Dagur - 06.06.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 6. júní 1990
Leigumiðlun Félagsstofnunar
stúdenta á Akureyri
Félagsstofnun óskar eftir herbergjum og íbúðum
af öllum stærðum og gerðum á skrá.
Félagsstofnun kemur á sambandi milli leigusala og
leigutaka.
Félagsstofnun útvegar ábyrgðartryggingu ef óskað er
eftir.
Húseigendur sem geta hugsað sér að leigja stúdentum
við Háskólann á Akureyri hafi samband við skrifstofu
Háskólans 5.-8. júní í síma 27855. Nánari upplýsing-
ar veita Jón Þórðarson og Ólafur Búi Gunnlaugsson.
—— ------ ------------------*
Björn Sigurösson ■ Baldursbrekku 7 • Símar41534 • Sérleyfisferöir •
Hópferðir • Sætaferðir ■ Vöruflutningar
SUMARIÐ 1990
HUSAVÍK-AKUREYRI-HÚSAVÍK
01.06-31.08. S M Þ Ml Fl FÖ L
Húsavík-Akureyri Akureyri-Húsavík 19.00 21.00 08.00 '16.00 13.00 16.00 08.00 '16.00 13.00 16.00 08.00 16.00
'Ekið frá Akureyri um Húsavik, Ásbyrgi, Raufarhöfn, Þórshöfn til Vopnafjarðar.
HÚSAVÍK-MÝVATN-HÚSAVÍK
22.06-06.09 S M Þ Ml Fl FÖ L
Húsavik-Mývatn '08.00 '08.00 '08.00
Húsavík-Mývatn 12.00 09.20 08.40 08.40 08.40 09.20 12.10
Húsavík-Mývatn 18.30 19.10 19.10 19.10 18.30
Mývatn-Húsavík 11.30 08.30 08.10 08.10 08.10 08.30 11.30
Mývatn-Húsavík 18.00 18.30 18.30 18.30 18.00
Ekið um Húsavíkurflugvöll tímar geta breyst ef flugáætlun breytist.
'1/6-30/8. ekið um Aðaldal og Kinn, með Sérleyfisbílum Ak. Kross Mývatn.
HÚSAVÍK-ÁSBYRGI-HÚSAVÍK
05.06.-31.08 S M Þ Ml Fl FÖ L
Húsavík-Ásbyrgi Ásbyrgi-Húsavík Ásbyrgi-Húsavík 18.00 '10.00 11.45 '17.00 18.00 '10.00 11.45 '17.00
'Gildir frá 20.06 til 24.08.
HÚSAVÍK-ÁSBYRGI-RAUFARHÖFN-ÞÓRSHÖFN-VOPNAFJÖRÐUR-HÚSAVÍK
05.06.-31.08. S M Þ Ml Fl FÖ L
Húsavík-Vopnafj. Vopnafj.-Húsavik 18.00 08.00 18.00 08.00
Ferðir i tengslum við áætlun til og frá Reykjavík og Akureyri.
AFGREIÐSLUR ERU HJÁ EFTIRTÖLDUM AÐILUM
Akureyri: Umferðamiöstöðin Hafnarstræti 82 .............. S. 96-24442
Húsavík: Björn Sigurðsson Garðarsbraut 7 ............... S. 96-42200
Mývatn: Eldá hf. ferðaþjónusta Reykjahlíð ............. S. 96-44220
Mývatn: Hótel Reynihlíð................................ S. 96-44170
Ásbyrgi: Veitingastaður og bensínsala................... S. 96-52260
Kópasker: Essoskálinn Kópaskeri ......................... S. 96-52183
Raufarhöfn: Snarlið við Sjávarbraut........................ S. 96-51211
Þórshöfn & Bakkafjörður: Essoskálinn Þórshöfn............. S. 96-81205
Vopnafjörður & Bakkafjörður: Hótel Tangi Vopnafirði....... S. 97-31224
Farsímar: 985-20034, 985-20035, 985-20036, 985-25730, 985-27540.
Sérleyfishafi.
