Dagur - 27.11.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 5
lesendahornið
Erna Indriðadóttir,
deildarstjóri RÚVAK:
Þegar kjarkuriim
bQar
Lítilla sanda,
lítilla sæva,
lítil eru geð guma.
Mér flugu þessi fornu spak-
mæli Hávamála ósjálfrátt í hug
þegar ég leit í Helgardag 17.
nóvember sl. og las þar bréf „les-
anda“ um svæðisútvarpið. Þar
var veist að einum dagskrárgerð-
armanna Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, Snorra Guðvarðssyni, með
einkar ósmekklegum hætti. Ekki
það að menn megi ekki gagnrýna
útvarpsmenn eða það efni sem
útvarpið flytur. Útvarpsmenn eru
rnargir og misjafnir. Þeir eru
jafnvel ekki fullkomnir og verður
stundum á í messunni rétt eins og
öðrum ódauðlegum mönnum.
Og um þá eru skiptar skoðanir.
Við því er ekkert að segja. En
það er ekki sama hvernig gagn-
rýni er fram sett. Þegar menn
taka sér fyrir að gagnrýna nafn-
greint fólk á opinberum vettvangi
er ekkert athugavert við að sýna
almenna kurteisi. Það telst til
dæmis til almennrar kurteisi, ef
ekki mannasiða, að kynna sig,
þegar rætt er við ókunnuga.
„Lesandi“ hirti ekki um það.
Kannski eru honum ekki kunn
þessi óskráðu lög. Það er nefni-
lega svo miklu þægilegra þegar
kjarkurinn bilar, að stunda
grjótkast úr felum og þurfa ekki
að standa frammi fyrir þeim sem
steinninn hittir fyrir, augliti til
auglitis. En það hefur aldrei ver-
ið talið stórmannlegt. Þótt við
búum á litlum stað og séum fá,
ættum við að hafa uppburði í
okkur að þora að standa við orð-
in sem við Iátum falla á opinber-
um vettvangi, vegna þess að
gagnrýni sem verður hvati
málefnalegra skoðanaskipta er af
hinu góða og bætir mannlífið.
Sumir hafa ekki kjarkinn og eru
þess vegna ekki svara verðir. Því
miður.
Dagur eða „Daily Mail“:
Létt spaug Snorra
brá birtu á gráma
skanundegisins
Útvarpshlustandi hringdi og
hafði þetta að segja: „Kæri
Dagur, ógn var hvimleitt að sjá á
síðurn þínum eftirhreytur gamla
Akureyrarþurradrambsins og á
ég þar við fúkyrði lesanda í garð
Snorra Guðvarðssonar dagskrár-
gerðarmanns. Ég hef sjálfur tek-
ið mér í munn líkinguna „Daily
Mail“, Vor daglegi póstur, um
okkar ágæta Dag, án þess að mér
kæmi í hug lítilsvirðing hvað þá
klám.
Ég hlýddi á Snorra umræddan
morgun og fannst létt spaug hans
bregða birtu á gráma skammdeg-
isins. Snorri er fyrirtaks útvarps-
maður. Áfram með spaug á léttu
nótunum RÚVAK-menn. Les-
anda vil ég benda á að athuga
hvort félagið Alvara er enn starf-
andi og sækja þar um inngöngu."
„Ég skammast
mín líka...“
Hlustandi skrifar.
„Já, ég skammast mín líka fyrir
þurrpumpuhátt og geðvonsku
samSorgara míns, sem kýs að
kalla sig „lesanda", í laugar-
dagsblaði Dags, eða „Daily
Mail“ eins og við Akureyringar
köllum blaðið svona okkar í
milli.
