Dagur - 06.06.1990, Page 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 6. júní 1990
4. deild:
HSÞ-b vann upp
jriggja marka
brystu Magna
Magni og HSÞ-b skildu jöfn þegar liðin
mættust í E-riðli 4. deildar á Grenivík á
laugardaginn. Segja má að Magnamenn
hafi kastað frá sér sigrinum því þeir
höfðu þriggja marka forystu í hléi, 3:0,
en HSÞ-b náði jafna í síðari hálfleikn-
um.
Magnamenn voru mun sterkari í fyrri
háifleik og Reimar Helgason náði fljótlega
forystunni fyrir þá með skallamarki.
Kristján Kristjánsson bætti öðru marki við
og Reimar var svo aftur á ferðinni fyrir
hlé.
í síðari hálfleik datt botninn úr leik
Magna og liðsmcnn HSÞ-b gengu á lagið.
Ari Hallgrímsson skoraði fyrsta markið,
síðan skoraði Magnamaðurinn Þorsteinn
Friðriksson sjálfsmark og Viðar Sigurjóns-
son jafnaði síðan metin með skoti úr
þröngu færi.
Stórsigur
UMSE-b á
Narfa
UMSE-b átti ekki í miklum vandræð-
um með Narfa úr Hrísey þegar liðin
mættust á Laugalandsvelli á laugardag-
inn. Um algera einstefnu var að ræða
og svo fór að UMSE-b sigraði 9:0.
Narfamenn sýndu ágæta baráttu í fyrri
hálfleik og náðu að standa nokkuð í and-
stæðingum sínum. UMSE-b náði þó að
skora þrtvegis fyrir hlé og í síðari hálfleik
virtust Hríseyingarnir gefast upp og mörk-
in létu ekki á sér standa í framhaldinu.
UMSE-b hefði hæglega getað bætt við
mörkum en færin létu á sér standa hjá
Narfa.
Ásgrímur Reisenhus var í miklum ham
í leiknum og skoraði fjögur nrörk fyrir
UMSE-b. Baldvin Hallgrímsson og Jón-
berg V. Hjaltalín skoruðu tvö hvor og
Garðar Jónsson eitt.
SM hafði
betur á
Raufarhöfn
SM sigraði Austra 2:1 þegar liðin mætt-
ust í 4. deildiuni á Raufarhöfn um helg-
ina. Leikurinn var ágætlega leikinn og
jafnræði ríkti með liðunum. Hefði jafn-
tefli scnnilega verið sanngjörnustu úr-
slitin.
SM-menn voru sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og náðu þá forystunni. í sfðári
hálfleik snerist dæmið við, Austramenn
voru frískari og náðu að jafna metin. Þeg-
ar skammt var til leiksloka skoruðu þeir
mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Sá
dómur var afar umdeildur en ekki er unnt
að leggja mat á hann hér. SM náði svo að
tryggja sér sigurinn skömmu seinna.
4. deild
- E-riðill
UMSE-b
HSÞ-b
S.M.
Magni
Austri Rau.
Narfi
2 2-0-0 14:0 6
2 1-1-0 5:3 4
2 1-0-1 2:3 3
1 0-1-0 3:3 1
2 0-0-2 1:7 0
1 0-0-1 0:9 0
3. deild:
Markaregn hjá
Reykjavíkur-Þrótti
Þróttur Reykjavík vann stór-
sigur á Einherja frá Vopnafirði
þegar liðin mættust syðra í 2.
umferð 3. deildar á föstudags-
kvöldið. Þegar leikurinn var
flautaður af höfðu Þróttarar
skorað sjö mörk án þess að
Vopnfirðingunum hefði tekist
að svara fyrir sig.
Þróttarar voru mun sterkari
allan leikinn og Einherjamenn
náðu sér ekki á strik eins og töl-
urnar gefa til kynna. Sigur Þrótt-
ar var þó sennilega heldur of stór
miðað við gang leiksins. Staðan í
leikhléi var 2:0 og þótt undarlegt
megi virðast léku Einherjamenn
mun betur í síðari hálfleik en þeir
gerðu í þeim fyrri. Þróttarar hafa
mjög sterkt lið og virðist eitthvað
mikið þurfa að gerast til að þeir
fari ekki upp.
