Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 14. desember 1990
fréffir
Grjóthrun í Ólafsijarðarmúla:
„Aðstæður ekki vem
en oft áður“
- segir Björn Brynjólfsson
hjá Vegagerðinni
Grjóthrun var mikið í Ólafs-
fjarðarmúlanum í fyrrinótt og
vegurinn var lokaður allri um-
ferð er birti af degi í gær. Vega-
gerðarmenn brugðu skjótt við
og vegurinn var opnaður aftur
nokkrum klukkutímum síðar.
Að sögn Björns Brynjólfssonar
hjá Vegagerðinni var þetta hrun
með mesta móti og mun meira að
vestanverðu. „Aðstæður eru ekki
verri en oft áður. Grjóthrun
verður í Ólafsfjarðarmúlanum
alla daga, að vísu mismikið, þeg-
ar þítt er. Nú er leiðin greið, en
menn ættu að fara með varúð,“
sagði Björn Brynjólfsson. ój
Dalvík:
Stefiit að því að bygging
sundlaugar hefjist 1992
Bæjarstjórn Dalvíkur hefur
skipað nefnd þriggja manna á
Menntaskólinn
á Akureyri:
Maraþonlist
í Möðnivalla-
kjallara
- nýstárleg pröflunar-
leið nemenda í 3. bekk
Bekkjardeildir hafa oft gripið
til frumlégra fjáröflunarher-
ferða en gjarnan hafa þær þó
snúist um íþróttir, t.d. mara-
þonknattspyrnu. Þriðji bekkur
Menntaskólans á Akureyri
ætlar að fara nýjar leiðir og
efna til maraþonlistavöku.
Listavaka 3. bekkjar MA verð-
ur haldin laugardaginn 15. des-
ember næstkomandi í Möðruvalla-
kjallara. Á dagskránni er mara-
þonlist og er stefnt að því að
bjóða upp á fjölbreytt atriði af
listrænum toga í 10 klukkustund-
ir samfleytt.
Að sögn nokkurra nemenda
skólans verður boðið upp á marg-
vísleg tónlistaratriði, lesið verð-
ur upp úr bókum, frumsamin ljóð
flutt og margt fleira. Nemend-
urnir sjá um öll atriðin en allir
eru velkomnir á þessa inaraþon-
listavöku sem haldin er til að afla
fjár fyrir hina árlegu utanlands-
ferð 3. bekkjar Menntaskólans á
Akureyri. SS
Dalvík til að kanna ýmislegt er
lýtur að byggingu nýrrar sund-
laugar á Dalvík. A komandi
ári er nefndinni ætlað að
undirbúa sundlaugarbygging-
una og er við það miðað að
byggingaframkvæmdir hefjist
á árinu 1992.
Bygging nýrrar sundlaugar á
Dalvík hefur lengi verið í umræð-
unni. Lengi vel voru mjög skiptar
skoðanir um staðsetningu laugar-
innar og voru tveir staðir nefndir
til sögunnar, annars vegar nálægt
skólamannvirkjunum í suður-
hluta bæjarins og hins vegar á
svæðinu sunnan og ofan Dalvík-
urkirkju, í Hólunum svokölluðu.
Sundlaug Dalvíkíúr; sÉm er állt of
lítil og engan vegina fullnægj-
andi, er vestan íþróttahússins.
Trausti Þorsteinsson, forseti
bæjarstjórnar á Dalvík, segir að
menn séu nú nokkuð sammála
um að ný sundlaug verði byggð
ofan við heimavistina, skammt
frá íþróttavallasvæðinu. Hann
segir að til greina komi að sam-
nýta búningsaðstöðu fyrir sund-
laugina og íþróttavellina.
„Við gerum ráð fyrir að á
næsta ári verði unnið að teikning-
um og annarri undirbúnings-
vinnu. Þau verkefni verða inni á
fjárhagsáætlun næsta árs. Við
viljum helst að lokið verði við
síðari íþróttavöllinn á næsta ári
og byggingaframkvæmdir við
sundlaugina hefjist á árinu 1992,“
sagði Trausti.
I sundlaugarnefndinni sitja
Halldór Guðmundsson, Björn
Friðþjófsson og Ingvar Kristins-
son. óþh
í
Landssamband vélsleðamanna gengst fyrir námskeiðum í skyndihjálp sem sérstaklega eru ætluð vélsleðamönnum.
