Dagur - 27.11.1990, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 27. nóvember 1990
íþróttir
Úrvalsdeild
A-riðill
UMFN-Haukar
Snæfell-KR
UMFN
KR
Haukar
Snæfell
ÍR
B
UMFG-UMFT
ÍBK-Þór
ÍBK
Tindastóll
UMFG
Þór
Valur
99:84
65:87
11 8- 3 1000: 858 16
12 8- 4 975: 930 16
12 6- 6 994:1003 12
11 2- 9 843: 987 4
110-11 726:1072 0
98:83
83:75
11 9-2 1076: 963 18
11 9-2 1085: 977 18
12 8-4 1038: 976 16
12 4-8 1100:1109 8
11 3-8 881: 970 6
-riðill
Blak
1. deild karla
Þróttur N.-Fram
ÍS-KA
Þróttur N.-Fram
Þróttur R.-KA
Þróttur R.
KA
ÍS
HK
Þróttur N.
Fram
1. deild
Þróttur N.-Víkingur
ÍS-KA
Þróttur N.-Víkingur
UBK-KA
Víkingur
UBK
Völsungur
ÍS
KA
Þróttur N.
HK
3:0
3:1
3:0
2:3
8 6-2 22: 9 12
8 6-2 21:12 12
7 5-2 17:12 10
6 3-3 15:11 6
10 3-7 12:21 6
9 1-8 4:26 2
kvenna
0:3
3:1
2:3
1:3
9 9- 0 27: 4 18
8 6- 2 20:10 12
8 6-2 19:10 12
9 5-4 17:16 10
10 4- 6 19:21 8
12 2-10 13:32 4
8 0- 8 1:24 0
Námskeið um
unglingaþjálfim
á vegum ÍBA
Dagana 7.-9. desember mun íþrótt-
abandalag Akureyrar gangast fyrir
námskeiði um unglingaþjálfun, svoköll-
uðu grunnstigi ÍSl.
Námskeiðið inniheldur samræmt náms-
efni og er ætlað leiðbeinendum barna og
unglinga í iþróttum. Það verður 26 x 40
mínútur að lengd og er að meginhluta
bóklegt. Farið verður yfir þætti svo sem
vaxtarþroska, hreyfiþroska, sálrænan
þroska, félagsþroska, kennslufræði, nær-
ingu, meiðsli og leiki.
Námskeiðið fer fram í Glerárskóla og
hefst föstudaginn 7. desember kl. 18.
Aðalleiðbeinandi verður Olga Lísa Garð-
arsdóttir, íþróttakennari. Þátttökugjald er
ekkert. Þátttakendur eru beðnir að skrá
sig hjá varaformanni ÍBA, Sigurði P. Sig-
mundssyni, í sírna 27435, eftir kl. 19 fyrir
2. desember nk.
Úrvalsdeildin:
Tindastóll-ÍBK
íkvöld
í kvöld fara fram tveir leikir í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik. Tindastóll og ÍBK
mætast á Sauðarkróki og verður þar ef-
laust hart barist enda bæði lið í toppbarátt-
unni. Þá leika Valur og Grindavík í
Reykjavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 20.
J
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Úrvalsdeildin í körfuknal
Annar ósigur Si
- töpuðu 83:98 í Grind
„Þetta var kærkominn sigur.
Tindastólsliöið er mjög sterkt
og skipað góðum mönnum en
okkar lið hefur verið að smellá
saman í síðustu leikjum eftir
slæma byrjun. Ahorfendurnir
voru sjötti maðurinn í okkar
liði í kvöld og slíkur stuðningur
er hvetjandi,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson, þjálfari Grinda-
víkurliðsins í körfuknattleik,
eftir 98:83 sigur á Tindastól í
Grindavík á sunnudagskvöld-
ið. Þetta var sjöundi sigur
Grindvíkinga í röð og jafn-
framt annar ósigur Tindastóls-
liðsins.
Norðanmenn byrjuðu betur og
virtust mun sterkari aðilinn. En
veður skipast oft fljótt í lofti í
körfuboltanum og eftir að staðan
var orðin 6:15 fóru heimamenn í
gang. Þeir fundu leiðir framhjá
Tindastólsrisunum Pétri Guð-
mundssyni og Ivan Jonas, eink-
um Jóhannes Kristbjörnsson, sá
útsjónarsami leikmaður, og þeg-
ar 5 mínútur voru til hlés jöfnuðu
Grindvíkingar 31:31 og náðu síð-
an forystu sem þeir létu ekki af
hendi það sem eftir var af leikn-
um. Staðan í hléi var 60:47.
Mikill hraði var í leiknum, sér-
staklega í lok fyrri hálfleiks, en
þá var grimmt skorað. Enda var
mikill handagangur í öskjunni
sem áhorfendur kunnu vel að
meta.
Bandaríkjamaðurinn Dan
Krebbs var langbestur í liði
Grindvíkinga og hafa þeir greini-
lega verið heppnir með leik-.
mann. Hann skoraði 33 stig og átti
Gott framan af hjá Þórsurum
- en þó ósigur í Keflavík, 75:83
Keflvíkingar sigruðu Þór 83:75
í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í Keflavík á sunnudag.
Þórsarar voru betri aðilinn
framan af leiknum, áttu mjög
góðan fyrri hálfleik og leiddu
með 10 stiga mun í hléi, 35:45.
Þeir náðu hins vegar ekki að
halda uppteknum hætti í seinni
hálfleik og Keflvíkingar gerðu
út um leikinn á síðustu mínút-
unum.