Vallarhúsið og félagsheimilið Hamar er mikil lyftistöng fyrir Þór og verður hluti af húsinu tekinn í notkun á 75 ára
afmælinu. Þórsarar ætla síðar að byggja íþróttahús vestan við Hamar og þá dreymir um að leggja gervigras á mal-
arvöllinn. Verkefnin eru næg. Mynd: kl
„Ákvörðun um byggingu
Hamars eftirmnmileg“
- segir Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Pórs
Núverandi formaður Þórs er
Aðalsteinn Sigurgeirsson, sem
lék handknattleik, knattspyrnu
og einnig körfubolta með góð-
um árangri hér á árum áður.
Við ætlum að ræða við Aðal-
stein um hið mikla uppbygg-
ingarstarf Þórs á síðustu árum
og horfa til framtíðarinnar.
Fyrst ætlum við þó að forvitn-
ast um fyrstu afskipti hans af
félaginu.
„Ég gekk í Þór sem polli,
sennilega átta ára gamall. Síðan
spilaði ég fótbolta, handbolta og
körfubolta alla yngri flokkana en
þegar ég var kominn í 2. flokk þá
lét ég handboltann og fótboltann
nægja. Ég byrjaði að spila með
meistaraflokki ÍBA í handbolta
15 ára gamall og ætli ég hafi ekki
byrjað með ÍBA í fótboltanum
1965,“ sagði Aðalsteinn.
Hann hélt áfram í báðum
boltagreinunum eftir að ÍBA var
skipt í Þór og KA og hann vann
líka mikið við þjálfun hjá Þór.
Aðalsteinn keppti alveg fram
undir 1980 en þá voru meiðsli far-
in að setja strik í reikninginn.
- Fórstu fljótlega að taka þátt
í félagsmálunum?
„Á þeim tíma sem ég spilaði
var ég alltaf meira eða minna í
stjórn handknattleiksdeildar
Þórs. Ég var í félagsmálunum
samhliða mest allan tímann.“
„Húsið á eftir að
nýtast okkur vel“
Aðalsteinn tók sér stutt frí frá
félagsstörfunum þegar hann hætti
að keppa en kom síðan inn í
aðalstjórn Þórs sem varaformað-
ur 1985. Þá var ný stjórn mynduð
með Benedikt Guðmundsson
sem formann. Baddi flutti úr
bænum haustið 1986 og Steini tók
við formennskunni. A aðalfundi
Þórs 1987 var hann síðan form-
lega kjörinn formaður.
- Hver eru eftirminnilegustu
atvikin úr þinni stjórnartíð?
„Þar má fyrst nefna þegar
ákvörðun um byggingu vallar-
hússins og félagsheimilisins
Hamars var tekin í formannstíð
minni og fyrsta skóflustungan
tekin haustið 1987. Það var gert
fokhelt haustið 1988. Áður höfðu
menn lengi rætt um að byggja fé-.
lagsheimili en þarna var ákvörð-
un loks tekin.“
- Voruð þið ekkert hræddir
við að ráðast í þessar stórfram-
kvæmdir?
„Nei, kannski hafa sumir talið
húsið of stórt en ég er sannfærður
um að húsið eigi eftir að nýtast
okkur vel og að allir muni verða
sammála um að þessi ákvörðun
var rétt.
Það er Ijóst að við verðum að
koma húsinu í sem mestan rekst-
ur yfir veturinn þegar við notum
það minna sjálfir og ég get upp-
Íýst það að við erum einmitt að
ganga frá samningum um leigu á
salnum næstu fimm árin fyrir
vikulega starfsemi félags. Hamar
er mjög skemmtilegt hús og ég er
viss um að margir vilja fá leigða
aðstöðu hjá okkur.“
íþróttahús við Hamar
í framtíðinni
- Nú eruð þið að taka í notkun
hluta af búningaaðstöðu, en
hvaða starfsemi verður í Hamri
þegar húsið er tilbúið?
„í kjallaranum verður bún-
ingaaðstaða, ljósalampar, gufa,
nuddherbergi og tækjageymsla.
