Dagur - 06.06.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, miðvikudagur 6. júní 1990
Kodak
Express
Gæöaframköllun
Tryggðu f ilmunni þinni
^besta ^Pedr6myndir
^ Hafnarstræti 98, simi 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Hvammstangahreppur:
Sami meiri-
hluti áfram
Á Hvammstanga hafa H-listi
félagshyggjufólks og G-listi
Alþýðubandalagsins og óháðra
komið sér saman um málefna-
samning vegna meirihlutasam-
starfs í hreppsnefnd Hvamms-
tanga næstu fjögur árin. Þessir
flokkar voru í meirihluta síð-
asta kjörtímabil. Gengið var
frá málefnasamningnum sl.
mánudagskvöld en eftir er að
fá hann staðfestan hjá tlokks-
mönnum listanna.
Guðmundur H. Sigurösson,
efsti maður á G-lista, reiknaði
með að málefnasamningurinn
rynni ljúflega í gegn hjá flokkun-
um, þar sem ekki væri svo mikið
um breytingar frá síðasta kjör-
tímabili. „Mesta breytingin er að
nú verða þrír fulltrúar í meiri-
hluta í stað fjögurra áður, G-list-
inn missti mann yfir til L-lista
frjálslyndra borgara," sagði Guð-
mundur.
Flokkarnir leggja til að Þórður
Skúlason verði áfram sveitar-
stjóri og ekki er búist við öðru en
að Þórður gangi að því. Væntan-
leg hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps mun að öllum líkindum
koma saman upp úr næstu helgi.
-bjb
Einar Sveinn Ólafssun, útvarpsstjóri Útvarps Þórs, við stjórntækin í gær. Mynd: KI.
Útvarp Þór á 75 ára afmælinu
í dag, miðvikudaginn 6. júní, fagnar íþróttafélagið Þór 75 ára afmæli. Mikið verður um dýrðir í tilefni
dagsins. Meðal annars verður starfrækt útvarpsstöð, Útvarp Þór á FM 100,4, fram á nk. laugardag.
Útvarpsstöðinni var hleypt af stokkunum í gær og þá var þessi rnynd tekin. í dag verður send út
dagskrá fra kl. 15 til 18 sem helguð verður yngri kynslóðinni. Spjallað verður við iðkendur og leikin
óskalög. Klukkan 18 til 19 verður samtenging Rásar 2 og Útvarps Þórs. í kvöld kl. 19-23 verður síðan
send út sérstök afmælisdagskrá frá Þórssvæðinu.
Á morgun, fimmtudag, föstudag og laugardag verður fjölbreytt dagskrá í Útvarpi Þór. Útsendingar
hefjast alla dagana kl. 15. Þess má geta að tekið er á móti kveðjum og óskalögum í símum 26970 og
26667.
Nánar um 75 ára afmæli Þórs á bls. 4, 5 og 6 í dag. óþh
Lífrænt gas í jarðlögum í Öxarfirði:
Sumarið notað til frekari
rannsókna og endurvinnslu gagna
Áhugi virðist vera fyrir því í
iðnaðarráðuneytinu að kanna
uppruna á lífrænu gasi sem
kemur úr borholu í Oxarfirði.
Oddviti Öxarfjarðarhrepps
hefur rætt við Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra, og ákveðið
er að í sumar verði unnið að
rannsóknum á djúpsýnum og
gögn frá rannsóknum liðinna
ára endurunnin.
Oddvitinn, Björn Benediktsson
í Sandfellshaga, segir að vitað hafi
verið um lífrænt gas í jarðlögum í
Öxarfirði í nokkur ár, en ekkert
gert til að rannsaka uppruna
þess.
„Okkur þykir þetta ákaflega
undarleg vinnubrögð. Fyrir
Banaslys á
Skagastrandarvegi:
Ung stúlka
lést í bflveltu
Banaslys varð að morgni sl.
laugardags á Skagastrandar-
vegi við Vatnahverfi. Ung
stúlka lést þegar bifreið,
sem hún ók, lenti útaf í
beygju og valt. Stúlkan var
ein í bifreiðinni.
Hún hét Bryndís H. Stein-
dórsdóttir og var frá Skaga-
strönd. Bryndís var á 18.
aldursári. -bjb
nokkrum árum var borað á
kostnað ríkisins í Flatey til að
kanna setlög og leita eftir hugs-
anlegum vísbendingum um gas
eða olíu. Holan sem boruð var
gaf engan árangur hvað þetta
snerti. Nokkrum árum síðar kom
lífrænt gas upp fyrir tilviljun við
borun í Öxarfirði. Enginn áhugi
var fyrir að skoða það frekar. Ég
held þó að nú hafi' tekist að ýta
því máli eitthvað af stað, og í
samtali sem ég átti við iðnaðar-
ráðherra sagðist ráðherrann hafa
mikinn áhuga á að þetta yrði
skoðað. Djúpsýni verða tekin út
holunni í sumar, og upplýsingar
sem þegar liggja fyrir um svæðið
endurunnar, en þær eru þó
nokkrar. Um er að ræða rann-
sóknir Orkustofnunar undanfarin
ár, athuganir sovéskra vísinda-
ntanna og kannanir sem skipið
Western Geophysical gerði árið
1978,“ sagði Björn Benediktsson
í Sandfellshaga, oddviti Öxar-
fjarðarhrepps.
