Dagur - 27.11.1990, Qupperneq 7
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 7
Knattspyrna:
Eyjólfur í byijunar-
liði og sló í gegn
- átti þátt í tveimur mörkum
Eyjólfur Sverrisson var í fyrsta
sinn í byrjunarliði Stuttgart
þegar liðið sigraði Köln 3:2 á
heimavelli á laugardaginn.
Eyjólfur nýtti tækifærið mjög
vel, lék frábærlega og átti þátt
í tveimur mörkum Stuttgart.
Hann fékk mjög góða dóma í
blöðunum og var tekinn í viðt-
al í þýska sjónvarpinu.
Tveir fastamenn í Stuttgartlið-
inu, Fritz Walter og Manfred
Kastel, voru meiddir um helgina
og það varð til þess að Eyjólfur
fékk tækifærið. Og það má segja
að hann hafi nýtt það til hins ýtr-
asta. I flestum blöðunum fékk
hann tvo eða þrjá í einkunn sem
er mjög gott þar sem einn er
besta einkunn sem gefin er.
Cristopher Daum, hinn nýi þjálf-
ari Stuttgart, sagði eftir leikinn
að Eyjólfur hefði komið sér mjög
á óvart. „Hann á vissulega ýmis-
Handknattleikur:
Tveir Þórsarar
í landsliðshóp
Tveir ungir handknattleiks-
menn úr Þór, Rúnar Sig-
tryggsson og Ingólfur Guð-
mundsson, hafa verið valdir
til æfinga með 16-18 ára
landsliðinu. Þeir taka þátt í
æfingabúðum með liðinu
13.-22. desember og aftur
milli jóla og nýárs.
Nokkur verkefni bíða
liðsins, Beneluxmótið verður
haldið á næsta ári og Norður-
landamót fer fram næsta sum-
ar svo eitthvað sé nefnt. Þjálf-
ari liðsins er Geir Hallsteins-
son.
Júdó:
Freyr Gauti
vann eina
- frábært hjá Bjarna
Bjami Friðriksson, Ármanni,
náði frábærum árangri á
Opna skandinavíska meist-
aramótinu í júdó um helg-
ina. Bjarni vann tvenn gull-
verðlaun, í -86 kg þyngdar-
flokki og opnum flokki.
Freyr Gauti Sigmundsson úr
KA var meðal þátttakenda á
mótinu og náði þokkalegum
árangri.
Freyr Gauti vann sænskan
júdómann í 1. umferð en tap-
aði í 2. og 3. og var þar með úr
leik. Þess ber að geta að þetta
var fyrsta stórmótið sem Freyr
Gauti tekur þátt í á þessu ári,
auk þess sem hann er aðeins
18 ára gamall.
legt ólært en hann spilar með
hjartanu og frammistaða hans
lofar mjög góðu.“
Bakvörðurinn Gúnther Scháf-
er var einnig ánægður með fram-
mistöðu Eyjólfs. „Hann stóð
mjög vel fyrir sínu enda gefur
hann aldrei þumlung. Það gæti
orðið erfitt fyrir Walter að vinna
sæti sitt aftur í liðinu,“ sagði
Scháfer.
Köln byrjaði betur í leiknum
og skoraði tvö fyrstu mörkin. Þá
fóru leikmenn Stuttgart í gang og
Miklar líkur eru á að knatt-
spyrnumaðurinn Steingrímur
Birgisson leiki með liði á
höfuðborgarsvæðinu næsta
sumar. Steingrímur hefur leik-
ið með KA undanfarin ár.
„Það eru ýmsar ástæður fyrir
þessu en aðallega er það vinnan,
bæði mín og konunnar,“ sagði
Steingrímur. „Þetta er ekki alveg
ákveðið en eins og staðan er í dag
eru mun meiri líkur á þessu. Því
miður verð ég að segja því það er
erfitt að fara um leið og félagið er
að missa aðra menn og eins þegar
Ormarr er að fara að þjálfa. En
það er lítið við þessu að gera.“
Steingrímur segir ekki ákveðið
hvaða lið verði fyrir valinu ef af
þessu verður en hefur nokkur í
sigtinu. „Það er líklegast að það
verði Valur, Stjarnan eða KR.
Valur og Stjarnan hafa haft sam-
band við mig en ég var í KR áður
en ég fór í KA þannig að það
félag kemur einnig til greina."
íslenska landsliðið í hand-
knattleik lék um helgina þrjá
leiki við Tékka í Laugardals-
höll. íslenska liðið sigraði í
fyrsta leiknum en jafntefli varð
í hinum tveimur.
Fyrsti leikurinn fór fram á
föstudagskvöldið og þá unnu
íslendingar öruggan sigur, 26:22.
