Dagur - 27.11.1990, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 27. nóvember 1990
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Persónuleg jólakort
með þínum myndum.
náví'ZlLénuöi^PeóiSmyndiJ^
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Eins og sjá má eru miklar skemmdir í brú norska togarans.
Mynd: Golli
Togarinn Stáltor fékk á sig brotsjó norðaustur af Horni:
Stjómtækin í brúnni ónýt
- Harðbakur EA fylgdi togaranum til Akureyrar
Mjög vont veður var úti af
Vestfjörðum sl. föstudag, 12
vindstig og haugasjór. Togarinn
Stáltor sendi út neyðarkall kl.
14.23. Ekkert samband náðist
við skipið fyrr en ki. 16.00, því
flestöll tæki í brú skipsins voru
skemmd eða ónýt eftir að brot-
sjórinn reið yfir. Flugvél Land-
helgisgæslunnar og varðskipið
Týr voru send af stað, en sneru
Togarinn Stáltor, sem er
norskur og var á leið til
rækjuveiða á Dohrn-banka,
fékk á sig brotsjó 25 sjómílur
norðaustur af Horni sl. föstu-
dag. Skipið er nú við viðlegu-
kantinn í SlippstÖðinni á
Akureyri eftir aö Harðbakur
EA 303 hafði fylgt honum til
hafnar.
við þegar ljóst var að Harðbak-
ur hafði náð sambandi. Harð-
bakur kom að skipinu kl. 18.30
og skipin lögðu af stað til Akur-
eyrar klukkutíma síðar. Ferðin
til Akureyrar gekk vel í alla
staði og ekki er ákveðið enn
hvar viðgerð fer fram að sögn
skipverja. Slys urðu ekki á
mönnum.
ój
Varnarliðsþotur rufu hljóðmúr:
Otvírætt brot á reglum
Flugmenn á tveimur varnarliðs-
þotum sem rufu hljóðmúrinn
yfir norðanverðum Eyjafirði
síðastliðinn flmmtudag fengu
heimild til þess eftir beiðni en
bæði er þetta óheimilt yfir
landi og ennfremur átti flug-
mönnum vélanna að vera full-
kunnugt um þær reglur.
Friðþór Eydal, upplýsingafull-
trúi varnarliðsins, segir að vél-
arnar hafi verið á heimleið eftir
að hafa flogið á móti sovéskum
þotum er stefndu inn í lofthelg-
ina. Hafi flugmennirnir óskað
eftir heimild til að rjúfa hljóðmúr
og fengið hana er. engin skýring
hafi enn fengist á því hvers vegna
þeir þurftu að rjúfa hljóðmúr.
„Það er helst álitið að þarna
hafi orðið einhver misskilningur
á milli manna þannig að flugmenn-
irnir framkvæmdu þarna hluti
sem bæði þeir og flugumferðar-
stjórarnir áttu að vita að væru
bannaðir," sagði Friðþór.
Hann segir eftirmála þessa ekki
aðra en þá að menn læri af mis-
tökunum og gæti þess að svona
lagað gerist ekki aftur. JÓH
Akureyri:
Innbrot og bflstuldur
Aðfaranótt laugardags var
brotist inn í Sléttbak EA 304,
togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa, þar sem hann lá við
bryggju á Akureyri. Innbrots-
þjófarnir voru greinilega í leit
að lyfjum en þeir lögðu á flótta
þegar þeir urðu vaktmanns
varir en náðust síðar um nótt-
ina og þá vegna gruns um ölv-
un við akstur.
Daníel Snorrason hjá rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri
segir að innbrotsþjófarnir hafi
verið á leið upp í brú skipsins
þegar þeir urðu vaktmannsins
varir. Honum tókst ekki að hafa
hendur í hári þeirra og komust
þeir þvt undan.
Síðar um nóttina hafði lögregl-
an á Akureyri grun um að tveir
ntenn sem sést hafði til á bíl væru
báðir undir áhrifum áfengis. Peir
náðust skammt fyrir utan bæinn
Jökulsárgljúfur:
Ahugi fyrir stækkiui þjóð-
garðsins austur fyrir Jökulsá
- engar viðræður enn við landeigendur eða íjárveitingavald
Ahugi er fyrir því hjá Náttúru-
verndarráði að stækka þjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum
austur fyrir Jökulsá. Til þess
að af því geti orðið þarf að ná
samkomulagi við hlutaðeig-
andi landeigendur í Öxarfjarð-
arhreppi og fjárveitingavaldið.
Þær viðræður eru enn ekki
hafnar.
Á sjöunda Náttúruverndar-
þingi í Reykjavík í lok síðasta
mánaðar var samþykkt ályktun
þar sem skorað var á Náttúru-
verndarráð að leita eftir sam-
komulagi við jarðeigendur í
Öxarfjarðarhreppi og fjárveit-
ingavaldið um að stækka þjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum aust-
ur fyrir Jökulsá. I ályktunni var
einnig lagt til að stofnað verði nú
þegar embætti þjóðgarðsvarðar í
Jökulsárgljúfrum.
Að sögn Pórodds S. Þórodds-
sonar, framkvæmdastjóra Nátt-
úruverndarráðs, er vilji hjá því
að kanna þennan möguleika.
Byrjunin yrði að ræða við land-
eigendur, sem hlut eiga að máli,
en Póroddur sagði enga ákvörð-
un hafa verið tekna um hvenær
leitað yrði eftir viðræðum.