Spurningin sem vísindamenn
ætla að reyna að svara er hvaðan
lífræna gasið kemur, þ.e. hvort
það kemur neðan úr dýpri jarðlög-
um eða frá aðliggjandi efri jarð-
lögum. Komi gasið úr djúpum
jarðlögum bendir flest til að full
ástæða sé til áframhaldandi rann-
sókna. EHB
Blönduvirkjun:
Unnið allan sólarhringinn
- 500 manns á svæðinu
Framkvæmdir viö Blöndu-
virkjun eru nú að komast á
fullt skrið, en í sumar munu
vinna þar á fimmta hundrað
manns. Stefnt er að því að
klára allar helstu framkvæmdir
á svæðinu á þessu ári og verður
í sumar unnið allan sólarhring-
inn alla daga vikunnar í verk-
um þeim sem þarfnast sumar-
veðráttu.
Unnið hefur verið nánast í all-
an vetur í Blönduvirkjun og var
það fyrst og fremst Hagvirki sem
vann við skurðgröft vegna veitu-
leiðar frá aðaluppistöðulóninu.
Framkvæmdir fóru síðan af stað í
meira mæli í apríl og eru nú að
komast í gang fyrir alvöru. Mikl-
ar stífluframkvæmdir verða og
Blöndustífla sjálf, mun í sumar
hækka um 15 metra og verður þá
komin upp í 32 metra, en hún er
stærsta stíflan á svæðinu. Áætlað
er að hægt verði að vinna í stífl-
um fram í október. í sumar verða
einnig lokuvirki sett upp og bygg-
ingu stjórnhúss á að vera lokið 1.
nóvember. Bygging þjónustuhúss
fyrir starfsfólk virkjunarinnar er
að hefjast og í stöðvarhúsi verða
steypuframkvæmdir að mestu
kláraðar.
Það eru um sjö verktakafyrir-
tæki, innlend og erlend, sem
koma til með að vinna þessi verk
og önnur í sumar. Á vegum
þeirra munu starfa á fimmta
hundrað manns, svo að ljóst er
að svæðið við Blönduvirkjun
mun frekar minna á lítið þorp
heldur en vinnusvæði. Fram-
kvæmdum við virkjunina mun að
mestu Ijúka á næsta ári og á að
taka fyrstu túrbínuna af þremur í
notkun haustið 1991.
MA ’90 16. júní:
Búist við 700
manns í mat
Ljóst er þegar að á stúdcnta-
hátíðinni í íþróttahöllinni á
Akureyri um aðra helgi verða
ekki undir 500 manns í mat.
Fyrir skömmu var sent út
dreifibréf til stúdenta frá
Menntaskólanum á Akureyri
þar sem óskað var tilkynninga
um þátttöku og bárust þegar
svör frá yfir 500 manns. For-
svarsmenn þessarar hátíðar
sem ber titilinn MA-’90 efndu
til blaðamannafundar í gær þar
sem fram kom að búist er við
að 700 manns verði í mat.
Eins og kornið hefur fram í
blaðinu vaknaði hugmynd að
þessari hátíð í hópi 25 ára stúd-
enta frá MA. Mikið het'ur verið
unnið að undirbúningi í vetur og
hefur dagskráin tekið á sig
endanlega mynd. Húsið verður
opnað kl. 18 að kvöldi 16. júní og
fram til kl. 02 um nóttina verður
fjölbreytt dagskrá, þar á meðal
endurvakning á MA-kvartett í
hópi 25 ára stúdenta. Gert er ráð
fyrir að alls komi fram um 100
manns í þessari dagskrá en þegar
á líður kvöld taka danshljóm-
sveitir við stjórninni.
Umsjón með veitingum á há-
tíðinni hefur Bautinn á Akureyri
og sagði fulltrúi veitingastaðarins
á blaðamannafundinum í gær að
búast megi við að um 50 manns
vinni að framkvæmd veislunnar.
Skólaslit MA verða að venju að
morgni 17. júní í Höllinni og
verður fjölmennt lið í vinnu alla
nóttina við að gera húsið tilbúið
fyrir skólaslitin.
Sérstök skrifstofa verður opn-
uð til afgreiðslu á miðum á þessa
hátíð dagana 14., 15. og 16. júní
í heimavist MA en ætlunin er að
selja alla miða á þessa hátíð fyrir-
fram þar sem um lokaða skemmt-
un er að ræða. Þó var lögð á það
rík áhersla í gær að þeir sem
fengið hafa send dreifibréf til-
kynni þátttöku sem fyrst. JÓH
Lágheiði mokuð
Starfsmenn Vegagerðar ríkis-
ins á Sauðárkróki hófu mokst-
ur á Lágheiði á fimmtudaginn.
Hlé varð á mokstrinum yfir
hvítasunnuhelgina, en í gær
var hafist handa á ný.
Ekki er hægt að segja um hve-
nær vegurinn um Lágheiði verður
opnaður. Mokstur gengur seint,
en þriggja til fjögurra metra
snjólag er á vegarstæðinu. Veg-
urinn verður ekki opnaður fólks-
bílum til umferðar fyrst í stað, en
venja hefur verið að láta hann
þorna áður. Óvenju mikill snjór
er á Lágheiði miðað við árstíma,
enda var síðasti vetur afar þung-
ur í Fljótum og Stíflunni. EHB
✓ Blönduósbær:
Ofeigur endurráðinn
Ofeigur Gestsson hefur verið
endurráðinn bæjarstjóri á
Blönduósi en nýr meirihluti
var myndaður í bæjarstjórn-
inni fyrir helgina. Forseti
bæjarstjórnar verður Pétur A.
Pétursson af H-lista.
Sjálfstæðismenn náðu sam-
komulagi við H-lista um samstarf
í bæjarstjórn Blönduóss næsta
kjörtímabil. Á síðasta kjörtíma-
bili voru H-listi og K-listi í meiri-
hlutasamstarfi en þessir flokkar
deildu um hafnarmál og náðu
ekki samkomulagi um áfram-
haldandi samstarf. JÓH