Dagur - 06.06.1990, Qupperneq 15
Miðvikudagur 6. júní 1990 - DAGUR - 15
öðrum af lífsgleði sinni og þeim
fróðleik sem hann var stöðugt að
afla sér. En Tóti var bókhneigður
og haldinn miklum fróðleiks-
þorsta. Hann var fljótur að læra
en vildi síður eyða tíma í að
liggja yfir því sem honum þótti
skipta litlu máli. íslendingasög-
| urnar, ferðabækur og þjóðlegur
fróðleikur þóttu honum mun
| meira freistandi lestrarefni en
þurrar námsbækur. Hann hafði
líka afstöðu til tónlistarnámsins.
Oft fannst honum það tefja fyrir
sér að lesa nótur og spila æfingar.
Hann þurfti ekki að heyra lag
nema einu sinni til að geta spilað
það á píanóið og því fylgdi þá
líka sá kostur að hann gat ráðið
útsetningunni sjálfur. Töluvert
fékkst hann líka við að semja lög.
„Yesterday all my troubles
seemed so far away,“ / í gær virt-
ust vandamálin víðsfjarri. Petta
var kveðjulag og uppáhaldslag
Tóta míns. í gær brosti lífið við
okkur, í dag virðist það hrunið til
grunna. Á morgun verðum við að
reyna að byrja að byggja það upp
að nýju, á annan hátt en fyrr, ein-
um færri. Aldrei verður það eins
gott og skemmtilegt og það var
áður en við verðum að reyna að
hjálpast að við að gera það bæri-
legt aftur. Aldrei framar eigurn
við eftir að sitja saman í stofunni
hennar ömmu og hlusta á Tóta
spila á píanóið, aldrei framar á
hann eftir að spila fyrir okkur
jólasálmana á aðfangadagskvöld
og aldrei framar sjáum við hann
þeysa í hlað á hjólinu sínu eða
snjósleðanum, snara sér af og
bjóða litlu krökkunum eina
bunu. En minningarnar tekur
enginn frá okkur og sá dagur
kemúr vonandi að þær gleðja
okkur en græta ekki.
Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna
þess, sem var gleði þín, segir Kal-
ihl Gibran í Spámanninum.
Sannarlega var Tóti gleðigjafi og
fyrir tímann sem við áttum hann
ber að þakka. Kveðja mín til
elsku Tóta er ástarþökk fyrir að
glæða líf okkar litum um nær 18
ára skeið. Hjartans þökk frá
'Hillu frænku og Jafet, og frá
Jóhönnu og Ara Hermóði sem
litu á hann eins og stóra bróður.
Við geymum hann öll í minning-
unni.
Hildur Hermóðsdóttir.
Það er komið kvöld, vinnudegi er
lokið og annar bíður eftir okkur
að morgni. Klukkan losar mið-
nættið, úti berjast sumar og vetur
í grámósklegu frostinu, vetur
konungur reynir enn að halda
völdum með klóm sínum.
Dyrabjallan glymur, á tröpp-
g unum stendur séra Björn ogsegir
okkur þær hörmulegu fréttir að
bróðursonur minn Þórólfur
Baldvin Hilmarsson sé látinn.
Það er eins og veturinn í dauða-
teygjunum grípi um hjarta mitt
og kremji það miskunnarlaust
saman.
Þessi ungi piltur, sem kvaddi
okkur fyrir þremur dögum, fullur
af gleði og tilhlökkun. Nú átti að
halda á erlenda grundu og fagna
velheppnuðum prófum. Til
útlanda hafði Tóti aldrei komið
áður. Tóta vannst aldrei tími til
að skoða hinar fögru lendur
Spánar. Strax á fyrsta degi er
honum kippt í burtu frá okkur í
einu af hinum voðalegu slysum,
enn eitt af ^læsilegum ungmenn-
um okkar Islendinga fallið í val-
inu nú á örskömmum tíma. Mað-
I ur spyr almættið hvers vegna, en
fær ekkert svar. Ég spyr aftur
ahnættið af hverju allt þetta unga
fólk, meðan sjúk gamalmenni,
södd lífdaga, biðja Himnaföður-
inn dag eftir dag og ár eftir ár, að
taka sig til sín. Hinir öldruðu fá
ekkert svar og það fæ ég ekki
heldur.
