Dagur - 27.11.1990, Qupperneq 13
Aon w .—i
ro
anriAn - ci-
Akureyrarkirkja:
Jólakort til
ágóða fyrir
Saftiaðar-
heimilið
Allt frá því að hafist var handa
um byggingu Akureyrarkirkju,
sem nýlega átti stórafmæli,
hefir Kvenfélag Akureyrar-
kirkju veitt ómetanlegan
stuðning, nú síðast gefið veg-
legar gjafir í Safnaðarheimilið.
Það er mikill hugur í konunum
að halda áfram á sömu braut. Því
hafa þær látið gera fögur jólakort
og gjafakort til ágóða fyrir Safn-
aðarheimilið. Kortin prýðir
mynd af listaverki gjörðu af
Iðunni Ágústsdóttur. Þau verða
til sölu í Bókabúð Jónasar, í
Bókvali og í Keramikgalleríi
Margrétar Hafnarstræti 103.
Þá verður Kvenfélag Akureyr-
arkirkju með sinn árlega basar í
Safnaðarheimilinu eftir messu
sunnudaginn 2. desember. Þá
munu þær jafnframt hafa á boð-
stólum súkkulaði og heitar klein-
ur.
Fjölmenni hefur jafnan sótt
konurnar heim á fjáröflunardög-
um þeirra og vonandi verður svo
einnig nú.
Birgir Snæbjörnsson.
Jólakortið, sein er litskrúðugt, prýðir pastelmyndin „Kveikt er ljós“ við
jólasálm eftir Stefán frá Hvítadal.
Kyimingarfiindir um umhverfismál
hjá sveitarfélögum á Norðurlandi
- fundirnir eru haldnir á vegum Fjórðungssambands
Norðlendinga með aðild umhverfisráðuneytisins
Fjórðungssamband Norðlend-
inga ákvað á síðasta fjórðungs-
þingi að megin verkefni þess á
milli fjórðungsþinga verði
umhverfismál.
í þessu sambandi leitaði sam-
bandið eftir samráði við um-
hverfisráðuneytið um eftirtalin
atriði, sem snerta sérstaklega
sveitarfélögin á Norðurlandi:
a) Samráðsfundi í samvinnu við
sérfræðinga umhverfisráðu-
neytisins, þar sem fjallað
verði um fyrirkomulag sorp-
hirðu, sorpeyðingu, söfnun-
arstaði brotamálma og um
aðra hollustuhætti og meng-
unarvarnir á vegum sveitarfé-
laga.
b) Stuðlað verði að samstarfi
sveitarfélaganna um sorpeyð-
ingu og staðarval söfnunar-
staða brotamálma.
Með tilvísun til þessa var leitað
eftir samstarfi við umhverfisráðu-
neytið um samráðsfundi sveitar-
stjórnarmanna í Norðurlandi,
ásamt sérfræðingum ráðuneytis-
ins og að einnig komi fram sjón-
armið heimamanna.
Fundur fyrir Norðurland
vestra veröur í Safnahúsinu á
Sauðárkróki 29. nóvember nk.
Fundur lýrir Norðurland eystra
verður á Hótel KEA Akureyri
30. nóvember nk.
Á báðum fundunum verða
kynntar tillögur nefndar um-
hverfisráðherra sem fjallar um
bætta sorphirðu í landinu. Hugað
verður að hugmynd um flokkun
sorps og kynntar tillögur um frá-
gang sorphauga, sorpeyðingar-
stöðvar og um meðferð hættu-
legra efna.
Júlíus Sólnes, umhverfisráð-
herra, mun hafa framsögu á báð-
um fundunum.
Birgir Pórðarson, frá Hollustu-
vernd ríkisins, mun hafa fram-
sögu á báðum fundunum.
Davíð Egilsson, frá Náttúru-
verndarráði, og Sigurbjörg Sæ-
mundsdóttir, frá umhverfisráðu-
neyti, munu hafa framsögu á
báðum fundunum.
í samráði við Samband sveitar-
félaga á Suðurnesjum mun Vil-
hjálmur Grímsson, tæknifræð-
ingur, kynna á báðum fundunum
lausnir, sem koma til álita, bæði
tæknilega og fjárhagslega séð.
Rétt er aö geta þess að Vil-
hjálmur Grímsson vinnur að
hliðstæðum málum fyrir Suður-
nesjamenn.
