Dagur - 19.12.1990, Qupperneq 10
10 B - DAGUR - Miðvikudagur 19. desember 1990
Gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Óskum viðskiptavinum okkar svo og
öllum landsmönnum
gleðilegra jóla og
farsœls komandi árs
Sendum öllum viðskiptavinum
okkar óskir um
gleðileg jól
og farsœldar á komandi ári
cFedíSmynd^r,
Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4
Óskum öllum
Hríseyingum nœr ogfjær
gleðUegra jóla og
farsœldar á nýju ári
Þökkum liðið ár
Hreppsnejhd Hríseyjarhrepps
Sendum viðskiptavinum
og starfsmönnum okkar
bestu jóla- og nýársóskir,
farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstræti 103, sími 23399
og Sunnuhlíð 12, sími 26399
Pórður Halldórsson frá Dagverðará:
„Svo er mer sama
livort rúmið er af
guffl eða gnotf
„Ég er 85 ára. Það brakar livergi í mér, livorki í haus né
búk. Þjóðverjamir vinir mínir sem ég vann með við
kvikmyndagerðina á Snæfellsnesi sögðu, að enginn
maður í Þýskalandi gæti gert það sem ég gerði. Sjáðu,
þetta var fyrir tveimur árum. Að vísu plataði ég þá ofrnr-
lítið, því ég sagðist vera 88 ára. Er ekki í lagi að ýkja
ögn? Ég tala aldrei illa um fólk, en ég segi sögur, þá
helst af mér sjálfum og mínu fólki, lífs og liðnu. “
Við erum hjá Þórði Halldórssyni
frá Dagverðará, en þann 25. nóv-
ember sl. varð Þórður 85 ára og
opnaði málverkasýningu á Akur-
eyri af því tilefni, undir yfirskrift-
inni, „Allt frá undirdjúpum og
upp fyrir himintungl.“
„Ég hef stundum verið talinn
dauður, en það er nú lygi. Viltu
sterkt öl og vindil? Ölglas gefur
betra spjall.“ Við kveikjum í og
reykurinn liðast um stofuna.
Grár reykur og Snæfellsjökull í
málverki skartar í öllu sínu veldi.
Refaskyttan og sögumaðurinn er
kominn á flug. Hugarheimur
Þórðar frá Dagverðará þekkir
engin takmörk.
Svo kenndi hún mér það
æðsta sem til er
í málaralistinni
„Við skulum tala lítið um
málverk. Þú ættir að gera annað.
Þú ættir að spyrja mig, Þórður,
hvar lærðir þú? Ég ætla að segja
þér það. Fyrst ætla ég að segja
þér, hvað ég er skólagenginn. Ég
var átta vikur á barnaskóla. Ég
strækaði á Gísla sáluga þrátt fyrir
að hann væri ágætur kennari. Ég
er og var með gott minni og tók
gott próf. En með málverkið
sjáðu. Ég teiknaði tröll, jóla-
sveina og annað úr mínum heimi
þegar ég var barn. Ég þurfti að
þræla eins og skepna. Ég var
alinn upp í fátækt og þurfti að
hjálpa mikið til á heimilinu, fyrst
foreldrum og síðar systur. Látum
það vera, en alltaf var ég að velta
fyrir mér myndlistinni. Jafnvel
var myndlistin ofarlega í huga
mér á sjónum. Ég var á vertíð í
28 vetur. Snæfellsnesið er fallegt
drengur og virkar hvetjandi á
auga og hönd.
Listmálarar fóru að koma í
fámennið og fegurðina og ég
kynntist þeim. Kjarval kom til
okkar í sinni fyrstu ferð um Snæ-
fellsnes og bað mig um að sýna
sér fyrirmyndir. Þá var ferðast
um á hestum út í Lón og víðar og
víðar. Svo var nótt hjá okkur.
Daginn eftir var Kjarval að mála
og enn var ferðast. Ég átti marga
hesta, já, já. Þá spurði hann mig:
„Hvað tekur þú fyrir fylgdina?“
Á þessum árum lét meistarinn
málverk fyrir næturgreiða. Ég
segi ekkert annað en það. Ég sá
vitaskuld að karlinn var snilling-
ur. Þú sýnir mér hvernig þú
blandar liti og málar. Getum við
ekki samið upp á þetta?“ Það
varð úr og ég sagði honum svo
góðar sögur að hann var alltaf
hlæjandi meðan hann málaði. Ég
stældi karlinn og helvíti gekk mér
það vel. Ég er skarpur.
Fleiri listmálarar komu og ég
hafði sömu aðferð við alla. Þetta
er lærdómurinn. Svo lærði ég
mest af sænskum prófessor.
Hann var kona, kennari við lista-
akademíu. Hún hringdi og vildi
fá herbergi leigt að Stapa. Ætlaði
að mála þar. Ég útvegaði her-
bergið og aðstoðaði á marga
vegu. Ég hafði sama hátt á, fékk
að horfa á hana vinna við mynd-
gerðina. Ég hef helvíti gott minni
skal ég segja þér og lærði alveg
hvernig þeir gerðu þetta meistar-
arnir. Jæja, svo kenndi hún mér
það æðsta sem til er í málaralist-
inni. Hún sagði: „Gefðu djöful-
inn í alla lærða og leika og mál-
aðu beint frá hjartanu. Þú átt að
varast lærdóminn því hann er eft-
iröpun.“
Var þessi ekki góður?
„Fyrst sýndi ég í Bogasalnum.
Átti margar myndir að vestan.
