Dagur - 27.11.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 27. nóvember 1990
íþrótfir
f
Liverpool í kröppum dansi
sigur Arsenal í lokin - tvö mörk Gary Lineker gegn Norwich
Það var mikið um fjöruga leiki
í 1. deildinni ensku á laugardag
og mörg mörk skoruð. Ovænt
úrslit litu einnig dagsins Ijós,
þó um tíma virtist sem þau
yrðu fleiri en raunin varð á.
Forskot Liverpool í efsta sæt-
inu er öruggt, en næstu lið
náðu þó að þrengja stöðu liðs-
ins smávegis. En þá eru það
leikir dagsins.
Það urðu óvænt úrslit í leik
Liverpool á heimavelli gegn
Man. City og lokakafli leiksins
var spennandi. Lið City sem ekki
hefur unnið leik í deildinni á úti-
velli í vetur kom í veg fyrir að
Liverpool næði sínum venjulegu
yfirburðum í fyrri hálfleik sem
var markalaus. í síðari hálfleik
komu leikmenn City mjög
ákveðnir til leiks, sóttu stíft og
náðu forystu á 63. mín. með
marki úr vítaspyrnu. Ronnie
Whelan braut þá á Mark Ward
sem var á leið í boltann eftir að
Bruce Grobbelaar hafði varið
skalla Niall Quinn og Ward skor-
aði sjálfur úr vítaspyrnunni.
Liverpool hóf mikla sókn eftir
markið og hélt flestum leikmönn-
um City í vörn. Er 8 mín. voru til
leiksloka fékk Liverpool horn-
spyrnu, John Barnes skallaði
áfram fyrir markið og Ian Rush
sendi boltann í netið hjá City.
Liverpool hélt áfram að sækja en
er 3 mín. voru til leiksloka skor-
aði Ronnie Rosenthal sem hafði
komið inná sem varamaður ann-
að mark Liverpool er hann lyfti
laglega yfir Andy Dibble mark-
vörð City. Sigur Liverpool virt-
ist í höfn, en Quinn jafnaði fyrir
City með skalla þegar mín. hafði
verið leikin umfram venjulegan
leiktíma og tryggði City sann-
gjarnt stig.
Lengi leit út fyrir tap Arsenal
gegn grönnum sínum Q.P.R., en
lið Q.P.R. saknaði margra sterkra
leikmanna vegna meiðsla. Rétt
fyrir hlé náði Roy Wegerle for-
ystu fyrir Q.P.R. með marki úr
vítaspyrnu og liðið var óheppið
að bæta ekki tveim mörkum við
eftir hlé. Wegerle átti þrumuskot
í þverslá og Ray Wilkins skaut
naumlega framhjá marki Arsenal.
En leikmenn Arsenal vöknuðu
loks til lífsins er 12 mín. voru til
leiksloka, skoruðu þrjú mörk og
tryggðu sér sigurinn. Paul Mer-
son jafnaði fyrir Arsenal með
Úrslit 1. deild
Coventry-Leeds Utd. 1:1
Derby-Nottingham For. 2:1
Liverpool-Manchester City 2:2
Luton-Aston Villa 2:0
Q.P.R.-Arsenal 1:3
Sheffield Utd.-Sunderland 0:2
Southampton-Crystal Palace 2:3
Tottenham-Norwich 2:1
Wimbledon-Everton 2:1
Manchester Utd.-Chelsea 2:3
2. deild
Blackburn-Port Vale 1:1
Hull City-Leicester 5:2
Bamsley-Wolves 1:1
Brighton-Millwall 0:0
Brístol Rovers-Oldham 2:0
Charlton-Portsmouth 2:1
Ipswich-Bristol City 1:1
Newcastle-Watford 1:0
Notts County-Swindon 0:0
Oxford-Middlesbrough 2:5
Plymouth-West Ham 0:1
W.B.A.-Sheffield Wed. 1:2
Mark Bright skoraði sigurmark
Crystai Palace gegn Southampton.
föstu skoti upp í þaknetið, Alan
Smith bætti öðru við með góðu
skoti í bláhornið og Kevin
Campbell skoraði það þriðja á
síðustu mín. með fallegu skoti,
en hann hafði komið inn á sem
varamaður. Q.P.R. lék vel, en
leikmenn Arsenal gefast aldrei
upp og hafa ekki gefið upp von-
ina um að ná meistaratitlinum af
Liverpool í vor.
