Dagur - 27.11.1990, Page 11
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 11
hér & þar
Austurrískur fallhlífarstökkvari í stórslysi:
Lenti á rafmagnsstreng
með 30.000 volta spennu
Franz Wuggetzer, austurrískur
fallhlífarstökkvari, komst á ótrú-
legan hátt lífs af þann 2. júlí í
sumar þegar hann rakst á há-
spennustreng meö um 30 þúsund
voltaspennu. Höggið var gríðar-
legt og blossinn ógurlegur og því
grunaði engan sem með þessu
fylgdist að maðurinn gæti með
nokkru móti lifað þetta slys afi
En óhætt er að kalla það krafta-
verk sem þarna gerðist því nú er
Franz kominn á ról á ný eftir
langa sjúkrahúsvist.
„Það grunaði engan að maður-
inn væri lifandi," sagði Heinz
Lindner, þýskur ferðamaður sem
náði myndum af atburðinum.
Fegar að var komið var fallhlífar-
stökkvarinn eitt flakandi bruna-
sár auk þess að vera bæði brotinn
á fæti og hendi.
„Hann hlýtur að hafa snert
strenginn í um hálfa sekúndu en
þá kom gríðarlegur ljósblossi og
mikill hvellur líkt og um eldingu
væri að ræða. Því næst hrundi
hann til jarðar," sagði vitni að
slysinu.
Peir sem á horfðu brugðust
skjótt við. Franz var meðvitund-
arlaus og strax var reynt að blása
í hann lífi. Björgunarþyrlur voru
komnar á staðinn innan stundar
sem fluttu hann strax á sjúkra-
hús.
Slysið átti sér stað þann 2. júlí.
Franz stökk ásamt félögum sín-
um í austurrískum fallhlífa-
klúbbi, úr um 6000 feta hæð og
ætlunin var að svífa niður dal
einn. Niðurstreymi gerði hins
vegar Franz lífið leitt og því fór
sem fór. Pýski ferðamaðurinn
horfði á hópinn en tók skyndilega
eftir því að einn stökkvarinn
stefndi á rafmagnslínuna og því
byrjaði hann nánast ósjálfrátt að
mynda atburðinn. Lindner þessi
segir að Franz hafi ítrekað reynt
að komast hjá línunni en það hafi
engan árangur borið.
Eftir um mánaðardvöl á
sjúkrahúsi vaknaði Franz til lífs-
ins á ný úr dáinu. Þegar á leið
haustið voru brunasárin gróin og
þá gat hann komist út í lífið á ný,
þakklátur fyrir það kraftaverk að
hafa lifað slysið af.
RÍKISSKATTSTJÓRI
FLYTURAÐ LAUGAVEGI166
Frá og með miðvikudeginum 28. nóvemberverðuröll starfsemi
embœttis ríkisskattstjóra til húsa að Laugavegi 166, Reykjavík.
Vegna flutninganna verða skrifstofur embœtlisins lokaðar
dagana 26. og 27. nóvember nk.
Nýttsímanúmer frá 28. nóvember verðun
91-631100
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Aðventuskreytingar
og allt skreytingaefni
fyrir aðventuna
Úrval í gjafavöru.
# *>
aupangi • Akureyri
mar 24800 og 24830
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Verkmenntaskólinn é Akureyri hefur í
hyggju að taka upp nám fyrir
samningsbundna bókagerðarmenn
á vorönn 1991, ef næg þátttaka fæst.
Innritun lýkur 30. nóvember.
Skólameistari.
BÓKABÚÐ JÓNASAR
Jóladagatöl
frá Lions (súkkulaði)
frá Sjónvarpinu
með límmiðum.
Einnig bakkar og baukar undir
,jólanammið
KABÚÐ
'NASAR
Hafnarstræti 108 • Sími 96-22685
Vinningstölur laugardaginn
24. nóv. ’90
VINNINGAR — FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 5.916.863,-
2.4^1« 5 120.339.-
3. 4 af 5 124 8.370.-
4. 3af 5 4.948 489.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.976.010.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002