Dagur - 27.11.1990, Side 3
fréttir
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 3
Niðurstöður launanefndar BSRB og prmálaráðuneytisins
um framlengingu svokallaðrar þjóðarsáttar:
Hugsanlegur viðskiptakjarabati
komi fram í launaumslögunum
Undanfarna daga hefur launa-
nefnd Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja og fjármálaráðu-
neytisins setið á rökstólum og
farið yfir stöðu samningsmál-
anna með framlengingu svo-
kallaðrar vþjóðarsáttar“ að
leiðarljósi. I kjarasamningnum
frá 2. febrúar 1990 segir að
endurskoða skuli meginforsend-
ur samningsins fyrir síðari hluta
samningsins í nóvember 1990.
I niðurstöðu viðræðufunda
undanfarna daga segir að í ljósi
þess að framfærsluvísitalan í
nóvember er ívið hærri en gert
var ráð fyrir í forsendum kjara-
samninga hafi verið ákveðið að
til viðbótar 2% launahækkun 1.
desember nk. komi 0,55% hækk-
un frá sama tíma. Heildarlauna-
hækkunin frá 1. október verður
því 2,83%
Þá voru aðilar sammála um að
Björn Sigurbjörnsson og Gunnar Þórðarson.
Sauðárkrókur:
til þess að ná því markmiði kjara-
samningsins að búvöruverð
hækki minna en nemur almenn-
um verðlagsbreytingum á síðari
hluta samningstímans yrði miðað
við að stjórnvöld myndu, til við-
bótar þeim niðurgreiðslum sem
áformaðar eru í fjárlögunr, lækka
kjarnfóðurgjald (grunngjald) um
helming frá 1. janúar nk.
Ennfremur gerðu aðilar bókun
um viðskiptakjör. Þar segir m.a.:
„Vegna þeirrar sérstöku óvissu
um þróun viðskiptakjara sem
Ieitt hefur af olíuverðshækkunum
eru aðilar sammála um að taka
viðskiptakjörin til sérstakrar
skoðunar í febrúar og maí-
mánuði nk. Hafi þau þá batnað
með marktækum hætti umfram
forsendur samninga munu aðilar
í sameiningu taka afstöðu til þess
á hvern veg launafólki verður
veitt hlutdeild í þeim viðskipta-
kjarabata sem verða kann
umfram forsendur samninganna
á síðari hluta samningstímans.
Skal þeirri skoðun lokið fyrir
20. dag útreikningsmánaðar.“
í spá um þróun verðlags, sem
Þjóðhagsstofnun gaf út 24.
nóvember sl., er gert ráð fyrir 7,3
prósenta hækkun á tímabilinu
desember 1990-desember 1991.
óþh
Múrarar
Aöalfundur Múrarafélagsins verður haldinn 30.
nóvember kl. 18.00 aö Flögusíðu 3.
Stjórnin.
Öðruvísi
aðventuskreytingar
hefðbundnar
aðventuskreytingar
og allt þar á milli
Kerti, dúkar, servíettur og
skreytingaefni í ótrúlegu úrvali
Blómabúðin Laufás
Blómleg búð.
Opið laugardaga og sunnudaga í Hafnarstræti
frá kl. 09.00-16.00 og 10.00-14.00
í Sunnuhlíð laugardaga frá kl. 10.00-18.00
Gagnfræðaskólinn fær gjöf
Fyrir skömmu færði Bridge-
klúbbur Sauðárkróks, Gagn-
fræðaskólanum á Sauðárkróki
nokkra uppstoppaða fugla að
gjöf, með von um að það verði
fyrsti vísirinn að stærra safni.
Þetta voru tjaldur, lundi, hrossa-
gaukur, lóa og urtandarpar.
Gunnar Þórðarson afhenti Birni
Sigurþjörnssyni, skólastjóra,
gjöfina fyrir hönd bridgeklúbbs-
ins.
Bridgeklúbbur Sauðárkróks
hefur afnot af aðstöðu fyrir starf-
semi sína í Gagnfræðaskólanum
og fuglagjöfin var einskonar
þakklætisvottur fyrir það. SBG
Samningur SSI og LÍÚ:
Samningur innan þjóðarsáttar
Nýr kjarasamningur Sjómanna-
sambands Islands og Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna leit dagsins Ijós sl. laug-
ardag. Samningurinn er í flest-
um atriðum eins og kjarasamn-
ingur LÍU og FFSI og því inn-
an þjóðarsáttar.
„Samningurinn verður nú bor-
inn undir atkvæði félaga í Sjó-
mannasambandi íslands og úrslit
ráðast á næstu vikum,“ sagði
Konráð Alfreðsson hjá Sjómanna-
félagi Eyjafjarðar.
Að sögn Konráðs er olíuverðs-
tengingin í samningi SSÍ og LÍÚ
sú sama og í kjarasamningi LÍÚ
og FFSÍ. Tímakaupshækkanir
eru þær sömu, hlutfalislega, og
einnig eru í samningi þessum
önnur atriði svo sem tafabætur í
siglingum. „Nú fá sjómenn
ákveðið fyrir tonn sem landað er
í gáma, þegar verið er að undir-
búa afla fyrir sölu erlendis. í
samningnum er ákvæði um að
stóru togararnir, sem ekki eru á
bátakjarasamningum, verði inni
um jól og áramót. Áður bar þeim
að vera inni annaðhvort um jól
eða áramót. Við náðum einnig
verulegum úrbótum hvað við-
kemur sjúkrabótum,“ sagði Kon-
ráð Alfreðsson. ój
Fínull hf.
Formaður LASK boðaður á stjómarfund
Magnús Pálmason, formaður
Landssambands kanínubænda,
hefur verið boðaður til fundar
með stjórn Fínullar og verður
fundurinn haldinn í Byggða-
stofnun á hádegi í dag. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
boðaði Magnús til fundarins.
Þessi fundur kemur í framhaldi
af mikilli umræðu á síðustu dög-
um um málefni Ffnullar hf. í
Mosfellsbæ en mikill vilji er með-
al kanínubænda að flytja starf-
semi fyrirtækisins út á land og
hefur Akureyri verið sterkast
inni í þeirri mynd. Magnús
Pálmason hefur í því sambandi
lagt fram fyrirspurnir til atvinnu-
málanefndar Akureyrarbæjar um
hugsanlega flutninga fyrirtækis-
ins þangað. Á hinn bóginn hefur
Bjarni Einarsson, stjórnarfor-
maður Fínullar, lýst yfir að ekki
sé eftir miklu að sækjast þar sem
um lítið fyrirtæki sé að ræða sem
ekki standi undir miklum kostn-
aði við flutninga. Auk þess hafi
hugsanlegir flutningar aldrei ver-
ið ræddir í stjórn Fínullar, en það
verður væntanlega gert í dag eins
og fyrr segir. JÓH
AAKUREYRI
ALLA FIMMTUDAGA!
■■ Vikulega að sunnan.
■■ Vörumóttaka í Reykjavík til kl. 16:00 á mánudögum.
■“ Vörumóttaka á Akureyri til kl. 12:00 á fimmtudögum.
■■ Allar nánari upplýsingar hjá EIMSKIP Akureyri,
sími 24131.
EIMSKIP