Dagur - 06.06.1990, Page 7
»* n
#*».»
Miðvikudagur 6. júní 1990 - DAGUR - 7
Arni Þór Arnuson var mjög frískur í lciknum gegn Fram. Hér fiskar hann vítaspyrnu í síöari hálfleiknum en Birkir
Kristinsson varði slaka spyrnu Bjarna Sveinbjörnssonar. MvnJ. Kl
Hörpudeildin:
KA-menn heillum horfnir
- töpuðu þriðja leiknum í röð og sitja einir í neðsta sæti
íslandsmeistarar KA töpuðu
sínum þriðja leik í röð er liðið
mætti IA í 3. umferð Hörpu-
deildarinnar á laugardag.
Leikurinn fór fram á Akranesi
og lauk honum með 2:1 sigri
heimamanna eftir að KA-
menn höfðu náð forystunni í
fyrri hálfleik. Verður að segj-
ast eins og er að ekki er mikill
meistarabragur á leik KA-liðs-
ins þessa dagana og það virðist
engan veginn þola þá pressu
sem fylgir því að leika með
titilinn í farteskinu. KA rekur
nú lestina í deildinni, er eina
liðið sem ekkert stig hefur
hlotið, og er ekki seinna
vænna en að liðið fari að sýna
hvað í því býr.
Þrátt fyrir að KA léki undan
nokkurri gjólu í fyrri hálfleiknum
á laugardag voru heimamenn
sterkari aðilinn fyrstu mínúturn-
ar og voru þá tvívegis nálægt því
að skora. Haraldur Ingólfsson
átti þrumuskot rétt framhjá
markinu og skömmu seinna skall-
aði Sigursteinn Gíslason framhjá
úr galopnu dauðafæri.
KA-menn lifnuðu fljótlega við
og höfðu yfirhöndina síðustu 30
mínútur hálfleiksins. Þeir náðu
svo forystunni á 32. mínútu og
var ákaflega vel að því marki
staðið. Bjarni Jónsson átti fallega
stungusendingu á Árna Her-
mannsson sem var á auðum sjó,
lék á Gísla Sigurðsson, markvörð
Skagamanna, og renndi boltan-
um í tómt markið. Margir vildu
meina að Árni hefði verið rang-
stæður en þeir svartklæddu voru
ekki á sama máli og fyrsta mark
KA á tímabilinu var staðreynd.
I byrjun síðari hálfleiks átti
Ormarr ágætt skot að Skaga-
markinu en Gísli náði að slá bolt-
ann yfir. Skagamenn sóttu nú í
sig veðrið og jöfnuðu metin á 66.
mínútu. Arnar Gunnlaugsson
tók þá horn frá hægri, sendi
snúningsbolta fyrir og Bjarki Pét-
ursson skallaði í markið eftir að
KA-menn höfðu bjargað á línu.
Heimamenn pressuðu nokkuð
eftir markið og það bar árangur á
75. mínútu. Heimir Guðmunds-
son óð þá upp vinstri kantinn af
miklu harðfylgi, sendi boltann
fyrir og þar var Arnar Gunn-
laugsson t'yrir og skoraði með
viðstöðulausu skoti af stuttu færi.
Heimamenn bökkuðu eftir
markið og KA-menn pressuðu
stíft. Bjarni Jónsson var nálægt
því að jafna í leikslok þegar hann
fékk dauðafæri eftir hornspyrnu
en skalli hans fór framhjá og
fyrstu stig Skagamanna voru þar
nieð í höfn.
Leikur þessi var ekki sérlega
vel leikinn en Skagamenn voru
sterkari aðilinn og áttu sigurinn
skilið. KA-liðið er langt frá því
að vera sannfærandi, það virkar
þungt og þreytt og lykilmenn ná
sér ekki á strik. Erlingur var
sterkur í loftinu en hefur oftast
leikið betur og Heimir barðist vel
á miðjunni.
Heimir Guðmundsson í Skaga-
liðinu lék mjög vel og var lang-
besti maður vallarins. Pá voru
Guðbjörn og Karl góðir og Arnar
stóð sig vel. ES/JHB
Lið IA: Gísli Sigurðsson. Heimir Guð-
mundsson, Jóhannes Guðlaugsson, Guð-
hjörn Tryggvason, Sigurður B. Jónsson.