Leikmenn Tottenham og
Norwich léku mjög góða knatt-
spyrnu í sínum leik, nett spil sem
minnti helst á æfingaleik. Gary
Lineker náði forystu fyrir Totten-
ham eftir hálftíma leik, en dóm-
arinn lokaði augunum fyrir því
að hann lagði boltann fyrir sig
með hendi. Norwich lét ekki slá
sig út af Iaginu og jafnaði 4 mín.
síðar. Ian Crook sem eitt sinn var
hjá Tottenham skoraði beint úr
aukaspyrnu í stöng og inn. Leik-
menn Tottenham vildu fá víta-
spyrnu er David Phillips braut á
Paul Stewart sem hefndi sín á
Bryan Gunn markverði Norwich
og var bókaður fyrir vikið. Tim
Sherwood var síðan nærri að ná
forystu fyrir Norwich fyrir hlé,
eftir góða sókn. Sigurmark Tott-
enham í leiknum kom síðan á 52.
mín., Paul Allen sendi fyrir mark
Norwich þar sem Stewart skallaði
fyrir fætur Lineker sem þakkaði
fyrir sig með öruggu marki.
Mikill fögnuður áhorfenda Tott-
enham braust út er fréttist að
Liverpool og Arsenal væru bæði
undir í sínum leikjum, en það átti
eftir að breytast. Sigur Totten-
ham verðskuldaður, en Norwich
barðist þó til loka og lék mjög
vel.
Crystal Palace vann sanngjarn-
an útisigur gegn Southampton í
fjörugum leik. Richard Shaw
bakvörður Palace skoraði þó
sjálfsmark á fyrstu mín. en hann
ætlaði að senda boltann aftur til
Nigel Martyn markvarðar sem
var kominn út úr markinu. Lið
Palace lék mjög vel og Southamp-
ton komst ekkert áleiðis. Matthew
Le Tissier og Rod Wallace sókn-
armenn Southampton sáust varla
og Wallace var síðan skipt útaf.
Ian Wright átti stórleik fyrir
Palace og jafnaði með glæsilegu
marki á 30. mín. og náði síðan
forystu fyrir lið sitt rétt á eftir.
Paul Rideout náði að jafna 2:2
fyrir Southampton með þriðja
markinu á 5 mín. kafla. Vörn
Southampton var óörugg, enda
er liðið að leita að nýjum mið-
verði og snemma í síðari hálfleik
brást vörn liðsins eftir horn-
spyrnu og Mark Bright skoraði
sigurmark Palace sem fylgir topp-
liðunum eftir eins og skugginn.
Coventry hóf leik sinn gegn
Leeds Utd. af miklum krafti og
fékk dauðafæri strax á 5. mín. er
bakvörðurinn Paul Edwards
komst einn í gegn, en John Lukic
í marki Leeds Utd. lokaði vel og
skot Edwards fór framhjá.
Coventry hafði undirtökin, en á
25. mín. brugðu leikmenn Leeds
Utd. sér í sóknina. Eftir sendingu
Mark Ward náði forystu fyrir Man.
City gegn Liverpool með marki úr
vítaspyrnu.
fyrir mark Coventry varði Steve
Ogrizovic markvörður Coventry
skalla Lee Chapman, en hélt ekki
boltanum og Chapman fékk ann-
að tækifæri sem hann nýtti vel.
Sjálfstraust leikmanna Coventry
brást og liðið missti tökifi á leikn-
um. En er 15 mín. voru liðnar af
síðari hálfleik tókst liðinu þó að
jafna leikinn, Chris Whyte mið-
vörður Leeds Utd. ætlaði þá að
renna boltanum til Lukic, en
Kevin Gallacher komst inní
sendinguna og renndi boltanum
framhjá Lukic í markið. Fjör
færðist í leikinn eftir markið og
bæði lið fengu tækifæri til að
tryggja sér sigur, en hvorugt átti
þó rétt á sigri.