Þórólfur eða Tóti eins og hann
var oftast kallaður, vorbarnið
okkar, var vel gefinn myndarpilt-
ur, sem hefði oröið átján ára 23.
maí, ef hann hefði lifað. Tóti var
allur í mótorsporti og áttu vél-
sleðar og vélhjól mikil ítök í
honum. Einnig spilaði hann á
píanó og hljómborð enda mjög
músíkalskur. Tóti samdi líka lög
á hljóðfærin sín. Ég var stödd
uppi í Árnesi daginn áður en hann
lagði af stað. Eitt af því síðasta
sem ég heyrði hann segja við for-
eldra sína var „við bræðurnir för-
um í fjósið í fyrramálið, en þið
sofið og hvílið ykkur," sem auð-
vitað var þegið með þökkum.
Núna skoðar þú, Tóti minn,
þær strendur sem eru trúlega feg-
urri en þig óraði nokkurn tímann
að erlend lönd gætu verið. Ég
trúi, að á ströndinni hinum megin
hafi afi Hermóður, Steingrímur
langafi og Sigríður langamma
beðið eftir þér og fylgt þér um
nýju heimkynni þín, alla leið að
borði Drottins.
Tóti rninn, Guð gefi þér góða
heimkomu í framtíðarstaðinn
þinn og ég vona að þín fyrsta og
síðasta utanlandsferð hafi ekki
valdið þér vonbrigðum. Guð
styrki ykkur bróðir, mágkona,
Hermóður Jón, Árni Pétur,
Ester Ósk, amma Jóhanna,
amma Gerður og afi Jón.
Guð hjálpi okkur öllum.
Sigga frænka.
„Grátum ekki, munum heldur."
Munum allt fagurt sem fyrir augu
brá, alla yndishljóma er oss barst
til eyrna, allt það góða sem við
nutum, munum það, gleðjumst af
því en grátum það eigi.
Þessar línur úr ritsafni Theo-
doru Thoroddsen hjálpa okkur
að bægja frá þeirri þungu sorg er
kvaddi dyra þegar drengur í
æskuljóma var skyndilega og
vægðarlaust hrifinn burt, fjarri
foreldrum og heimabyggð.
Þórólfur Baldvin, „Tóti“, var
elsta barn foreldra sinna, Áslaug-
ar Önnur Jónsdóttur og Hilmars
Hermóðssonar, fæddur 23. maí
1972. Ólst hann upp í Árnesi
ásamt þremur systkinum, Hcr-
móði Jóni, Árna Pétri og Jitlu
systurinni Ester Ósk. Naut hann
þar í uppvextinum ástríkis for-
eldranna og ömmu Jóhönnu og
afa Hermóðs, sent lést fyrir all-
nokkrum árum.
Tóti var að eðlisfari dagfars-
prúður og hægur, en jafnan stutt
í brosið þótt undir byggi létt
lund. Samviskusemin var honum
í blóð borin og vildi hann vinna
foreldrum og búi sem mest og
best. Þegar hann kom heirn í
helgarfrí úr skóla var sjálfsagt að
ganga í verkin. Þá hafði tónlist-
argáfan ekki látið hann ósnort-
inn, lék hann á píanó og hljóm-
borð og um tíma æfði hann í
hljómsveit ásamt félögum sínum.
Nábýli er á Nesjabæjum og
samgangur mikill á milli frænd-
systkina á líku reki. Varla leið sá
dagur að þeir frændur Tóti og
Völli Snær þyrftu ekki að hittast
og ræðast við þegar báðir voru
heima. Nú verður þess sárt sakn-
að að heyra ekki drepið létt á dyr
og brosmildan dreng spyrja eftir
frænda sínum.
En æskuárin voru fljót að líða
við leik og starf. Eftir tveggja ára
nám á framhaldsbraut við Lauga-
skóla skyldi að loknum prófum
haldið á vit ævintýra á suðlægum
slóðum ásamt skólafélögum.
Tilhlökkun og eftirvænting ríkti í
huga piltsins sem nú bjó sig til
ferðar til framandi landa í fyrsta
sinn. Fjölskylda og frændlið
gladdist með, engan grunaði að
þetta yrði jafnframt sú hin síð-
asta á þessari jörð, honunt var
ætluð önnur og lengri för.