Sigurstcinn Gíslason, Alexander Högna-
son, Karl Þórðarson, Haraldur Ingólfs-
son. Bjarki Pétursson og Arnar Gunn-
laugsson.
I-ið KA: Haukur Bragason, Arnar
Bjarnason, Árni Hermannsson (Kjartan
Einarsson á 78. mín.). Halldór Halldórs-
son. Erlingur Kristjánsson. Heimir Guð-
jónsson, Bjarni Jónsson. Jón Grétar
Jónsson. Steingrímur Birgisson. Haf-
steinn Jakohsson og Ormarr Örlygsson.
Gul spjöld: Hcimir Guðjónsson og Orm-
arr Örlygsson. KA.
Dómari: Ólafur Sveinsson. Hann dæmdi
þokkalega.
Hörpudeild
Úrslit í 3. uinferð:
Þór-Fram 0:0
KR-ÍBV 0:1
FH-Stjarnan 5:1
Valur-Víkingur 1:1
ÍA-KA 2:1
Staðan
Fram 3 2-1-0 8:0 7
Valur 3 2-1-0 4:1 7
FH 3 2-0-1 6:3 6
KR 3 2-0-1 5:3 6
ÍBV 3 2-0-1 3:4 6
Víkingur 3 1-1-1 4:3 4
Stjarnan 3 1-0-2 4:8 3
ÍA 3 1-0-2 2:6 3
Þór 3 0-1-2 0:4 1
KA 3 0-0-3 1:5 0
Markaliæstir:
Guðmundur Steinsson, Fram 3
Antony Karl Gregory, Val 2
Ámi Sveinsson, Stjörnunni 2
Baldur Bjarnason, Fram 2
Goran Micic, Víkingi 2
Hördur Magnússon, FH 2
Ólafur Kristjánsson, FH 2
Pálmi Jónsson, FH 2
Ragnar Margeirsson, KR 2
Ríkhardur Daðason, Fram 2
Sigurjón Kristjánsson, Val 2
Hörpudeildin:
Baráttan færði
Þórsurum stig
- misnotuðu vítaspyrnu er þeir gerðu
markalaust jafntefli við Fram
Bikarmeistarar Fram töpuðu
sínum fyrstu stigum á Islands-
mótinu í ár er þeir mættu Þórs-
urum á grasvelli þeirra síðar-
nefndu á laugardaginn. Leikn-
um Iauk með markalausu jafn-
tefli og þrátt fyrir að sigur
heimamanna hefði varla verið
sanngjarn verður ekki á móti
mælt að Framarar hafi sloppið
með skrekkinn því Þórsarar
misnotuðu vítaspyrnu þegar
tæpar 20 mínútur voru til leiks-
loka. „Eg hcld að þetta hafi
verið sanngjörn úrslit og mér
sýnist þetta vera að koma hjá
okkur. Liðið lék eins og fyrir
það var lagt - það vantaði bara
mörkin,“ sagði Sigurbjörn
Viðarsson, aðstoðarþjálfari
Þórs, að leik loknum.
Þórsarar voru greinilega
ákveðnir í að sýna Frömurum í
tvo heimana strax í upphafi. Bar-
áttan í liðinu var gífurleg, e.t.v.
heldur mikil á köflum, og bikar-
meistararnir fengu aldrei frið til
að byggja upp hið skeinuhætta
spil sitt. Reyndar gekk Pórsurum
einnig erfiðlega að spila knettin-
um og leikurinn þróaðist fljótlega
út í geysilega baráttu á miðjunni
en færin létu á sér standa. Luca
Kostic átti tvö ágæt skot beint úr
aukaspyrnum sem Birkir Krist-
insson varði án teljandi erfiðleika
en hættulegasta færi fyrri hálf-
Ieiks kom í hiut Fram á 23. mín-
útu. Ríkharður Daðason og Ant-
on B. Markússon léku þá
skemmtilega upp hægri vænginn
og allt í einu var Ríkharður á
auðum sjó í vítateig Pórs. Hann
missti knöttinn hins vegar aðeins
of langt frá sér og Friðrik var eld-
snöggur út úr Þórsmarkinu og
hirti boltann.
Síðari hálfleikur var ákaflega
keimlíkur þeim fyrri. Baráttan
var í fyrirrúmi og Guðmundur
Haraldsson, dómari, hafði í nógu
að snúast enda leikmönnum heitt
í hamsi. Þurfti hann m.a. að vísa
einum úr hvoru liði af velli.
