Dagur - 06.06.1990, Page 9
Miðvikudagur 6. júní 1990 - DAGUR - 9
2. deild:
Markvörðuriim inn-
siglaði sigur KS
- skoraði síðasta markið gegn
Selfyssingum úr vítaspyrnu
Knattspyrna:
Vormót KRA í fullan gang
Vormót KRA fór af stað fyrir
skömmu og nokkrir leikir hafa
þegar farið fram. A hverju
sumri fara fram þrjú mót á
vegum KRA fyrir alla flokka
nema meistaraflokk, vormót,
sumarmót og haustmót.
Samanlagður árangur úr þess-
um þremur mótum gildir síðan
þegar Akureyrarmeistarar eru
krýndir. Hér á eftir fer yfirlit
yfir þá leiki sem hafa farið
fram.
Meistaraflokkur kvenna
KA og Þór mættust í meistara-
flokki kvenna ekki alls fyrir
löngu. Leikurinn var nokkuð
þokkalegur af vorleik að vera og
var jafnræði með liðunum. Bæði
lið fengu ágæt marktækifæri,
Þórsarar þó heldur fleiri, en öll
fóru þau forgörðum og leiknum
lavjk með markalausu jafntefli.
2. flokkur karla
KA sigraði Þór 2:1 í 2. flokki
karla. Þórir Áskelsson náði for-
ystunni fyrir Þór á fyrstu mínút-
um leiksins en Birgir Arnarson
jafnaði metin fyrir KA úr víta-
spyrnu. Skapti Ingimarsson skor-
aði síðan í seinni hálfleik og
tryggði KA sigurinn. Leikurinn
var þófkenndur og heldur slakur
en jafn og hefði getað farið á
hvorn veginn sem var.
3. flokkur karla
í 3. flokki karla mættust bæði a-
og b-lið félaganna og deildu þau
sigrunum. Þórsarar sigruðu 3:1 í
leik a-liðanna og skoruðu þeir
Guðmundur Benediktsson,
Ágúst Bjarnason og Kristján
Kristjánsson mörk Þórs en
Hreinn Hringsson mark KA. B-
lið KA tryggði sér 1:0 sigur í sín-
um leik með marki Ingimars Erl-
ingssonar. Sá leikur var reyndar
flautaður af í leikhléi og mun
skýringuna vera að finna í boðun
dómara sem misfórst eitthvað.
4. flokkur karla
í 4. flokki höfðu Þórsarar gífur-
lega yfirburði og unnu sannkall-
aðan stórsigur. Lokatölurnar
urðu 12:2 eftir að staðan í leik-
hléi var 10:0. Kristján Örnólfsson
skoraði 5 mörk fyrir Þór, Sig-
urgeir Finnsson, Elmar Stein-
dórsson og Atli Samúelsson 2
hver og Hafsteinn Lúðvíksson 1.
Matthías Stefánsson og Óskar
Bragason skoruðu mörk KA.
Knattspyrna:
Meiðsli
hjáKS
- Þorleifur frá í ár
Tveir menn úr byrjunarliði
KS, Þorleifur Elíasson og
Hörður Bjarnason, eiga nú við
meiðsli að stríða. Kemur þetta
sér illa fyrir Siglflrðinga þar
sem hópurinn hiá þeim er frek-
ar lítill.
Sóknarmaðurinn Þorleifur
Elíasson er með slitin krossbönd
og verður hann frá í 10-12 mán-
uði. Ástandið er ekki alveg jafn
slæmt með Hörð Bjarnason þótt
slæmt sé, hann er viðbeinsbrot-
inn og er reiknað með að hann
geti leikið á ný eftir 4-6 vikur.
1. deild kvenna:
Tvö töp Þórs
- gegn ÍA og Val
KS hlaut sín fyrstu stig í 2.
deildinni á þessu keppnistíma-
bili þegar liðið sigraði Selfoss
3:1 á Sigluflrði í fyrrakvöld.
Leikurinn einkenndist af
mikilli baráttu þar sem Sigl-
flrðingar höfðu betur og var
sigur þeirra sanngjarn.
KS-ingar voru ákveðnari strax
í byrjun og þegar um 15 mínútur
voru liðnar af leiknum náðu þeir
forystunni þegar Henning Henn-
ingsson skoraði af stuttu færi eftir
barning í vítateig Selfyssinga.
Annað mark KS kom þegar
stundarfjórðungur var til leik-
hlés. Þorsteinn Þormóðsson tók
þá aukaspyrnu töluvert fyrir utan
vítateig Selfyssinga. Hann tók
þann kostinn að skjóta á markið
og boltinn fór á milli fóta mark-
varðarins. Skotið var fast og
snúningur á boltanum en markið
hlýtur að skrifast á markvörðinn.
Selfyssingar minnkuðu muninn
í upphafi síðari hálfleiks. Mark
þeirra skoraði Júgóslavinn Der-
vic úr vítaspyrnu. Selfyssingun-
um gekk erfiðlega að skapa sér
færi í framhaldinu og KS innsigl-
aði sigur sinn undir lok leiksins.