Póroddur sagði ekki hafa verið
rætt úm hve stóra stækkun gæti ver-
Krossanes:
Loðnubræðsla hafin
Loönubræðsla hófst í Krossa-
nesi í gær. Fyrsta loðnan á
vertíðinni barst til verksmiðj-
unnar á fimmtudag með Guð-
mundi Ólafi ÓF 91.
Að sögn Jóhanns Péturs
Andersen, framkvæmdastjóra
Krossaness, var Guðmundur
Ólafur með 400 tonn af loðnu.i
Undanfarna daga hefur Krossa-
nesverksmiðjan verið keyrð á
beinum frá Ú.A. til að prófa
tækjabúnaðinn, og er því ekkert
að vanbúnaði að hefja loðnu-
bræðsluna. Reiknað er með að
verksmiðjan verði eitthvað á
annan sólarhring að bræða þessi
400 tonn.
EHB
ið að ræða, „en menn hafa talað
um svæðið neðan frá brúnni yfir
Jökulsá og upp fyrir Dettafoss.“
Þjóðgarðurinn í Jökulsár-
gljúfrum er í allt um 15 þúsund
hektarar að stærð. Þóroddur seg-
ir spurninguna hvort telja megi
þjóðgarðinn gjörnýttan. Víða sé
mikið álag á land innan hans, en
minna annars staðar.
óþh
en þegar að var gætt kom í ljós að
bifreiðinni höfðu. þeir stolið. Við
yfirheyrslur hjá lögreglunni
viðurkenndu þeir síðan að hafa
brotist inn í Sléttbak EA en þar
skemmdu þeir þrjár klefahurðir.
Helgin var að mestu slysalaus á
Eyjafjarðarsvæðinu nema hvað
bíll valt á nýja veginum að ganga-
opinu norðan Ólafsfjarðar á
sunnudag. Hann fór 5 veltur en
ökumaður slapp ómeiddur. Hann
var í öryggisbeltum og var einn í
bílnum. JÓH
Síldarverksmiðjurnar
á Siglufirði:
Verkamenn teknir
af launaskr á
Verkamenn hjá Sfldarverk-
smiðjum ríkisins á Siglufirði
mættu ekki til vinnu í gær þar
sem þeim var tilkynnt bréflega
í síðustu viku að þeir yrðu, frá
gærdeginum að telja, teknir út
af launaskrá hjá fyrirtækinu.
Astæðan er hráefnisskortur.
Að sögn Þórðar Andersen,
verksmiðjustjóra, var þessi
ákvörðun tekin í samráði við
fjármálaráðuneytið. Ekki mun
algengt að ríkisstarfsmenn séu
teknir af launaskrá með þessum
hætti og hyggjast verkamennirnir
leita réttar síns.
Þá hefur Þormóður rammi hf.
sagt upp fastráðningarsamning-
um við hluta af sínu starfsfólki en
þetta er gert vegna stöðvunar tog-
aranna um jól og áramót. JÓH
Vestur-Húnavatnssýsla:
Loftorka byggir laxastiga í Austurá
- stiginn á að vera tilbúinn fyrir næsta sumar og kostar rúmar 17 milljónir
Fyrirtækið Loftorka vinnur nú
að byggingu laxastiga í Aust-
urá í Austurárdal, sem samein-
ast Miðfjarðará skammt frá
Barkarstööum í Fremri-Torfu-
staðahreppi. Tilboð Loftorku-
manna í verkið hljóðaði upp á
rúmar 17 milljónir króna, en
auk þeirra bauð Hagvirki í
byggingu stigans. Miðað er við
að verkinu Ijúki fyrir næsta
sumar.
Að sögn Böðvars Sigvaldason-
ar á Barði í Ytri-Torfustaða-
hreppi er laxastiginn rúmiega 17
metra hár, en Veiðifélag Miðfirð-
inga stendur að byggingu háns.
Böðvar sagði að með byggingu
stigans opnaðist um 10 kílómetra
svæði fyrir ofan stigann. „Það er
búið að sýna fram á það að þetta
svæði fóstrar lax. Við höfum nýtt
það í tíu ár til uppeldis," sagði
Böðvar.
Loftorku-menn hafa byggt
nokkra aðra laxastiga, m.a.
Glanna í Norðurá, og því hafa
þeir áunnið sér reynslu í slíkum
framkvæmdum.
Böðvar sagði að fleiri járn
hefðu verið í eldinum hjá for-
svarsmönnum Veiðiféiags Mið-
firðinga. Nýlega var lokið við að
flytja grjót í ána og búa til veiði-
staði. „Við búum til þröskulda
úti í ánni sem við gröfum einn og
hálfan til tvo metra niður. Með
þessu erum við að búa til örugga
legustaði fyrir laxinn og afdrep
fyrir seiðin, auk þess að stöðva
landbrot," sagði Böðvar.
Hann sagði að við þessar fram-
kvæmdir hafi verið farið eftir
teikningum norsks lífræðings.
Þetta hefur ekki áður verið reynt
hér á landi, en gefist vel erlendis.
„Það er margt sem á að vinnast
með þessu. Það er síður en svo
verið að skemma lífríkið, heldur
þvert á móti miða þessar fram-
kvæmdir að því að bæta allar
aðstæður,“ sagði Böðvar. óþh