Á 67. mínútu skallaði Guð-
mundur Steinsson rétt framhjá
Þórsmarkinu eftir góðan undir-
búning Péturs Ormslev og 5
mínútum síðar fengu heimamenn
vítaspyrnu. Brotið var greinilega
á Árna Þór Árnasyni innan teigs
en Guðmundur lét leikinn halda
áfram. Árni hélt áfram af miklu
harðfylgi, féll aftur og þá dæmdi
Guðmundur víti og var það
sennilega jafn rangur dómur og
að sleppa því í fyrra tilfellinu.
Bjarni Sveinbjörnsson tók vítið
og Birkir Kristinsson átti ekki í
neinum vandræðum með að verja
afar slakt skot hans.
Framarar pressuðu stíft undir
lokin og á síðustu mínútunni
sendi Ríkharður boltann fyrir
Þórsmarkið. Sendingin fór öllu
innar en hún átti sennilega að
fara og Friðrik áttaði sig á síðustu
stundu, náði að slá boltann í
þverslána og skömmu seinna var
leiktíminn úti.
Leiki Þórsliðið áfram eins og
það gerði á laugardaginn kernur
þaö trúlega í hlut annarra að fást
við falldrauginn. Baráttan var
gífurleg og allir gáfu það sem þeir
áttu. Spilið var að vísu ekki upp á
það besta en liðið hefur sýnt- að
það er fyrir hendi og trúlcga er
ekki skynsámlegt að reyna að
leika nettan fótbolta gegn þess-
um andstæðingum. Árni Þór var
afar frískur í framlínunni og þess
verður væntanlega ekki langt að
bíða að hann opni markareikning
sinn. Sigurður Lárusson var
öryggið uppmálað í vörninni, það
sama má segja um Friðrik í
markinu, og Kostic skilaði sínu á
miðjunni.
Mótspyrnan sem Framarar
mættu kom þeim greinilega í
opna skjöldu. Liðið náði ekki að
ráða spilinu eins og svo oft og
það sló leikmenn þess útaf lag-
inu. Birkir Kristinsson lék vel,
Viðar var sterkur að vanda og
Baldur áberandi meðan hans
naut við.
Lið Þórs: Friðrik Friðriksson. Sigurður
Lárusson. Nói Björnsson. Þorsteinn
Jónsson, Sævar Árnason, Siguróli Krist-
jánsson, Þórir Áskelsson, Luca Kostic,
Hlynur Birgisson, Bjarni Sveinbjörnsson
(Júlíus Tryggvason á 75. mín.) og Árni
Þór Árnason.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveins-
son, Þorsteinn Þorsteinsson, Viðar Þor-
kelsson, Kristján Jónsson, Pétur
Ormslev. Kristinn R. Jónsson, BalcJur
Bjarnason, Anton B. Markússon, Rík-
haröur Daðason og Guðmundur Stcins-
son.
Gul spjöld: Hlynur Birgisson, Luca Kost-
ieogSævar Árnason. Þór. Þorsteinn Þor-
steinsson. Jón Sveinsson og Pétur
Ormslev, Fram.
Rauð spjöld: Baldur Bjarnason, Fram,
og Sævar Árnason, Þór.
Dómari: Guðnumdur Haraldsson. Hann
hafði ekki fulla stjórn á leiknum þrátt
fyrir að hann væri óspar á spjöldin og
gcrði sín mistök.
Línuvcrðir: Eyjólfur Ólafsson og Svan-
laugur Þorsteinsson.
Þór-KR á
Akureyrar-
vefli
- í kvöld kl. 20
í kvöld heldur 4. umferð
Hörpudeildarinnar í knatt-
spyrnu áfram. A Akureyri
mætast Þór og KR kl. 20 og fer
leikurinn fram á Akureyrar-
velli. Verður það fyrsti leikur
sumarsins á vellinum en knatt-
spyrnuunnendur bíða þess
jafnan með nokkurri eftir-
væntingu að hann verði tekinn
í notkun.
í tilefni af 75 ára afmæli Þórs
verður ýmislegt gert til hátíðar-
brigða eins og fram kemur í blað-
inu í dag. Verður m.a. boðið til
veislu í Hamri, hinu nýja félags-
heimili Þórs, frá kl. 18-20 í kvöld.
Þar verður boðið upp á heljar-
mikla afmælistertu, pylsur o. fl.