Dagur - 27.11.1990, Síða 1
Slippstöðin:
Eldur í viðgerðarpalli
Eldur varð laus í viðgerðarpalli
við togarann Harðbak í Slipp-
stöðinni á Akureyri síðdegis í
gær. Slökkviliði og starfsmönn-
um stöðvarinnar tókst í sam-
einingu að slökkva eldinn.
Togarinn Harðbakur er í slipp
hjá stöðinni og var hann uppi í
viðgerðarstól í stöðinni. Tjaldað
hafði verið yfir viðgerðarpall við
togarann með segli en starfsmenn
voru að rafsjóða þegar kviknaði í
seglinu. Skemmdir urðu ekki
aðrar í þessum bruna. JÓH
Leikfélag Akureyrar:
Finun sækja um stöðu
leikhússtjóra
Miklar skemmdir urðu af eldi á miðhæð hússins við Hafnarstræti.
Akureyri:
Mynd: Golli
Eldur laus í mannlausri Mð
- grunur um að eldsupptök séu í eldavél
Slökkviliðið á Akureyri var
kvatt að húsi nr. 86A við
Hafnarstræti kl. 11.30 á sunnu-
dagsmorgun en þá var laus eld-
ur á miðhæð hússins. íbúi á ris-
hæð varð var við reyk í húsinu
og fór þegar og vakti íbúa á
neðstu hæðinni en íbúðin á
nnðhæðinni, þar sem eldurinn
kviknaði, var mannlaus.
Mennina sakaði ekki og tókst
slökkviliðsmönnum fljótlega
að slökkva eldinn.
Mestur virðist eldur hafa verið
í eldhúsi íbúðarinnar á miðhæð-
inni en stuttu eftir að kallað hafði
verið á slökkviliðið varð mikil
reyksprenging í íbúðinni og við
það brotnuðu rúður og hljóp eld-
ur þá um alla íbúð.
Tómas Búi Böðvarsson,
Knattspyrna:
I’vjólíur í
byrjunarliöi
Stuttgart
- átti þátt í
tveimur mörkum
Eyjólfur Sverrisson var í fyrsta
sinn í byrjunarliði Stuttgart á
laugardaginn. Liðið lék þá á
heimavelli gegn Köln og sigr-
aði 3:2. Eyjólfur átti mjög góð-
an leik og átti m.a. þátt í
tveimur mörkum Stuttgart.
Frammistaða Eyjólfs vakti
athygli í Þýskalandi og fékk hann
mjög góða dóma í blöðunum,
auk þess sem hann var tekinn í
viðtal í þýska sjónvarpinu. Einn
leikmanna liðsins spáði því að
það gæti orðið erfitt fyrir hinn
fræga Fritz Walter að vinna sætí
sitt í liðinu á nýjan leik en hann
var meiddur og því fékk Eyjólfur
tækifærið.
Sjá nánar á bls. 7.
slökkviliðsstjóri, segir að þegar
að var komið hafi eldtungur stað-
ið langt út um eldhúsgluggann og
aðra glugga á hæðinni. „Þetta leit
því illa út en eldurinn var ekki
búinn að ná neinni fótfestu,
nema í eldhúsinu, þannig að
greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um hans. Það vildi líka svo vel til
að þegar útkallið kom voru 4
menn á vakt vegna annara verk-
efna og því var strax hægt að
senda reykkafara inn í húsið og
það sló mjög fljótt á eldinn,"
sagði Tómas.
Að sögn Tómasar var mestur
eldur í eldhúsi íbúðarinnar. Mjög
miklar skemmdir urðu af reyk í
risíbúð hússins og þá urðu einnig
talsverðar skemmdir á íbúð á
neðstu hæðinni sökum vatns.
Upptök eldsins voru ekki full-
rannsökuð í gær en að sögn
Daníels Snorrasonar beinist
grunur helst að eldavél í íbúðinni
á miðhæðinni. JÓH
Fimm umsóknir bárust um
stöðu leikhússtjóra hjá Leik-
félagi Akureyrar, en umsókn-
arfrestur rann út sl. föstudag.
Þeir sem sækja um stöðuna
eru Signý Pálsdóttir, Erlingur
E. Halldórsson, Hávar Sigur-
jónsson, Jakob S. Jónsson og
María Sigurðardóttir.
Sunna Borg, formaður Leik-
félags Akureyrar, sagði að stefnt
væri að því að ráða í stöðuna sem
allra fyrst. Leikhúsráð verður
með fund næstkomandi miðviku-
dag og þar verða línurnar lagðar.
Nokkra athygli vekur að Signý
Pálsdóttir skuli vera meðal
umsækjenda en sem kunnugt er
var hún leikhússtjóri LA á undan
Pétri Einarssyni. Hinir umsækj-
endurnir eru einnig þekktir í
leikhúslífinu. Hávar Sigurjóns-
son og María Sigurðardóttir hafa
bæði leikstýrt á Norðurlandi og
María er reynd leikkona. Erling-
ur E. Halldórsson er leikstjóri og
leikritahöfundur. Jakob S. Jóns-
son hefur verið búsettur í Sví-
..... ..... . „ .... Y„..^ UUJVllU. .