Þeim er oft legið á hálsi fyrir að storka náttúrunni með glæfralegum akstri en þótt slíkt eigi ekki við nema í undan-
tekningartilfellum þá leynast hætturnar víða og því betra fyrir þá að kunna eitthvað fyrir sér í skyndihjálp. Þessi
mynd var tekin á námskeiði sem Eyjafjarðardeild landssambandsins stóð fyrir í Lundi á Akureyri sl. miðvikudags-
kvöld. Mynd: Golli
Viðhorfið til landbúnaðarins:
Margir telja sveitabæi sinna
umhverfismálum of lítið
- yfir helmingur telur að hægt sé að
flytja lambakjötið íslenska út
í nýrri könnun Félagsvísinda-
deildar Háskóla Islands á viö-
horfi almennings til íslensks
landbúnaöar kemur fram aö
um 37% fólks telja að gæða-
eftirlit meö ísienskum land-
búnaöarafuröum sé ekki nægi-
lega öflugt en 63% telja það
nægilegt. Þá töldu flestir svar-
enda að sveitabæir sinntu
umhverfismálum ekki nægi-
lega.
Þessi könnun náði til flestra
þátta er tengjast íslenskum land-
búnaði í dag. Lausaganga búfjár,
sem mikið hefur verið til
umfjöllunar á síðustu árum, er af
flestum talin mikil en 11% segja
hana lítið vandamál en aðeins
3% telja að hér sé ekki um
vandamál að ræða.
Um 58% svarenda í könnun-
inni telja beitarlönd á íslandi
almennt ofbeitt. 38% telja þau
hæfilega beitt og 4% vanbeitt.
Mikill munur er á þessu eftir
stéttum því 26% sjómanna og
bænda telja beitarlöndin ofbeitt
en um 75% sérfræðinga og
atvinnurekenda telja svo vera.
Sama hlutfall fyrir skrifstofu- og
þjónustufólk er 61%, 60% fyrir
iðnaðarmenn, 57% fyrir verka-
fólk og 49% fyrir heimavinnandi
fólk.
l^oks má geta um viðhorf fólks
til þess hvort hægt sé að flytja út
íslenskt lambakjöt, þannig að
það sé þjóðhagslega hagkvæmt.
Um 60% fólks á aldrinum 18-75
ára telja að svo sé. Fleiri konur
reyndust á þessari skoðun en
karlar. Þá telja fáir æskilegt að
greiða útflutningsbætur með
lambakjöti sem flutt er út en það
er að sjálfsögðu í samræmi við
hversu margir telja mögulegt að
flytja lambakjöt út svo hagkvæmt
sé. JÓH
Matvörudeild KEA:
Hannes Karlsson
ráðinn deildarstjóri
Gengið hefur verið frá ráðn-
ingu Hannesar Karlssonar í
stöðu deildarstjóra Matvöru-
deildar KEA. Deildarstjóri
hennar er jafnframt yflrmaður
Samlands sf. Hannes tekur til
starfa um áramótin.
Hannes Karlsson er fæddur
þann 17. júní 1959. Hann lauk
stúdentsprófi frá Samvinnu-
skólanum haustið 1981 og að
loknu námi hóf hann störf hjá
Kaupfélagi Þingeyinga, fyrst sem
deildarstjóri í matvörudeild og
seinna sem deildarstjóri í hljóm-
tækja- og sportvörudeild. Árið
1985 hóf Hannes störf hjá Slátur-
félagi Suðurlands og var m.a.
deildarstjóri Vörumiðstöðvar SS.
Hannes tekur við starfinu hjá
KEA af Brjáni Guðjónssyni en
hann verður áfram í hlutastarfi
hjá KEA, samkvæmt upplýsing-
um félagsins. JÓH
Kjörbúð KEA Sunnuhlíð • Kjörbúð
Komið, sjóið og
smakkið á ostum úr
okkar stórglœsilega
ostaborði sem er
jafnframt híð eina
sinnar tegundar á
Norðurlandi.
PS.: Jólasveinamir
koma kl. 15.45 laugard.
og þá verður
sannkölluð
jólastemmning á
göngunum.
Vörukynningar föstudag og laugardag
Ökter frómas ★ Frón smákökur ★ Kjörís ★ Jólaöl frá Sanitas
TILBOÐ:
Bayonnes-
sklnka
kr. 1.120 kg
TILBOÐ:
Léttreyktur
lambahryggur
kr. 648 kg
★ Láttu gœðin vera númer 1 ★
TILBOÐ:
Hangifram-
m/beini
kr. 489 kg
Pepsi 2 I. kr. 158 ★ Jólaöl 2Vi I kr. 258 ★Jólaöl 5 I kr. 468
llLBOÐ: Grillaðir kjúklingar kr. 597 ★ Franskar kr. 300
Ath.: Gefum að smakka
konfekt frá Lindu
föstudag og
laugardag.
Nýtt greíðslukorta-
tímabil er hafið.
Ath.: Opið til
kl. 22.00 á
laugardag