Dagur - 19.12.1990, Síða 4
4 B - DAGUR - Miðvikudagur 19. desember 1990
Mynd: Golli
Jólahugvekja:
Bænin sé undirstaðan í jólaannríkinu
Því bú til vöggu í brjósti mér
minn besti Jesús handa þér.
í hjarta mínu hafðu dvöl
svo haldi ég þér í gleði og kvöl.
Marteinn Lúther frumkvöðull sið-
bótarinnar á að hafa sagt eitt
sinn: „Það er svo margt að
starfa hjá mér í dag, að ég
kemst ekki yfir það öðruvísi en að biðja í
þrjár stundir að minnsta kosti.“
Það hafa allir nóg að gera um þessar
mundir, og margir sjá vart út úr því sem
aðkallandi er. Það þarf að snyrta og skreyta,
baka og brasa og ráðast í kaup á gjöfum, sem
glatt geta þá, sem standa mönnum næst.
Það þarf að leita í huganum að góðum
vinum, sem vert væri að senda kveðjur og
heillaóskir í tilefni hinnar blessuðu jóla-
hátíðar. Allt útheimtir þetta sinn tíma.
Rödd Guðs í brjósti okkar minnir okkur
einnig á það, að margir hafa ólíkt minna
handa á milli en við. Aðrir hafa fengið sorg-
ina í heimsókn eða orðið fórnarlömb sjúk-
dóma. Fyrir jólin standa raunabörnin okkur
nær en á öðrum árstímum, þótt þörf þeirra
fyrir liðsinni og hjálp sé hin sama um ársins
hring.
Hvers vegna allt þetta umstang? Af
hverju tökum við ekki öllu með ró, reynum
að hlífa okkur og hafa það þægilegt? Væri
það ekki miklu betra og gæti stuðlað að vel-
líðan og gæfu og veitt lengra líf?
Skýringin er auðfundin. Frelsarinn, sem
Guð sendi mannheimi, Jesús Kristur, kemst
nær okkur mannanna börnum en endranær.
Hann mátti ekkert aumt sjá öðruvísi en að
koma til hjálpar. Kærleikur hans er smit-
andi. Hann eflir og styrkir góðvilja, samhug
og ábyrgðartilfinningu manna. Sjálfselska
og eigingirni eru hvarvetna á undanhaldi
þar sem Kristur fær að koma og hafa sín
blessunarríku áhrif. Allir sem leyfa honum
að leiða sig finna það, að sannasta hamingj-
an í lífinu er fólgin í því að gera aðra ham-
ingjusama. Köllum því ákaf eftir hjálp Jesú.
Sumir álíta ef til vill að ekki sé tími til
bæna í öllu annríkinu og amstrinu. Enga
stund megi missa. En við skulum örugg
fylgja fordæmi Marteins Lúthers, og ég er
viss um það, að bænin verður okkur
ómetanleg hjálp þegar mest á reynir. Lúther
var oft veikur, en fyrir bæn varð Drottinn
máttugur í honum og stuðlaði að því, að
hann gæti unnið stórvirki.
Kæru lesendur, við skulum bæði fyrir jól-
in og endranær fela Guði og frelsaranum
það sem framundan er. Biðjum þá að vera í
verki með okkur og veita okkur styrk til
þess að leggja öllu góðu lið. Biðjum til Guðs
í þessum anda:
Sr. Birglr
Snæbjömsson
Mig vantar styrk í kærleik, kraft í trú
og kristilega auðmýkt barnsins góða.
En veikleik minn og breyskleik þekkir þú
og þrá míns hjarta, bænarmálið hljóða.
Ó, gef mér kraft að græða fáein sár,
og gjörðu bjart og hreint í sálu minni,
svo verði' hún kristalstær sem barnsins tár
og tindri' í henni ljómi' af hátign þinni.
jól.
Guð gefi þér sem þessar línur lest gleðileg