Á laugardaginn gerðu liðin 21:21
jafntefli og skildu svo aftur jöfn á
sunnudagskvöldið, 22:22. Þess
má geta að í síðasta leiknum
skaut Júlíus Jónasson í þverslána
úr vítakasti þegar leiktíminn var
útrunninn.
náðu að skora þrívegis. Eyjólfur
átti þátt í tveimur fyrstu mörkun-
um, var auk þess mikið í boltan-
um allan tímann og átti bæði
hættulegt skot og skalla að marki
Kölnar. Hann fékk síðan að líta
gult spjald fyrir háskalega tækl-
ingu.
Á sunnudagskvöldið var Eyjólf-
ur í stuttu viðtali við þýska sjón-
varpið. Hann var þar m.a. spurð-
ur hvernig honum litist á nýja
þjálfarann og lét hann vel af
honum.
Steingrímur er 26 ára. Hann
hefur leikið 80 deildarleiki í 1.
deild auk þess sem hann hefur
leikið tvo A-landsliðsleiki og 9
leiki með yngri landsliðunum.
Steingrímur Birgisson.
Landsliðið keppir við Banda-
ríkjamenn í Stykkishólmi í
kvöld. Um mánaðamótin heldur
það síðan til Danmerkur þar sem
leikið verður gegn Frökkum,
Dönum og Bandaríkjamönnum.
19. desember kemur lið samein-
aðs Þýskalands til íslands og leik-
ur einn leik. Liðin halda síðan
bæði til Þýskalands og spila þar
tvo leiki, 21. og 22. desember.
Milli jóla og nýárs verður haldið
alþjóðlegt mót hér á landi með
þátttöku íslendinga, Japana,
Norðmanna og heimsmeistara
Svía.
Knattspyrna:
Hættir Steini með KA?
- Valur, KR og Stjarnan koma til greina
Handknattleikur, landsliðið:
Sigur og tvö jafti-
tefli gegn Tékkum
- Svíar til íslands í desember
Eyjólfur Sverrisson er farinn að láta að sér kveða í Þýskalandi
Bikarmót KRAFT:
18 íslandsmet
féllu í Haftiarfírði
Bikarmót Kraftlyftingasam-
bands íslands var haldið í
íþróttahúsi Víðistaöaskóla í
Hafnarfiröi á laugardag.
Keppendur voru 27 í 9
flokkum. 18 íslandsmet voru
sett á mótinu, 2 drengjamet, 7
unglingamet og 9 fullorðins-
met.
Jón Guðmundsson setti
drengjamet í bekkpressu í -82,5
kg flokki, Ingimundur Ingimund-
arson unglingamet í réttstöðu-
lyftu í -75 kg flokki, Bárður
Ólsen 2 unglingamet í hnébeygju
í 82,5 kg flokki og hann setti
einnig met í réttstöðulyftu og tvö
met í samanlögðu. Jón Gunnars-
son keppti nú í fyrsta sinn í -100
kg flokki og sló að sjálfsögðu öll
gildandi met í flokknum og var
hann jafnframt stigahæsti kepp-
andinn á mótinu. Guðni Sigur-
jónsson setti glæsilegt íslandsmet
í réttstöðulyftu í -110 kg flokki,
met sem hefur staðið óhreyft frá
árinu 1979. Hann setti einnig met
í samanlögðu. Þá setti Baldvin
Skúlason met í bekkpressu í -110
kg flokki.
Úrslit í einstökum flokkum
fara hér á eftir. Fyrst er árangur í
hnébeygju, þá bekkpressu, rétt-
stöðulyftu og Ioks samanlagt.
-56 kg:
Jóhannes Ein'ksson
-67,5 kg:
Hilmar Gunnarsson
-75 kg:
Kári Elíson
Ingimundur Ingimundars.
-82,5 kg:
Bárður Ólscn
Kristinn Ægisson
Már Óskarsson
Jón Guðmundsson
Rúnar Friðriksson
Atli Ólafsson
-90 kg:
Halldór Eyþórsson
Björgúlfur Stefánsson
Ólafur Sveinsson
Jóhannes Kjartansson
Njáll Torfason
Grétar Hrafnsson
-lðð kg:
Jón Gunnarsson
Flosi Jónsson
Auðunn Jónsson
-116 kg:
Guðni Sigurjónsson
Kjartan Helgason
Stefán Hallgrímsson
Tómas Einarsson
Baldvin Skúlason
-125 kg:
Birgir Viðarsson
Jóhann Sigurðsson
+125 kg:
Kristján Falsson
154, 70, 147,5, 362,5
170, 85.160. 415
240, 165, 260,665
212.5 122,5 240, 575
260.155, 290. 705
230,130,232,5,592,5
240.125, 225, 590
220, 122,5 197,5 540
200.125, 205, 530
205,115,180,500
295,140,280, 715’
260,175, 230, 665
270,150, 220, 640'
250.140, 240, 630
230.140, 250, 620
165, 75,172,5 412,5
340, 200, 330, 870
300.165,285,750
285,160, 270, 715
335, 210, 355,900
245,160,260, 665
230.155, 220, 605
230,135, 205, 570
65,223,125,412,5
165,175,150,510
130, 70,140, 340
225.147.5 220,592,5