Dagur - 22.12.1990, Side 3

Dagur - 22.12.1990, Side 3
Laugardagur 22. desember 1990 - DAGUR - 3 -i fréttir Framhaldsskólinn á Húsavík: Sex nemendur útskrifast - stúdent með frábæran námsárangur eftir sjö annir Framhaldsskólinn á Húsavík útskrifaði sex nemendur við hátíðlega athöfn í Húsavíkur- kirkju sl. fimmtudag, þar á meðal sinn fyrsta stúdent sem stundað hefur allt sitt stúdents- nám við skólann, Ernu Björns- dóttur. Skólinn hefur starfað alls í sjö annir og er þetta í sjötta sinn sem nemendur út- skrifast. Áður höfðu 29 nemendur útskrifast, 17 iðn- nemar, 9 af viðskiptabraut og 3 stúdentar. Auk Ernu útskrifaðist Birgitta Bjarney Svavarsdóttir með almennt verslunarpróf, Víðir Guðmundsson bakari og Áki Hauksson, Kjartan Jónsson og Sigmar Jónsson úr grunndeild rafiðnaðar. Erna hlaut fern bókavsrðlaun við útskriftina, þau voru fyrir frábæran námsárangur, íslensku, sérstaka ástundun náms og dugn- að og fórnfýsi við félagsmála- störf. Birgitta hlaut einnig bóka- verðlaun fyrir sérstaka ástundun við námið. Guðntundur Birkir Þorkels- son, skólameistari, sagði í ræðu sinni að skólastarfið væri að taka á sig hefðbundna mynd. Hann sagði frá nýbreytni í starfi skólans, kennslu þroskaheftra barna sem Jónína Hallgrímsdótt- ir annast og að þar ynni hún mik- ið brautryðjendastarf. Hann sagði frá öldungadeild á Raufar- höfn sem starfar undir verndar- væng skólans og þar stunduðu 58 nemendur nám á haustönn. Hann sagði einnig frá samvinnu framhaldsskólanna á Húsavík og Laugum unt Farskóla Þingey- inga, og leyfi sem skólinn hlaut í Útgerðarfélag Akureyringa hf.: „Árið hefur verið gott í alla staði“ sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Togarar Útgeröarfélags Akur- eyringa hf. eru að tínast inn. Kaldbakur kom inn sl. mið- vikudag með 90 tonn af blönduðum afla og þá eru aðeins tveir togarar Utgerðar- félagsins á sjó þ.e. Harðbakur og Sléttbakur. Togararnir koma til löndunar á Þorláks- messu. Nýi Sólbakur hefur verið í slipp, en búið er að mála skipið og það hefur feng- ið sína réttu liti. Nýir yfirmenn munu taka við skipinu um ára- mótin, en ekki fékkst uppgefíð hjá forstjórum Útgerðarfélags- ins hverjir það yrðu. „Nýi Sólbakur náði ekki kvóta sínum, en það vissum við í upp- hafi þegar skipið var keypt og kemur ekki á óvart. Útgerð skipsins hefur gengið samkvæmt áætlun og við erum ánægðir með gang mála. Nýir yfirmenn taka við skipinu um n.k. áramót, en ekki er hægt að gefa upp í dag hverjir það verða. Málið skýrist á næstu dögum,“ sagði Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA. Aflamarksskipin, Harðbakur, Kaldbakur og Sléttbakur fara til veiða milli jóla og nýárs, að sögn Gunnars, til að freista þess að fullnýta kvóta sinn. „Ég hef ekki á hraðbergi hvað vantar uppá að skipin nái kvóta, en við förum langleiðina. Árið hefur verið gott í alla staði,“ sagði Gunnar Ragnars. ój Frostrásin: „Hlustendur ánægðir og við útvörpum að ári“ „Undirtektir Akureyringa og Eyfírðinga eru mjög góðar. Síðastliðiö laugardagskvöld brunnu allar símalínur yfír, svo mikið var hringt,“ sagði Davíð Rúnar Gunnarsson einn Jólamót í ísrael: KSÍ hættir við Knattspyrnusamband íslands hefur ákveðið að hætta við þátttöku ú/16 ára landsliðsins í jólaknattspyrnumótinu í ísrael vegna aukinnar spennu á svæðinu. Knattspyrnusambönd Sviss, Þýskalands og Portúgal hafa hætt við þátttöku. Knattspyrnusam- band Svíþjóðar mun hins vegar taka þátt í mótinu. Utanríkisráðuneytið hefur mjög eindregið ráðlagt KSÍ að hætta við þátttöku. Ekki er talið ráðlegt að senda unga drengi til keppni við þessar aðstæður. aðstandenda Frostrásarinnar sem útvarpar allan sólarhring- inn frá Akureyri í desember. Að sögn Davíðs útvarpar Frostrásin ýmsum dagskrárliðum frá kl. 10.00 til 24.00, en ókynntri tónlist frá 24.00 til 10.00. Hlust- unarsvæðið er Akureyri og Eyjafjörðurinn að stórum hluta. „Við höfum verið í vandræð- um með þann sendi sem við feng- um hjá Pösti og síma. Svo virðist sem sveitirnar móttaki okkur, en hér á Akureyri eru svæði þar sem ekkert heyrist. Við höfum beðið starfsmenn Pósts og síma að líta til okkar og koma þessu í lag, en fáum alltaf sömu svörin. „Við komum