Óskar Óskarsson og Ásmund-
ur Vilhelmsson skoruðu tvö
mörk hvort fyrir Þrótt og Sigurð-
ur Hallvarðsson, Ásmundur
Helgason og Haukur Magnússon
skoruðu eitt hver.
3. deild:
Völsungssigur
á Húsavflk
- 2:1 gegn
Völsungar léku gegn TBA í 3.
deild Islandsmótsins í knatt-
spyrnu á föstudag. Völsungar
höfðu betur, sigruðu með
tveim mörkum gegn einu.
Leikurinn var þokkalega leik-
inn af beggja hálfu, þó voru það
Völsungar sem höfðu nokkra
yfirburði sérstaklega í fyrri hálf-
leik og náðu þá að skapa sér
nokkur góð marktækifæri. Það
var á 30. mín. að dró fyrst til tíð-
inda. Jónas Grani Garðarsson
sendi boltann fyrir markið þar
sem Sveinn Freysson afgreiddi
hann í netið með góðu skoti.
Aðeins tveim mínútum síðar átti
Erlingur Aðalsteinsson, sem átti
góðan leik fyrir Völsunga, skot
úr þröngri stöðu eftir að hafa
leikið á tvo varnarmenn TBA,
boltinn lá inni, 2:0 fyrir Völsung.
Leikmenn TBA tók góðan sprett
undir lok hálfleiksins og náði
Halldór Jóhannsson þá að
3. deild:
Reynir
steinlá
í Kópavogi
IK úr Kópavogi vann stórsigur
á Reyni Arskógsströnd þegar
liðin mættust í 3. deildinni á
heimavelli þeirra fyrrnefndu á
laugardag. ÍK-ingar sigruðu
7:2 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 3:0.
Jafnræði var með liðunum til
að byrja með en á 25. mínútu
náðu ÍK-ingar að skora og í kjöl-
farið fylgdu tvo ódýr mörk.
Reynismenn virtust brotna við
þetta og ÍK bætti við fjórum
mörkum í síðari hálfleiknum
áður en norðanmenn náðu að
svara fyrir sig. Ólafur Torfason
skoraði fyrst fyrir Reyni og Garð-
ar Níelsson bætti síðan öðru
marki við áður en leikurinn var
úti.
Hörður Már Magnússon skor-
aði tvívegis fyrir IK og Júlíus
Þorfinnsson, Steindór Elíasson,
Ómar Jóhannsson, Davíð Garð-
arsson og Skúli Þórisson skoruðu
eitt mark hver.
Reynismenn áttu flestir mjög
slakan dag að þessu sinni ef und-
an eru skildar fyrstu mínúturnar.
IK-ingar voru sprækir og höfðu
mikla yfirburði eins og tölurnar
gefa til kynna.
nýliðum TBA
minnka muninn í 2:1. Þannig var
staðan í hléi.
Síðari hálfleikur var tíðindalít-
ill, meira jafnræði var með liðun-
um, en minna um tækifæri. Undir
lok leiksins áttu Völsungar þó tvö
dauðafæri en Einar Kristjánsson,
markvörður og einvaldur TBA
varði vel, eins og oft áður í leikn-
um. óhú
2. deild
- Úrslit í 2. umferð
Víðir-KS 1:0
UBK-Grindavík 2:1
Tindastúll-ÍR 3:1
Fylkir-Leiftur 3:0
Selloss-ÍBK 1:2
Úrslit í 3. umferð:
Grindavík-Víðir 2:3
ÍR-UBK 1:5
Leiftur-Tindastóll 1:0
ÍBK-Fylkir 1:2
KS-Selfoss 3:1
Staðan
Fylkir 3 3-0-0 7: 2 9
UBK 3 2-1-0 7: 2 7
Víðir 3 2-1-0 4: 2 7
ÍBK 3 2-0-1 4: 3 6
Tindastóll 31-1-1 4: 3 4
Leiftur 3 1-1-1 2: 4 4
KS 3 1-0-2 3: 3 3
Grindavík 3 0-1-2 4: 6 1
Selfoss 3 0-1-2 3: 6 1
ÍR 3 0-0-3 3:10 0
3* deild
- Úrslit í 2. umferð
Þróttur R.-Einherji 7:0
Haukar-Þróttur N. 3:1
BÍ-Dalvík 1:2
Völsuugur-TBA 2:1
ÍK-Reynir 7:2
Staðan
Þróttur R.
