Dagur - 06.06.1990, Qupperneq 10
*"» y (
M /% «\ W
10 - DAGUR - Miðvikudagur 6. júní 1990
Nauðungaruppboð
á Dalvík
Þriöjudaginn 12. júní 1990 fer fram á Dalvík nauðung-
aruppboð á lausafjármunum og hefst á Böggvisstöð-
um kl. 16.00 og verður síðan fram haldið að Ránar-
braut 2b.
Selt verður að kröfu skiptaréttar Dalvíkur ýmiss konar
lausafé úr þrotabúum Þorsteins M. Aðalsteinssonar (Pól-
arpels) og Fóöurstöðvarinnar s.v.f.
Meðal þess, sem væntanlega verður selt er eftirfarandi:
Á Böggvisstöðum: Drápstæki og fláningsbekkir fyrir refi
og minka, skinna- og skrokkatromlur, skrokkavagnar og
rekkar, rafknúnir skröpunarbekkir, kembivél fyrir refaskinn,
refa- og minkaþönur, skinnaþurrkarar, skoðunarborð með
Ijósi og ýmis fleiri áhöld til slátrunar og skinnaverkunar.
Einnig fóðurvélar, handvagnar, fóðursíló, hjólbörur, há-
þrýstiþvottatæki, hitakassar fyrir minkahvolpa, loftpressa,
Ijósavél, frystipressa, einkatölva Ergo PC 20 MB, auk
ýmissa handverkfæra og smáhluta.
Að Ránarbraut 2b: Fóðurflutningabifreiðar, Man árg.
1977 og 1984 og Scania árg. 1973, Mazda pickup bifreið
árg. 1981, frystiklefi af gerðinni Telewig, tveir blandarar,
tvær hakkavélar, færibönd, snigill, tvær dælur fyrir meltu,
gufuketill, lifrarbræðslutæki, lýsiskar og lýsistankur, tvær
frystipressur, gaffallyftari, lítill rafmagnslyftari, ca. 50 lyft-
arakör, birgðir af frosnu kjöti ca. 30 tonn (ekki til manneld-
is), einnig smærri áhöld og skrifstofubúnaður.
Ávísanir eru ekki teknar gildar sem greiðsla nema með
samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá uppboðshaldara.
Uppboðshaldarinn á Dalvík,
5. júní 1990.
Arnar Sigfusson, fulltrúi.
Sveitarstjórastaða
Staða sveitarstjóra í Svalbarðsstrandarhreppi
er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. júní.
Upplýsingar veitir fráfarandi oddviti í síma 96-
24320.
Óskum eftir að ráða starfs-
kraft til sumarafleysinga
Þarf að geta byrjað strax.
Yngri en 18 ára koma ekki til greina.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Kaupangi Verslunarmiðstöðin hf.
Tækjastjórar - Bílstjórar
Vegna framkvæmda okkar í Grímsey viljum við ráða
vana tækjastjóra á borvagn, grjótflutningabíla og
hjólaskóflu.
Æskilegt væri að viðkomendur væru búsettir á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 91-62270 á skrifstofutíma.
r
Istak hf. Skúlatúni 4, Reykjavík.
Kennarar - Kennarar
Við Seyðisfjarðarskóla
eru lausar nokkrar kennarastöður fyrir næsta
skólaár.
Okkur vantar:
Raungreinakennara, íþróttakennara, tónmennta-
kennara og kennara í almenna kennslu.
Boðið er upp á gott og ódýrt húsnæði.
Einnig er greiddur flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-21365 og
yfirkennari í síma 97-21351.
íþróttir
2. deild:
Tindastóll sigraði ÍR
- í 2. umferð á föstudagskvöldið
Tindastóll sigraði ÍR, 3:1, í 2.
umferð 2. deildar íslandsmóts-
ins. Leikið var á Sauðárkróki á
föstudaginn var. Nokkuð jafnt
var á með liðunum en sóknir
Tindastóls voru beittari en ÍR-
inga og Stefán Arnarson var
Iíka betri en enginn í marki
Tindastóls.
Nær allur fyrri hálfleikur var
nokkuð þófkenndur og skiptust
liðin á að sækja án þess að veru-
leg marktækifæri sköpuðust. Það
var ekki fyrr en á 41. mínútu að
Guðbrandur Guðbrandsson
skoraði fyrir Tindastól við mik-
inn fögnuð áhorfenda.
Síðari hálfleikur hófst af mikl-
um krafti hjá báðum liðum og
virtust IR-ingar ákveðnir í því að
jafna. Svo fór þó ekki því að á
50. mínútu kom falleg sókn hjá
Tindastólsliðinu og Guðbjartur
Magnason skallaði óverjandi
framhjá markverði ÍR . ÍR-ingar
voru þó ekkert á því að gefast
upp og sóttu nú stíft en Stefán
Arnarson í marki Tindastóls
varði vel. Á 63. mínútu náði þó
Jón G. Bjarnason, ÍR-ingur að
renna knettinum í nrark Tinda-
stóls eftir varnarmistök. Staðan
2:1 og ÍR-ingar lifnuðu heldur
betur við og voru meira nteð
knöttinn það sem eftir lifði leiks.
Tindastólsliðið náði þó nokkrum
sóknum annað veifið og í einni
þeirra var Sverrir Sverrisson
felldur rétt fyrir utan vítateig og
Jónas Björnsson skoraði beint úr
aukaspyrnunni í bláhornið hjá ÍR
á 75. mínútu. Síðustu mínúturn-
ar voru máttlausar og leikmenn
búnir að sætta sig við úrslitin.