Mikil harka var í leik Derby og
Nottingham For. þar sem 5 leik-
menn voru bókaðir og barist upp
á líf og dauða. Steve Chettle náði
forystu fyrir Forest með skoti
sem fór af varnarmanni í netið,
en Gary Mickelwhite lagði lag-
lega upp jöfnunarmark fyrir Craig
Ramage. Það var Mickelwhite
aftur sem lagði upp sigurmark
Derby um miðjan síðari hálfleik.
Dean Saunders skallaði þá inn
sendingu hans. Derby átti sigur-
inn skilinn, en fallegt var það
ekki.
Dómarinn var áberandi í leik
Wimbledon og Everton og bætti
10 mín. við leiktímann. Nokkur
harka var í leiknum, en rriestar
tafir urðu þó er dómarinn var að
láta leikmenn laga á sér legghlíf-
arnar. Minnstu munaði að auka-
mínúturnar dygðu Everton til að
ná stigi. Liðið var tveim mörkum
undir eftir klukkutíma leik,
Warren Barton með skalla og
Terry Gibson með góðu skoti
höfðu komið Wimbledon í 2:0.
Er 12 mín. voru eftir af venjuleg-
um leiktíma lagaði Kevin Sheedy
stöðuna fyrir Everton úr víti eftir
að Roger Joseph hafði brotið á
Ray Atteveld. Prátt fyrir auka-
mín. dugði það ekki Everton til
að jafna og fyrsta tap liðsins síð-
an Howard Kendall tók við var
staðreynd.
Ekki skánar ástandið hjá
Sheffield Utd. sem nú tapaði
heima gegn Sunderland 2:0.
Marco Gabbiandini náði forystu
fyrir Sunderland á 72. mín. eftir
undirbúning Peter Davenport og
Gabbiadini bætti síðara markinu
við á síðustu mín. leiksins eftir að
markvörður Sheffield hafði hálf-
varið skot. Ekkert virðist geta
bjargað Sheffield Utd. frá falli og
liðið er nú langneðst í 1. deild.
Sjónvarpið sýndi leik Luton
gegn Aston Villa á gerfigrasinu í
Chelseasigur á Old Trafford
A sunnudag léku Man. Utd.
og Chelsea á Old Trafford. Lið
Man. Utd. stefndi að sigri til
þess að fylgja efstu liðum eftir,
en Chelsea stefndi að sínum
fyrsta sigri á útivelli í vetur.
Urslitin urðu óvæntur 3:2
sigur Chelsea.
Lið Chelsea hefur aðeins tapað
einum leik af síðustu fimm á Old
Trafford þannig að úrslitin komu
kannski ekki svo mjög á óvart.
Sigurmark Chelsea var skorað úr
umdeildri vítaspyrnu er um 15
mín. voru til leiksloka. Graham
Stuart lék þá inn í vítateig Utd.,
Neil Webb hljóp fyrir hann og
dómarinn dæmdi umsvifalaust
vítaspyrnu sem Dennis Wise
skoraði úr.
Heimamenn sóttu stíft það
Dennis Wise skoraði sigurmark
Chelsca gegn Man. Utd. úr um-
deildri vítaspyrnu.
sem eftir var leiks, en án árang-
urs.
Chelsea náði tveggja marka
forskoti í fyrri hálfleik, Gary
Pallister skoraði sjálfsmark á 15.
mín. og skömmu síðar bætti
Andy Townsend öðru marki við
fyrir Chelsea með góðu skoti eftir
að hafa náð boltanum af Mike
Phelan. En Danny Wallace sem
var hættulegasti maður Utd. í
leiknum sá um að Utd. náði að
jafna leikinn. Hanii náði að laga
stöðuna með skallamarki á 23.
mín., og um miðjan síðari hálfleik
átti hann frábæra sendingu á
Mark Hughes sem gat ekki annað
en skorað. Síðan kom vítaspyrn-
an sem áður er um getið og leik-
menn Chelsea héldu heim til
Lundúna með öll stigin. Þ.L.A.
