Dagur - 19.12.1990, Side 7
Miðvikudagur 19. desember 1990 - DAGUR - B 7
„Framlag mitt verða
gestaréttir46
— segir Sigurlaug Svavarsdóttir
Sigurlaug Svavarsdóttir, kenn-
ari við Stórutjarnaskólann í
Ljósavatnsskarði, er í matar-
krók vikunnar. Hún er mennt-
aður almennur kennari, en
vegna áhuga og reynslu í mat-
argerð hefur komið í hennar
hlut að kenna heimilisfrœði
við skólann. Sigurlaug hefur
unnið í eldhúsinu í Stóru-
tjarnaskóla yfir sumartímann,
þegar Eddu-hótelið er starf-
rœkt og jafnframt hefur hún
starfað sem matráðskona í
mötuneytum.
„Ég ætla að bera á borð þrjá
rétti sem ég kalla gestarétti og
mjög fljótlegt er að útbúa. Þetta
eru allt sjálfstæðir réttir, sem
hægt er að grípa til fyrir gesta-
boð og valið fer eftir hvers eðlis
boðið er. Réttir þessir henta vel
yfir jólin, þegar fólk er mikið í
heimsóknum hjá vinum og
kunningjunt og húsráðandinn
vill bera eitthvað gómsætt á
borð,“ segir Sigurlaug og hér
koma réttirnir.
Koníaksís
6 eggjarauður
4 matskeiðar sykur
6 dl rjómi
5 matskeiðar koniak
1 bolli saxað súkkulaði
1 bolli saxaðar hnetur
1 bolli söxuð kokteilber
Eggjarauðurnar og sykurinn
þeytt saman. Rjóminn er þeytt-
ur og honum blandað varlega
saman við þeyttu eggjarauðurn-
ar og sykurinn. Koníakinu,
súkkulaðinu, hnetunum og
kokteilberjunum er síðan bætt
út í og allt hrært vel saman.
Lögunin er síðan sett í mót og
henni komið fyrir í frysti.
Heit ananasterta
140 g smjörlíki
140 g sykur
140 g hveiti
2 egg
'/2 teskeið lyftiduft
Deigið er lagað og síðan eru 50
g púðursykur og 5() g smjör
brædd í potti og hellt í botn á
álklæddu formi. Vi dós af anan-
ashringjum er raðað í lögunina
og kokteilberjum komið fyrir í
gatinu á ananasinum. Þá er
deiginu hellt yfir og tertan bök-
uð við 170 gráður í tuttugu
mínútur. Er tertan er bökuð þá
er henni hvolft á fat og hún bor-
in fram með ís og þeyttum
rjóma.
Brokkólíbaka
250 g hveiti
100 g smjör
1 dós kotasœla
Smjörið er mulið út í hveitið og
vætt í því með kotasælu. Hnoð-
að létt. Deigið er flatt út og lagt
innan í eldfast mót. \A af deig-
inu er geymdur til að skreyta
bökuna síðar.
Fylling í bökuna:
Vj dós sveppir ásamt soði
3 dl mjólk
1 peli rjómi
100 g rjómaostur
150 g saxað svínakjöt, soðið
eða steikt
1 pk. frosið brokkólí
rifinn ostur, salt og pipar
Smjörbolla:
50 g smjör
100 g hveiti
Fyrst er gerð smjörbolla. Þá eru
sveppirnir, mjólkin og rjóma-
osturinn hituð vel í potti og
smjörbollan sett út í lögunina.
Þá er rjómanum og svínakjöt-
inu bætt út í. Brokkólíinu er
raðað í eldfasta mótið og sós-
unni hellt yfir. Osti er stráð yfir
og deigið sem við héldunt eftir
sett yfir sent skraut. Rétturinn
er síðan bakaður við 170 gráður
í 25 mínútur. Þessi réttur er afar
góður með snittubrauði og
köldu öli.
Við þökkum Sigurlaugu fyrir
þessa gómsætu rétti og vonandi
reynast þeir húsmæðrum vel
yfir jólin. Hulda Valdimarsdótt-
ir að Hlíðskógum í Bárðardal
hefur tekið áskorun Sigurlaugar
um að vera næst í matarkrók og
hennar uppskriftir birtast því
fljótt á nýju ári. ój
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsœldar á komandi ári
Þökkum viðskiptin
ÁSGEIR EINARSSON H.F.
Engjateig 3, Reykjavík, sími 91-680611
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og
farsœldar á nýju ári
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Gæhidýraverslunin
Hafnarstræti 94, Akureyri, sími 27794
Sendum viðskiptavinum okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur
Þökkum viðskiptin á liðnu ári
Svæðisskrifstofa Glerárgötu 24
600 Akureyri, símar 23812 og 24242
Okkar bestu óskir
um gleðileg jól
og farsœld á komandi ári
ÍÞRÓTTAVÖRUVERSLUN
Strandgötu 8, sími 27771
Við sendum okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur
úl viðskiptavina okkar og landsmanna allra
Þökkum viðskiptm á árinu
J
Mjólkursamlag KEA