Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 9
«* »»<•> I. 1 « 1 t 1 I I ! Bjarna Hafþór dreymdi að Pollurinn næði upp að Ráðhústorgi og hann sá jeppann sinn koma gangandi eftir göngu- götunni. Börnin myndskreyttu þcnnan draum. Myndlistarnámskeið hjá Erni Inga: Fjölbreytt nemendasýning Myndlistarsýning verður haldin að Klettagerði 6 á Akureyri um helgina. Örn Ingi hefur verið með nemendur á námskeiðum að undanförnu og verður afrakstur- inn til sýnis á laugardag og sunnudag kl. 14-19. Alls voru þrír hópar á nám- skeiðunum, fullorðnir í tveimur hópum og börn og unglingar í einum. Myndverk barnanna verða til sýnis í vinnustofunni á laugardaginn og verk hinna full- orðnu á sunnudaginn. Örn Ingi verður með eigin sýningu í gall- eríinu samhliða þessum nem-- endasýningum. Börnin fengu fjölbreytt verk- efni til að fást við. Þau fóru m.a. í vettvangsferð til Svalbarðseyr- ar, myndskreyttu sögu sem Jóhann Ævar Jakobsson las upp og færðu draum Bjarna Hafþórs Helgasonar í myndrænt form. Báðir hóparnir eiga eftir að skila lokaverkinu, sem er köku- listaverk. Sýningargestir fá að bragða á því listaverki um helg- ina. Kjörkassi verður á staðnum þannig að sýningargestir geta greitt myndum atkvæði, valið fallegustu eða skemmtilegustu myndirnar. Örn Ingi mun skrá niður nöfn þeirra sem hafa áhuga á að sækja námskeið hjá honum en þau hefj- ast á ný eftir áramót. Menntaskólinn á Akureyri: Tíu tíma listavaka á morgun Á morgun, laugardaginn 15. des- ember, stendur 3. bekkur Mennta- skólans á Akureyri fyrir uppá- komu undir heitinu „listavaka í M.A.“. Þar munu nemendur skól- ans troða upp og flytja margvís- leg verk, sem spanna mestan hluta listasviðisins. Boðið verður upp á æfða sem óæfða leikþætti, klassíska tónlist, kórsöng og gjörninga auk hefð- bundinnar jólabókakynningar. Af ofantöldu má ráða að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á þessari listavöku, sem hefst kl. 13 og lýkur kl. 23. Auk listarinnar verður boðið upp á kaffiveitingar. Dagskrá listavökunnar er sem hér segir: 13.00-13.40 Kórsöngur 13.50-14.30 Jólasprell 14.45-16.40 Klassísk tónlist og ljóðaupplestur 17.00-17.45 Spuni L.M.A. 18.00-18.45 Klassísk tónlist og ljóðaupplestur 19.00-19.30 Söngatriði frá árs- hátíð M.A. 19.45-21.45 BÓMA - jólabóka- kynning 22.00-23.00 Popp, rokk og blús. Bókabúð Jónasar: Bubbi og Silja árita Bubbi Morthens og Silja Aðal- steinsdóttir munu árita bókina um Bubba laugardaginn 15. deS- ember frá kl. 16-18 í Bókabúð Jónasar. Bubbi hefur frá ýmsu mergjuðu að segja frá ferli sínum sem farandverkamaður og tón- listarmaður og Silja hefur komið þessum frásögnum í búning. Bókin um Bubba er ofarlega á flestum listum yfir mest seldu bækurnar og eru Akureyringar og nærsveitamenn hvattir til að tryggja sér áritað eintak í Bóka- búð Jónasar á laugardaginn. um á sérstökum tímum vorið 1989. Einar Heimisson er ungur rit- höfundur sem vakti mikla athygli með fyrstu skáldsögu sinni, Götuvísa gyðingsins. Sú bók kom út í fyrra og var ein af tíu bókum þess árs sem hlutu tilnefningu ti Islensku bókmennlaverðlaun- anna. I bók Einars segir frá ungri íslenskri konu sem ætlar að leggja stund á söngnám í stórri borg í Evrópu en leiðir hennar verða aðrar en til stóð í upphafi. Herborg er efni í góða söngkonu, en hún villist af leið sinni að markinu um stund. Þegar hún kynnist Mihály opnast fyrir henni nýr ástríðufullur heimur, bland- inn sorg og trega. Ástin, listin og lífið fá nýja merkingu í huga Herborgar en jafnframt vakna spurningarnar: Hver er hann? hver er hún? Villikettir í Búdapest er 200 bls. og kostar 2.480 krónur. Annalísa Út er komin skáldsagan Annalísa eftir hinna kunna ástarsagnahöf- und Ib. H. Cavling. „Þennan sívinsæla danska rit- höfund þarf vart að kynna íslenskum lesendum, slíkar eru vinsældir hans hér á landi,“ segir m.a. í frétt frá útgefanda vegna útkomu bókarinnar. Anna Lísa er 16 ára og býr við þröngbýli heima hjá foreldrum sínum. Hún vill allt til vinna til að geta fengið stærri íbúð og ræður sig til starfa á lögfræðiskrifstofu sem sér um úthlutun leiguíbúða. Þar lendir hún í klónum á kvensömum lög- manni með vafasamt mannorð... Annalísa er 192 blaðsíður að stærð. Útgefandi er Bókaútgáfan Hildur. Rugl í ríminu IÐUNN hefur gefið út bókina Rugl í ríminu eftir Rúnar Ár- mann Arthúrsson. Hér er á ferð- inni þriðja unglingabók höfund- ar, en hinar fyrri eru Algjörir byrjendur og Er andi í glasinu? „Rugl í ríminu er mögnuð og margslungin saga sem hrífur les- andann á vit ótrúlegra atburða og ævintýra, hörkuspennandi allt til loka. Hér segir frá Hildi og stráknum með dularfullu fortíð- ina, en þau hefðu aldrei kynnst ef Hildur hefði gert eins og henni var ráðlagt. Þá hefðu þau líka misst af miklu. Krakkarnir fengu svo sannarlega að upplifa tímana tvenna og sumt var harla erfitt að útskýra fyrir öðrum, eins og inn- brot vopnaða mannsins og óvænta frammistöðu Lolla í spurningakeppni sjónvarpsins. Það gat að minnsta kosti enginn sagt að þau væru ekki reynslunni ríkari eftir tvísýnan eltingarleik,“ segir í frétt frá útgefanda. Föstudagur 14. desember 1990 - DAGUR - 9 Allt á sama stað! Fatnaður, leikföng, búsáhöld, gjafavara, skór, rúmföt, sængur og koddar Verðið svíkur engan * Það borgar sig að líta inn. KEA Hrísalundur, WS/I kjallari gera krötur bernhardt Föt • Stakir jakkar • Buxur Þýsk gæðavara Vandaður fatnaður í fjölbreyttu úrvali Peysur - Skyrtur - Treflar - Hálsbindi - Ermahnappar - Bindisnælur - Hanskar, leður og rúskinn - Náttsloppar - Náttföt og margt fleira. Klæðskeraþjónusta VISA Verslið hjá fagmanni Opið í hádeginu alla daga. i p>

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.