Kristján Eldjárn síðar forseti
íslands gaf mér leyfið. Útkoma
sýningarinnar varð sú, að ég
keypti Land Rover jeppa, nýjan
úr kassanum með díselvél. Takk
fyrir. Kona sem sá sýninguna og
hafði búið lengi í Bandaríkjunum
sagði um málverkin og málarann
mig: „Þetta er málað af svoleiðis
kjarki að ég er alveg hissa. Mál-
verkin eru skyld málverkum
ömmu Móses, en þetta er mörg-
um sinnum betur gert en hjá
henni.“ Var þessi ekki góður?“
Allt hamingjuleysi
er kraftleysi til að
þola ekki tilveruna
„ítalskur listmálari sagði eitt sinn
við mig. „Mikinn óhemju kjark
hefur þú Þórður, en ísland er of
lítið fyrir þig.“ Ég fór til London
í boði Loftleiða, til að halda mál-
verkasýningu. Þeir héldu að ég
gæti platað fólk til íslands. Ég
sýndi hjá aðalsmanni í höll
skammt frá konungshöllinni. Við
bjuggum í sendiherrabústað. Til
sýningarinnar var aðeins boðið
ríkustu mönnum Bretlands. Ég
var svo fínt klæddur að allir
héldu mig aðalsmann. Gunnar
Dal var hjálparkokkur minn og
túlkur. Ég var heppinn sem
alltaf. íslenska sendiráðið keypti
málverk og eigandi Dunlop verk-
smiðjunnar keypti tvö. Hann hélt
mér mikla veislu og þar sagði ég
höfðingjunum að þeir sem væru
búnir að missa trúna á lífið ættu
að koma til íslands. Eftir fimm
vikur á Islandi myndi þeim finn-
ast lífið bjart og göfugt. Á íslandi
er tærasta loftið og besta vatnið.
Ég minntist á ölkeldurnar og ein-
nig það að við jökla og fjöll væri
segulsvið jarðar það mikið að all-
ir hlæðust upp af orku. Allt ham-
ingjuleysi er kraftleysi til að þola
ekki tilveruna.“
*
Eg bætti í frásögnina
þremur ritum sem aldrei
voru sett á skinn
„Þeim bresku þótti málfarið lið-
ugt og spurðu. „Hvar er Þórður
skólagenginn?“ Þá sagði ég eftir
litla umhugsun, ég er fljótur að
hugsa: „Æðsti Háskóli íslands
hefur starfað í 1100 ár, en það er
íslenska baðstofan. Bestu og
merkustu rit jarðar voru þar
rituð, verk sem hafa selst fyrir
hundruð milljóna á uppboðum:
Ég taldi upp Eddurnar, íslend-
ingasögurnar, sögur Norðurlanda
og ég bætti í frásögnina þremur
ritum sem aldrei voru sett á
skinn. Ég sagði þessum heiðurs-
mönnum, að ef þessi Háskóli
baðstofunnar á íslandi hefði ekki
verið til þá hefðu konungar
Noregs og Svíþjóðar gleymst svo
og saga landanna, jafnvel hefði
saga lands þeirra og þjóðar
einnig gleymst. Þetta voru lærðir
menn og ég var spurður, hví þeir
þekktu ekki þessi rit. Ég var
fljótur að svara. Þær brunnu í
Árnasafni. Já ég bjargaði mér
fyrir horn sem oftast.
Einn þessara manna var með
hött, hann var frá Indlandi. Karl-
inn var greindur og vissi hvar
ísland var. Mikið urðu menn
hissa þegar íslendingurinn Gunn-
ar Dal ávarpaði manninn á ind-
versku. íslendingar eru allra
manna greindastir og skarpastir á
góðum stundum. Þegar veislunni
lauk var Gunnar spurður. „Hver
ert þú?“ Gunnar svaraði: „Ég er
þjónn og held á málverkaspjaldi
fyrir þennan stórmeistara." Já,
þar fékk helvítis refaskyttan
hólið.“
Hún var svo helvíti horuð
og ekki sem álfamær
„Ein fín frú, stóröðluð ekkja og
læknir, bauð mér í mat í höll
sína. Hún átti mikið málverka-
safn þar á meðal eftir listaprófess-
orinn manninn sinn, sem var auð-
vitað dauður. Hún var ung og
bróðir hennar bjó til matinn.
Jæja, svo fór að hún bauð mér
vetursetu og vildi kenna mér
ensku. Ég fór að athuga kven-
manninn, en hún var svo helvíti
horuð að ég þáði ekki boðið.
Sjáðu ég er vanur hraundröng-
um.
Eitt sinn var ég staddur undir
Búlandshöfða. Það var orðið
áliðið og ég sat undir geysiháu
bergi. Allt í einu veiti ég því
athygli, að stórkostlega fögur
kona gengur í áttina til mín. Ég
hef aldrei séð aðra eins fegurð og
var bergnuminn. Hún var í
afskaplega sérkennilegum kjól.
Litinn hafði ég aldrei séð og í
ofanáhlaupið var hann allt að því
gegnsær. Ég var djöfullega
búinn, í úlpugarmi, skítugur og
órakaður. Ég kastaði kveðju á
konuna og hún svaraði kveðju
minni vel og segir: „Má ekki
bjóða þér upp á hressingu?" Ég
hélt nú það og hún gengur af stað
og ég elti. Hún stefnir beint á
bergið og þegar við erum komin
upp að því, sé ég dyr. Við göng-
um inn og þar opnast mér heim-
ur, sem erfitt er að lýsa. Ég var
staddur í ægifögru herbergi. Fyrir
enda þess var gyllt hásæti og þar
setur hún mig niður á fínan stól.
Síðan ber hún mér eðalvín og
kræsingar, svo gómsætar að ég
hef aldrei smakkað annað eins.
Ég fylltist af orku og krafturinn
var meiri en ég hef fundið. Þegar
ég var orðinn mettur, kom hún til