Það kallar „lesandi“ að „klæm-
ast á bölvanlegan hátt að nafni
blaðsins“ og skammast sín öll
ósköp fyrir þann „fíflahátt“
Snorra Guðvarðssonar dag-
skrárgerðarmanns að láta þessa
nafngift heyrast opinberlega. Æ,
mikið eigum við nú bágt ef sú
óskapar geðvonska og morgun-
fýla hefur nú heltekið almenning
svo að ekki megi lengur gera til-
raun til að fá fólk til að brosa út í
annað í morgunsárið. Fyndni og
húmor þykja misgóð og lengi rná
deila um hvað er velheppnað grín
en þetta umrædda atvik er varla
tilefni til að draga fram stóru orð-
in og opinbera eigin húmorskort.
Enda þykist ég fullviss um að
kollegum Snorra á Degi dettur
ekki í hug að móðgast yfir nafn-
giftinni „Daily Mail“ enda ekki
meint í niðrandi merkingu. Að
lokum, Snorri Guðvarðsson og
aðrir dagskrárgerðarmenn: Upp
með húmorinn, haldið áfram á
sömu braut.
Blaðið heitir Dagur
Eftir að bréf ónafngrefnds les-
anda birtist í laugardagsblaði Dags
nýlega, hafa ónefndir pennar á
Akureyri séð sig knúna til þess að
taka upp hanskann fyrir Snorra
Guðvarðsson dagskrárgerðar-
mann hjá Útvarpi Norðurlands.
Málið snýst um það hvort það
er húmor eða ekki húmor að tala
um Dag sem „Daily Mail“. Einnig
fullyrðir annar bréfritarinn að
okkur á Degi detti ekki í hug að
móðgast yfir því að talað sé um
„Daily Mail“, enda hafi það ekki
verið meint í niðrandi merkingu.
Til upplýsingar langar mig að
benda bæði útvarpshlustendum
og lesendum blaðsins á það að
við hér á Degi erum ekki móðguð
yfir því að blaðið hafi verið kall-
að „Daily Mail“ í útvarpinu eða
að einhverjir Akureyringar kalli
blaðið því nafni sín á milli.
Hins vegar þykir mér rétt að
benda á að blaðið heitir Dagur og
þannig viljum að það sé kynnt í
öðrum fjölmiðlum.
Kristján Kristjánsson,
fréttastjóri Dags.
Skotveiðimenn!
Loksins eru þær komnar Baikal
tvíhleypurnar, þessar margeftirspurðu.
Hlið við hlið - verð 36 þúsund.
Undir og yfir - verð 45.900.
★
Svartfuglinn fyllir fjörðinn,
feitur og freistandi.
Með Tunet og Ultra-Max skotunum tryggja veiðimenn
sér toppárangur.
NORÐURLAND - REYKJAVÍK - ÚTLÖND
SAUÐÁRKRÓKUR - DALVÍK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
HEIMSBYGGÐIN
SKIPADEILD
SAMBANDS/NS
SAMBANDSHUSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVÍK
SIMI 91-698300 TELEX 2101 TELEFAX 91-678151
ísland - Evrópa
Bandaríkin vikulega
HEIMAN OG HEIM
Innanlandsáadlun
Skipadeildar er samræmd
millilandaáætluninni
í háöar áttir.
Vörur frá útlöndum eru
sendar áfram noröur án
tafar, og vörur aö noröan
fara taíarlaust út í heim.
Noröurland - Reykjavík
vikulega
HEIMAN OG HEIM
Ný og stórbætt aöstaöa
umboösmanna okkar eílir
þjónustuna.
Frá Reykjavík - alla fimmtudaga
Á Húsavík - alla sunnudaga
Á Akureyri - alla mánudaga f.h.
Á Dalvík - alla mánudaga e.b.
Á Sauöárkróki
-alla mánudaga (kvöld)
I Reykjavík - alla miövikudaga
LANDSBYGGÐIN
HOLTABAKKI REYKJAVIK
Færeyjar Varberg Helsinki Hull
New York Kaupmannahöfn Moss Rotterdam Hamborg
SAMSTILLT ÁTAK FLÝTIR FLUTNINGI MEÐ XXSKIPADEILD