Framsögumenn heimamanna á
fundinum á Norðvi'andi vestra:
Sveinn Guðmuna son, fram-
kvæmdastjóri Heilbi jðiseftirlits
Norðurlands vestra, mun kynna
stöðu mengunarvarnarmála í
sínu umdæmi.
Bjarni Þór Einarsson, sveitar-
stjóri á Hvammstanga, mun ræða
um tæknilega hlið mengunar-
varna sveitarfélaga.
Snorri Björn Sigurðsson,
bæjarstjóri á Sauðárkróki, mun
ræða um fjárhagshliðina.
Framsögumenn heimamanna á
fundinum á Norðurlandi eystra:
Valdemar Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar, kynnir stöðu meng-
unarvarnarmála á sínu svæði.
Auður Arnórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands eystra, mun kynna
aðstæður í mengunarvarnarmál-
um í Þingeyjarsýslum.
Guðmundur Guðlaugsson, yf-
irverkfræðingur hjá Akureyrar-
bæ, ræðir um tæknileg atriði
varðandi framkvæmd mengunar-
varnarmála.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Dalvík, ræðir fjármála-
hlið mengunarvarna sveitarfé-
laga.
Hilmar Kristjánsson, varafor-
maður Fjórðungssambands Norð-
lendinga, verður fundarstjóri á
fundinum á Sauðárkróki og Sig-
ríður Stefánsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar, verður fund-
arstjóri á fundinum á Akureyri.
Eftir þessa fundi mun Fjórð-
ungssamband Norðlendinga leita
eftir samstarfi heimaaðila um
staðarval sorpeyðingar og staði til
söfnunar brotamálma. Þetta
verður gert í samráði við stærstu
sveitarfélögin, héraðsnefndir og
ráðuneyti.
Viltu hafa áhrif á framboÖs-
mál Kvennalistarts?
Ef svo er, mættu þá á fund!
Fundir verða á eftirtöldum stöðum:
Akureyri, Brekkugötu 1, þrið. 27. nóv. kl. 20.30.
Grenivík, miðv. 28. nóv. kl. 21.00.
Sólgarður, fim. 29. nóv. kl. 21.00.
Freyjulundur, fim. 29. nóv. kl. 21.00.
Allir velkomnir, konur sem karlar!
Þriðjudagur 27. nóvember 1990 - DAGUR - 13
á 2.500,-
tímar á 1.300,-
23 mínútur í lampa og
stofan til afnota í eina klst.
JÓLST0FA DúFU
© 23717
KOTARQERÐI2
"-----------------------------------------N
Fyrsti des. í Lóni
Hinn árlegi fagnaður verður haldinn í Lóni
laugardaginn 1. desember.
Eldri og yngri kórfélagar og aðrir velunnarar eru
hvattir til að koma og taka með sér gesti.
Upplýsingar um þátttöku þurfa að berast til Ingva
Rafns (Raftækni) fyrir fimmtudaginn 29. nóv. sími
26383.
KARLAKÓR AKUREYRAR GEYSIR.
Sóknarprestar -
sóknamefiidir
Venju samkvæmt mun Dagur birta upplýsingar um
kirkjustarf á Norðurlandi um jól og áramót. Þessar
upplýsingar verða birtar í seinna Jólablaði Dags sem
út kemur þann 19. desember nk.
Sóknarprestar á Norðurlandi eða formenn sóknar-
nefnda eru beðnir að koma upplýsingum um messu-
hald í sinni sókn á framfæri við ritstjórn Dags við
fyrstu hentugleika og eigi síðar en 13. desember nk.
Síminn er 96-24222.
AKUREYRARB/ER
Fóstrur
Dagvistardeild Akureyrarbæjar auglýsir eftir
forstöðumanni og fóstrum til starfa við leik-
skólann Iðavðll frá 1. janúar 1991.
Iðavöllur tekur til starfa að nýju 15. janúar n.k. eft-
ir að endurbótum á húsnæðinu er lokið.
Aðstoðað verður eftir megni við útvegun hús-
næðis á Akureyri. Skriflegar umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu
sendar til Dagvistardeildar Akureyrarbæjar.
Allar nánari uppl. veitir hverfisfóstra í síma 24600
virka daga milli kl. 10.00 og 12.00.
it
Faðir okkar,
GÚSTAV JÓNASSON,
rafvirkjameistari,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 28.
nóvember kl. 13.30.
Ingibjörg Gústavsdóttir,
Bolli Gústavsson.
Hjartans þakkir til allra er sýndu samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU S. HAFDAL,
frá Akureyri.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.