöxlum Þórsara frá 1965. Aftari röð: Guöni Jónsson,
Magnús Jónatansson, Gunnar Austfjörð, Anton Sölvason, Pétur Sigurðs-
son, Aðalstcinn Sigurgeirsson. Freniri röð: Steingrímur Björnsson, Val-
steinn Jónsson, Samúel Jóhannsson, Ævar Jónsson og Páll Jónsson.
Fyrstu lög Þórs:
Félagsmenn mega hvorki
neyta tóbaks né áfengis
I bankahólfi geyma Þórsarar
dýrmæti, ekki gull og gim-
steina heldur fundargerðabók
fyrstu stjórnar Þórs. Þessi
gulnaða stílabók geymir
marga fróðleiksmola og
skemmtilegar ályktanir og
skulum við hér líta á fyrstu
lög félagsins. Hætt er við að
þau hafi breyst með tíman-
um.
1. Fjelagið heitir „íþróttafjelag
Oddeyringa" „Þór“.
2. Inngöngu í fjelagið fá aðeins
þeir, sem eru 10-15 ára. Undan-
tekning verður veitt ef það er
samþykkt á fundi.
3. Mark fjelagsins er að efla all-
ar íslenskar íþróttir.
4. Þeir sem ganga í fjelagið
ntega ekki neyta tóbaks nje
áfengis.
5. Þeir sem brjóta þrisvar, svo
komist upp, eru burtrækir úr
fjelaginu.
6. Þeir sein hilma með þeim fje-
lagsmanni sem brýtur eru jafn-
sekir.
7. Fjelagsmenn eru beðnir að
leggja niður blót og vera stilltir
á fundunt.
8. Fjelagsmenn verða að sækja
fundi vel.
9. Inngangseyrir í fjelagið er 25
au. og árstillag 50 au.
10. Fjelagsmenn geta ekki
gengið úr fjelaginu nenta á aðal-
fundi sem er í janúar, og verða
þá að mæta sjálfir eða senda
skriflega úrsögn.
11. Þeir sem ganga í fjelagið
verða að halda þessi lög eða það
getur valdið burtrekstri úr fje-
laginu.
12. Fjelagið er þriggja manna
stjórn. Formaður var kosinn at
meirihluta fjelagsmenna og for-
maður kaus svo menn með sjer
í nefndina.
13. Fyrsta brot 0,10 kr. annað
brot 0,15 kr. þriðja brot 0,25 kr.
4. brot burtrekstur.
14. Stjórn er kosin til árs í senn.
15. Þeir scm hafa brotið fjórurn
sinnum og eru burtrækir eftir
13. gr. fá inngöngu í fjelagið
aftur ef þeir beiðast þess, en ef
þeir brjóta tvisvar eftir það eru
þeir algjörlega útilokaðir frá fj.
16. Tillögur fj. m. má ekki sam-
þykkja nema 10 fj. m. sitji
fundinn.
17. Nægilegt er að ef tveir fj. m.
sjá fj. m. reykja þá geta þeir
klagað hann. SS