á morgun." Enginn er kominn enn og nú styttist í að við hættum útsendingum. Gantlárs- dagur verður síðasti útsendingar- dagurinn. Okkur hefur gengið vel og skemmt okkur konung- lega. Hlustendur virðast vera ánægðir og Frostrásin fer aftur í loftið að ári þ.e. 1. desember,“ sagði Davíð Rúnar Gunnarsson. ój haust til að starfrækja sjúkraliða- braut í samvinnu við Sjúkrahúsið í Húsavík. Fyrirhugað er að nemendur hefji verklegt nám á næstu önn. Útskriftarathöfnin var hin hátíðlegasta. Einar Porbersson kennari las kvæði eftir Leo Tolstoy og Norman Dennis og Anna Lilja Karlsdóttir léku á trompeta. Nýstúdentin-n Erna Björns- dóttir er dóttir hjónanna Hall- fríðar Jónasdóttur og Björns Hólntgeirssonar, umboðsmanns Flugleiða á Húsavík. 1M Þessi fríði flokkur nemenda við Framhaldsskólann á Húsavík útskrifaðist frá skólanum sl. fimmtudag. Mynd: im Bæjarstjórn Akureyrar: Sala á eignarhlut bæjarins í Landsvirkjim könnuð Fulltrúar frá Landsvirkjun, Reykjavíkurborg, ríkinu og Akureyrarbæ hittust á Akur- eyri sl. mánudag. Efni fundar- ins voru fyrstu þreifíngar vegna hugsanlegrar sölu á eignarhlut - Akureyrarbæjar í Landsvirkjun. Eignarhlutur Akureyrarbæjar í Landsvirkjun er 5,475%. Halldór Jónsson bæjarstjóri segir að við- ræður þessar séu í beinu fram- haldi af málefnasamningi núver- andi bæjarstjórnarmeirihluta frá í vor. Stefnt hefur verið að fundi um þessi mál alllengi, en af ýmsum ástæðum var ekki hægt að halda hann fyrr. Engar ákvarðanir voru teknar aðrar en þær að næsti fundur verður haldinn í febrúar. „Efnislega er ekkert frá fund- inunt að segja annað en að þetta er komið af stað, og ntenn voru sammála um að skoða málin hver hjá sér og ræða saman á nýju ári,“ segir Halldór. Að sögn bæjarstjóra eru sölumöguleikar háðir ýmsum atriðum, t.d. því hvort santeignaraðilar bæjarins, ríkið og Reykjavíkurborg, sam- þykkja söluna. Þá er eftir að koma sér niður á verð sent menn Ei^narmatsmál Qárbænda í Húnaþingi: Ar liðið frá niðurskurði en ekkert mat enn komið sætti sig við, og síðast en ekki síst er ekki vitað hverjir rnuni hugs- anlega kaupa. „Það er búið að reifa þessa hluti, þetta voru vinsamleg skoðanaskipti og rabb,“ sagði Halldór að lokum um fundinn. Akureyrarbær eignaðist hlut í Landsvirkjun þegar Laxárvirkjun var afsöluð fyrirtækinu. Ríkið og Reykjavíkurborg eiga forkaups- rétt að hlut Akureyrarbæjar, en erfitt mun vera að gera sér grein fyrir hvers virði hann er. Talan einn til einn og hálfur ntilljarður króna hefur þó verið nefnd. Eignaraðild að Landsvirkjun er þannig háttað að kaupi annað hvort Reykjavíkurborg eða ríkið hlut Akureyrarbæjar, þá eignast sá aðili meirihluta í Landsvirkjun frá þeim tíma. EHB Ekki liggur enn fyrir mat Eign- armatsnefndar á fjárstofni Hjalta Jósefssonar, bónda að úrðarbaki í Þverárhreppi og Hauks Magnússonar Brekku í Sveinsstaðahreppi, en eins og fram hefur komið sættu þeir sig ekki við bætur frá ríkinu vegna riðuniðurskurðar haust- ið 1989. Fjárstofn Hjalta var skorinn niður þann 2. desember í fyrra og þá skaut hann málinu til Eignar- matsnefndar. Nefndin kom norð- ur í sumar og kannaði aðstæður. /----------------------------- Síðan hefur ekki til hennar heyrst. Hjalti sagði í samtali við Dag í gær að hann hefði fregnað það af gangi mála að nefndin hefði hug á að ganga frá matinu fyrir jól. Samkvæmt því mætti eiga von á því í lok þessarar viku. Bæði voru skorin niður lömb og fullorðið fé. Hjalti segir að matið nái aðeins til lambanna, en ekki hafi enn fengist greiðslur fyrir fullorðna féð. „Það hafa engar deilur staðið unt fullorðna féð, en þrátt fyrir það hafa þeir ekki viljað borga okkur,“ sagði Hjalti. óþh OPIÐ /' kvöld til kl. 23.00 Aðfangadag kl. 9-12 Lokað 27. desember GíeMeg jóC! Verndargripur Sets eftir Söru Hylton Þetta er þriðja bók Söru Hylton sem út kemur á íslensku. Ensk stúlka, dótt- ir fornleifafræðings er gædd yfirskilvitlegum hæfileika til að upplifa í draumum sínum, mörg þúsund ára atburði úr lífi egypskrar prinsessu. Verð aðeins kr. 1.900. Hörkuspennandi bók frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. Bókaútgáfan HILDUR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.