Luton. Leikmenn Villa ollu von-
brygðum með leik sínum og tókst
ekki að ógna heimaliðinu að
neinu marki, þó fékk Stuart Gray
dauðafæri í upphafi leiks, einn
gegn markmanni, en Alec
Chamberlain í marki Luton sá
við honum. Heimamenn vanir
vellinum voru mun sterkari og
sigruðu 2:0. Kingsley Black skor-
aði á 44. mín. eftir sendingu Lars
Elstrup og Black átti síðar hörku-
skot í slá Villa marksins. Síðara
mark Luton skoraði Elstrup með
góðu skoti á 84. mín. og gull-
tryggði sanngjarnan sigur liðsins.
2. deild
• West Ham hefur tekið forystu
f 2. deild eftir sigurmark Frank
McAvennie gegn Plymouth.
• Oldham tapaði gegn Bristol
Rovers, annað tap liðsins í röð.
David Mehew og Devon White
gerðu mörk Rovers.
• Gary Robson bróðir Bryan hjá
Man. Utd. kom W.B.A. yfir
gegn Sheffield Wed., en það
dugði ekki og Sheffield liðið
skoraði tvívegis í síðari hálfleik.
• Paul Cook skoraði mark
Wolves gegn Barnsley, en mark
heimamanna gerði Andy Saville.
• Robert Lee og Gordon Wat-
son skoruðu mörk Charlton, en
Colin Clarke gerði eina mark
Portsmouth.
• Mick Quinn tryggði Newcastle
sigur gegn Watford með marki úr
vítaspyrnu.
• Middlesbrough tók Oxford í
gegn og skoraði Ian Baird þrennu
fyrir liðið. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Liverpool
Arsenal
Tottenham
Crystal Palaee
Leeds Utd.
Manchester City
Manchester Utd.
Wimbledon
Luton
Nottingham For.
Norwich
Chelsea
Southampton
Aston Villa
Sunderland
Coventry
Derby
Everton
Q.P.R.
Sheffield Utd.
14
14
14 12-2- 0
14 10-4- 0
14 8-5- 1
7-6- 1
6-5- 3
14 4-8- 2
14 6-3- 5
14 4-6- 4
14 5-3- 6
14 4-5- 5
14 5-2- 7
14 4-5- 5
15 4-3- 7
14 3-5- 6
14 3-5- 6
14 3-4-7
14 3-4- 7
14 2-6- 6
14 3-3- 8
14 0-4-10
32: 9 38
27: 6 32
25:11 29
22:14 27
23:15 23
22:20 20
18:16 20
18:2018
16:23 18
18:19 17
18:2217
18:22 17
19:26 15
14:16 14
15:19 14
12:17 13
10:21 0
18:20 12
19:27 12
6:26 4
2. deild
West Ham
Oldham
Sheffield Wed.
Middlesbrough
Wolves
Millwall
Notts County
Barnsley
Brighton
Bristol Rovers
Bristol City
Ipswich
Plymouth
Port Vale
W.B.A.
Blackburn
Swindon
Newcastle
Portsmouth
Oxford
Hull City
Leicester
Charlton
Watford
1811-7- 0 29:11 40
18 11-5- 2 32:17 38
17 10-5- 2 35:17 35
18 10-3- 5 33:18 33
18 7-7- 427:1828
18 7-6- 5 29:21 27
7-5- 6 25:22 26
6- 7- 5 28:21 25
74- 6 28:31 25
7- 3- 7 24:22 24
7-3- 6 26:27 24
6-6- 6 22:27 24
5- 7- 6 21:23 22
6- 4- 8 25:29 22
5-6- 7 23:24 21
18
18
17
17
16
18
18
18
18
18 6-3- 9 22:26 21
18 5-5- 8 23:28 20
17 5-6- 6 16:17 19
54- 9 22:31 19
4-6- 8 28:3618
4- 6- 8 29:43 18
5- 3-10 24:41 18
4-5- 9 23:28 17
24-1113:27 10
18
18
18
18
18
17