Dagur - 27.11.1990, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 27. nóvember 1990
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Arnarsíða 12 b, Akureyri, þingl.
eigandi Sveinn Ævar Stefánsson,
föstud. 30. nóv., ’90, kl. i 5.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnaeðisstofnun ríkisins, Ólafur
Birgir Árnason hrl. og Ásgeir Thor-
oddsen hdl.
Fagrasíða 9 c, Akureyri, þingl. eig-
andi Stjórn Verkamannabústaða,
föstud. 30. nóv. ’90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Hjallalundur 20, íb. 401, Akureyri,
talinn eigandi Guðmundur Gísla-
son, föstud. 30. nóv., ’90, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og
Gunnar Sólnes hrl.
Hjallalundur 5 a, Akureyri, þingl.
eigandi Nanna Marinósdóttir,
föstud. 30. nóv., ’90, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins og
Bæjarsjóður Akureyrar.
ísborg EA-159, Hrísey, þingl. eig-
andi Borg h.f., föstud. 30. nóv., ’90,
kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Karlsrauðatorg 26 b, Dalvík, þingl.
eigandi Anton Ingvason, föstud. 30.
nóv., '90, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Kaupangur v/Mýrarveg E-hl., þingl.
eigandi Matthías Þorbergsson ofl.,
föstud. 30. nóv., ’90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
(slandsbanki, Bæjarsjóður Akur-
eyrar og Björn Jónsson hdl.
Langamýri 32, e.h„ Akureyri, þingl.
eigandi Álfhildur Pálsdóttir, föstud.
30. nóv., ’90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
fslandsbanki, Landsbanki fslands
og Húsnæðisstofnun ríkisins.
Litli—Dunhagi III, Arnarneshreppi,
þingl. eigandi Stefán Guðmundsson
o.fl., föstud. 30. nóv., ’90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Benedikt Ólafs-
son hdl., Ólafur Birgir Árnason hrl.
og Tryggingastofnun ríkisins.
Mímisvegur 16, Dalvík, talinn eig-
andi Rafvélar s.f., föstud. 30. nóv.,
'90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Smárahlíð 24 h, Akureyri, þingl.
eigandi Guðmundur Friðfinnsson,
föstud. 30. nóv., '90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Gústafsson hrl., Húsnæðis-
stofnun ríkisins og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Þverbrekka, Öxnadal, þingl. eigandi
Þórarinn Guðmundsson, föstud. 30.
nóv., ’90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Benedikt Ólafsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöidum eignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Norðurgata 57, Akureyri, ásamt
vélum, tækjum og búnaði, þingl.
eigandi Sana h.f. föstud. 30. nóv.,
'90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
íslandsbanki, Iðnþróunarsjóður,
Iðnlánasjóður, Ingólfur Friðjónsson
hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar.
Sandskeið 10-12, Dalvík, þingl.
eigandi Hallgrímur Antonsson,
föstud. 30. nóv., ’90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Verksm.hús, starfsm.hús, vélar og
tæki, Krossanesi, þingl. eigandi
Istess h.f., föstud. 30. nóv., ’90, kl.
13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
GnmdvöUur lagður að ným
og raunsærri byggðastefiiu
- ályktun flokksþings Framsóknarflokksins um byggðamál
21. flokksþing Framsóknar-
flokksins, haldið að Hótel Sögu
dagana 16.-18. nóvember 1990,
leggur áherslu á að þjóðin nýti
kosti landsins alls.
Síðasta áratug hefur verið mik-
ill flutningur fólks til höfuðborg-
arsvæðisins frá öðrum landshlut-
um. Af þeim sökum hefur meðal
annars skapast þar óæskileg
þensla og hagvöxtur stöðvast í
þjóðfélaginu. Sporna verður
gegn slíkri þróun, enda er hún
hvorki æskileg fyrir höfuðborgar-
svæðið né landsbyggðina.
Til þess að draga megi úr
byggðaröskun eða stöðva hana
þarf að skapa hagstæð skilyrði til
uppbyggingar og framfara í öll-
um landshlutum.
Þörf er á raunsærri byggða-
stefnu, sem fylgt verður eftir með
markvissum aðgerðum. Forsenda
hennar er að takist að skapa jafn-
vægi á sem flestum sviðum þjóð-
mála. Með því jafnvægi f efna-
hagsmálum, sem tekist hefur að
koma á með núverandi stjórnar-
stefnu undir forystu Framsóknar-
flokksins, hefur verið lagður
grundvöllur að slíku.
Höfuðmarkmið hinnar nýju
byggðastefnu verði eftirfarandi:
- að auðlindir lands og sjávar
nýtist á hagkvæman hátt og rösk-
un byggðar hamli ekki hagvexti,
- að byggð dafni í öllum lands-
hlutum þannig að íbúarnir búi
við alhliða framfarir.