Fyrir aðeins mánuði kornu ætt-
ingjar og vinir saman til að gleðj-
ast með yngsta bróðurnum, Árna
Pétri, á fermingardaginn. Það var
sól og vor í lofti eftir langan og
strangan vetur. En aftur dimmdi
yfir og þennan sunnudag stönd-
um við klökk og orðvana.
Megi algóður Guð styrkja for-
eldra, systkini og ástvini alla
ásamt ferðafélögunum ungu sem
urðu fyrir þungbærri reynslu. Um
leið og við þökkum ungum vini
samfylgdina sendir Völundur
Snær góðum frænda hinstu
kveðju. Fjölskyldan í Álftanesi
kveður Þórólf Baldvin með þess-
um ljóðlínum:
Skært hann skein
skein eigi lengi.
Þá varð dimmt í dal.
er andi drottins
af upphæðum
blés á hið bjarta Ijós.
(Sveinbj. Egilsson.)
Halla L. Loftsdóttir.
Ekkert megnar að lýsa þeim sárs-
auka sem greip okkur þegar við
fréttum að náinn vinur okkar og
frændi hafi látist i hörmulegu
slysi úti á Mallorka, þar sem
hann var í skólaferðalagi ásamt
félögum sfnum úr Laugaskóla.
Þórólfur eða Tóti, eins og við
kölluðum hann, ólst upp í Árnesi
í Aðaldal.
Hann var sonur hjónanna Ás-
laugar Önnu Jónsdóttur og Hilm-
ars Hermóðssonar, elstur fjög-
urra systkina. Samband hans við
systkini sín og foreldra var mjög
gott. Hann var bræðrum sínum
sem félagi og litla systir hans Est-
er Ósk naut mikillar athygli af
hans hálfu.
Það var einnig gott samband
rnilli okkar frændsystkinanna þar
sem við ólumst upp í nánd hvert
við annað. Samgangurinn á milli
var mjög mikill og oft var kornið
saman til að skemmta sér eða til
að spjalla.
Núna er Tóta sárt saknað í
okkar hópi.
Alltaf var gott að tala við Tóta
og gerði hann ekki mun á fólki í
því sambandi. Hann var hress og
kátur og fús til hjálpar.
Tóti átti auðvelt með nám og
stefndi á stúdentsprófið. Hann
hafði líka mikinn áhuga á tónlist
og lærði m.a. á píanó og
hljómborð.
Áhugi hans snérist einnig um
vélsleða og mótorsport.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
V. Briem.
Þar sem dauðinn fer um spyr
hann ekki að aldri og þótt við
spyrjum aftur og aftur; af hverju
þetta hafi þurft að gerast, fáum
við það eina svar: Drottinn gaf og
Drottinn tók.
Það voru þung sporin þegar við
fylgdum frænda okkar hinsta
spölinn. En í hjarta okkar allra
sem þekktum hann varðveitum
við dýrmætar minningar sem
inunu gleðja okkur og styrkja í
sorginni, því við grátum yfir því
sem var gleði okkar.
Elsku Ása. Himmi, Hernmi,
Pési, Ester Ósk, ömmurnar Jó-
hanna og Gerður og afi Jón. Guð
gefi ykkur og öðrum ástvinum
styrk til að standast þessa raun.
Þetta er okkar hinsta kveðja til
okkar elskulega frænda Tóta.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
V. Briem.
Vigga og Steingerður.
dagskró fjölmiðla
h
Sjónvarpid
Miðvikudagur 6. júni
17.50 Sídasta risaeðlan.
(Denver, the Last Dinosaur.)
18.20 Þvottabirnirnir.
(Racoons.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Úrskurður kviðdóms (3).
(Trial by Jury.)
19.20 Umboðsmaðurinn.
(The Famous Teddy Z.)
19.50 Abbott og Costeilo.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Listahátiíð í Reykjavík 1990.
Kynning.
20.35 Grænir fingur (7).
Efni til garðbygginga.
Hvað stendur garðeigendum til boða af
ýmis konar byggingarefni til garðræktar
og fegrunar?
Umsjón: Hafsteinn Hafliðason.
20.50 Sálnaveiðar.
(The Hunting Ground.)
Ný bresk heimildamynd um áhrif krist-
inna trúboða á nokkur frumstæð samfé-
lög indíana í Suður-Ameríku. Vestrænir
menningarkvillar fylgja oftar en ekki í
kjölfarið.
21.40 í launsátri.