Bestu leikmenn voru Stefán
Arnarson hjá Tindastól og Jón
G. Bjarnason hjá ÍR. Töluvert
vantaðj upp á að völlurinn væri
góður en veður var hið besta til
knattspyrnuiðkunar og fjöldi
áhorfenda í brekkunni.
son,
Dagur spurði Bjarna Jóhanns-
þjálfara Tindastóls, eftir
leikinn um það hvernig honum
hefði fundist: „Taktíkin gekk
ágætlega upp. en þetta var kafla-
skiptur leikur og greinilegt að lið-
ið er að venjast grasinu enda
mikið búið að æfa á möl. Við eig-
um eftir að fínpússa leikinn hjá
okkur en mörkin voru gullfalleg
og ég er ánægður með að hafa
fjögur stig eftir tvær umferðir.“
SBG
Guðbrandur Guðbrandsson var á skotskónum gegn ÍR.
2. deild:
KS tapaði sínum
oðriim leik 1 roð
- í Garðinum á föstudagskvöld
Heimavallarheppni færði Víð-
ismönnum öll þrjú stigin í
leiknum gegn KS á föstudags-
kvöldið. Leikurinn fór fram í
Garðinum í besta veðri, golu
og sólskini. Víðismenn hafa nú
hlotið 4 stig en KS hefur tapað
báðum sínum leikjum 0:1 og er
því enn án marka og stiga.
Víðismenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti á vel grónum gras-
vellinum og Hlynur Jóhannsson
var nálægt því að skora á 2. mín-
útu en skot hans af 20 metra færi
smó rétt yfir þverslá. Steinar
Ingimundarson nýtti hins vegar
færið sem hann fékk á sömu
grastoppunum á 18. mínútu.
Hann skaut þá þrumuskoti sem
Kristján Karlsson, sá ágæti mark-
vörður norðanmanna, fékk ekki
ráðrúm til að verja. Markið var
geysilega fallegt og þar með var
staðan orðin 1:0. Aðdragandinn
var hins vegar ekki sérlega
skemmtilegur fyrir norðanmenn
því Mark Duffield skallaði knött-
inn fyrir fætur Steinars. Voru það
einu mistök Marks í leiknum en
hann bar nokkuð af í liði KS
þrátt fyrir meiðsli.
Það var eins og heimamenn
létu markið nægja og slökuðu
þeir nokkuð á. Gestirnir gengu á
lagið og var allur annar blær yfir
leik þeirra en í Keflavík á dögun-
um. Þeir sóttu langtímum saman
og Hafþór Kolbeinsson slapp
einu sinni í gegnum grjótgarðs-
vörn Víðis en skaut beint í fang
Gísla Heiðarssonar markvarðar.
Skömmu seinna átti Hlynur Sæv-
arsson hörkuskot en knötturinn
small í marksúlunni.
Seinni hálfleikur var jafn og
ágætlega leikinn. Liðunum tókst
þó ekki að skapa sér teljandi
tækifæri þrátt fyrir gott spil á
köflum og virðist þau bæði vanta
Leiftursmenn riðu ekki feitum
hesti frá viðureign sinni við
Fylki í 2. umferð 2. deildar í
Reykjavík á föstudagskvöldið.
Fylkismenn fengu óskabyrjun,
skoruðu tvö mörk í upphafi
leiks, og norðanmenn náðu
sér aldrei á strik eftir það.
Fylkir bætti einu marki við fyr-
ir leikslok og 3:0 sigur þeirra
var sanngjarn.
Fyrsta markið kom strax á 10.
mínútu og það skoraði Indriði
Einarsson eftir slæm varnarmis-
tök Leiftursmanna. Aðeins einni
og hálfri mínútu síðar komust
Fylkismenn tveimur mörkum yfir
og sáu gestirnir sjálfir um að
skora það mark. Steingrímur
Örn Eiðsson ætlaði þá að senda
knöttinn aftur til Þorvalds í
markinu en misskilningur á milli
markaskorara.
Vfðisliðið var nokkuð jafnt en
einna mest bar á Daníel í vörn-
inni. Mark Duffield var svo eins
og fyrr segir besti maður KS.
Dómari var Ólafur Ragnarsson
og slapp hann þokkalega frá hlut-
iverki sínu. MG
þeirra olli því að boltinn rúllaði
hægt en örugglega í markið.
Kristinn Tómasson skoraði
síðan þriðja mark Fylkis í síðari
hálfleiknum. Ingi Ingason sendi
þá fyrir mark Leifturs og Indriði
átti þrumuskot að rnarki sem
Þorvaldur varði en hélt ekki.
Boltinn barst út til Kristins sem
skoraði af stuttu færi.
Á 80. mínútu fengu Leifturs-
menn kjörið tækifæri til að
minnka muninn en Ómar Torfa-
son skaut þá yfir úr góðu færi eft-
ir óbeina aukaspyrnu í vítateig
Fylkis.
Fylkismenn voru sterkari allan
tímann og sigur þeirra var örugg-
ur og sanngjarn. Leiftursmenn
náðu sér aldrei á strik, liðið var
óákveðið og spilaði hreinlega
illa. HB/JHB
2. deild:
Fylkir afgreiddi
Leiftur auðveldlega
- sigraði 3:0 eftir óskabyrjun