Trillu með tveimur sjómönnum frá Hvammstanga saknað
Brak úr bátnum fannst
á Húnaflóa í gær
Tveggja manna er saknað eftir
að fjögurra tonna plastbátur
sökk á Húnaflóa sl. sunnu-
dagskvöld. Loftskcytastöðin á
Siglufirði heyrði neyðarkall
um 18.00 og þá strax hófust
leitaraðgerðir. Á þriðja tug
báta, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar og varðskipið Týr leituðu
fram eftir nóttu og víðtæk leit
hélt síðan áfram í gærmorgun.
Fjörur voru gengnar og leit á
sjó og í lofti var haldið áfram.
Brak fannst úr bátnum í gær en
leitin að mönnunum hafði ekki
enn borið árangur þegar blaðið
fór í prentun.
Báturinn, sem gerður er út frá
Hvammstanga, fór til línuveiða
um hádegisbilið á sunnudaginn
og tveir menn innanborðs. Um
sexleytið heyrði loftskeytastöðin
á Siglufirði síðan neyðarkall frá
bátnum þess efnis að hann væri
að sökkva, en engin staðarákvörð-
un var fyrir hendi. Björgunar-
aðgerðir voru þá settar af stað og
þyrla Landhelgisgæslunnar og
varðskipið Týr kölluð á vettvang.
Fjöldi báta leitaði á Húnaflóa á
sunnudagskvöld og byrjað var að
ganga fjörur, en ekkert fannst. í
birtingu í gær var leit síðan hald-
ið áfram og tugir manna gengu
fjörur frá Skagatá og inn að
Heggstaðanesi. Gott veður var
bæði á sunnudag og í gær við
Húnaflóa og ágætt í sjóinn.
Eftir hádegi í gær fannst brak
úr bátnum, en leitin að mönnun-
um stóð enn yfir þegar blaðið fór í
prentun. Vitað er að gúmbjörg-
unarbátur var um borð.
Hjálparsveita- og björgunar-
sveitamenn úr Húnavatnssýslum
hafa tekið þátt í leitinni og voru
búnir að ganga allar fjörur við
Flóann seinnipartinn í gær án
þess að finna nokkuð. SBG
þjóð undanfarin ár og verið virk-
ur í leiklistarlífi íslendinga þar.
Núverandi leikhússtjóri LA,
Sigurður Hróarsson, mun láta af
störfum í lok mars á næsta ári en
hann hefur verið ráðinn leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur
og fer því úr Samkomuhúsinu í
Borgarleikhúsið. SS
Ólafsfjarðarmúlagöngin:
„Stefhum að því
að hafa göngin
opin um jólin“
- segir Sigurður Oddsson,
hjá Vegagerð ríkisins
„Við erum auðvitað ekkert
hressir með þessa frestun,“
segir Bjarni Kr. Grímsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði, en nú
þykir nokkuð Ijóst að jarð-
göngin í Ólafsfjarðarmúla
verða vígð á nýju ári, trúlega í
síðari hluta janúar eða um
mánaðamótin janúar-febrúar.
Rætt hafði verið um að göngin
yrðu tilbúin í nóvember eða des-
ember, en nú þykir ljóst að af því
getur tæplega orðið. Krafttaks-
menn vinna nú að því að setja
upp kapalstiga í loft ganganna og
í kjölfar þeirra verður lýsingin
sett upp.
Sigurður Oddsson, hjá Vega-
gerð ríkisins á Akureyri, segir
erfitt að áætla hversu langan tíma
þessi verkþáttur taki. „En við
stefnum að því að hleypa umferð
í gegnum göngin um jólin. Það er
mikill þrýstingur á það í Ólafs-
firði og við stefnum að því að
geta orðið við því,“ sagði Sigurð-
ur. óþh
Miklilax hf. í Fljótum:
Heitt vatn úr nýju holunni
Borinn Glaumur sem verið
hefur að bora eftir heitu vatni
að Lambanesreykjum í Fljót-
um fyrir Miklalax hf. kom nið-
ur á 60 gráðu heitt vatn á tæp-
lega 90 metra dýpi og er það
mun betri árangur en gert var
ráð fyrir. Áfram verður borað
og kannað hvort ekki fæst heit-
ara vatn.
„Þetta er óhemju vatnsmagn
og árangurinn frábær. Vafalaust
eigum við eftir að stórbæta hann,
því við erum rétt að byrja að
bora. Ljóst er áð nú þegar er
kornið það vatn sem leysir vand-
ann í sambandi við vatnshita í
stöðinni að vetrinum," sagði
Gunnar Reynir Pálsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Miklalaxi.
Lágt hitastig að vetrinum í
stöðinni hefur heft vaxtarhraða
fisksins yfir vetrarmánuðina. Ein
heitavatnsborhola var fyrir hjá
Miklalaxi, en hún annaði ekki
þörfum. Sú hola sem nú er strax
farið að koma vatn úr, bætir
ástandið því mikið og einnig tvær
holur að Hraunum sem úr kemur
„síaður“ sjór og voru boraðar
fyrr í vetur.
Að sögn Reynis verður borað
áfram og sagðist hann búast við
að fljótlega kæmi mun heitara
vatn upp úr holunni. SBG