(Suddenly)
Bandarisk spennumynd frá árinu 1954.
Aðalhlutverk: Frank Sinatra, Sterling
Hayden, Nancy Gates og James Gleason.
Þrír leigumorðingjar yfirtaka hús i lítilli
borg. Forsetinn er á leið í veiðiferð og það
er vitað að hann komi við í borginni.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Miðvikudagur 6. júní
16.45 Nágrannar.
17.30 Fimm félagar.
(Famous Five.)
17.55 Albert feiti.
18.20 Funi.
(Wildfire.)
18.45 í sviðsljósinu.
(After Hours.)
19.19 19:19.
20.30 Af bæ í borg.
(Perfect Strangers.)
21.00 Okkar maður.
Bjarni Hafþór Helgason er okkar maður á
ferð og flugi um landið.
21.15 Bjargvætturinn.
(Equalizer.)
22.00 Jane Fonda.
(Unauthorized Biography of Jane Fonda.)
Seinni hluti.
22.50 Michael Aspel.
23.30 Skelfirinn.
(Spectre.)
Spennandi hrollvekja.
Aðalhlutverk: Robert Culp, Gig Young og
John Hurt.
Bönnuð börnum.
01.10 Dagskrárlok.
Rás 1
Miðvikudagur 6. júní
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku
að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fróttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Dagfinnur dýra-
læknir" eftir Hugh Lofting.
Kristján Franklin Magnús les (8).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
10.00 Fréttir.
10.03 Þjónustu- og neytendahornið.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr bókaskápnum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit.
12.01 Úr fugla- og jurtabókinni.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - í heimsókn á Barða-
strönd.
13.30 Miðdegissagan: „Persónur og
leikendur" eftir Pétur Gunnarsson.
Höfundur les (5).
14.00 Fróttir.
14.03 Harmonikuþáttur.
15.00 Fréttir.
15.03 Mæramenning.
16.00 Fróttir.
16.03 Að utan.
16.10 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fróttir.
18.03 Sumaraftann.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Fágæti.
20.15 Nútímatónlist.
21.00 Ættleiðingar.
21.30 Sumarsagan: „Birtingur" eftir
Voltaire.
Halldór Laxness les þýðingu sína (3).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins.
22.25 Úr fugla- og jurtabókinni.
22.30 Birtu brugðið á samtímann.
23.10 Sjónaukinn.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Miðvikudagur 6. júní
7.03 Morgunútvarpið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
11.03 Sólarsumar
með Jóhönnu Harðardóttur og Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur.
- Þarfaþing kl. 11.30.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
- Sólarsumar heldur áfram.
14.03 Brot úr degi.
16.03 Dagskrá.
Sigurður G. Tómasson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Katrín Baldursdóttir.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur i beinni
útsendingu, simi 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk zakk.
20.30 Gullskifan.
21.00 Smiðjan.
22.07 Landið og miðin.
23.10 Fyrirmyndarfólk
litur inn i kvöldspjall.
00.10 í háttinn.
01.00 Næturvakt á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11,12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
1.00 Á gallabuxum og gúmmiskóm.
2.00 Fréttir.
2.05 Áfram ísland.
3.00 Landið og miðin.
4.00 Fróttir.
4.03 Sumaraftann.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Glefsur.
5.00 Fróttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Zikk zakk.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Afram ísland.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Miðvikudagur 6. júni
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Miðvikudagur 6. júni
07.00 7-8-9... Pétur Steinn Guðmundsson
og Hulda Gunnarsdóttir ásamt Talmáls-
deild Bylgjunnar.
09.00 Fróttir.
09.10 Ólafur Már Björnsson.
11.00 í mat með Palla.
13.00 Valdis Gunnarsdóttir.
15.00 Ágúst Hóðinsson.
17.00 Kvöldfréttir.
17.15 Reykjavik síðdegis.
18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson.
20.00 íslandsmótið Hörpudeild.
Valtýr og Hafþór fylgjast með leikjum Þórs
og KR á Akureyri og leik Vikinga og ÍA á
Víkingsvelli.
22.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
02.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Hljóðbylgjan
Mlðvikudagur 6. júní
17.00-19.00 Timi tækifæranna
á sinum stað kl. 17.30. Þáttur fyrir þá sem
þurfa að selja eða kaupa.
Beinn sími er 27711.
Fréttir kl. 18.00.