Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 14. desember 1990 - DAGUR - 3 fréttir Niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðir: Hæst hlutfall sérfræðinga og atvúinurekenda á móti Sérfræðingar, atvinnurekend- ur og iðnaðarmenn eru þær stéttir sem andvígastar eru niðurgreiðslum á verð inn- lendra landbúnaðarafurða, samkvæmt könnun Félagsvís- Jökulsá: Flóðið indastofnunar Háskólans nú fyrir skömmu. í könnuninni í heild reyndust 43% andvíg þessum niðurgreiðslum en 11% voru hlutlaus eða óviss. Meðal atvinnurekenda og sér- fræðinga var hlutfall andvígra hins vegar yfir 60% á meðan 34-40% úr öðrum stéttum svöruðu sömu spurningu neit- andi, að iðnaðarmönnum undanskildum en hjá þeim var þetta hlutfall um 53%. Fleiri spurningar tengdar niðurgreiðslum voru lagðar fyrir fólk í þessari könnun. Þannig var spurt fyrir hverja það teldi niður- greiðslurnar vera. Um 11% töldu þær vera fyrir neytendur, um 22% töldu þær vera fyrir bændur, 62% töldu þær vera fyrir báða aðila og 5% einhverja aðra aðila. Um 18% þeirra sem eru að mestu aldir upp f dreifbýli telja að nið- urgreiðslur séu fyrir neytendur en þetta hlutfall fyrir þá sem eru aldir upp annars staðar á land- inu er á bilinu 8-10%. JÓH * S Sérvalin jólatré, sem ekkl fella barrið. Jólatrésfætur sem duga. Munnblásið gler írá Hollandi. Borðbúnaður írá Villeroy og Boch. Jólatréskraut í anda langömmu og langafa. Hurðaleransar, gluggakransar, kerta- skreytingar og hyacintuskreytingar. Kerti sem beðið hefur verið eftir lengi Blómahúsið Glerárgötu 34 • Sími 96-2255 i renum Flóðið í Jökulsá á Fjöllum er í rénun og hlýindunum í gær reiknuðu heimamenn með að áin næði að komast í samt lag í nótt eða dag. Það var á sunnudag sem krapa- stífla í ánni olli því að hún rauf skarð í varnargarð og flæddi í Skjálftavatn með þeim afleiðing- um að litlu munaði að veginn út að Syðri-Bakka og Þórseyri tæki af í vatnselgnum. I gær var vatns- rennslið við veginn komið í eðli- legt horf og ekki talin hætta á frekari flóðum þar. Egill Stefáns- son, bóndi á Syðri-Bakka, sagði að áin væri en í svipaðri hæð við bæina, um eins metra hækkun væri í henni en víða op á ísnum og átti hann von á að það færi að sjatna í ánni niður í venjulega hæð. IM Blönduós: Snemma í jólafrí hjá Særúnu Fiskiðjuverið Særún hf. á Blönduósi lýkur vinnslu sinni á þessu ári í dag. Starfsfólkið fær jólafríið því snemma að þessu sinni, en allt hráefni er uppur- ið. Búið er að vinna frysta rækju síðustu vikur auk innfjarðar- rækju sem hefur verið fremur smá. í gær kláraðist sú frysta og sagðist Kári Snorrason, fram- kvæmdastjóra, reikna með að halda uppi vinnu fram að hádegi í dag í skel. Nökkvi og Gissur hætta á trolli þann 18. des. og fara síðan á rækju eftir áramótin. Kári sagðist búast við að byrja aftur þann 7. janúar af fullum krafti. Að sögn Kára hefði mátt búast við þessari vinnslustöðvun miklu fyrr, en vegna veðurs og annars hefði tekist að halda uppi vinnu fram til þess fjórtánda. SBG Ljósritunarvélar Bókabúðin Edda Hafnarstraeti 100 Akureyri Simi 24334 KEA hangikjötið er allt 1. fiokks. Það er meðhöndlað samkvæmt norðlenskri hefð af færustu kjötiðnaðarmönnum. Bragðgott og ilmandi uppfyllir KEA hangikjötið óskir þínar um ánægjulegt jóiaborðhald. Jólahangikjötið sem mælt er með, bragðgott og ilmandi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.