Til þess að ná framangreindum
markmiðum leggur fiokksþingið
áherslu á eftirfarandi aðgerðir:
1. Við hagstjórn verði tekið tillit
til áhrifa hennar á þróun
byggðar. Lögð verði áhersla á
jafnvægi í efnahagslífinu og að
skráning gengis miðist við já-
kvæða afkomu útflutningsat-
vinnuveganna.
2. Mynduð verði öflug atvinnu-
og þjónustusvæði þar sem
aðstæður skapist fyrir fjölbreytt-
an iðnað og þjónustustarfsemi.
Sérstakt átak verði í uppbygg-
ingu samgöngukerfis á þessum
áratug f þessu skyni. Með skipu-
lögðum framkvæmdum verði
komið á beinum samgöngum við
útlönd úr öllum landshlutum.
3. Atvinnusvæðin verði skil-
greind. Þar verði mynduð öflug
samtök, atvinnuþróunarfélög,
með samstarfi heimamanna og
Byggðastofnunar. Markmið
atvinnuþróunarfélaganna er al-
hliða þróun og endurskipulagn-
ing þess atvinnulífs sem fyrir er.
Sérstök áhersla skal þó lögð á að
auka fjölbreytni atvinnulífsins.
Þá er brýnt að virkja konur í
ákvarðanatöku um uppbyggingu
atvinnulífsins og auka fjölbreytni
í atvinnu fyrir þær. Ráðgjafa-
þjónusta verði efld og samræmd í
öllum landshlutum og tengd hag-
nýtum rannsóknum.
4. Við uppbyggingu orkufreks
iðnaðar verði tekið tillit til
byggðasjónarmiða og þjóðhags-
legrar hagkvæmni.
5. Verkmenntun verði aukin og
skólakerfið tengt betur atvinnu-
lífinu og nýtt meira til rannsókn-
af í þágu þess. Áhersla skal lögð
á eflingu Háskólans á Akureyri
og annarra menntastofnana á
landsbyggðinni.
Mikilvægt er að ungt fólk geti
stundað nám og störf án þess að
tengslin við heimabyggð rofni.
6. Hefðbundin búvörufram-
leiðsla verði áfram undirstaða
byggðar í sveitum landsins.
Fækkun starfa þar vegna aukinn-
ar framleiðni og þröngra mark-
aðsaðstæðna verði mætt m.a.
með fjölbreyttari nýtingu land-
kosta til ferðaþjónustu og ann-
arra verkefna.
Jarðakaupasjóður verði efld-
ur til að auðvelda aðlögun að
þessum breytingum.
7. Við nýtingu fiskistofna verður
að gæta ýtrustu hagkvæmni. Við
framkvæmd fiskveiðistefnu verði
þess gætt að hún stuðli að eflingu
atvinnulífs og jafnvægi í byggð.
Afla þarf nýrra markaða og
styrkja þá sem fyrir eru. Fram-
leiðsluaðferðir þurfa að vera í sí-
felldri endurskoðun þannig að
ávallt fáist bæsta verð fyrir af-
urðirnar.
8. Stjórnkerfi landsbyggðarinnar
verði eflt með sameiningu og
samstarfi sveitarfélaga. Staða
þeirra og verkefni verði endur-
metin og sjálfsforræði aukið.
Fjölgun starfa í opinberri stjórn-
sýslu verði að mestu þar á næstu
árum. Komið verði á fót stjórn-
sýslustöðvum í öllum kjördæm-
um og margvísleg þjónusta þess
opinbera flutt þangað. Jafnframt
verði haldið áfram flutningi ein-
stakra ríkisstofnanna frá höfuð-
borgarsvæðinu.
9. Tryggt verði að allir lands-
menn hafi jafnan aðgang að
almennri velferðarþjónustu ríkis-
ins, s.s. læknisþjónustu, félags-
þjónustu og kennslu á grunn-
skólastigi án þess að taka á sig
auknar greiðslur.
10. Verð á orku, síma og annarri
opinberri þjónustu ríkisvaldsins
verði jafnað um land allt. Staða
dreifbýlisverslunar verði endur-
metin og ríkisvaldið hafi frum-
kvæði um aðgerðir er leiði til
bættrar stöðu hennar.
11. Byggðastofnun verði stórlega
efld til að sinna betur þróunar- og
uppbyggingarstarfi. Hún veiti
atvinnuþróunarfélögunum öflug-
an stuðning og verði gert kleift að
leggja fram áhættufjármagn til
vænlegara fyrirtækja þar sem
skortur á því hindrar fram-
kvæmdir. Skatttar af stóriðju
renni til þessarar starfsemi.