Jón Örn Þorsteinsson komst þá í
gegnum vörn Selfyssinga en
markvörðurinn braut á honum og
vítaspyrna var dæmd. Úr henni
skoraði enginn annar en mark-
vörður KS-inga, Kristján
Karlsson, og þar nteð voru fyrstu
stig KS-inga í höfn.
Sverrir Sverrisson reynir að koma knettinum fyrir mark Leiftursmanna í leiknum á mánudagskvöldið. Mynd: -bjh
2. deild:
Fyrsti sigur Leifturs
- 1:0 í baráttuleik gegn Tindastól
Leiftur vann sinn fyrsta sigur í
2. deild á þessu keppnistíma-
bili þegar liðið lagði Tindastól
á hcimavelli sínum sl. mánu-
dagskvöld með einu marki
gegn engu. Eins og áður þegar
þessir erkifjendur mætast var
hart og mikið barist í leiknum.
Sigurmark Ólafsflrðinga kom
skömniu fyrir leikhlé eftir
nokkra pressu á Tindastóls-
niarkið en segja má að dæmið
hafl snúist við í seinni hálfleik
og gestirnir sótt öllu meira.
Torfasonar og skoraði Sigurbjörn
af öryggi.
Leikmenn Tindastóls tóku
völdin á vellinum er líða tók á
síðari hálfleik og náðu að skapa
sér nokkur tilvalin marktækifæri.
En ef boltinn fór ekki framhjá
markinu þá lenti hann í öruggum
höndum Þorvaldar Jónssonar
markvarðar Leifturs. Leiftur átti
nokkrar skyndisóknir í seinni
hálfleik, en lítið kom út úr þeinr.
í heild má segja að jafntefli
hefði talist sanngjörnustu úrslitin
í leiknum en það eru heimamenn
sent standa eftir með stigin þrjú.
Hjá Leiftri voru Þorlákur Árna-
son og Ómar Torfason atkvæða-
mestir, ásamt Þorvaldi í mark-
inu. Bestir í annars jöfnu liði
Tindastóls voru Guðbjartur
Magnason, Ólafur Adolfsson og
Björn Björnsson, auk þess sem
Stefán varði nokkrum sinnum
meistaralega.
Dómari var Ólafur Sveinsson
og hafði hann í nógu að snúast,
gaf fjögur gul spjöld og skipti
þeim bróðurlega á milli liðanna.
-bjb
Hafþór Kolbcinsson og félagar eru koinnir á blað í 2. deildinni.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill
til að byrja með en eftir því sem
mínúturnar liðu tóku heimamenn
öll völd á vellinum. Leiftur sótti
stíft en Tindastóll átti eina og
eina skyndisókn sem fjaraði jafn-
an út í sandinn. Það var svo á
þeirri frægu markamínútu, fer-
tugustu og þriðju, sem Sigur-
björn Jakobsson skoraði eina
mark leiksins. Boltinn barst til
hans eftir að Stefán Arnarson
hafði varið fast skot Óntars
Stúlkurnar í 1. deildarliði Þórs
héldu suöur um helgina og
léku tvo fyrstu lciki sína í
Islandsmótinu. Sá fyrri var
gegn IA á Akranesi og lauk
honum með 1:0 sigri ÍA eftir
spennandi leik. Sá síöari var
gegn Val á Hlíðarenda daginn
eftir og lauk honum ineð
örugguni sigri Vals, 4:0.
Leikurinn á föstudaginn var
jafn og spennandi. Skagastúlk-
urnar voru meira með boltann en
Þórsarar vörðust vel og beittu
skyndisóknum. Þetta gaf góða
raun og jafntefli hefði ekki verið
ósanngjörn niðurstaða. ÍA fékk í
rauninni aðeins eitt færi en það
var þegar Sigurlín Jónsdóttir
skoraði á 25. mínútu. Þórsarar
fengu gott færi á lokamínútunum
en tókst ekki að nýta það.
í leiknum á móti Val fengu
Þórsstúlkurnar á sig klaufamark
á fyrstu mínútum leiksins og eftir
það var aðeins spurning um
hversu stór sigur Vals yrði. Þær
höfðu mikla yfirburði enda Þórs-
stúlkurnar þreyttar eftir leikinn
daginn áður. Er spurning hvort
ekki er of mikið af leika tvo leiki
í tveggja daga ferð.
Ragnheiður Víkingsdóttir
skoraði tvö mörk fyrir Val og
Ingibjörg Jónsdóttir og Guðrún
Sæmundsdóttir 1 mark hvor.
Valgerður Jóhannsdóttir fyrirliði
Þórs.
Landsliðið U-18:
Guðmundur skoraði tvö
Guömundur Benediktsson,
hinn ungi og stórefnilegi
knattspyrnumaður úr Þór,
var í sviðsljósinu þegar
íslenska U-18 ára landsliðið
inætti Skotum í tveimur
æflngaleikjum um helgina.
Báðum leikjunum lauk með
1:1 jafntefli og skoraöi Guð-
inundur bæði mörk íslands.
Leikirnir voru liðir í undir-
búningi liðanna fyrir Evrópu-
keppnina sem hefst í haust.
Þrír noröanmenn voru í
hópnurn, Guðmundur, Eggert
Sigmundsson og Þórður Guð-
jónsson, báðir úr KA.