Dagur - 19.12.1990, Qupperneq 9
Guðný Sverrisdóttir.
Stefán Gunnlaugsson.
um öðrum. Þegar við erum búin
að borða og opna jólapakkana,
förum við fjölskyldan suður að
Lómatjörn en þar koma pabbi og
hans afkomendur jafnan saman á
aðfangadagskvöld. Seinna um
kvöldið sækjum við tengdafor-
eldra rnína heim og eftir það för-
um til kirkju og hlýðum á aftan-
söng.
Jóladagur og annar í jólum fer
síðan í það að borða góðan mat,
lesa góðar bækur, narta í konfckt
og heimsækja vini og ættinga. Ég
geri nú ekki mikið af því að lesa
bækur en reyni þó að komast yfir
2-3 bækur yfir jólin. Annað lestr-
arefni tengist yfirleitt vinnunni og
á öðrum tíma árs er yfirleitt
eitthvað um sveitarstjórnarmál á
náttborðinu hjá mér. Á annan í
jólum er jafnan haldinn dansleik-
ur hér og ég læt mig ekki vanta
þar frekar en venjulega.
Ég verð nú sjálfsagt eitthvað
með hugann við vinnuna yfir
jólin, því á þessum árstíma kepp-
ast flestir þeir við sem hafa með
ávísanahefti að gera, að ná end-
um saman.“
Stefán
Gtumlaugsson
veitingamaður
á Bautanum:
„Maður kemst jafnan í jóla-
stemmninguna við að skreyta
jólatréð á Þorláksmessukvöld
með fjölskyldunni og hlusta á
jóiakveðjur í útvarpinu. En þó að
mörgum finnist leiðinlegt að
hlusta á jólakveðjurnar, hef ég
mjög gaman af því og ég tala nú
ekki um þær færeysku, sem eru
lesnar á annan í jólum.
Aðfangadagur og jóladagur
eru ósköp hefðbundnir hjá okkur
en við leggjum mikla áherslu á að
fjölskyldan geti verið öll saman
yfir jólin. Við borðum alltaf rjúp-
ur á aðfangadag og hangikjöt á
jóladag.
Við gerum lítið af því að fara í
heimsóknir á þessunt dögum en á
annan í jólum er afrnæli sonar
míns og þá er oft gestkvæmt hjá
okkur. Að öðru leyti reyni ég að
grípa í góða bók og lesa svolítið
og eins og margir aðrir, er ég
nokkuð duglegur við að borða
yfir hátíðarnar og stundum ein-
um of.“
Porsteinn
Porvaldsson
sparisjóðsstjóri
í ÓlafsRrði:
„Mér hefur fundist að allur jóla-
undirbúningur sé að færast fram í
ntánuðinn og fólk farið að t.d. að
skreyta jólatréð fyrr en áður.
Aðfangadagur er nokkuð hefð-
bundinn hjá mér og minni fjöl-
skyldu. Við erum saman heima
fram á kvöld en eftir mat og
þegar börnin hafa tekið upp jóla-
pakkana, förum við í heimsókn
til foreldra minna, þar sem öll
fjölskyldan hittist jafnan á þess-
um degi.
Á jóladag er venjulega kaffi-
samsæti í fjölskyldunni en aftur
er rólegra á annan í jólurn. Á
milli jóla og nýárs þarf maður
aðeins að snúa sér að vinnunni
aftur en á gamlársdag förum við
og hittum fjölskyldu konunnar.
Ég kann nú alltaf best við mig í
faðmi fjölskyldunnar á jólunum og
við reynum þá að gera eitthvað
saman, eins og að spila á spil og
fara í leiki.“
Auður Biríksdótiir
húsfre\ja
á Hleiðargarði II
Saurbæjarhreppi:
„Á Þorláksmessu sjá stelpurnar
mínar um að skreyta jólatréð en
ég verka rjúpurnar og sýð hangi-
kjöt. Á aðfangadag fáum við
okkur léttan hádegismat og síðan
fer ég í að brúna rjúpurnar og
ganga þannig frá þeim að aðeins
eigi eftir að gera sósuna um
kvöldið. Þá skiptum við ævinlega
á rúmunum á aðfangadag. Þó er
þessi dagur alltaf mjög rólegur
hjá okkur og við reynum að haga
hlutunum þannig, að það sé eins
lítið að gera og hægt er.
Við Jóhann förum snemma í
fjós og reynunt yfirleitt að vera
komin inn fyrir kl. 18. Á meðan
leggja stelpurnar á borð og gera
allt klárt, þannig að þegar við
Jóhann erum búin í baði, getum
við farið að borða.
Ég er alltaf með rjúpur á borð-
um á aðfangadag og einnig svolít-
ið hangikjöt, ef einhverjir vilja
það heldur. í eftirmat hef ég svo
heimatilbúin jarðarber sem
geymd hafa verið í frystikistunni
frá því í sumar. Þegar búið er að
borða og ganga frá eftir matinn,
er kíkt í jólapakkana og það
koma yfirleitt alltaf bækur upp úr
jólapökkunum hér. Síðan sitjum
við hér og slöppum af og kíkjum
í bækur og það má segja að þetta
sé friðsælasta kvöld ársins hjá
okkur.
Á jóladag er ég svo með hangi-
kjöt og rjúpur í tartalettum og
heimatilbúinn ís á eftir. Það hef-
ur verið venjan að við systkinin
hittumst annaðhvort á jóladag eða
á annan í jólurn og skiptumst þá á
að bjóða heim. Annar jóladagur
hefur nú yfirleitt verið ofan á og þá
koma allar fjölskyldurnar saman.
í fjölskylduboðinu er alltaf boðið
upp á það sama, hvar sem það fer
fram en það er hangikjöt og ís.
Við Jóhann förum til messu
og það er nú ekki alltaf sem
okkur tekst að hafa stelpurnar
með en kemur þó fyrir. Jóhann
er í kórnum og ég reyni alltaf að
komast með honum."
oeer isrimeasb .er JURGbu^ivöiM - RUOAQ -08
Miðvikudagur 19. desember 1990 - DAGUR - B 9
Sendum öllum viðskiptavinum
bestu jóla- og nýársóskir
Þökkum viðskiptin á árinu
Kranaleiga
Benedikts Leóssonar
Lögbergsgötu 5, Akureyri
Sími 24879, bflasími 985-23879
Sendum viðskiptavinum og
landsmönnum öllum okkar bestu
jóla- og nýársóskir
Pökkum viðskiptin á liðnu ári
mm
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
SÍMI (96)22360 JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsœldar á
komandi ári
Sendum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum bestu
jóla- og nýárskveðjur
Kaffibrennsla Akureyrar
Tryggvabraut 16, Akureyri, sími 23800
Sendum viðskiptavinum okkar bestu
jóla- og nýársóskir
Þökkum viðskiptin
HÓTEL NORÐURLAND
Geislagötu 7 - Akureyri - Sími 22600
Óskum viðskiptamönnum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gleðilegs nýárs
Brautarholti 24, 105 Reykjavík, sími 91-617195