í fyrri hálfleik náðu Þórsarar
að slá Keflvíkinga út af laginu
með góðum varnarleik. Peir
pressuðu og náðu að hemja
hraðaupphlaup Keflvíkinga og
trufla sóknarleikinn þannig að
þeir hittu illa. Á sama tíma var
hittnin í góðu lagi hjá Þórsurum,
sérstaklega hjá Sturlu Örlygs-
syni, sem skoraði 4 þriggja stiga
körfur, og Konráð Óskarssyni
sem skoraði 3 slíkar. Þegar 5
mínútur voru til leikhlés höfðu
Þórsarar náð 14 stiga forystu,
24:38, og munurinn var 10 stig í
hléi eins og fyrr segir.
í seinni hálfleik söxuðu Kefl-
víkingar smátt og smátt á forskot
Þórsara og náðu loks að jafna
63:63. Þórsarar komust aftur yfir,
71:69, en þá skoruðu Keflvíking-
ar 9 stig í röð og þar rrieð voru
úrslitin ráðin.
Þórsarar höfðu þennan leik í
hendi sér framan af en náðu ekki
að halda haus. Keflvíkingar fóru
að dæmi þeirra í seinni hálfleik
og spiluðu pressuvörn sem sló þá
út af laginu. Hittnin versnaði,
sem dæmi má taka að Konráð
skoraði 15 stig í fyrri hálfleik en 2
í þeim seinni og Sturla skoraði 14
stig í fyrri hálfleik en ekkert eftir
hlé. Á sama tíma fór Sigurður
Ingimundarson á kostum hjá
Keflvíkingum en hann skoraði 23
stig í seinni hálfleik.
Stig ÍBK: Sigurður Ingimundarson 27,
Tom Lyde 19, Falur Harðarson 15,
Albert Oskarsson 12, Jón Kr. Gíslason 6,
Egill Viðarsson 4.
Stig Þórs: Cedric Evans 23, Konráð Ósk-
arsson 17, Sturla Örlygsson 14, Jón Örn
Guðmundsson 12, Guðmundur Björns-
son 7, Björn Sveinsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn
Albertsson.
Sigurður Arnar Olafsson og félagar
vandræðum gegn ÍS eins og oft áður
Blak, 1. deild karla:
KA heim með i
- sigraði Þrótt en tapaði f
Karlalið KA lék tvo leiki í
Reykjavík um helgina. Á laug-
ardaginn lék liðið við ÍS og
tapaði 1:3 en daginn eftir sigr-
aði það Þrótt í tveggja tíma
baráttuleik, 3:2.
KA-menn náðu sér ekki á strik
gegn ÍS, móttakan var léleg og
hávörnin skilaði litlu. Stúdentar
börðust hins vegar af krafti,
vörðust vel og fengu mikið af
sóknarfærum út á það. Þeir unnu
fyrstu hrinu 15:10 og aðra 15:9.
KA-menn lifnuðu þá aðeins við
og unnu 6:15 en ÍS vann öruggan
sigur í þriðju og síðustu hrinu,
15:7.
„Við lékum illa. Við töldum
okkur vera vel undirbúna fyrir
þennan leik en síðan var allt fros-
ið þegar til kom. Það er eins og
þeir hafi eitthvert tak á okkur,“
sagði Haukur Valtýsson, fyrirliði
KA.
Það var allt annað að sjá til
KA-manna í leiknum gegn
Þrótti. Móttakan var mun betri
og blokkin sömuleiðis. Þróttarar
unnu reyndar fyrstu hrinu 15:12
en KA-menn svöruðu 15:9.
Þróttarar náðu forystunni með
16:14 sigri en KA-menn tryggðu
sér sigurinn í tveimur síðustu
hrinunum, 15:13 og 15:10. Stefán
Magnússon átti mjög góðan leik í
KA-liðinu, varði vel og setti mik-
ið af boltum í gólfið.
„Þetta var mjög erfiður leikur
enda berjast þeir alltaf gríðarlega
vel Þróttararnir. Ég verð þó að
játa að ég átti von á þeim frísk-
ari. En það var allt annað yfir-
bragð á þessu hjá okkur en í fyrri
Hrefna Brynjólfsdóttir átti mjög góðan leik í Kópavogi.
Blak, 1. deild kvenna:
Óvæntur útisigur
KA á Breiðabliki
- enn einn ósigurinn gegn IS
Kvennalið KA í blaki lék tvo
útileiki í 1. deildinni um helg-
ina. Á iaugardag mætti liðið IS
og tapaði 3:1 en sigraði síðan
Breiðablik 3:1 á sunnudegin-
um.
KA-stelpurnar byrjuðu reynd-
ar betur gegn ÍS og unnu fyrstu
hrinu 15:6. Þær náðu sér hins
vegar aldrei á strik það sem eftir
var af leiknum og Stúdínur unnu
næstu þrjár hrinur, 15:13, 15:2 og
15:12. Þess má geta að ÍS er eina
liðið sem KA hefur aldrei náð að
sigra. Ursula Juneman lék mjög
vel fyrir ÍS en KA-liðið var jafnt.
KA-liðið byrjaði einnig vel
gegn Breiðabliki og vann fyrstu
hrinu 15:13 og komst síðan í 12:5
í annarri. Þá hættu hlutirnir að
ganga upp og Breiðablik jafnaði
og vann síðan 16:14. En þá fór
KA-liðið aftur í gang og vann
tvær síðustu hrinurnar 15:2 og
15:8.
KA-liðið lék vel í þessum leik.
Hrefna Brynjólfsdóttir átti stór-
leik, Birgitta Guðjónsdóttir var
sterk og Halla Halldórsdóttir
sömuleiðis. Oddný Erlendsdóttir
var best hjá Breiðabliki en liðið
átti slæman dag enda vantaði
uppspilarann hjá þeim, landsliðs-
konuna Sigurborgu Gunnars-
dóttur.