Heildarsamtök launþega og
atvinnurekenda, samtök sveitar-
félaga og fulltrúar margra stofn-
ana hafa tekið afdráttarlausa
afstöðu gegn mikilli byggðarösk-
un.
Fjölbreytt og öflugt félags- og
menningarstarf er stór þáttur
þess að byggð dafni hvarvetna og
þjóðin glati ekki menningararfi
sínum.
Framtíð þjóðarinnar byggist á
auðlindum lands og sjávar, þar
sem þær eru og verða okkar
dýrmætasta eign og undirstaða
sjálfstæðis.
Athugasemd frá Knattspymudeild Þórs
í Degi þann 20. nóvember sl.
birtist í fasta dálknum „smátt og
stórt“ hugleiðing um verslunar-
port okkar Þórsara og annarra
sem stunda portmennsku hér í
bæ. Það var nú í sjálfu sér grein á
léttari nótunum um auglýsinga-
stríð aðila sem standa að þessari
starfsemi, og birtist í svokölluð-
um sjónvarpsdagskrám og Degi í
viku hverri. Það var nú eins og
oft vill verða í dálki sem þessum
að heldur frjálslega var farið með
staðreyndir og full ástæða til að
leiðrétta rangfærslur sem þar
komu fram. Ekki síst vegna þess
að ritstjóri „Bæði Gagn og
Gaman“ fékk hland fyrir hjartað
þegar Dagur vó nærri útgáfu hans
í sömu grein. Hann ætlaði að
bæta um betur og leiðrétta vit-
leysuna úr Degi í blaði sínu sl.
fimmtudag en tókst ekki betur til
en svo að staðreyndir málsins eru
nánast komnar út í hafsauga. Því
sé ég mig knúinn til að upplýsa
menn um hvernig þetta portmál
allt saman er til komið.
Knattspyrnudeild Þórs hóf
starfsemi Portsins við Dalsbraut
snemma árs árið 1990 og hélt því
gangandi fram að keppnistíma-
bili knattspyrnumanna sem hefst
í maí hvert ár. Það var alltaf
meiningin að hvíla portið yfir
hásumarið vegna anna kringum
önnur störf tengdum knattspyrn-
unni og mannafæðar. Ennfremur
vegna þess að margir aðilar sem
voru með bása hjá okkur voru
ennfremur með sölubása í göngu-
götunni hvern föstudag á góð-
viðrisdögum yfir sumarmánuðina
og því fyrir séð að erfitt yrði að
halda starfseminni gangandi af
einhverju viti þennan tíma.
Það var síðan seint í júlímán-
uði að bílasalinn við Dalsbraut
kom að máli við mig og hótaði
því að ef við kæmum ekki og
héldum port þá mundi hann gera
það sjálfur. Ég tjáði honum að
við hefðum ákveðið að hefjast
ekki handa fyrr en eftir keppnis-
tímabilið og lauk þar með okkar
samtali. Síðan skeður það að
hann auglýsir opnun portsins
næsta laugardag á eftir og hefur
síðan þá þumbast við að halda
þessari starfsemi gangandi. Þegar
við ætluðum síðan af stað aftur
þá stóð okkur ekki annað til boða
en að vera básaleigjendur, sem
við höfðum engan áhuga á að
vera, og fórum við því að svipast
eftir öðrum stað undir okkar
starfsemi.
Þegar við vorum svo komnir
með fast aðsetur í Höllinni vor-
um við beðnir að koma út í
Dalsbraut aftur og halda þar
áfram en þá var ekki aftur snúið
og vita menn sem fylgst hafa með
auglýsingaherferð beggja aðila
framhald þessa máls.
Það skal viðurkennt að erfið-
lega gekk að koma Hallarportinu
á legg en nú er svo komið að við
erum með fullt hús alla laugar-
daga og gríðarlega sölu í hverjum
bás. Þetta gefur fjárvana íþrótta-
félagi þó nokkrar tekjur í viku
hverri og söluaðilar þéna líka.
Þetta er einhver sú besta fjáröfl-
unarleið sem við höfum farið í
því þarna fá þeir sem bása leigja
eitthvað fyrir sinn snúð, misjafn-
lega mikið að vísu, enginn tap-
ar á þessum viðskiptum.
Þetta greinarkorn er nú orðið
örlítið lengra en til stóð í upphafi
en ég vil þakka bæði Degi og
Gagni og Gamni fyrir þeirra
greinaskrif sem án efa hafa vakið
forvitni fólks fyrir þessari starf-
semi og aukið aðsóknina að Hall-
arportinu en fyrir alla muni leit-
ið ykkur upplýsinga um stað-
reyndir málsins áður en þið geis-
ist fram á ritvöllinn.
F.h. Knattspyrnudeildar Þórs
Benedikt Guðmundsson.