Dagur - 27.11.1990, Page 9
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 9
itleik:
tólanna
avík
auk þess góðan leik í vörninni.
Jóhannes Kristbjörnsson var
einnig góður en liðið var annars
jafnt.
Ivan Jonas og Pétur Guð-
mundsson voru bestir í liði
Tindastóls sem virðist aðeins
vera að slá af. Það náði ekki að
sýna sínar bestu hliðar í þessum
leik og hefur kannski haft sitt að
segja að Valur Ingimundarson
var meiddur á öxl og gat ekki
beitt sér sem skyldi.
Stig UMFG: Dan Krebbs 33, Jóhannes
Kristbjörnsson 19, Guðmundur Braga-
son 16, Steinþór Helgason 15, Rúnar
Árnason 13. Sveinbjörn Sigurðsson 2.
Stig Tindastóls: lvan Jonas 29, Pétur
Guðmundsson 21, Valur Ingimundarson
13, Pétur V. Sigurðsson 12, Einar Einars-
:on 6, Sverrir Sverrisson 2.
Dóntarar: Bergur Steingrímsson og Leif-
ur S. Garðarsson. Dæmdu vcl. MG
ÍVÖ stig
ýrir ÍS
leiknum og sérstaklega var mót-
takan betri. Mér sýnist þessi fjög-
ur efstu lið vera tiltölulega jöfn
en ef eitthvað er .þá eru Próttur
og ÍS skrefinu á undan okkur.
Við verðum að bæta okkur ef við
ætlum að eiga von um titilinn
sagði Haukur Valtýsson.
unnu góðan sigur á Þrótti en lentu í
•\KÍS|0U*
Sigurlið Lcifturs frá Ólafsfírði.
Myndir: JHB
Coca-Cola mótið í innanhússknattspyrnu:
Leiftur lagði KA í úrslitaleik
Leiftur frá Ólafsfirði varð sig-
urvegari á Coca-Cola mótinu í
innanhússknattspyrnu sem
fram fór í íþróttahöllinni á
Akureyri um helgina. Leiftur
sigraði meistarana frá í fyrra,
a-lið KA, 3:2 í úrslitaleik. 13
lið tóku þátt í mótinu sem
heppnaðist mjög vel.
Leiftursmenn byrjuðu vel í
leiknum gegn KA og komust í
3:0 áður en KA-menn svöruðu
fyrir sig. Þeir náðu fljótlega að
minnka muninn í eitt mark en
lengra komust þeir ekki.
Þór-a og Þór-b léku til úrslita
um þriðja sætið og lauk þeim leik
með öruggum sigri a-liðsins, 5:1.
Kjartan Einarsson, KA, varð
markakóngur mótsins, en hann
skoraði 12 mörk. Þess má geta að
félagi hans Ormarr Örlygsson
varð næst markahæstur með 11
mörk.
Það vakti nokkra athygli að
Sigurbjörn Jakubsson, fyrirliði Leifturs, hanipar verðlaununum hróðugur á
svip.
Stjörnulið Gunnars Níelssonar
komst ekki í undanúrslit, það sat
eftir á lélegra markahlutfalli en
Æsir. í liöinu voru margir kunn-
ir knattspyrnumenn, s.s. Sævar
Jónsson, Þorgrímur Þráinsson,
Njáll Eiðsson og Heimir
Karlsson. „Það var reynsluleysið
scm varö okkur að falli," sagði
Gunnar Níelsson að mótinu
loknu.
Kjartan Einarsson úr KA varð markakóngur mótsins, skoraði 12 mörk. Hér tekur hann við verðlaunum úr hendi
Júlíusar Guðmundssonar, formanns Reynis.
Úrslit í einstökum leikjum
urðu þessi:
Föstudagur:
GNÚ-SM 3:0
Magni-KA b 2:3
Æsir-GNÚ 0:1
SM-Magni 0:4
KA b-Æsir 0:1
GNÚ-Magni 3:2
SM-KA b 0:6
Magni-Æsir 2:3
KA b-GNÚ 5:3
Æsir-SM 7:0
Laugardagur:
KA a-UMSE b 5:2
Þór b-HA 5:0
Þór a-Hvöt 4:1
Dalvík-Leiftur 1:2
KA a-Þór b 4:1
UMSE b-HA 1:1
Þór a-Dalvík 7:2
Hvöt-Leiftur 2:2
KA a-HA 15:0
UMSE b-Þór b 3:4
Þór a-Leiftur 3:1
Dalvík-Hvöt 7:5
Undanúrslit:
KA b-Þór b 1:2
Æsir-KA a 0:8
Þór b-Leiftur 0:2
Þór a-Æsir 5:1
KA b-Leiftur 1:1
KA a-Þór a 4:1
Það var ungmennafélagið
Reynir frá Árskógsströnd sem
hélt mótið en Coca-Cola gaf öll
verðlaun að undanskildum auka-
verðlaunum sem Sjallinn gaf sig-
urvegurunum, mat og miða á
rokksýningu. Vildu forráðamenn
Reynis koma á framfæri þökkum
til starfsmanna íþróttahallarinnar
og þeirra sem þátt tóku í mótinu.