ÍK
Dalvík
Þróttur N.
Haukar
Völsungur
TBA
BÍ
Reynir
Einherji
2 2-0-0 12:3 6
2 2-0-0 8:2 6
2 2-0-0 4:2 6
2 1-0-1 5:3 3
21-0-1 6:6 3
2 1-0-1 2:2 3
2 1-0-1 2:2 3
2 0-0-2 1:6 0
2 0-0-2 3:9 0
2 0-0-2 0:8 0
Kristján Hjálmarsson, kylfingur frá Húsavík sem nú er búsettur á Akureyri
byrjaði vertíðina með sigri.
Kristján vann
opnunarmótið
- 70 þátttakendur á fyrsta móti
sumarsins að Jaðri
Kristján Hjálmarsson sigraði í
keppni án forgjafar á opnunar-
móti GA á laugardaginn. Jað-
arsvöllurinn var oþnaður á
laugardaginn og var mótið
haldið í tilefni af því. Kristján
lék á 77 höggum, einu færra en
Magnús Karlsson sem varð í
öðru sæti. I keppni með for-
gjöf sigraði Jóhann Jóhanns-
son.
Skúli Ágústsson og Konráð
Gunnarsson voru jafnir í 3. sæti á
79 höggum og þurftu því bráða-
bana til að knýja fram úrslit.
Hann fór fram á 18. holu og hafði
Skúli betur, lék holuna á tveiniur
höggum, eða einu undir pari.
I keppni með forgjöf varð
Ríkarður Ríkarðsson annar á 65
höggum en Haraldur Júlíusson
og Jónas Bragason voru jafnir á
66 höggum. Jónas hreppti hins
vegar þriðja sætið vegna betri
árangurs á þremur síðustu holun-
um.
Guðjón E. Jónsson varð næst-
ur holu á 18. braut og hlaut kúlu-
kassa fyrir afrekið.
Ekki er hægt að segja annað en
golfvertíðin hafi farið vel af stað
á Akureyri. Keppendur fengu
einstakt blíðuveður, sól og hita.
Mótið þótti heppnast mjög vel og
voru þátttakendur um 70 talsins
sem er feykilega gott.
Mót þetta taldi ekki til forgjaf-
ar en fyrsta mótið af því tagi
verður um næstu helgi og kallast
það Stjörnusól, en Stjörnusól
mun gefa verðlaunin í það.
Leiknar verða 18 holur með og
án forgjafar og verða ljósatímar í
aukaverðlaun. Á sunnudeginum
verður síðan punktamót. Sagt
verður nánar frá þessum mótum
síðar í vikunni.
3. deild:
Dalvíkingar náðu í
þijú stig á ísafirði
- unnu BÍ 2:1
Dalvíkingar kræktu sér í þrjú
stig er þeir sóttu BÍ heim um
helgina. Dalvíkingar unnu
leikinn 2:1 og hafa því fullt hús
stiga eftir tvær umferðir.
Dalvíkingar byrjuðu leikinn á
ísafirði vel og voru mun grimm-
ari í fyrri hálfleiknum. Þeir náðu
forystunni á 9. mínútu þegar
Ágúst Sigurðsson slapp í gegnum
vörn BÍ og skoraði af öryggi.
Þorsteinn Guðbjartsson bætti
síðan öðru marki við um miðjan
fyrri hálfleik með glæsilegum
skalla og staðan í hléi var 2:0.
Dalvíkingar voru ekki eins
sprækir í seinni hálfleik og sóknir
heimamanna þyngdust. Stefán
Tryggvason minnkaði muninn
fyrir þá og skömmu seinna fengu
þeir kjörið tækifæri til að jafna.
Dæmd var þá vítaspyrna á Dal-
víkinga en Isfirðingarnir misnot-
uðu hana og Dalvíkingar hirtu
því stigin þrjú.
Segja má að sigur Dalvíkinga
hafi verið sanngjarn því þótt
heimamenn hafi átt mun meira í
síðari hálfleiknum voru færi Dal-
víkinganna mun fleiri og hefði
sigur þeirra þess vegna getað ver-
ið stærri.