Á hæðinni verður síðan kaffi-
tería, fundasalir og þreksalur og
efst verður hver deild með funda-
herbergi út af fyrir sig, setustofa
og íbúð fyrir húsvörð. Húsið er
rúmir 1200 fermetrar og það er
gert ráð fyrir tengibyggingu við
íþróttahús, sem við munum í
framtíðinni byggja vestan við
Hamar.
Framkvæmdir lágu niðri í nær
eitt ár, ekki vegna þess að við
vorum komnir í vandræði en við
þurftum m.a. að skipulegga
framkvæmdirnar með tilliti til
breyttrar verkaskiptingar ríkis og
sveitarfélaga. Eftir að við gerð-
um samning við Akureyrarbæ í
vor hefur verið unnið af miklum
krafti og það er nánast kraftaverk
hvað mikið hefur áunnist. Ég vil
færa þeim sjálfboðaliðum sem
hafa lagt gífurlega vinnu í húsið
sérstakar þakkir.
Á miðvikudaginn tökum við
hluta af húsinu í notkun en það
verður engin formleg vígsla fyrr
en í haust. Við ætlum að fara
aðeins lengra áður en að henni
kemur.“
Aðalsteinn sagði að í sumar
væri stefnt að því að taka bún-
ingaaðstöðu og hluta af félags-
legri aðstöðu í notkun, enda væri
það grundvallaratriði í starfi
félags á borð við Þór að hafa
góða aðstöðu fyrir félagsmenn.
Iþróttahúsið er síðan langtíma-
verkefni.
Knattspyrnusvæðið
vel á veg komið
- Nú eru komnir fjórir knatt-
spyrnuvellir á félagssvæði Þórs.
Er ekki aðstaðan fyrir knatt-
spyrnumenn að verða býsna góð?
„Jú, þriðji grasvöllurinn klár-
aðist í fyrra. Við sáðum í nýjan
völl og hann ætlar að koma mjög
vel út, en hinir voru þökulagðir.
Keppnisvöllurinn er á við einn og
hálfan völl að stærð og með þessa
fjóra velli og ríflega það þá erum
við komnir með aðstöðu sem er
með þeim betri á landinu.
Knattspyrnusvæðið er vel á veg
komið. Við höfum frábæra
aðstöðu frá náttúrunnar hendi
fyrir áhorfendur, við höfum unn-
ið við að girða og planta trjám og
nú er draumurinn að setja gervi-
gras á malarvöllinn. Þegar Sana-
völlurinn hverfur missum við
æfingaaðstöðu á vorin.“
Aðalsteinn rifjaði upp fleira
sem upp hefur komið á síðustu
árum, m.a. það að Þórsarar réðu
starfsmann í fyrsta sinn í sögu
félagsins, Árna Gunnarsson.
„Það eru ekki margir frídagar
sem Árni hefur fengið,“ sagði
Aðalsteinn.
- Kannski við víkjum aðeins
að árangri Þórsliðsins í keppnis-
íþróttum á síðustu árum. Er
hann viðunandi?
„Já, þegar á heildina er litið er
hann það. Auðvitað vildi maður
sjá betri árangur en við eigum
bæði karla- og kvennalið í 1.
deild í fótbolta og Úrvalsdeildar-
lið í körfu. Þótt titlarnir láti á sér
standa erum við í hópi þeirra
bestu. Við erum í 2. deild í hand-
boltanum en eigum rnjög efnilega
yngri flokka og ég hef trú á því að
Þór eigi eftir að spjara sig. Þá eig-
um við gott skíðafólk, t.d. hefur
Haukur Eiríksson náð frábærum
árangri.“
Aðalsteinn segir að það vanti
tilfinnanlega betri aðstöðu fyrir
innanhússgreinarnar, íþróttahús-
in eru þétt setin og lítið svigrúm
fyrir æfingar.
„Ég vil að lokum þakka öllum
sem hafa unnið sjálfboðastörf
fyrir félagið, í aðalstjórn, stjórn-
um deilda, kvennadeildinni og
öllum velunnurum Þórs. Þetta
fólk hefur skilað ótrúlega mikilli
vinnu,“ sagði Aðalsteinn. SS